Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2010, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 21. apríl 2010 MIÐVIKUDAGUR 11
OXYTARM
Endurnærir og hreinsar ristilinn
Allir dásama OXYTARM
Í boði eru 60-150 töflu skammtar
DETOX
30days&
Betri apótekin og Maður lifandi www.sologheilsa.is.
Losnið við hættulega kviðfitu og
komið maganum í lag með því að
nota náttúrulyfin Oxytarm og
30 days saman -120 töflu skammtur -
FÉLAG GUÐJÓNS
Í KVÓTABRASKI
„Ég hef ekkert verið að hagnast á
þessu og út úr þessu fyrirtæki hef-
ur aldrei verið greiddur arður,“ seg-
ir Kristján Andri Guðjónsson, sonur
Guðjóns Arnars Kristjánssonar, fyrr-
verandi alþingismanns, en saman
eiga þeir feðgar fimmtíu prósent í út-
gerðarfélaginu Öngli ehf., sem gerir
út bátinn Björgu Hauks ÍS-33. „Ég vil
að það komi skýrt fram að faðir minn
hefur aldrei komið nálægt dagleg-
um rekstri fyrirtækisins. Ég hef aldrei
spurt hann ráða varðandi það þegar
ég hef verið að leigja til mín eða frá
mér kvóta – það er ekki hans að sjá
um það.“
200 tonna kvóti
Útgerðarfélagið Öngull ehf. er skráð
fyrir rúmlega 200 tonna þorskígild-
iskvóta. Í ársreikningum fyrirtæk-
isins kemur fram undir tekjuliðum
að kvóti hafi verið leigður frá fyrir-
tækinu á árunum 2007 til 2009 fyr-
ir tæpar 16 milljónir króna. „Við
misstum skip og tvo menn árið
2007 og vorum þar af leiðandi úr
leik í tvo til þrjá mánuði. Í kjölfar-
ið keypti ég bát sem ég ætlaði að
nota, en leist svo ekki á hann og ræ
á honum núna á grásleppu. Haust-
ið 2007 keypti ég svo Björgu Hauks
sem ég geri út núna. Það voru mikl-
ar kvótafærslur á milli bátanna á
þessum tíma vegna slyssins,“ segir
Kristján Andri.
Aðspurður hvort hann hafi leigt
kvóta út úr fyrirtækinu segist Krist-
ján Andri hafa neyðst til þess. „Ég
varð náttúrulega einhvern veg-
inn að halda rekstrinum gangandi
meðan ég var bátlaus í tvo eða þrjá
mánuði,“ segir hann en árið 2007
leigði fyrirtækið frá sér kvóta fyrir
tæpar 5,5 milljónir króna.
Vélin eyðilagðist
Árið 2008 eyðilagðist vélin í Björgu
Hauks að sögn Kristjáns. „Þetta
gerðist akkúrat í bankahruninu og
enga peninga var að hafa og rekst-
urinn var stopp. Ég hafði um tvo
kosti að velja, annaðhvort að leigja
frá mér aflaheimildir eða pakka
saman. Mér fannst illskásti kostur-
inn að leigja frá mér kvótann svo
ég ætti fyrir nýrri vél,“ segir hann
en það ár voru tekjurnar af útleigð-
um kvóta rúmar 6,5 milljónir króna.
Árið 2009 voru tekjurnar af kvóta-
leigu tæpar fjórar milljónir.
Miklar skuldir
Kristján Andri segir að ástandið
hjá fyrirtækinu sé erfitt og skuld-
irnar miklar. „Ef við hefðum viljað
selja kvótann frá okkur árið 2007 þá
hefðum við getað náð 150 milljón-
um á haus út úr þessu, miðað við
skuldir og eignir á þeim tíma. Við
höfum aldrei velt því fyrir okkur að
selja og héldum áfram að gera bát-
inn út. Svo féll allt draslið – krónan
og bankarnir og í dag skuldar fyr-
irtækið um 270 milljónir króna og
eignirnar eru horfnar. Það sem var
sjötíu prósent eign í fyrirtækinu er
núll í dag,“ segir Kristján en megn-
ið af skuldunum er tilkomið vegna
kaupa á kvóta og tækjum.
Dæmdir úr leik
„Þetta eru leikreglurnar og eft-
ir þeim spilar maður,“ segir hann.
Kvótakerfið sé þannig uppbyggt að
ef menn spili ekki með kerfinu þá
séu menn dæmdir úr leik. Aðspurð-
ur hvort honum finnist það siðlaust
af föður hans að vera hluthafi í fyr-
irtæki sem leigi frá sér kvóta svarar
Kristján: „Hann er búinn að eiga í
þessu fyrirtæki frá því löngu áður
en hann varð alþingismaður, eða
frá árinu 1991.“
Sigurjón Þórðarson, nýkjörinn
formaður Frjálslynda flokksins,
segir kvótakerfið búa til vafasama
gjörninga og að mennirnir sem
starfi við útgerð starfi við reglur sem
henti ekki atvinnugreininni. „Ég er
samt ekkert að afsaka það sem er
gert, en hvort sem það er brottkast
eða að leigja frá sér aflaheimildir
þá er einfaldlega mikill hvati til að
starfa óeðlilega við kvótakerfið. Að-
spurður hvort hann telji það sið-
laust að einarður talsmaður gegn
kvótabraski sé hluthafi í fyrirtæki
sem leigi frá sér kvóta svarar Sigur-
jón: „Þetta tvennt fer ekki saman.“
Guðjón Arnar Kristjánsson seg-
ir að menn verði að spila í kvóta-
kerfinu eins og það er og segist gera
ráð fyrir því að fyrirtækið hafi einn-
ig leigt til sín kvóta. Hann hafi ekki
tekið neinn þátt í rekstri fyrirtækis-
ins og hafi enga afkomu af rekstri
þess. Nánar verður rætt við Guðjón
Arnar um málið í helgarblaði DV.
JÓHANNES KRISTJÁNSSON
blaðamaður skrifar: johanneskr@dv.is
Aðspurður hvort hann telji það
siðlaust að einarður
talsmaður gegn kvóta-
braski sé hluthafi í fyr-
irtæki sem leigi frá sér
kvóta svarar Sigurjón:
„Þetta tvennt fer ekki
saman.“
Fyrirtæki sem Guðjón Arnar Kristjáns-
son, fyrrverandi alþingismaður og for-
maður Frjálslynda flokksins, á fjórðungs-
hlut í leigði út kvóta fyrir tæpar sextán
milljónir árin 2007 til 2009. Guðjón Arnar
hefur um árabil talað mjög gegn kvóta-
braski. Nýr formaður Frjálslynda flokks-
ins segir þetta tvennt ekki fara saman.
Fyrirtækið skuldar rúmar 270 milljónir.
Pabbinn Guðjón Arnar verður í sérstakri
yfirheyrslu DV í næsta helgarblaði um útleigu á
kvóta frá fyrirtæki í fjórðungseigu hans.
Sonurinn Kristján Andri Guðjónsson
segir föður sinn Guðjón Arnar Kristjánsson,
fyrrverandi formaður Frjálslynda flokksins,
aldrei hafa skipt sér af rekstri fyrirtækisins og
engan arð fengið út úr því.