Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2014, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2014, Blaðsíða 19
Skrýtið Sakamál 19Vikublað 15.–17. júlí 2014 Veist þú um þessa menn? n Mennirnir sem eru efstir á lista FBI yfir mest eftirlýstu glæpamennina n Háar fjárhæðir í boði Í Bandaríkjunum er glæpatíðni há og hlutfall þeirra sem eru í fangelsi er með því hæsta sem gerist. Bandaríska al- ríkislögreglan er þó ekki af baki dottin og leitar stöðugt að mönnum sem fremja alvarlega glæpi. Hér eru níu menn sem eru á lista FBI yfir mest eftirlýstu glæpa- mennina, ef svo má að orði komast. Þeir sem geta vísað á menn- ina, sem eru oftast morðingjar, nauðgarar eða fjársvikamenn, geta átt von á milljónum króna – það er að segja ef ábendingin leiðir til handtöku þeirra. n Robert William Fisher Verðlaunafé: 11,4 milljónir króna Fisher er gefið að sök að hafa, í Arizona árið 2001, myrt eiginkonu sína og tvö börn. Í kjöl- farið hafi hann sprengt upp húsið sem þau bjuggu í. Hann hefur að líkindum þrjú morð á bakinu, auk þess að hafa brotið lög þegar hann flúði ríkið. Þá hefur hann íkveikju á bakinu. Fisher er sagður í góðu líkamlegu formi; hann er vanur útivistar- og veiðimað- ur. Hann er sagður með gullslegna tönn í efri gómi, sem auðkenni hann. Þá gangi hann mjög sperrtur enda hafi hann glímt við eymsli í mjóbaki. Hann hefur tengsl í Nýju- Mexíkó og Flórída og er talinn eiga nokkurt safn vopna; þar á meðal öflugan riffil. Hann er sagður stórnotandi á munntóbak. n Victor Manuel Gerena Verðlaunafé: 114 milljónir króna Gerena er eftirlýstur fyrir að hafa framið vopnað rán í öryggisfyrirtæki í Connecticut árið 1983. Hann tók að sögn tvo menn í gíslingu og hótaði þeim með skotvopni. Því næst er hann sagður hafa handjárnað þá og sprautað þá með óþekktu lyfi, til að gera þá óvirka. Hann er eftirlýstur fyrir ránið og fyrir það að hafa í trássi við lög flúið ríkið. Eins og sjá má er mikið í húfi fyrir þann sem veitir upplýsingar sem leiða til handtöku mannsins. n Alexis Flores Verðlaunafé: 11,4 milljónir króna Flores er grunaður um að hafa rænt og myrt fimm ára gamla stúlku í Fíladelfíu í Pennsyl- vaníu. Leit hófst að stúlkunni í júlí árið 2000. Nokkru síðar fannst hún í nálægri íbúð. Í ljós kom að hún hafði verið kyrkt. Flores er sagður hafa tengsl í Hondúras og gefið í skyn að hann kunni að halda þar til. n Fidel Urbina Verðlaunafé: 11,4 milljónir króna Þessi er eftirlýstur, grunaður um að hafa lamið og nauðgað konu í mars árið 1998, þegar hann gekk laus á skilorði. Sama leik er hann sagður hafa leikið í október það ár – þegar hann er sagður hafa nauðgað og lamið aðra stúlku. Sú lét lífið og fannst í skotti bifreiðar sem kveikt hafði verið í. Báð- ir glæpirnir voru framdir í Chicago í Illinois. Urbina kann að halda til í Durango í Mexíkó. Hann er einnig sagður hafa sambönd á Chicago-svæðinu. n Jason Derek Brown Verðlaunafé: 22,8 milljónir króna Leitað er að Brown í tengslum við morð og vopnað rán í Phoenix, Arizona. Honum er gefið að sök að hafa skotið og drepið brynklæddan öryggisvörð sem var að flytja reiðufé í borginni. Hann stal peningunum og komst undan. Brown er altalandi á frönsku og hefur meistaragráðu í alþjóðaviðskiptum. Hann er lunkinn kylfingur, stundar snjóbretti og ekur krossurum í frístundum. Hann er sagður stunda skemmtistaði grimmt enda njóti hann þess að vera miðdepill athyglinn- ar – og ekki síst að grobba sig af eigum sín- um; bátum, lúxusbílum og öðru dóti. Hann var meðlimur The Church of Jesus Christ of Latter-Day Saints og var um tíma mormóni í nágrenni Parísar í Frakklandi. Hann gæti ver- ið í Kaliforníu eða Utah, en heldur stundum til í Frakklandi og Mexíkó. Hann kann að eiga í fórum sínum 9mm Glock-skammbyssu. n Glen Stewart Godwin Verðlaunafé: 11,4 milljónir króna Godwin er eftirlýstur fyrir að hafa flúið Folsom-fangelsið í Kaliforníu árið 1987, þar sem hann afplánaði langan fangelsisdóm vegna morðs. Lögreglan hafði hendur í hári hans síðar sama ár, þegar hann átti aðild að fíkniefnaflutningum. Hann var dæmdur aftur og sendur í Guadalajara-fangelsið. Í apríl 1991 myrti hann að sögn samfanga og tókst svo að flýja nokkrum mánuðum síðar. Godwin talar spænsku reiprennandi. Hann er talinn halda til í Mið- eða Suður-Ameríku, jafnvel Mexíkó. Hann er talinn starfa við dreifingu fíkniefna. Eduardo Ravelo Verðlaunafé: 11,4 milljónir króna Ravelo er grunaður um skipulagða glæpa- starfsemi af ýmsum toga. Hann er sagður leiðtogi Barrio Azteca-glæpagengisins, sem hefur á ferilskránni alls kyns glæpi, svo sem morð, rán, bílaþjófnaði, mannrán, peninga- þvætti, mansal og fíkniefnamisferli. Ravelo stýrir gengi sem telur um 600 virka meðlimi. n Jose Manuel Garcia Guevara Verðlaunafé: 11,4 milljónir króna Guevara er grunaður um að hafa drepið 26 ára gamla konu að viðstöddum fjögurra ára syni hennar í hjólhýsahverfi í Lake Charles í Louisiana árið 2008. Hann er eftirlýstur fyrir morðið sem og ýmsa aðra glæpi. Þar má nefna nauðgun og þjófnaði. Þeir sem vísað geta á manninn geta átt von á 11,4 milljónum króna. n Semion Mogilevich Verðlaunafé: 11,4 milljónir króna Mogilevich er grunaður um aðild að umfangsmiklu fjársvikamáli þar sem þús- undir fjárfesta voru hlunnfarnir. Mogilevich stýrði fyrirtæki sem hafði höfuðstöðvar í Newton í Pennsylvaníu á árunum 1993 og 1998 og sveik stóran hóp manna um 17 milljarða króna. Hann hefur ekki fundist og er eftirlýstur. Mogilevich er sagður bera yfirvararskegg, yfirleitt, og sé stórreykinga- maður. Hann hefur búið í Rússlandi og hefur rússneskt vegabréf. Hann er einnig sagður eiga grískt, úkraínskt og ísraelskt vegabréf, og gæti því verið nánast hvar sem er. Baldur Guðmundsson baldur@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.