Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2010, Qupperneq 4
4 MIÐVIKUDAGUR 21. apríl 2010 FRÉTTIR
Fyrrverandi forstjóri Baugs fékk lán frá Landsbankanum:
Tryggvi fékk 305 milljónir
Tryggvi Jónsson, endurskoðandi og
fyrrverandi forstjóri Baugs sem hlaut
tólf mánaða skilorðsbundinn dóm
fyrir fjárdrátt og fleiri brot í Baugsmál-
inu árið 2008, er á lista yfir þá starfs-
menn Landsbankans sem fengu hvað
hæst lán hjá bankanum. Listann er að
finna í þriðja bindinu í skýrslu rann-
sóknarnefndar Alþingis.
Einkahlutafélag Tryggva, Sand-
erson ehf., fékk samtals 305 milljón-
ir króna að láni hjá Landsbankanum
á árunum 2007 og 2008. Tryggvi hóf
störf hjá bankanum síðla árs 2007 eft-
ir að hafa fengið á sig dóm í héraðs-
dómi í Baugsmálinu. Dómurinn var
síðar staðfestur í Hæstarétti.
Tryggvi hélt starfi sínu í Lands-
bankanum eftir hrun og vann til
skamms tíma í Nýja-Landsbankan-
um við útlánastarfsemi. Hann var
þó látinn taka pokann sinn í nóvem-
ber árið 2008 eftir að talið var að hann
hefði komið nálægt málum tengdum
Jóni Ásgeiri Jóhannessyni eftir banka-
hrunið. Vegna tengsla hans við Baug
þótti þetta ekki heppilegt. ingi@dv.is
Fékk dóm og
vann í banka
Tryggvi var ráðinn til
Landsbankans eftir
að hafa hlotið dóm
í Baugsmálinu sem
síðar var staðfestur í
Hæstarétti. Hann fékk
305 milljónir lánaðar
hjá bankanum.
Gnúpur átti
að vera með
Heimildir DV herma að fjárfestinga-
félagið Gnúpur hafi átt að taka þátt í
kaupum Milestone og Einars Sveins-
sonar á 8 prósenta hlut í Glitni sem
síðar var settur inn í félagið Þátt Int-
ernational á árinu 2007. Gnúpur átti
að halda utan um 40 prósent hluta-
fjár í sameiginlegu félagi og Mile-
stone 40. Einar átti að eiga minna. Af
einhverjum ástæðum duttu þessar
hugmyndir upp fyrir og Gnúpur tók
ekki þátt í fjárfestingunni með þeim.
Væntanlega var ástæðan þeir erfið-
leikar sem Gnúpur byrjaði að lenda
í árið 2007. Gnúpur varð svo fyrsta
íslenska fjárfestingafélagið til að fara
á hliðina um áramótin 2007-2008.
Ólafur varar við
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti
Íslands, varaði heimsbyggðina við
frekari náttúruhamförum á Íslandi
í breska fréttaskýringaþættinum
Newsnight sem sýndur var á BBC á
mánudagskvöldið. Þar átti forsetinn
við mögulegar afleiðingar af gosi í
Kötlu. Í viðtalinu sagði forsetinn, og
bar mögulegt Kötlugos saman við
gosið í Eyjafjallajökli. „Það sem við
höfum séð undanfarna daga er að-
eins sýnishorn af því sem gæti gerst
þegar Katla gýs.“
Leiðrétting
Í mánudagsblaði DV var greint
frá lánveitingum Glitnis til starfs-
manna bankans. Upplýsing-
arnar um lánin voru teknar upp
úr skýrslu rannsóknarnefndar
Alþingis. Lánin voru ofreiknuð
í fréttinni þar sem talið var að
töflur um lánveitingarnar í rann-
sóknarskýrslunni á tilteknu ára-
bili sýndu lánveitingar til starfs-
mannanna á hverju ári. Töflurnar
sýna hins vegar stöðuna á hverju
ári en ekki lánveitingar einstök ár.
Því voru lán til hvers starfsmanns
sögð töluvert hærri en þau voru í
raun í frétt DV.
Fjárfestirinn Jón Ásgeir Jóhannes-
son fór nýverið á Range Rover-bifreið
til að skoða gosið við Eyjafjallajök-
ul. Leigði hann sér síðan þyrlu til að
fljúga yfir gossvæðið. Range Rover-
bifreiðin sem Jón Ásgeir kom á er nú í
eigu fjölmiðlafyrirtækisins 365 en var
í hans eigu í fimm daga.
Samkvæmt heimildum DV hefur
Jón Ásgeir bílinn enn til afnota en Ari
Edwald, forstjóri 365, segir í samtali
við DV að enn sé óráðið hvað gera eigi
við Range Rover-bifreið 365.
Fimm eigendur á fimm árum
Jón Ásgeir Jóhannesson lét skrá
Range Rover-bifreið í sinni eigu á fjöl-
miðlafyrirtækið 365 um síðustu mán-
aðamót. Hafði glæsibifreiðin þá ein-
ungis verið í eigu Jóns Ásgeirs í fimm
daga. Bifreiðin er grár Range Rover ár-
gerð 2005. Bíllinn virðist hafa flakkað
á milli eigenda á síðustu árum.
