Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2010, Page 9
FRÉTTIR 21. apríl 2010 MIÐVIKUDAGUR 9
„MENN VORU
STÓRHUGA“
Fasteignafélagið Saxbygg fékk rúmlega tveggja milljarða króna lán frá Glitni í nóvember árið 2007 sem átti að
nota til að endurbyggja tvær íbúðablokkir í Berlín. Verkefnið var kallað Berlin Tower og átti að vera með 272
íbúðum. Einnig átti að endurbyggja gamla skrifstofubyggingu Stazi í borginni. Ekkert varð af verkefnunum.
Samkvæmt fundargerð lánanefnd-
ar Glitnis frá því í nóvember árið
2007, sem birtist í skýrslu rann-
sóknarnefndar Alþingis, óskaði
fjárfestingafélagið Saxbygg eftir 25
milljónum evra að láni til bygg-
ingaverkefna í Berlín. Í fundargerð-
inni segir að Saxbygg sé með þrjú
verkefni í gangi. „Í fyrsta lagi er það
verkefni sem gengur undir nafninu
Berlin Tower. Það eru tveir turnar
sem verða með 272 íbúðum þegar
framkvæmdum verður lokið. Verk-
efni númer tvö gengur undir nafn-
inu Stazi-byggingin og er skrifstofu-
bygging sem var notuð af Stazi að
einhverju leyti. Þá eign verður að
strippa niður og byggja upp frá út-
veggjum. Þriðja verkefnið er tvær
eignir sem eru að samanlögðu verð-
mæti um 3€ m sem þá vantar fjár-
mögnun á.“
Lánið verður greitt
Björn Ingi Sveinsson, fyrrverandi
framkvæmdastjóri Saxbyggs, seg-
ir að félagið hafi einungis fengið
4,3 milljónir evra af láninu – pen-
inga sem að hans sögn fóru í Berlin
Tower-verkefnið. „Þetta er nú kom-
ið í hendurnar á öðrum eigendum
en ég veit bara af því að þetta lán við
Glitni sem var á gjalddaga 30. mars
verður greitt í lok þessa mánaðar, en
þeir fengu mánaðarframlengingu.
Það voru aldrei nein lán tekin fyr-
ir Stazi-húsinu og varðandi þriðja
verkefnið þá var það ekki fjármagn-
að af Glitni heldur voru lán tekin í
þýskum banka,“ segir Björn Ingi.
Vont að vera Íslendingur
Þegar Björn Ingi er spurður að því
hvort fyrirtækið hafi byrjað fram-
kvæmdir á turnunum í Berlín segir
hann svo vera. „Það reyndist nú vera
þannig að þegar átti að fara að end-
urfjármagna kúluna var orðið vont
að vera Íslendingur – það varð ekk-
ert við það ráðið og það varð bara að
setja þetta í hendurnar á öðrum að-
ilum sem gátu þá og eru vonandi að
klára þau mál.“
Allur heimurinn í tómu tjóni
Að sögn Björns Inga var verkefnið
selt til þýskra aðila sem hann vill ekki
gefa upp hverjir eru. Hann vill held-
ur ekki gefa upp kaupverðið. „Þetta
er bara í ákveðnum farvegi. Það er
allur heimurinn í tómu tjóni. Það
skiptir ekki máli hvar þú berð nið-
ur, hvort það er á Þýskalandi, Eng-
landi eða um allan heim. Alls staðar
eru fasteignamarkaðir komnir nið-
ur í skítinn, en það voru einmitt þeir
markaðir sem við vorum að vinna
í,“ segir Björn Ingi en turnarnir sem
Saxbygg ætlaði að endurbyggja eru
nokkuð frægir. Óskarsverðlauna-
myndin Das Leben der Anderen var
tekin að hluta til upp í turnunum.
Menn voru stórhuga
Á heimasíðu þýsku arkitektastof-
unnar Baumgart Becker eru myndir
af turnunum. „Þetta fyrirtæki vann
arkitektavinnuna fyrir okkur, en svo
reyndist ekki vera hægt að fjármagna
verkefnið eins og þeir lögðu það upp.
Við hættum því við að fara í þetta
með þeim hætti. Menn voru stórhuga
á þessum tíma og ætluðu að gera
þetta voðalega flott, en þegar láns-
fjármagn gekk til þurrðar var það ekki
hægt,“ segir Björn Ingi.
