Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2010, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2010, Qupperneq 8
8 MIÐVIKUDAGUR 21. apríl 2010 FRÉTTIR „Ég er búinn að vera lengi í þessu og hef gífurlega þekkingu og reynslu svo ég get ekki annað en haldið áfram,“ segir Júlíus Már Baldursson að Tjörn á Vatnsnesi en hænsnabú Júlíusar, stærsta landnámshænsnabú landsins, brann til kaldra kola þann 28. mars síðastliðinn. Yfir 200 hænur brunnu inni, 25 kynbótahanar, 970 egg og 147 ung- ar. „Eggin voru þremur dögum frá því að klekjast og ég var farinn að heyra í ungunum. Allir fjórir heimiliskett- irnir fóru líka. Það er varla hægt að lýsa þessu. Mér leið eins og ég væri í rússibana alla nóttina - horfði bara á bálið og gat ekkert gert,“ segir Júlíus sem segir að sér hafi létt þegar fyrstu bláu ljósin hafi birtst í myrkrinu. „En slökkviliðið var lengi á leiðinni enda langur akstur frá Hvammstanga. Það er þó ekki við slökkviliðið að sakast enda stóð það vel við sitt.“ Atburðurinn hafði mikil áhrif á Júlí- us sem þó er allur að koma til. „Þetta eru slæmar minningar sem ég kem til með að lifa með en líkt og með önnur óhöpp stend ég sterkari fyrir vikið ef eitthvað er. Það var erfitt að horfa upp á dýrin og fuglana fara svona og sjá öll þessi ár fara í súginn en lífið heldur áfram og það þýðir ekkert að leggjast í þunglyndi. Maður verður að halda áfram og horfa fram á við.“ Móðir og systir Júlíusar hafa opnað styrktarreikning fyrir Júlíus sem vissi ekki af söfnuninni fyrr en eftir á. Hann er þó þakklátur enda dýrt að byrja upp á nýtt nú þegar allt hefur hækkað. Þeir sem vilja styrkja Júlíus Má geta lagt inn á reikning kt.  011260-2259 í banka 1105-15-200235. indiana@dv.is Stærsta landnámshænsnabú landsins verður byggt upp aftur eftir bruna: Sárt að horfa á dýrin fara svona Mikill missir Yfir 200 hænur, 25 kynbótahanar, 147 ungar og tæplega þúsund egg sem voru að því komin að klekjast brunnu í stórbrunanum í mars. MYND FEYKIR.IS Tæplega helmingur þeirra lána sem Landsbankinn veitti starfsmönn- um sínum rann til Guðmundur Péturs Davíðssonar, bróðursonar Björgólfs Guðmundssonar. Þetta kemur fram í skýrslu rannsókn- arnefndar Alþingis. Samtals veitti bankinn starfsmönnum sínum lán sem námu um 2 milljörðum króna en 800 milljónir af þessari upphæð runnu til Guðmundar Davíðs. Björ- gólfur var aðaleigandi bankans og stjórnarformaður hans. Annars var það almennt séð frek- ar sjaldgæft í Landsbankanum að starfsmenn fengju lán í eigin nafni eða í nafni eignarhaldsfélaga sinna en í þeim tilfellum sem það var gert fóru um 40 prósent lánanna til áð- urnefnds Guðmundar. Um þetta segir í skýrslunni: „Landsbankinn lánaði alls tæplega 2 milljarða króna til starfsmanna sem fengu meira en 100 milljónir að láni hver. Um 40% þeirra lána sem Landsbankinn veitti starfsmönnum sínum gengu til Guðmundar Péturs Davíðsson- ar. Hann er bróðursonur Björgólfs Guðmundssonar. Lán Guðmundar og eignarhaldsfélags hans, Brim- holts, stóðu í tæplega 800 milljón- um króna í lok september 2008.“ Vék af fundum Lánveitingarnar til frænda Björgólfs eru áhugaverðar í því ljósi að Björ- gólfur Guðmundsson var þriðji á listanum yfir mestu áhættuskuld- bindingar Landsbankans - efstur var Björgólfur Thor Björgólfsson og tengd félög og þar á eftir kom fjár- festingafélagið Gaumur og tengd félög - og kemur fram í skýrslunni að hann hafi alltaf vikið af fundum stjórnar Landsbankans þegar rætt var um lánafyrir- greiðslu til hans og tengdra að- ila. Þetta var væntanlega gert til að tryggja gagn- sæi við afgreiðslu á lánum og til að ganga úr skugga um að hlutlægni væri gætt. Um þetta segir til dæmis í skýrsl- unni, og er tilvitnunin tekin upp úr fundargerð Landsbankans: „For- maður bankaráðs [Björgólfur Guð- mundsson, innsk. blaðamanns] og Þór Kristjánsson yfirgáfu nú fund- inn vegna tengsla við næstu dag- skrármál. Kjartan Gunnarsson stýrði fundi.