Árið 2005 var bíllinn keyptur af
Baugi Group. Í febrúar 2009 var bíll-
inn færður yfir á félagið Baugur Ís-
land. Mánuði síðar var bíllinn síðan
færður yfir á Haga þar sem Baugur
var farinn á hausinn. Í lok mars
á þessu ári færði Jón Ás-
geir bifreiðina frá Hög-
um yfir á sjálfan sig en
líkt og flestir vita ætl-
ar Arion banki að selja
Haga í opnu hlutafjárút-
boði. Ljóst er að umrædd
Range Rover-bifreið verð-
ur ekki lengur í eigu félags-
ins þegar Hagar fara á
markað. Sama dag
og Jón Ásgeir færði
bifreiðina yfir á
sjálfan sig frá Hög-
um seldi hann
bifreiðina áfram
til fjölmiðlafyrir-
tækisins 365 en
eigendaskiptin
tóku fimm daga
að ganga í gegn.
Svo virðist
sem Jón Ásgeir
sé stöðugt að
reyna að koma
bílnum undan
frá fyrirtækjum sínum þegar sig-
ið hefur á ógæfuhliðina hjá þeim.
Viðskipti milli
Jóns Ásgeirs og 365
„Það voru gerð viðskipti milli Jóns
Ásgeirs og 365 um Range
Rover-bifreiðina. Það
er ekkert meira
um það að segja.
Hann mun ekki
hafa afnot af
bílnum hjá
okkur,“ seg-
ir Ari Edwald,
forstjóri 365.
„Það er eng-
inn eins og
er,“ segir Ari
aðspurður
hver hafi af-
not af bíln-
um núna.
Það verði þó
ekki lengi. Mál bílsins sé í úrvinnslu
hjá 365. „Annaðhvort skipti ég hon-
um upp í önnur tæki sem okkur vant-
ar eða einhvern annan bíl. Það er alltaf
einhver hreyfing á tækjum hjá okkur,“
segir hann.
Starfsmenn með bílahlunnindi
Árið 2008 átti fjölmiðlafyrirtækið 365
um sextíu bíla og þar af voru ellefu
bílar í höndum yfirstjórnar. Þar af
var Range Rover-bifreið sem Ari ekur
sjálfur ennþá á. Aðspurður hvort ein-
hver fækkun hafi orðið í bílaflota fyr-
irtækisins síðan árið 2008 segir Ari að
líklega hafi bílunum fækkað um tvo
eða þrjá. Það tíðkist ennþá að vissir
starfsmenn innan fyrirtækisins hafi
afnot af bílum sem hluta af starfskjör-
um sínum. „Og það er ekki fyrirhuguð
nein breyting á því,“ segir hann að lok-
um. Þess má geta að bifreiðin sem Ari
ekur um á kostaði sjö milljónir króna.
Stjórnendur 365
velja Range Rover
Svo virðist sem gráar Range Rover-
bifreiðar séu í miklu uppáhaldi hjá
eigendum og stjórnendum 365.
Jón Ásgeir hefur keyrt um á bíln-
um sem nú fór til 365 síðan árið 2005.
Stefán Hilmarsson, yfirmaður fjár-
málasviðs 365, ók um á gráum Range
Rover þar til bíllinn brann á dularfull-
an hátt í innkeyrslunni hjá honum og
Friðriku Geirsdóttur á Laufásvegi í
Reykjavík í ágúst í fyrra. Loks ekur Ari
um á gráum Range Rover. Líkt og áður
kom fram er þó alls óvíst hver fær
Range Rover-inn sem keyptur var af
Jóni Ásgeiri um síðustu mánaðamót.
Grá Range Rover-bifreið sem Jón Ásgeir Jóhannesson hefur ekið um á síðan árið 2005
hefur verið færð á milli hans og fjögurra félaga í hans eigu síðustu fimm árin. Um
síðustu mánaðamót var bíllinn færður til fjölmiðlafyrirtækisins 365. Ari Edwald, for-
stjóri 365, segist ekki vita hvað 365 ætli að gera við Range Rover-bifreiðina.
JÓN ÁSGEIR FORÐAR
GLÆSIBIFREIÐ TIL 365
ANNAS SIGMUNDSSON
blaðamaður skrifar: as@dv.is
Á Range Rover að gosinu Jón Ásgeir
Jóhannesson sást nýverið á Range Rover-
bifreið í eigu 365 á leiðinni að skoða
eldgosið við Eyjafjallajökul þar sem hann
leigði sér síðan þyrlu til að skoða gosið.
Glæsibifreið Bifreiðin sem Jón Ásgeir
Jóhannesson hefur fært á milli fimm
aðila undanfarin fimm ár er árgerð 2005
af Range Rover.
„Það er enginn eins og er.“
Enginn á bílnum Ari Ed-
wald, forstjóri 365, segist ekki
vita hvað 365 ætli að gera við
Range Rover-bifreiðina sem
fyrirtækið keypti nýverið af
Jóni Ásgeiri Jóhannessyni. Ari
segir Jón Ásgeir ekki lengur
hafa afnot af bílnum.