Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2010, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 21. apríl 2010 FRÉTTIR
Bjarni Ármannsson, fyrrverandi
forstjóri Glitnis, er vændur um
óeðlilega viðskiptahætti ásamt
nokkrum af samstarfsmönnum
bankans í skýrslu rannsóknar-
nefndar Alþingis. Talið er mögu-
legt samkvæmt skýrslunni að
hagsmunaárekstrar hafi kom-
ið upp í viðskiptum Bjarna og
samstarfsmanna hans vegna
viðskipta við eignarhaldsfélagið
Milestone árið 2005. Um þetta
mál er rætt í fjórða bindi skýrslu
rannsóknarnefndar Alþingis.
Seldu til Milestone
og fengu lán
Gagnrýni rannsóknarnefndar-
innar snýst um það að tólf dög-
um áður en tilkynnt var um að
helstu stjórnendur Glitnis, með-
al annars Bjarni Ármannsson,
hefðu keypt hlutabréf í Íslands-
banka með lánveitingum frá
dótturfélagi Milestone og Kaup-
þingi seldi bankinn 66 prósenta
hlut í tryggingafélaginu Sjóvá
til Milestone og lánaði félaginu
fyrir rúmlega 50 prósentum af
kaupverðinu. Kaupþing lánaði
fyrir 80 prósentum af kaupverði
bréfanna og Milestone fyrir 20
prósentum. Samtals námu lán-
veitingar rúmum 2,5 milljörð-
um króna samkvæmt skýrslunni.
Þar af námu lánin frá Milestone
rúmum 500 milljónum króna.
Þetta er gagnrýnt nokkuð
harkalega í skýrslu rannsókn-
arnefndarinnar: „Í ljósi lánveit-
inga Milestone Import Export til
stjórnenda Íslandsbanka er vert
að huga að hagsmunum eigenda
Milestone hf. árið 2005 gagn-
vart bankanum og hugsanlegum
hagsmunaárekstrum sem orðið
gátu á milli Milestone hf. og yfir-
stjórnar bankans.“
Þeir stjórnendur Glitnis sem
keyptu bréf í bankanum með
lánveitingum frá Kaupþingi
og Milestone í maí á genginu
13,41 seldu þau þremur mán-
uðum síðar á genginu 15,25.
Allir gerðu þeir þetta nema Ein-
ar Sveinsson, formaður banka-
ráðsins.
Græddu tugi milljóna
Stjórnendurnir græddu því
nokkuð á hlutabréfaviðskipt-
unum þar sem sölugengið var
nokkru hærra en kaupgengið.
Um þetta segir í skýrslunni: „Ef
einungis er tekið tillit til þess
fjölda hluta sem keyptur var
þann 31. maí 2005 hefur félag
forstjóra bankans, Bjarna Ár-
mannssonar, hagnast um 184
milljónir króna. Eins hafa fé-
lög framkvæmdastjóra bankans
hagnast um um 31,3 milljónir
króna,“ segir í skýrslunni.
Stjórnendur bankans hafa því
búið sér til tugmilljóna króna
hagnað á nokkurra mánaða
tímabili með hlutabréfaviðskipt-
unum. Þeir hafa svo notað hagn-
aðinn til að greiða vexti til Kaup-
þings og Milestone og þóknun
til bankans fyrir að miðla bréf-
unum, en lánin voru til þriggja
mánaða og báru 11,3 prósenta
vexti. Afganginn af söluhagnaði
hafa þeir svo hirt sjálfir. Tekið er
fram sérstaklega í skýrslunni að
„engar sérstakar tryggingar hafi
verið fyrir lánveitingunni“. Lán-
unum hefur því ekki fylgt nein
áhætta fyrir Bjarna Ármannsson
og aðra stjórnendur Glitnis.
Sérstaka athygli vekur jafn-
framt að Þorgils Óttar Mathie-
sen skuli hafa verið einn þeirra
sem fengu lánað á þennan hátt
fyrir hlutabréfum í bankanum
en hann var framkvæmdastjóri
Sjóvár þegar þetta var. Þorgils
Óttar lét af störfum fljótlega eft-
ir að Milestone keypti Sjóvá og
Þór Sigfússon tók við af honum.
Hann græddi hins vegar millj-
ónir á viðskiptunum með hluta-
bréfin í Glitni.
Salan gagnrýnd
Í skýrslunni er ýjað að því að óeðli-
lega hafi verið staðið að viðskipt-
unum og segir í henni að þó þurfi
að líta á hverjir það voru innan
bankans sem hlynntir voru söl-
unni á Sjóvá til Milestone.
