Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2014, Blaðsíða 2
Vikublað 15.–17. júlí 20142 Fréttir
Engin sól í
kortunum
Sólarþyrstir höfuðborgarbúar
þurfa að bíða lengur eftir því að
njóta sólarinnar ef marka má
veðurspár. Ekki er útlit fyrir það
að sú gula muni sýna sig mikið í
þessari viku.
Þannig gerir Veðurstofa Íslands
ráð fyrir hægviðri og skúrum á
höfuðborgarsvæðinu í dag, þriðju-
dag, og verður hiti á bilinu 10 til 15
stig. Á miðvikudag og fimmtudag
er gert ráð fyrir suðvestlægri eða
breytilegri átt og skúrum í flestum
landshlutum. Hiti verður á bilinu
10 til 17 stig, hlýjast austanlands.
Á föstudag er gert ráð fyrir suð-
austlægri átt og rigningu víða, en
þurrt norðaustantil.
Og um helgina verða aust-
lægar áttir, lengst af úrkomulítið
og hlýnandi veður.
Einn á ferð
þegar hann
slasaðist
Erlendi ferðamaðurinn sem slas-
aðist á göngu á Hornströndum
á sunnudag er þrítugur Hol-
lendingur. Að sögn lögreglunnar
á Vestfjörðum gat maðurinn gert
grein fyrir sér, en áður höfðu birst
fréttir þess efnis að ekki væri vit-
að hver maðurinn væri og að far-
angur hans hafi týnst.
Maðurinn er að sögn lög-
reglunnar einsamall á ferðalagi um
Ísland. Hann hafði verið á göngu
á gönguleið sem liggur milli Hest-
eyrarfjarðar og Hlöðuvíkur og tel-
ur lögregla líklegt að honum hafi
skrikað fótur og fallið niður hlíðina.
Ferðalangur gekk fram á
manninn, sem var þá meðvit-
undarlítill og mikið slasaður.
Hann hlaut opið beinbrot á hand-
legg og mikla höfuðáverka, að því
er segir í frétt Vísis um málið.
Þyrla Landhelgisgæslunnar
var kölluð til og fór hún og sótti
manninn og flutti til Reykjavíkur
til aðhlynningar. Björgun manns-
ins tafðist nokkuð vegna anna, en
björgunarsveitarmenn komust
fljótt til mannsins og hlúðu að
honum þar til þyrlan kom.
„Held að framsóknarmenn
séu almennt Hógværir“
n Margir vondir við flokkinn: „Fjölmiðlar enn þá verulega bitrir“
M
ikill baráttuhugur var
í framsóknarmönn-
um á miðstjórnarfundi
flokksins í síðustu viku.
Klappað var fyrir árangri
flokksins í sveitarstjórnarkosning-
um og hæðst að þeim sem gagnrýnt
hafa flokkinn.
„Engin ríkisstjórn í sögu lands-
ins hefur náð viðlíka viðsnúningi
á jafn skömmum tíma og þessi rík-
isstjórn,“ sagði Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson, forsætisráðherra og
formaður flokksins, í ávarpi sínu.
Þar vitnaði hann í orð sérfræðings
sem þeir Bjarni Benediktsson fjár-
málaráðherra munu hafa fundað
með. Sá hafði hrósað stjórnarherr-
unum fyrir frábæran árangur og
hvatt þá til dáða.
Framsóknarhógværð
„Við vorum skammaðir fyrir að sýna
of mikið lítillæti,“ sagði Sigmundur
og bætti við: „Auðvitað er hógværð
dyggð, og ég held að framsóknar-
menn séu almennt hógværir. En við
verðum að vera dugleg að benda á
staðreyndir.“ Næst taldi hann upp
hagtölur máli sínu til stuðnings.
Hann skýrði aukinn hagvöxt sem
viðbrögð markaðarins við því að ný
ríkisstjórn væri komin til valda og
eignaði henni jafnframt hækkandi
atvinnustig. Ljóst er þó að atvinnu-
leysi hefur minnkað jafnt og þétt frá
árinu 2010.
Þá fullyrti Sigmundur að rík-
isstjórnin hefði ýtt undir fjölg-
un ferðamanna með því að falla
frá áformum um hækkun virðis-
aukaskatts á gistinætur. „Jöfnuð-
ur hefur verið varðveittur og útlit er
fyrir að jöfnuður muni áfram aukast
á næstu misserum, meðal annars
vegna verulega aukinna framlaga
til velferðarmála, almannatrygginga
og með bættum kjörum fyrirtækja,“
sagði Sigmundur.
Formaðurinn fór hörðum orðum
um þá sem gagnrýndu málflutning
Framsóknar og flugvallarvina um
moskur og múslima. „Það er þeim
til ævarandi skammar sem tóku þátt
í þessari framgöngu gegn Fram-
sóknarflokknum. Ég veit að mörg-
um framsóknarmönnum hefur liðið
illa yfir þessum ásökunum sem von
er,“ sagði hann.
Fjölmiðlar vondir við Framsókn
Eftir að Sigmundur lauk ræðu sinni
ræddi DV við Þorstein Sæmunds-
son, þingmann flokksins, en hann
tók undir með Sigmundi. „Þessi
fjölmiðlahringekja sem fór af stað
í aðdraganda kosninga, hún var
ekki sett upp af hálfu fjölmiðla til
að hjálpa flokknum. Þess vegna eru
fjölmiðlar enn þá verulega bitrir,
af því árangur flokksins varð miklu
betri en þeir höfðu átt von á og ætl-
uðust til,“ sagði hann. Samtalið hélt
áfram.
