Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2010, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2010, Síða 24
SCHUMACHER OF HÆGUR Mercedes-liðið í Formúlunni hefur loks viðurkennt að sjöfaldi heimsmeistarinn Michael Schumacher, sem snéri aftur í Formúluna í ár, aki of hægt. Mercedes-bíllinn er ekki á pari við þá bestu en samt sem áður hefur hinum ökumanni liðsins, Nico Rosberg, tekist að næla sér í 50 stig og var á palli í Kínakappakstrinum um helgina þar sem ekkert gekk hjá Schumacher. Ross Brawn, liðstjóri Mercedes og hönnuður bílsins, segir erfitt að skilja vandamál Schumachers. „Þetta er voða skrítið allt saman. Það eru ekki erfiðu beygjurnar sem halda aftur af honum, heldur einföldu en tæknilegu beygjurnar. Þar er hann að klikka. Þar til í Kína var hann að nálgast Rosberg þannig að það sem gerðist þar var alveg gegn allri framför hingað til,“ segir Brawn. UMSJÓN: TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON, tomas@dv.is 24 MIÐVIKUDAGUR 21. apríl 2010 MOLAR Á meðan öll ensku liðin eru fallin út úr Meistaradeildinni gæti svo farið að það verði alenskur úrslita- leikur í Evrópudeildinni. Liverpool og Fulham hefja bæði leik í und- anúrslitum á fimmtudagskvöldið, Liverpool mætir Atletico Madrid og Fulham etur kappi við Hamb- urg. Bæði byrja þau á útivöll- um og eiga því löng ferðalög fyrir höndum. Stuðningsmenn Atletico Madrid fá ekki að sjá óskabarnið og fyrrverandi fyrirliða liðsins, Fern- ando Torres, þar sem tímabilið er búið hjá honum vegna meiðsla. Roy Hodgson, stjóri Fulham, hefur lagt allt kapp í Evrópudeildina og gleymt ensku úrvalsdeildinni í bili. Hvað það dugar liðinu gegn Ruud van Nistelrooy og félögum á eftir að koma í ljós. Langar ferðir Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, tók þá ákvörðun um helgina að leikirnir myndu fara fram, þrátt fyrir erfiðar samgöngur vegna eld- gossins í Eyjafjallajökli. Hvorki Liverpool né Fulham geta flog- ið og bíða þeirra því löng og erfið ferðalög. Liverpool þarf að ferðast ríflega 4.000 kílómetra eða fjóra hringi í kringum Ísland. Liver- pool-menn áttu mánudagsleik gegn West Ham og lögðu af stað klukkan eitt eftir hádegi á þriðju- daginn. Þeir voru komnir um borð í Eurostar-lestina til Parísar klukk- an fjögur og gistu í París yfir nótt. Á miðvikudagsmorgun tóku þeir morgunlestina til Bordeaux það- an sem liðið gat loksins flogið til Madrídar. Ferðalag Fulham er öllu skárra þar sem það heldur til Hamborg- ar en eðlilega er hvorugur stjórinn kátur með niðurstöðu mála. „Þetta kemur bara niður á okkur og gef- ur Hamburg mikið forskot,“ segir Roy Hodgson, stjóri Fulham. „Við eigum að einbeita okkur að fót- boltanum en í staðinn erum við stanslaust að reyna finna leiðir til að ferðast,“ segir hann. Rafael Benitez, stjóri Liverpool, hefur einnig áhyggjur af deildar- leiknum gegn Burnley á sunnu- daginn klukkan 15.00 en hann hefur ekki gefið upp vonina um Meistaradeildarsæti. „Við skipu- leggjum þetta þannig að við getum komist til baka eins fljótt og hægt er en það verður alltaf á laugardag, sem er ekki besti undirbúningur- inn fyrir leik í ensku úrvalsdeild- inni.“ Enginn Torres Liverpool er í mikilli baráttu um Evrópusæti í ensku úrvalsdeild- inni en takist því ekki að landa því verður liðið að treysta á sigur í Evr- ópudeildinni í ár til að leika aftur í Evrópu á næsta tímabili. Liverpool lék virkilega vel gegn West Ham á mánudaginn á heimavelli en An- field hefur einmitt verið sá staður þar sem Bítlaborgarar hafa klárað Evrópueinvígi sín til þessa. Enginn Fernando Torres verð- ur með í Madríd sem hrygg- ir stuðningsmenn Atletico jafn- mikið og Liverpool-menn. Torres er uppalinn Atletico-maður og var orðinn fyrirliði liðsins aðeins sautján ára gamall. Hann meidd- ist í leiknum gegn Benfica á Anfi- eld og ákvað hann að fara í aðgerð strax, ákvörðun sem margir vildu meina að væri til að ná HM með Spáni. „Ég meiddist á annarri mínútu í leiknum gegn Benfica á Anfield og spilaði meiddur í 85 mínútur. Ef ég hefði verið að hugsa um HM og