Nokkrar deilur urðu um söl-
una á Sjóvá til Milestone í banka-
ráði Glitnis. Samkvæmt skýrslunni
virðist sem bankinn hafi ekki leitað
annarra tilboða í tryggingafélagið
áður en ákveðið var að selja það
til Milestone. Bankinn lét Morgan
Stanley gera verðmat á trygginga-
félaginu og var tilboð Milestone,
26 milljarðar króna, hærra en verð-
mat bandaríska bankans. Tilboðið
var því talið hagstætt.
Í fundargerð frá bankanum sem
vísað er til í skýrslunni kemur fram
að Straumur-Burðarás hafi lýst yfir
áhuga á að koma að sölunni á Sjó-
vá. Stjórnin svaraði þessu hins veg-
ar neitandi, samkvæmt skýrslunni,
þar sem þeir Einar Sveinsson og
Bjarni Ármansson hafi lýst þeirri
„... afstöðu sinni að það væri ekki
heppilegt í ljósi þess að um sam-
keppnisaðila væri að ræða og að
stefna bankans væri að eiga áfram
hlut í félaginu.“ Sama dag var geng-
ið frá sölunni til Milestone.
Úlfar Steindórsson, sem sat
í bankaráðinu, óskaði hins veg-
ar eftir því að bókað væri í fund-
argerðina „... að ferlið væri búið
að standa yfir í fjórar vikur og að
ekki hefði verið reynt að ræða við
aðra aðila en Karl [Karl Werners-
son aðaleiganda Milestone, innsk.
blaðamanns]“ og því væri stjórnin
að kalla yfir sig óánægju hluthafa
ef ekki yrði kannað til hlítar hvort
hægt væri að fá hærra verð fyrir
hlutinn í Sjóvá. Eins gagnrýndi Úlf-
ar að bankinn væri að taka áhættu
með því að fjármagna sjálfur um
50 prósent af kaupverðinu.
Í kjölfar sölunnar til Milestone
sendi Straumur-Burðarás erindi
til Fjármálaeftirlitsins þar sem
bent var á að óeðlilega hefði ver-
ið staðið að sölunni. Fjármálaeft-
irlitið virðist hins vegar ekki hafa
talið tilefni til að skoða málið sér-
staklega.
Félögin sem keyptu í Glitni með lánum frá
Milestone og Kaupþingi og eigendur þeirra
Sjávarsýn Bjarni Ármannsson (Forstjóri Glitnis)
Coot ehf. Þorgils Óttar Mathiesen (Framkvæmdastjóri Sjóvár)
Gani ehf. Tómas Kristjánsson (Framkvæmdastjóri hjá Glitni)
Snæból ehf. Finnur Reyr Stefánsson (Framkvæmdastjóri hjá Glitni)
Eignarhaldsfélagið Teitur ehf. Haukur Oddsson (Framkvæmdastjóri hjá Glitni)
ÞJDJ ehf. Jón Diðrik Jónsson (Framkvæmdastjóri hjá Glitni)
Fausken ehf. Frank Ove Reite (Framkvstj. Íslandsbanka í Noregi)
Hrómundur ehf. Einar Sveinsson (Formaður bankaráðs)
...er vert að huga að hags-
munum eigenda Mile-
stone hf. árið 2005
gagnvart bankan-
um og hugsanlegum
hagsmunaárekstrum
sem orðið gátu á milli
Milestone hf. og yfir-
stjórnar bankans.
INGI F. VILHJÁLMSSON
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
BJARNI VÆNDUR UM
EÐLILEG VIÐSKIPTI
Græddi á viðskiptunum Þorgils Óttar Mathiesen græddi á viðskiptunum
með hlutabréfin í Glitni. Hann var í sérstakri stöðu í hópi þeirra sem Milestone
lánaði þar sem hann var framkvæmdastjóri Sjóvár.
Seldi ekki Einar Sveinsson fékk lán til að kaupa hlutabréf í Glitni en seldi þau
ekki með milljóna hagnaði líkt og aðrir stjórnendur bankans.
Viðskipti Glitnis og
Sjóvár árið 2005 eru
gagnrýnd harkalega
í skýrslu rannsókn-
arnefndar Alþingis.
Glitnir seldi Milestone
Sjóvá og lánaði fyrir
kaupunum. Skömmu
síðar lánaði Milestone
stjórnendum Glitnis
og Sjóvár fyrir hluta-
bréfum í Glitni. Bjarni
Ármannsson og Þor-
gils Óttar Mathiesen
græddu tugi milljóna.