Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2010, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2010, Side 4
4 MIÐVIKUDAGUR 21. apríl 2010 FRÉTTIR Fyrrverandi forstjóri Baugs fékk lán frá Landsbankanum: Tryggvi fékk 305 milljónir Tryggvi Jónsson, endurskoðandi og fyrrverandi forstjóri Baugs sem hlaut tólf mánaða skilorðsbundinn dóm fyrir fjárdrátt og fleiri brot í Baugsmál- inu árið 2008, er á lista yfir þá starfs- menn Landsbankans sem fengu hvað hæst lán hjá bankanum. Listann er að finna í þriðja bindinu í skýrslu rann- sóknarnefndar Alþingis. Einkahlutafélag Tryggva, Sand- erson ehf., fékk samtals 305 milljón- ir króna að láni hjá Landsbankanum á árunum 2007 og 2008. Tryggvi hóf störf hjá bankanum síðla árs 2007 eft- ir að hafa fengið á sig dóm í héraðs- dómi í Baugsmálinu. Dómurinn var síðar staðfestur í Hæstarétti. Tryggvi hélt starfi sínu í Lands- bankanum eftir hrun og vann til skamms tíma í Nýja-Landsbankan- um við útlánastarfsemi. Hann var þó látinn taka pokann sinn í nóvem- ber árið 2008 eftir að talið var að hann hefði komið nálægt málum tengdum Jóni Ásgeiri Jóhannessyni eftir banka- hrunið. Vegna tengsla hans við Baug þótti þetta ekki heppilegt. ingi@dv.is Fékk dóm og vann í banka Tryggvi var ráðinn til Landsbankans eftir að hafa hlotið dóm í Baugsmálinu sem síðar var staðfestur í Hæstarétti. Hann fékk 305 milljónir lánaðar hjá bankanum. Gnúpur átti að vera með Heimildir DV herma að fjárfestinga- félagið Gnúpur hafi átt að taka þátt í kaupum Milestone og Einars Sveins- sonar á 8 prósenta hlut í Glitni sem síðar var settur inn í félagið Þátt Int- ernational á árinu 2007. Gnúpur átti að halda utan um 40 prósent hluta- fjár í sameiginlegu félagi og Mile- stone 40. Einar átti að eiga minna. Af einhverjum ástæðum duttu þessar hugmyndir upp fyrir og Gnúpur tók ekki þátt í fjárfestingunni með þeim. Væntanlega var ástæðan þeir erfið- leikar sem Gnúpur byrjaði að lenda í árið 2007. Gnúpur varð svo fyrsta íslenska fjárfestingafélagið til að fara á hliðina um áramótin 2007-2008. Ólafur varar við Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, varaði heimsbyggðina við frekari náttúruhamförum á Íslandi í breska fréttaskýringaþættinum Newsnight sem sýndur var á BBC á mánudagskvöldið. Þar átti forsetinn við mögulegar afleiðingar af gosi í Kötlu. Í viðtalinu sagði forsetinn, og bar mögulegt Kötlugos saman við gosið í Eyjafjallajökli. „Það sem við höfum séð undanfarna daga er að- eins sýnishorn af því sem gæti gerst þegar Katla gýs.“ Leiðrétting Í mánudagsblaði DV var greint frá lánveitingum Glitnis til starfs- manna bankans. Upplýsing- arnar um lánin voru teknar upp úr skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Lánin voru ofreiknuð í fréttinni þar sem talið var að töflur um lánveitingarnar í rann- sóknarskýrslunni á tilteknu ára- bili sýndu lánveitingar til starfs- mannanna á hverju ári. Töflurnar sýna hins vegar stöðuna á hverju ári en ekki lánveitingar einstök ár. Því voru lán til hvers starfsmanns sögð töluvert hærri en þau voru í raun í frétt DV. Fjárfestirinn Jón Ásgeir Jóhannes- son fór nýverið á Range Rover-bifreið til að skoða gosið við Eyjafjallajök- ul. Leigði hann sér síðan þyrlu til að fljúga yfir gossvæðið. Range Rover- bifreiðin sem Jón Ásgeir kom á er nú í eigu fjölmiðlafyrirtækisins 365 en var í hans eigu í fimm daga. Samkvæmt heimildum DV hefur Jón Ásgeir bílinn enn til afnota en Ari Edwald, forstjóri 365, segir í samtali við DV að enn sé óráðið hvað gera eigi við Range Rover-bifreið 365. Fimm eigendur á fimm árum Jón Ásgeir Jóhannesson lét skrá Range Rover-bifreið í sinni eigu á fjöl- miðlafyrirtækið 365 um síðustu mán- aðamót. Hafði glæsibifreiðin þá ein- ungis verið í