Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2010, Side 25

Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2010, Side 25
„BÚIÐ AÐ VERA PIRRANDI TÍMABIL“ „Mér fannst Keflavík spila vel en leikurinn var tæplega marktækur,“ segir Friðrik Ragnarsson körfu- knattleiksþjálfari um fyrsta leik Keflavíkur og Snæfells í úrslitum Iceland Express-deildarinnar sem Keflavík vann örugglega með nítján stiga mun, 97-78. „Snæfell var það vængbrotið. Sean Burton [Leik- stjórnandi Snæfells] var ekki einu sinni hálfur maður. Ef Burton spil- ar áfram í líkingu við það sem hann gerði í fyrsta leiknum vinnur Kefla- vík þetta, 3-0,“ segir Friðrik. Friðrik segir sigurhefðina fleyta Keflavík langt. „Það er eldmóður í augunum á Keflavík. Þeir kunna svo sannarlega að drepa særða bráð. Keflavík spilaði alveg frá- bærlega í leiknum, það virðist líka vera mikil stemning í liðinu og all- ir í toppgír. Það hefur verið sérstak- lega gaman að sjá Hörð Axel, hann er búinn að vera besti leikmaður úrslitakeppninnar að mínu mati. Það er bara þannig með Keflavík að það gengur á lagið á meðan önnur lið eru stundum hikandi. Þú sérð ekki Snæfell bakka undan nokkru liði en það þurfti það að gera það gegn Keflavík. Ég hafði aldrei trú á því í fyrsta leiknum nokkurn tíma að Snæfelli tækist að koma til baka eftir að það lenti svona 10-12 stig- um undir,“ segir Friðrik. Ef Snæfell á að eiga séns - fyrir utan að hafa mannskapinn heilan - er aðeins eitt sem þeir geta gert að mati Friðriks. „Þeir verða að hægja á leiknum og spila fimm gegn fimm á hálfum velli. Það sést alveg hvað Keflvíkingarnir vilja gera. Þeir vilja keyra Snæfelli í kaf og láta þá hlaupa með sér allan leikinn. Þeir vita að það hjálpar þeim í leikjum þrjú og kannski fjögur ef af honum verður,“ segir hann en leikur tvö er lykilleikur segir Friðrik. „Keflavík er sigurstranglegra akkúrat núna en það getur breyst. Verði staðan 1-1 eftir fimmtudag- inn getur allt gerst. En ef Keflavík vinnur er mjög erfitt að sjá þá tapa þriðja leiknum á heimavelli,“ segir Friðrik Ragnarsson. tomas@dv.is Friðrik Ragnarsson spáir í úrslitaeinvígi Iceland Express-deildarinnar: Snæfell verður að hægja á leiknum MAGNÚS SEMUR VIÐ FRAM Stór- skyttan Magnús Stefánsson frá Fagraskógi hefur samið aftur við Fram og mun því leika áfram með félaginu á næsta ári. Samkvæmt heimildum DV höfðu öll liðin í N1-deildinni, að FH undanskildu, samband við Magnús sem ákvað eins og fyrr segir að vera áfram í Safamýrinni. Framarar byrjuðu tíma- bilið ömurlega en fóru á kostum eftir jól og björg- uðu sér frá falli í lokaumferðinni, að Framara sið. TVEIR LEIKIR Í ÚRSLITAKEPPNINNI Úrslita- keppnin í N1-deild karla í handbolta hefst á fimmtudaginn, sumardaginn fyrsta. Tvær hörkuviðureignir eru í boði fyrir handboltaþyrsta karla og konur. Valur og Akureyri ríða á vaðið klukkan 16.00 í Vodafone-höllinni en leikurinn verður í beinni útsendingu á RÚV. Valsmenn enduðu í öðru sæti deildarinnar en Akureyringar því þriðja. Klukkan 19.15 um kvöldið er svo komið að Íslands- og bikarmeisturum Hauka en þeir mæta HK í fyrsta leik á heimavelli. Það lið sem fyrr vinnur tvo leiki fer í úrslitaviðureignina þar sem þarf svo að vinna þrjá leiki til að verða Íslandsmeistari. SPORT 21. apríl 2010 MIÐVIKUDAGUR 25 MOLAR PSV EYGIR GYLFA n Hollenska stórliðið PSV Eind- hoven hefur áhuga á Gylfa Þór Sigurðssyni, leikmanni Reading, ef marka má frétt Daily Mail. Gylfi hefur farið á kostum með Reading á tímabilinu og er markahæsti leik- maður liðsins með átján mörk. Brian McDerm- ott, stjóri Reading, hefur hins vegar engan áhuga á að láta piltinn fara. „Hann er einn sá dýrmætasti í fótboltanum í dag. Gylfi á eftir að reynast íslenska landsliðinu vel og á bjarta framtíð fyrir höndum.