Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2010, Síða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2010, Síða 30
Hinn heimsfrægi veðurfrétta- maður Al Roker var á Íslandi um helgina til þess að fjalla um eldgosið í Eyjafjallajökli. Roker er ein af skærustu stjörnunum í The Today Show sem er einn vinsælasti morgunþáttur Banda- ríkjanna. Í myndbroti sem John Stewart í The Daily Show birti um helgina mátt sjá Roker á brúnni við Markarfljót þar sem hann reyndi að bera fram nafn Eyja- fjallajökuls en það virðist gjör- samlega ómögulegt fyrir ensku- mælandi fréttamenn. Roker hefur áður komið til Íslands en hann heimsótti landið árið 2008. Þá fjallaði hann um íslenska vatnið og hreina náttúru landsins. VÍGIR HALANN MÆTTI Á KLAKANN GUÐFRÍÐUR LILJA: Mikið hefur mætt á Steingrími J. Sigfússyni, fjármálaráðherra og formanni vinstri grænna, undanfarin misseri og því líklega lítill tími gefist til annars en að vinna, borða og sofa. Sé tekið mið af þeirri sjón sem blasti við heimildarmanni DV á kránni Bjarni Fel í miðborginni í gær hefur aðeins hægst um hjá ráð- herranum. Þar sat Steingrím- ur nefnilega í mestu makind- um ásamt Birni Vali Gíslasyni, þingmanni VG, og horfði á leik Liverpool og West Ham í ensku úrvalsdeildinni. Ekki nóg með það heldur sötruðu félagarn- ir bjór yfir leiknum en eins og margir vita barðist Steingrímur gegn því að sala á bjór yrði leyfð að nýju hér á landi fyrir rúmum tuttugu árum. BOLTI OG BJÓR HJÁ 30 MIÐVIKUDAGUR 21. apríl 2010 FÓLKIÐ Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, al-þingismaður og þingflokks-formaður vinstri grænna, á von á barni. Þetta er annað barn Guðfríðar en það fyrsta sem hún geng- ur með sjálf. Fyrir rétt tæpu ári eignuðust Guðfríður og maki hennar, Steinunn Blön- dal, son. Þá gekk Steinunn með barnið en nú hafa hlutverkin snúist við. Sá stutti lét bíða eftir sér en Steinunn gekk með hann rúmar tvær vikur fram yfir settan dag þegar hann lét loks sjá sig. Það er greinilega mikil hamingja innan fjölskyldunnar litlu því ekki biðu þær lengi með að eignast sitt annað barn. Steinunn ætti að hafa verið vel undirbúin fyrir móð- urhlutverkið þar sem hún starfar sem ljós- móðir en það er spurning hvort hún muni sjálf taka á móti seinna barni þeirra. Guðfríður er í miklum minnihlutahópi opinberlega samkynhneigðs fólks sem set- ið hefur á þingi. Hún er aðeins önnur í röð- inni en á undan henni var það Jóhanna Sig- urðardóttir, forsætisráðherra Íslands. Þær eru einu tveir opinberlega samkynhneigðu þingmennirnir frá stofnun Alþingis. Guðfríður, sem er með BA-próf í sagn- fræði og stjórnmálafræði frá Harvard-há- skóla í Bandaríkjunum og meistarapróf í heimspeki frá Cam- bridge-háskóla í Bret- landi, hefur aðeins setið á þingi frá árinu 2009. Fram að því var hún að- allega þekkt fyrir sigra sína í skákheimum. Hún var fyrst kvenna hér á landi til þess að gegna embætti forseta Skáksam- bands Íslands en það gerði hún á árunum 2004 til 2008. Þá var hún einnig fyrst til þess að gegna embætti forseta Skáksambands Norðurlanda en það gerði hún á árunum 2006 til 2008. Guðfríður er þekkt fyrir að standa föst á skoðunum sínum en hún ásamt Ögmundi Jónassyni, Lilju Móses- dóttur og fleiri þingmönnum vinstri grænna hafa fengið viðurnefnið „Órólega deildin“ fyrir að fylgja ekki forystu flokksins í ýmsum stórum málum svo sem aðildarumsókn að Evrópusambandinu og Icesave- samningunum. Hvorki náðist í Guðfríði né Steinunni við vinnslu fréttarinnar. asgeir@dv.is Á VON Á BARNI Þingflokksformaður vinstri grænna, Guð- fríður Lilja Grétarsdóttir, ber barn undir belti. Um er að ræða annað barn Guðfríð- ar en hún og maki hennar Steinunn H. Blöndal eignuðust son fyrir ári. Þá gekk Steinunn með barnið en nú er það Guð- fríður sem tekur það hlutverk að sér. Guðfríður Lilja Er aðeins annar opinberlega samkynhneigði þingmaðurinn. Skipta um hlutverk Nú gengur Guðfríður með barnið en Steinunn gekk með son þeirra. STEINGRÍMI „Það er verið að opna nýjan skemmtistað í Keflavík sem heitir Halinn,“ segir Erpur Eyvindarson, rappari og skemmtikraftur. Erpur er einn helsti slangursérfræðing- ur þjóðarinnar og þykir mörgum hann eflaust illskiljanlegur á köflum. „Halinn“ er einmitt tekið úr orðaforða rapparans og því var hann fenginn til þess að vígja staðinn sem verður opnaður í kvöld, mið- vikudag. „Að vera á halanum er að vera blind- fullur. Ef maður ímyndar sér mann sem er á rassgatinu þá sér maður fyrir sér mann sem er það fullur að hann situr bara. Ef gaurinn væri á halanum þá væri hann hálfpartinn liggjandi því þá situr hann á rófubeininu sem er ofar en rassinn,“ segir Erpur þegar hann útskýrir orðatiltækið en að vera á halanum þýðir því nokkur veginn að vera í annarlegu ástandi. „Að vera hali hefur svo aðra merkingu. Hali er eitthvað sem dinglar og hali er því náungi sem er bara dinglandi. Dinglandi um á dansgólf- inu eða í partíinu eða eitthvað álíka.“ Halinn er til húsa á Hafnargötu 28 í Keflavík og verður, sem fyrr sagði, vígð- ur á miðvikudagskvöld. En daginn eft- ir er sumardagurinn fyrsti og því öflugt skemmtanahald um allt land. „Ég verð fyrst á Selfossi að skemmta með Magga mix. Alveg ruglaðir. Svo fer ég beint til Keflavíkur og upp í stúdíó að taka upp lag með Dabba T og El Forte og þaðan á Halann,“ en Erpur er að leggja lokahönd á nýja plötu og spilar lög af henni að vígsl- unni lokinni. asgeir@dv.is ERPUR SKEMMTIR MEÐ MAGGA MIX, TEKUR UPP LAG OG VÍGIR SKEMMTISTAÐ Erpur Eyvindarsson Ætli Erpur verði á „halanum“ á Halanum?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.