Blaðamaður: „Finnst þér ekk-
ert athugavert við að Framsóknar-
flokkurinn skuli hafa tengt sérstak-
lega einn tiltekinn minnihlutahóp,
múslima, við húsnæðisvandann í
Reykjavík?“
Þorsteinn: „Menn hafa kannski
horft fram hjá því að það var trúar-
bragðaníð haft frammi í þessari
kosningabaráttu, ekki af hálfu Fram-
sóknarflokksins, heldur af hálfu nú-
verandi borgarfulltrúa Samfylk-
ingarinnar.“
Blaðamaður: „Ertu þá að vísa til
tveggja ára gamalla ummæla Krist-
ínar Soffíu, þegar hún brást við
hatursáróðri frá Rétttrúnaðarkirkj-
unni á hinsegindögum? Þetta var
löngu áður en kosningabaráttan
hófst.“
Þorsteinn: „Já, orð eru jafngild
sama hvenær þau eru sögð. Sjáðu
til, okkar oddviti brást við því áreiti
sem hún varð fyrir og það er alveg
fyllilega rétt hjá þér að mikið af því
sem fram kom hefði betur mátt orða
öðruvísi, en nú er ég nýgræðingur
í stjórnmálum eins og þessi ágæta
kona, og það er auðvelt að orða
hlutina öðruvísi en maður vildi,
því maður fær bara eitt tækifæri til
þess.“
Blaðamaður: „Munurinn á þess-
um tveimur borgarfulltrúum, Krist-
ínu og Sveinbjörgu, er meðal annars
sá að annar þeirra baðst afsökunar
á ummælum sínum, en hinn bætti
í ef eitthvað er og fór daginn fyr-
ir kosningar að tengja umræðu um
lóðaúthlutanir í Reykjavík saman
við nauðungarhjónabönd í Svíþjóð.
Fannst þér þetta ásættanlegt og
eðlilegt, að kosningabaráttan skyldi
rekin með þessum hætti?“
Þorsteinn: „Mér fannst umræð-
an fara illa. Hún hefði betur farið
öðruvísi en ég held að menn ættu
að horfa á alla myndina, en benda
ekki á oddvita Framsóknar í Reykja-
vík sem sökudólg í þessu máli.“
„Skoðanir en ekki fólk“
DV ræddi við fleiri þingmenn
flokksins, meðal annars Líneik
Önnu Sævarsdóttur. Aðspurð hvort
hún sem framsóknarkona yrði fyrir
miklum fordómum á Íslandi sagð-
ist hún ekki finna fyrir því. „En ég
upplifi að fólk eigi erfitt í því um-
hverfi sem það er með sínar skoð-
anir. Ég upplifi það ekkert endilega
sem árásir á Framsóknarflokkinn
en oft finnst mér eins og ákveðnar
skoðanir megi ræða, en önnur mál
má ekki ræða, og þá verði allt dá-
lítið upptrekkt og umræðunni sé ýtt
út af borðinu,“ segir Líneik sem kall-
ar eftir því að umræðunni verði lyft
upp á hærra plan.
„Við upplifum þetta í kringum
útlendingaumræðuna. Það er erfitt
að taka málefnalega umræðu um
það hvernig við viljum að samfé-
lagið þróist.“ En hvernig vill Líneik
að innflytjendamálin þróist? „Ég vil
að það sé pláss fyrir alla í þjóðfé-
laginu.“ Aðspurð hvort henni hefði
hugnast málflutningur Framsókn-
ar og flugvallarvina um moskur og
múslima svaraði Líneik: „Það var
margt í moskuumræðunni sem
kom mér á óvart á báða bóga. Ég er
ekkert að gagnrýna einn né neinn,
og það er einmitt lykilatriði, við
erum að ræða skoðanir en ekki fólk,
en ég gagnrýni lífsskoðanir úr báð-
um áttum.“
Þrátt fyrir að margir úr flokks-
forystu Framsóknarflokksins líti á
þá gagnrýni sem Framsókn og flug-
vallarvinir urðu fyrir sem ómak-
lega herferð fundu flokksmenn sig
knúna til að álykta gegn hvers kyns
mismunun og hvetja til jafnræð-
is milli ólíkra hópa. Ályktun í þeim
dúr var samþykkt eftir um það bil
klukkutímaumræður þar sem ólík
sjónarmið voru viðruð. n
Jóhann Páll Jóhannsson
johannp@dv.is
„Það var trúar-
bragðaníð
haft frammi í þessari
kosningabaráttu
Gaman á fundi Ráðherrar mættu keikir á miðstjórnarfund Framsóknarflokksins.
Spjallað um Framsókn Þorsteinn
Sæmundsson ræddi málin við DV.
Feðgin Dóttir
Sigmundar var
með í för.
Kæra vegna
graðfola
Í vikunni var lögð fram kæra
vegna lausagöngu graðfola í
Vestmannaeyjum. Í tilkynn-
ingu á vef lögreglunnar kem-
ur fram að folinn sé iðulega
utan girðingar á syðri hluta
eyjunnar.
Að sögn lögreglunnar var
vikan með rólegra móti hjá
lögreglunni í Vestmannaeyj-
um og komu engin alvarleg
mál upp. Þrjú umferðaró-
höpp voru tilkynnt til lögreglu
í liðinni viku. Í öllum tilvik-
um var um minniháttar óhapp
að ræða og urðu engin slys á
fólki. Þá liggur ein kæra fyrir
vegna brota á umferðarlögum.
Þar var um að ræða óhæfilegan
frágang á farmi vörubifreið-
ar, sem varð til þess að hluti af
farminum féll af palli bifreiðar-
innar og á aðrar bifreiðar, sem
olli skemmdum á þeim.