“ GUNNAR HEIÐAR SKORAÐI n Eyjapeyinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði fyrir varalið Reading á mánudagskvöldið. Mark- ið dugði skammt því Reading tapaði fyrir utandeildarlið- inu Forest Green, 4-1. Gunnar Heiðar er á láni hjá Reading frá danska liðinu Esbjerg en hefur aðeins fengið tækifæri í þremur leikjum í Championship-deildinni. Alls er óvíst hvað verður um Gunnar í sumar en Esbjerg virðist ekki áhugasamt um að halda framherj- anum hjá liðinu. AÐALSTEINN UPP UM DEILD n Handknattleiksþjálfarinn Aðalsteinn Eyjólfsson er tekinn við þýska 2. deildar liðinu Eisenach, samkvæmt þýskum miðlum. Aðalsteinn yfirgefur því 3. deildar liðið Kassel sem hann tók við í árslok 2008. Aðalstyrkt- araðili Kassel varð gjaldþrota í haust og var því ekki hægt að greiða leikmönnum, þar á meðal Íslend- ingunum Guðjóni Finni Drengssyni og Daníel Berg Grétarssyni sem báðir yfirgáfu félagið. ÚKRAÍNUMAÐUR TIL EYJA n ÍBV hefur fengið góðan liðsstyrk fyrir komandi tímabil í Peps- i-deildinni. Eyjamenn sömdu við úkraínska fram- herjann Denis Sytnik sem var á reynslu hjá félaginu í síðasta mánuði. Denis stóð sig vel hjá ÍBV og skoraði meðal annars fernu í æfinga- leik gegn Hvöt. Verri fréttir eru þó þær að alls er ólíklegt að Crewe- strákarnir, Ajay Leitch-Smith og Chris Clements, komi aftur. Þeir stóðu sig báðir frábærlega með ÍBV í fyrra. BETRI Í FYRRA Aron Einar viðurkennir að tímabilið í ár hafi ekki verið jafn- gott og í fyrra. „Þeir eru ekkert byrjaðir að tala við mig. Ég á bara eitt ár eftir þannig að þeir verða að selja mig ekki seinna en í janúar á næsta ári ef þeir vilja fá pening fyrir mig,“ segir íslenski landsliðsmaðurinn, Aron Einar Gunnarsson, sem leikur með Cov- entry á Englandi. Tímabilið byrjaði erfiðlega fyrir Aron sem var að eig- in sögn í fýlu við klúbbinn vegna samningsmála. Hann hefur þó ver- ið að koma sterkur til baka að und- anförnu og byrjað síðustu þrjá leiki. Liðið aftur á móti er í frjálsu falli niður töfluna enda hefur það ekki unnið sigur í níu síðustu leikjum sínum. Rólegur yfir samningsmálum „Eins og staðan er býst ég við því að vera áfram hjá Coventry,“ segir Aron. „Þeir þurfa samt einhven tíma að koma með rétta samningstilboð- ið til mín ef ég á að vera áfram. Það er samt gaman að vera hjá þessu liði. Það er verið að reyna byggja upp nýtt lið hérna og það er gaman að vera partur af því,“ segir hann. Aron er rólegur yfir málunum, hann á nú tvo leiki eftir með Cov- entry og ætlar síðan að koma heim til Akureyrar í sumarfrí. „Ég heyrði í umboðsmanninum mínum um daginn og hann sagði mér að vera bara rólegur. Það hafa verið ein- hverjar þreifingar en ekkert hald- bært. Þetta er allt svo óútreiknan- legt. Þetta kemur allt vonandi í ljós í sumar,“ segir hann. Fýlan liðin hjá Aron segir Chris Coleman, stjóra liðsins, hafa verið ánægðan með sig í síðustu leikjum enda sé hann bú- inn að finna sitt rétta form á miðj- unni, farinn að segja mönnum til og spila eins og hann best getur. „Ég er kominn aftur í grimma pakkann, farinn að öskra á menn og svona. Ég var ekki í því í byrjun tímabils og það er búið að hanga á mér síðan. Það er bara mér og klúbbnum að kenna,“ segir Aron sem var fúll yfir samningsstöðu sinni í byrjun tíma- bils. Hann segir þetta tímabil hafa verið erfitt. „Þetta er búið að vera pirrandi tímabil og leiðindi fyrir sjálfan mig. Þetta byrjaði í fýlu og þannig skí- tapakka og svo meiddist ég. Núna erum við ekki búnir að vinna leik lengi og það er í raun engum að kenna. Þjálfarinn er búinn að segja að hann ýti of mikið á okkur og við sprungum bara á limminu. Við get- um samt ekki bara kastað inn hand- klæðinu. Ég hef trú á því að við fáum eitthvað út úr síðustu tveimur leikj- unum,“ segir Aron. Stuðningsmennirnir með „gamla“ Aron viðurkennir fúslega að hann hafi ekki verið jafngóður og á síð- asta tímabili. Þrátt fyrir það og þá stöðu að hann hafi verið í fýlu út í klúbbinn í byrjun tímabils er hann alltaf í miklu uppá- haldi hjá stuðnings- mönnum félagsins. „Stuðningsmenn- irnir eru alltaf með „gamla“. Það er ekki spurning. Maður finnur það samt sjálfur að tímabil- ið hefur ekki ver- ið jafngott hjá mér og í fyrra. En ég er bara staðráðinn í að taka vel á því í sumar á æfingu með Þór og mæta sterkur til leiks á næsta undir- búningstímabili,“ segir Aron Einar Gunnarsson. Aron Einar Gunnarsson, landsliðsmaðurinn í liði Coventry, segir tímabilið í ár hafa verið erfitt fyrir sig og það sé bæði honum og klúbbnum að kenna. Aron á eitt ár eftir hjá félaginu og ekkert bólar á nýjum samningi. Ég er kominn aftur í grimma pakkann. TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON blaðamaður skrifar: tomas@dv.is ÍSLAND – GUNNARSSON Aron er í miklum metum hjá stuðningsmönnum Coventry og er þessi ágæti maður búinn að gera fána sem hann mætir með á leiki. MYND AFP Hart tekist á Hlynur Bæringsson átti stórleik fyrir Snæfell í fyrsta leiknum en það dugði skammt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.