“ Í kjölfarið samþykkti stjórnin þrenns konar lánafyrir- greiðslu til Björgólfs Guðmunds- sonar og tengdra félaga, meðal annars tæplega 400 milljóna króna kúlulán. Lesendur skýrslu rann- sóknarnefnd- ar Alþing- is eru svo látnir geta sér þess til hvort brott- hvarf Björgólfs af stjórnarfundum hafi í reynd skipt miklu máli þegar lánveitingar til hans og tengdra að- ila voru ákveðnar. Á einum stað í skýrslunni segir líka að Björgólfur hafi ákveðið að vera með skrifstofu á milli bankastjóranna tveggja, Sig- urjóns Þ. Árnasonar og Halldórs J. Kristjánssonar. Rekinn frá Eimskipi Guðmundur Pétur starfaði reynd- ar ekki í Landsbankanum þar til í bankahruninu 2008 því hann lét af störfum þar árið 2007. Þá tók hann við starfi sem framkvæmdastjóri Eimskips á Íslandi en félagið var í eigu Björgólfs Guðmundssonar líkt og Landsbankinn. Guðmund- ur hafði verið framkvæmdastjóri eignarhaldsfélags Björgólfs, Grett- is, sem varð stærsti hluthafinn í Eimskipafélaginu með yfirtöku þess síðarnefnda á skipafélag- inu árið 2007. Stærstur hluti af lánveit- ingum Landsbankans til Guðmundar var veittur eftir að hann hætti hjá Landsbankanum. Guðmundur fékk 119 milljóna króna lán persónulega hjá Lands- bankanum árið 2006 og 100 millj- ónir árið á eftir. Eignarhaldsfélag hans, Brimholt, fékk svo 269 millj- ónir í lán árið 2007 og námu heild- arskuldir félagsins við Landsbank- ann 564 milljónum árið 2008. Guðmundur var rekinn frá Eim- skipafélaginu sumarið 2009, eft- ir bankahrunið, þegar fyrir lá að þáverandi eigendur þess myndu ekki halda yfirráðum yfir því og að félagið færi í nauðasaminga eða yrði gjaldþrota. Þegar nauða- samningar Eimskipafélagsins voru samþykktir í ágúst lá ljóst fyrir að skilanefnd gamla Landsbankans þyrfti að afskrifa um 60 milljarða króna af óveðtryggðum kröfum sínum á hendur Eimskipafélagi Ís- lands. Þetta voru lán sem veitt voru í tíð Björgólfs Guðmundssonar hjá Landsbankanum og að hluta í framkvæmdastjóratíð Guðmundar Péturs. FRÆNDI FÉKK HÆSTU LÁNIN Frændi Björgólfs Guðmundssonar var sá starfsmaður Landsbankans sem fékk hæstu lánin. Björgólfur Guðmundsson og Björgólfur Thor voru tveir af þremur stærstu skuldurum bankans. Björgólfur vék alltaf af fundum þegar lánveitingar til hans voru ræddar. Frændi Björgólfs var settur af hjá Eimskipi eftir hrun. INGI F. VILHJÁLMSSON fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is Frændi Björgólfs skuldaði mest Náfrændi Björgólfs Guðmundsson- ar var sá starfsmaður bankans sem fékk hvað hæst lán hjá bankanum. Formaður bankaráðs [Björgólfur Guð- mundsson, innsk. blaðamanns] og Þór Kristjánsson yfirgáfu nú fund- inn vegna tengsla við næstu dag- skrármál. Lánveitingar til Guðmundar Péturs samkvæmt skýrslunni: Guðmundur Pétur Davíðsson / Guðmundur Pétur Davíðsson 219 milljónir Brimholt ehf. / Guðmundur Pétur Davíðsson 564 mlljónir Lán Guðmundar Ekki þvingaður Ekkert bendir til þess að maður sem innbyrti stíflueyði í sam- kvæmi á höfuðborgarsvæðinu aðfaranótt laugardags hafi verið þvingaður til þess. Friðrik Smári Björgvinsson, yfirmaður rann- sóknardeildar lögreglunnar, sagði í samtali við fréttastofu Ríkisút- varpsins að allir sem voru í sam- kvæminu hefðu verið yfir heyrðir nema maðurinn sem drakk stíflu- eyðinn. Hann liggur enn á gjör- gæsludeild Landspítalans og er í lífshættu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.