Spán hefði ég beðið strax um skiptingu. Ég var ekki þannig, ég vildi komast í úrslit Evrópudeild- arinnar með mínu liði,“ segir hann. Evrópa allt hjá Fulham Undanfarin ár hefur Evrópudeild- in, þá UEFA CUP, ávallt verið í öðru sæti hjá ensku félögunum. Skemmst er að minnast þess þeg- ar Tottenham og Aston Villa vilj- andi duttu úr keppni með því að senda varaliðin sín til leiks í 16 og 8 liða úrslitum keppninnar. Þar var allt kapp lagt á það að enda eins of- arlega og hægt var í deildinni. Ful- ham hefur snúið dæminu alveg við. Liðið er í tíunda sæti í deildinni og hefur látið hana mæta afgangi. Fulham hefur aðeins unnið einn af síðustu sjö leikjum sínum, ekki tek- ist að skora í fjórum þeirra og inn- byrt aðeins sex stig af 21 mögulegu. Stór ástæða þess er að Roy Hodg- son, stjóri liðsins, hefur hvílt sínar stærstu stjörnur í nokkrum deild- arleikjum, nokkuð sem hefur ekki fallið vel í kramið hjá öðrum liðum. „Við ætluðum bara að halda okkar sæti í deildinni og það er klárt held ég. Við erum með 41 stig og hreinskilnislega get ég sagt að við föllum ekki né náum einu af Evr- ópusætunum,“ segir Roy Hodgson sem hvíldi einmitt Evrópuhetjurnar gegn Úlfunum í markalausu jafn- tefli um helgina. „Þetta var 54. leik- ur okkar á tímabilinu og það er erf- itt fyrir lið eins og okkur sem hefur ekki mikla reynslu í Evrópuboltan- um. Þetta hefur verið mjög erfitt þar sem við erum með svo lítinn hóp. Deildin verður að vera í öðru sæti hjá okkur út tímabilið. Þannig er það bara,“ segir Hodgson. Liverpool og Fulham þurfa bæði að ferðast langar leiðir fyrir leiki sína í undanúr- slitum Evrópudeildarinnar. Liverpool heldur til Madrídar en Fulham á leik í Ham- borg. Fernando Torres verður ekki með gegn uppeldisfélagi sínu þar sem tímabilið er búið hjá honum. Eldgosið í Eyjafjallajökli hefur mikil áhrif á leikina. ELDGOSIÐ Í AÐALHLUTVERKI TITILL Í AUGSÝN? Steven Gerrard gæti lyft dollu í maí. MARKAMASKÍNA Bobby Zamora hættir ekki að skora í Evrópu. TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON blaðamaður skrifar: tomas@dv.is AGUERO VILL TIL CHELSEA n Sergio Aguero, argentínski markaskorarinn í liði Atletico Madrid, er farinn að tala vel um Chelsea og kveðst spenntur fyrir því að leika með liðinu. Hann hefur ítrekað verið orðaður við Chelsea síðustu misseri og virðist nú tilbúinn að taka skrefið frá Spáni, samkvæmt frétt í Daily Express. Manchester City vill líka fá Aguero en framherjinn stutti er ekki tilbúinn í það verkefni. „Ég vil fara í lið sem slæst um titla,“ segir hann. MOURINHO LÍKLEGASTUR TIL LIVERPOOL n Veðbankar eru nú þegar búnir að gefast upp á Rafael Benitez hjá Liverpool og er kominn pottur um hvaða stjóri taki við liðinu í sumar. Jose Mourinho er þar líklegastur en á eftir honum kemur Martin O‘Neill, stjóri Aston Villa. Kenny Dalglish, fyrrverandi Liverpool-hetja og núverandi yfirmaður unglingstarfs félagsins, fær þriðja lægsta stuðulinn. Á eftir honum koma svo Laurent Blanc, Mark Hughes, Oswaldo Oliviera, Jurgen Klinsmann, Alex McLeish og Roy Hodgson. CHAMAKH LOKS TIL ARSENAL n Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, hefur bundið enda á eilífar sögusagnir um kaup á Marakkó- manninum Marouane Chamakh til liðsins. Framherjinn öflugi sem leikur með Bordeaux verður keyptur og verður gengið frá því í næsta mánuði. Talið er að Arsenal borgi Bordeaux tólf milljónir punda fyrir framherjann og geri við hann fjögurra ára samning. Laun hans munu nema rétt tæpum 60 þúsund pundum á viku. EKKERT ÓSÆTTI n Ferrari hefur neitað þeim frásögn- um að upp sé komin deila á milli ökumannanna, Fernando Alonso og Felipe Massa, eftir bellibrögð þess fyrrnefnda til að koma sér fram úr Massa í Kínakappakstrinum um síðustu helgi. „Ég verð að viðurkenna að Massa tók þessu mjög vel. Ég skil af hverju hann reiddist en okkar hugsjón er að þeir keppi innbyrðis líka. Þeir hafa þó sæst og talast við, annað en hefur verið skrifað,“ segir Stefano Domenicali, framkvæmdastjóri Ferrari.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.