eigu Jóns Ásgeirs í fimm daga. Bifreiðin er grár Range Rover ár- gerð 2005. Bíllinn virðist hafa flakkað á milli eigenda á síðustu árum. Árið 2005 var bíllinn keyptur af Baugi Group. Í febrúar 2009 var bíll- inn færður yfir á félagið Baugur Ís- land. Mánuði síðar var bíllinn síðan færður yfir á Haga þar sem Baugur var farinn á hausinn. Í lok mars á þessu ári færði Jón Ás- geir bifreiðina frá Hög- um yfir á sjálfan sig en líkt og flestir vita ætl- ar Arion banki að selja Haga í opnu hlutafjárút- boði. Ljóst er að umrædd Range Rover-bifreið verð- ur ekki lengur í eigu félags- ins þegar Hagar fara á markað. Sama dag og Jón Ásgeir færði bifreiðina yfir á sjálfan sig frá Hög- um seldi hann bifreiðina áfram til fjölmiðlafyrir- tækisins 365 en eigendaskiptin tóku fimm daga að ganga í gegn. Svo virðist sem Jón Ásgeir sé stöðugt að reyna að koma bílnum undan frá fyrirtækjum sínum þegar sig- ið hefur á ógæfuhliðina hjá þeim. Viðskipti milli Jóns Ásgeirs og 365 „Það voru gerð viðskipti milli Jóns Ásgeirs og 365 um Range Rover-bifreiðina. Það er ekkert meira um það að segja. Hann mun ekki hafa afnot af bílnum hjá okkur,“ seg- ir Ari Edwald, forstjóri 365. „Það er eng- inn eins og er,“ segir Ari aðspurður hver hafi af- not af bíln- um núna. Það verði þó ekki lengi. Mál bílsins sé í úrvinnslu hjá 365. „Annaðhvort skipti ég hon- um upp í önnur tæki sem okkur vant- ar eða einhvern annan bíl. Það er alltaf einhver hreyfing á tækjum hjá okkur,“ segir hann. Starfsmenn með bílahlunnindi Árið 2008 átti fjölmiðlafyrirtækið 365 um sextíu bíla og þar af voru ellefu bílar í höndum yfirstjórnar. Þar af var Range Rover-bifreið sem Ari ekur sjálfur ennþá á. Aðspurður hvort ein- hver fækkun hafi orðið í bílaflota fyr- irtækisins síðan árið 2008 segir Ari að líklega hafi bílunum fækkað um tvo eða þrjá. Það tíðkist ennþá að vissir starfsmenn innan fyrirtækisins hafi afnot af bílum sem hluta af starfskjör- um sínum. „Og það er ekki fyrirhuguð nein breyting á því,“ segir hann að lok- um. Þess má geta að bifreiðin sem Ari ekur um á kostaði sjö milljónir króna. Stjórnendur 365 velja Range Rover Svo virðist sem gráar Range Rover- bifreiðar séu í miklu uppáhaldi hjá eigendum og stjórnendum 365. Jón Ásgeir hefur keyrt um á bíln- um sem nú fór til 365 síðan árið 2005. Stefán Hilmarsson, yfirmaður fjár- málasviðs 365, ók um á gráum Range Rover þar til bíllinn brann á dularfull- an hátt í innkeyrslunni hjá honum og Friðriku Geirsdóttur á Laufásvegi í Reykjavík í ágúst í fyrra. Loks ekur Ari um á gráum Range Rover. Líkt og áður kom fram er þó alls óvíst hver fær Range Rover-inn sem keyptur var af Jóni Ásgeiri um síðustu mánaðamót. Grá Range Rover-bifreið sem Jón Ásgeir Jóhannesson hefur ekið um á síðan árið 2005 hefur verið færð á milli hans og fjögurra félaga í hans eigu síðustu fimm árin. Um síðustu mánaðamót var bíllinn færður til fjölmiðlafyrirtækisins 365. Ari Edwald, for- stjóri 365, segist ekki vita hvað 365 ætli að gera við Range Rover-bifreiðina. JÓN ÁSGEIR FORÐAR GLÆSIBIFREIÐ TIL 365 ANNAS SIGMUNDSSON blaðamaður skrifar: as@dv.is Á Range Rover að gosinu Jón Ásgeir Jóhannesson sást nýverið á Range Rover- bifreið í eigu 365 á leiðinni að skoða eldgosið við Eyjafjallajökul þar sem hann leigði sér síðan þyrlu til að skoða gosið. Glæsibifreið Bifreiðin sem Jón Ásgeir Jóhannesson hefur fært á milli fimm aðila undanfarin fimm ár er árgerð 2005 af Range Rover. „Það er enginn eins og er.“ Enginn á bílnum Ari Ed- wald, forstjóri 365, segist ekki vita hvað 365 ætli að gera við Range Rover-bifreiðina sem fyrirtækið keypti nýverið af Jóni Ásgeiri Jóhannessyni. Ari segir Jón Ásgeir ekki lengur hafa afnot af bílnum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.