Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2010, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2010, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 21. apríl 2010 MIÐVIKUDAGUR 17 Mál tíu ára þungaðrar stúlku, sem talið er að hafi verið nauðgað af stjúpföður sínum, er nýjasta viðbót- in í eldfimar umræður um fóstur- eyðingar í Mexíkó. Stjúpfaðir stúlk- unnar hefur verið handtekinn, en að sögn Adriönu Ortiz-Ortega, sem hefur skrifað tvær bækur um fóstur- eyðingar í Mexíkó, er mál stúlkunn- ar langt í frá einangrað tilfelli. Baráttuhópar hafa krafist þess að alríkisembættismenn og Sam- einuðu þjóðirnar rannsaki hvernig yfirvöld í Quintana Roo  hafa hald- ið á málum og fullyrða að embættis- menn hafi látið undir höfuð leggjast að upplýsa stúlkuna um rétt henn- ar til fóstureyðingar, áður en níutíu daga tímaramminn var útrunninn. Fóstureyðingar eru löglegar í Mexíkóborg, en eru bannaðar eða sæta verulegum hindrunum í öðr- um fylkjum landsins. Stúlkan er frá Quintana Roo- fylki á Yukatan-skaganum og þar eru leyfðar fóstureyðingar ef um er að ræða afleiðingu nauðgunar innan níutíu daga frá þungun. En stúlkan sem um ræðir er gengin með á 17. viku og hálfri betur og því komin fram yfir leyfilegar takmark- anir. Rómversk-kaþólska kirkjan er andvíg fóstureyðingum í Mexíkó og málið hefur löngum verið um- deilt. Mikill hiti færðist í umræðuna árið 2007 þegar samþykkt voru lög í Mexíkóborg sem heimiluðu, án takmarkana, fóstureyðingar á fyrstu níutíu dögum þungunar. Þeirri ákvörðun var víða mót- mælt en lögin voru að lokum stað- fest af hæstarétti árið 2008. Frá árinu 2007 hafa sautján fylki staðfest lög til „verndar lífi frá getn- aði“. Þungun tíu ára mexíkóskrar stúlku sem var nauðgað veldur deilum: Frestur til fóstureyðingar útrunninn Hvetur til umburðarlyndis Robert Mugabe, forseti Simbabve, fordæmdi í ræðu á sunnudaginn ofbeldi og hvatti þjóðina til að sam- einast í því að byggja upp landið. Til- efni ræðunnar var þrjátíu ára afmæli sjálfstæðis landsins, en það var áður undir stjórn Breta. Mugabe hvatti Simbabvemenn til að vera umburðarlyndir, koma fram við aðra af virðingu og forðast að taka þátt í ofbeldisaðgerðum. Mugabe notaði einnig tækifær- ið til að fordæma vestræn lönd fyrir þvingunaraðgerðir gegn Simbabve vegna meints kosningasvindls árið 2008, sem og ásakana um mannrétt- indabrot simbabveskra stjórnvalda. Stefna að ofsadykkju Samkvæmt könnun af hálfu John Moores-háskólans í Liverpool stefn- ir einn af hverjum tíu Bretum sem fer út á lífið á að drekka frá sér ráð og rænu. Könnunin náði til yfir tvö hundruð einstaklinga í Manchester, Liverpool og Chester og fór fram á föstudags- og laugardagskvöldum. Tíu prósent aðspurðra sögðust ætla að innbyrða meira en fjörutíu einingar af áfengi áður en haldið yrði heim. Mark Bellis, sem fór fyrir könn- uninni, sagði að Bretland hefði „fest í sessi ofsadrykkju í næturlífinu“. Lauslæti orsakar jarðskjálfta Lauslátar konur eiga sök á jarð- skjálftum, sagði Hojatoleslam Kaz- em Sedighi, háttsettur íranskur embættismaður, í Teheran á föstu- daginn. Sedighi sagði að fólk yrði að tileinka sér siðsemi sjálfu sér til verndar. „Fjöldi kvenna sem klæðir sig ósiðsamlega leiðir unga karlmenn villur vega og breiðir út lauslæti í samfélaginu og fjölgar jarðskjálft- um,“ sagði Sedighi. Hann sagði aukinheldur að eina leiðin til að forðast að verða grafinn undir rúst- um jarðskjálfta væri að leita skjóls í trúnni og lifa samkvæmt íslömskum gildum. Tugir þúsunda hafa farist í jarð- skjálftum í Íran síðastliðinn áratug. Brasilía 2009 Kaþólska kirkjan mótmælti fóstureyðingu hjá tíu ára stúlku sem nauðgað var af stjúpföður sínum. MYND AFP ÖSKUFALL OG ÓVISSA félaga gæti orðið til þess að loftrými Evrópu yrði opnað fyrr en ella, en það hefur að mestu leyti verið lokað síðan gos hófst í Eyjafjallajökli. Á sunnudaginn áttu sér einung- is stað fimm þúsund flugferðir inn- an evrópska loftrýmisins í stað um 24.000 sem alla jafna eiga sér stað. Milljónir strandaglópa Síðan á fimmtudag hafa flugfélög frestað um 80.000 flugferðum og tap þeirra nemur um milljarði banda- ríkjadala samtals. Að auki hefur eld- gosið valdið því að milljónir manns eru strandaglópar víða um lönd. Áætlað er að tæplega sjö milljónir ferðalanga hafi orðið fyrir