Seldu erlendar eignir
Saxbygg skilur eftir sig slóð skulda en
félagið tapaði 23,6 milljörðum króna
árið 2008 og skuldaði 12,6 milljarða
þegar það var tekið til gjaldþrota-
skipta í maí í fyrra. Erlendar eignir
félagsins voru seldar vorið 2008 og
þar á meðal turnarnir í Berlín. Björn
Ingi sagðist ekkert geta tjáð sig um
þessi mál þar sem þau væru í sínum
venjulega farvegi hjá skiptastjóra.
Aðspurður hvort eignum hafi verið
komið undan með þessum gjörning-
um segir hann. „Nei, ertu frá þér?
Eins og kom fram í yfirlýsingu frá
mér var verið að bjarga eignum. Ís-
lensk félög sem voru í fjárfestingum
erlendis stóðu nú ekkert voðalega vel
eftir að búið var að lýsa Landsbank-
ann sem hryðjuverkabanka og menn
vissu bara ekkert hvert framhaldið
yrði.“
JÓHANNES KRISTJÁNSSON
blaðamaður skrifar: johanneskr@dv.is
Menn voru stór-huga á þessum
tíma og ætluðu að gera
þetta voðalega flott, en
þegar lánsfjármagn þorn-
aði þá var það ekki hægt.
Óskarsverðlaunamynd Sumir kannast
við blokkirnar úr óskarsverðlaunamynd-
inni Das Leben der Anderen.
Berlin Tower Blokkirnar sem
Saxbygg ætlaði að endurbyggja
í Berlín áttu að hýsa 272 íbúðir.
Karli Wernerssyni, stofnanda og eins
aðaleiganda Milestone, hefur verið
stefnt vegna hrossaskíts. Hann hef-
ur hafnað að borga reikning hrossa-
ræktandans Antons Ásgríms Kristins-
sonar fyrir vinnu við að hreinsa út úr
hestastíum auðmannsins. Fyrir vikið
stefndi Anton Ásgrímur honum.
Reikningur Antons Ásgríms snýr
að haugkeyrslu og hreinsun hrossa-
stía í eigu Karls. Áður hafði sá fyrr-
nefndi selt einkahlutafélagi í eigu
Karls, félaginu Hætti ehf., jörðina Efri-
Rauðalæk. Eftir söluna tók Anton að
sér hrossaumsýslu fyrir Karl og eftir
því sem DV kemst næst heldur Karl
því fram að umsýslan hafi verið inni-
falin í jarðarkaupunum. Því er Ant-
on Ásgrímur ósammála og fer fram á
tæpa hálfa milljón í greiðslu fyrir að
hreinsa upp hrossaskít fjárfestisins.
Það kemur til kasta dómstóla að skera
úr um hvort Karli beri að greiða fyrir
þessa vinnu eða ekki.
Verði Karl fundinn sekur er það
ekki í fyrsta sinn sem svo er því hann
hefur áður verið dæmdur, bæði í hér-
aðsdómi og í Hæstarétti, fyrir skatta-
lagabrot. Þá var hann ákærður, árið
1998, fyrir að standa ekki í skilum
með virðisaukaskatt þegar hann var
framkvæmdastjóri Tölvukaupa. Sam-
kvæmt lýsingu dómsins skilaði hann
hvorki inn skattskýrslu né greiddi
skatt á tilsettum tíma. Héraðsdómur
dæmdi hann í skilorðsbundið tveggja
mánaða fangelsi og til greiðslu tæp-
lega 3,5 milljóna í sekt. Hæstiréttur
dró heldur úr refsingunni, sektin fór
niður í 100 þúsund krónur og 20 daga
fangelsi yrði sektin ekki greidd.
trausti@dv.is
Hrossaræktandi stefnir auðmanni fyrir ógreiddan reikning vegna hrossaumsjónar:
Karli stefnt vegna hrossaskíts
Katla gæti
vaknað
Haraldur Sigurðsson eldfjalla-
fræðingur sagði í viðtali í fréttum
Stöðvar 2 á þriðjudag að taka
yrði mjög alvarlega vísbending-
ar um að gos í Eyjafjallajökli gæti
hleypt Kötlu af stað. Haft er eftir
Haraldi að slík systragos hafi þó
öll verið lítil. Eldgosið í Eyjafjalla-
jökli virðist nú vera að breytast úr
öskugosi í hraungos, en það gæti
staðið mánuðum saman að mati
Haraldar.