skakkaföll- um vegna öskufallsins í Evrópu. Bresk yfirvöld brugðu á það ráð að senda herskipið Albion til Sant- ander á Spáni til að sækja 280 al- menna borgara og 450 hermenn sem voru á leið heim frá Afganistan, og var gert ráð fyrir því að skipið kæmi til Portsmouth á Englandi seint á miðvikudag. Nú hafa flugfélögin hvert af öðr- um sett fram gagnrýni á ríkisstjórn- ir og reglugerðarpésa vegna þess hvernig haldið hefur verið á málum. Flugfélögin vísa í niðurstöður fimmtíu reynsluflugferða og segja að yfirvöld hafi gengið of langt í var- kárni sinni og fullyrða að þau séu best í sveit sett til að segja til um hvort óhætt sé að fljúga eða ekki. Líklegt er talið, þegar allt þetta verð- ur yfirstaðið og allir farþegar komn- ir til síns áfangastaðar, að flugfélög- in muni einmitt gera þá kröfu að álit þeirra vegi þyngra þegar tekin verður ákvörðun um lokun loftrýmis þegar næsta eldgos á sér stað. Hver byggir á öðrum Til að styðja fullyrðingar sínar var Boeing 747-flugvél British Airways flogið í gegnum öskuský, í kjölfar rannsóknarflugvélar bresku veður- stofunnar, til að leggja mat á áhrif öskunnar á Rolls Royce-hreyflana, glugga, nema, lendingarljós og fleira. Aðalframkvæmdastjóri British Airways, Willie Walsh, var um borð í flugvélinni og vandaði stjórnvöld- um ekki kveðjurnar. Sagði Walsh að greining á gögnum úr flugferðinni, ásamt gögnum úr könnunarflug- ferðum annarra flugfélaga, sýndi svo ekki væri um að villst að þær flug- takmarkanir sem settar hefðu verið „væru ónauðsynlegar“. „Enginn virðist taka fulla ábyrgð,“ er haft eftir talsmanni British Air- ways, á vefsíðu The Times. „Yfirvöld almenningssamgangna byggja ákvörðun sína á því sem flug- umferðareftirlit ríkisins segir þeim. Það byggir sína ákvörðun á upplýs- ingum sem veðurstofan lætur þeim í té og veðurstofan segist aðeins vera að spá í veðrið,“ er haft eftir tals- manni British Airways. n Austurríki – Loftrými opið, en áfram fylgst með þróun mála og ekki útilokað að loftrými verði lokað á ný. n Belgía – Loftrýmið var opið, en þjónusta takmörkuð. n Bretland – Loftrými yfir Skotlandi og Norður-Írlandi opið. Loftrými yfir norðurhluta Englands opið miðað við 20.000 feta flughæð. Flugvellir í Lundúnum lokaðir. n Danmörk – Loftrými yfir 20.000 feta hæð opið. Engar lendingar leyfðar. n Frakkland – Takmarkað flug frá París til alþjóðlegra áfangastaða. n Þýskaland – Loftrými lokað, með nokkrum undantekningum, til klukkan 18.00. Lufthansa gerði ráð fyrir að klára 200 flug. n Írland – Loftrými lokað. n Ítalía – Loftrými opið. Nokkur flug áttu sér stað til og frá Mílanó. n Holland – Loftrými opið. Farþegaflug til og frá Amsterdam. n Noregur – Loftrými lokað. n Pólland – Loftrými lokað. n Spánn – Loftrými opið, þjónusta á öllum flugvöllum. n Svíþjóð – Loftrými opið yfir mið- og norðurhluta landsins. n Sviss – Loftrými opnað að nýju. n Kína – Flug frá Beijing til Moskvu, Rómar, og Stokkhólms var heimilað. Flugi til Englands, Frakklands og Þýskalands var áfram frestað. n Finnland – Allir flugvellir lokaðir til miðvikudags. n Indland – Vegabréfsáritanir til farþega á leið til Evrópu, sem eru fastir í landinu, framlengt um tvær vikur ef ástæða er til. Þar voru um 9.000 farþegar strandaglóp- ar vegna öskufallsins í Evrópu. n Malasía – Í dag, miðvikudag, hefst að nýju flug til Lundúna, Parísar og Amster- dam samkvæmt tilkynningu frá Malaysia Airlines. Flugfélagið felldi niður 46 flug og urðu um 14.000 farþegar fyrir áhrifum vegna þess. n Rússland – 531 flug fellt niður og tafir höfðu haft áhrif á 177 flug. n Taíland – Thai Airways í Bangkok áætlaði að tap vegna öskufallsins væri um þrjár milljónir bandaríkjadala á dag. n Sameinuðu arabísku furstadæmin – Emirates-flugfélagið hefur tapað um fimmtíu milljónum bandaríkjadala vegna flugbannsins. Þarlend yfirvöld munu ekki beita þá refsingum sem dvelja lengur í landinu, sökum flugbanns, en vegabréfsáritun heimilar. n Önnur lönd – Farþegaflug víðast hvar í Norður- og Mið- Evrópu er talmörk- unum háð. Í því tilliti má nefna Króatíu, Tékkland, Eistland, Rúmeníu, Serbíu, Slóveníu, Slóvakíu og Úkraínu. Ástand vegna öskufalls víða um heim í gær Flug fellt niður Algeng sjón á áætlunarskjám á flugvöll- um nú um stundir. MYND AFP

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.