Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2014, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2014, Blaðsíða 22
Vikublað 15.–17. júlí 201422 Umræða Umsjón: Henry Þór Baldursson X-B fyrir þá sem minna mega sín Vinsæl ummæli við fréttir DV í vikunni Ferðamenn bjarga ástarlífi Íslendinga? E inn af kostum þess mikla gestagangs sem nú geis- ar á Íslandi er að hann fær heimamenn stundum til að skoða sjálfa sig í nýju ljósi. Eftir hvítasunnuhelgi vakti mikla athygli mynd sem sýnir par liggja á götunni í Austurstræti í inni- legum faðmlögum snemma um morgun, og var henni víða dreift í gegnum instagram. „Er þetta æla sem hún liggur í?“ spurði einhver í kommentunum. Ekki síður vakti það athygli að vegfarendur virtust lítt eftir þeim taka, eins og þetta væri venjuleg sýn í miðbænum á sunnu- dagsmorgnum. Ljósmyndarinn Alex Brown er frá Minnesota en búsettur hér og var tekinn tali í Grapevine. Hann seg- ist í fyrstu hafa furðað sig á því að Íslendingar færu ekki á stefnumót, heldur fari heim saman af barnum sem getur síðan stundum þróast út í sambönd. Nú hafi hann hins vegar aðlagast aðstæðum og segist una þessu kerfi ágætlega. Á dögunum skrifaði Hildur Sverr- isdóttir grein á Vísi þar sem hún út- skýrir hvers vegna erfitt sé að fara á stefnumót á Íslandi. Það er nánast öruggt að viðkomandi aðilar rekist á einhvern sem þau þekkja, og þá þarf að bera söguna til baka mánuð- um saman ef ekkert verður úr. Hild- ur endar greinina á að óska eftir fleiri innflytjendum, til að auka hér fólksmergð og fjölbreytni. Hins vegar eru minni líkur á að Íslendingar sjálfir fjölgi sér, því sam- kvæmt RÚV var árið í fyrra metár þegar kom að því að láta taka sig úr sambandi. Íslenskum karlmönn- um virðist sérstaklega umhugað um þetta, því um 75 prósent þeirra sem lögðust undir hnífinn voru karlkyns. Í Morgunblaðinu var viðtal við Önu Stanicevic, sem er mikil áhuga- manneskja um Ísland og náð hefur góðu valdi á málinu. Þó finnst henni Íslendingar undarlegir í ástarmálum sem og samskiptum almennt og ekki síst kemur djammmenningin henni spánskt fyrir sjónir. Á Smartlandi var síðan viðtal við Huimin Dong frá Kína sem er gift Íslendingi. Tel- ur hún að ástarsambönd hér séu mun einfaldari en í heimalandinu, þar aðstoði foreldrar gjarnan við makaleitina en ef væntanlegur eig- inmaður hefur ekki efni á íbúð þarf að binda enda á sambandið. Í annarri grein í Morgunblaðinu, sem er birt í dálknum Tækni og vís- indi, fer blaðamaðurinn Þorsteinn Ásgrímsson á stúfana og kemst að þeirri niðurstöðu að í hverjum ár- gangi séu um 30 heppilegir makar fyrir hvern og einn, með tilliti til menntunar og annarra þátta. Lík- urnar á því að rekast á einhvern af þessum 30 eru líklega ekki miklar, ekki einu sinni á litlu landi. Og að ramba á þá á barnum einmitt þegar báðir aðilar eru í svipuðu hugará- standi líklega enn minni. Niðurstaða Þorsteins er svipað- ur og hjá Hildi, eða „Ferðamenn koma til bjargar“. Mögulega er besta leiðin fyrir Íslendinga til að fjölga sér í framtíðinni því sú að kynna sér siði þeirra útlendinga sem hingað koma. Nema þá að þeir verði allir búnir að taka sjálfa sig úr sambandi þegar þar að kemur. n Valur Gunnarsson valurgunnars@gmail.com Kjallari „Hann segist í fyrstu hafa furð- að sig á því að Íslendingar færu ekki á stefnumót. Mynd Eyþór Árnason „Ísrael er að taka upp aðferðir þriðja ríkisins. Sniðgöngum allt sem kemur frá þessu landi.“ Finni Bárðarsyni blöskraði boðað sprengjuregn Ísraela á Gaza á sunnudag. „Líklegt að Umboðsmaður Alþingis noti hotmail.“ sigþrúður Thordersen Þorfinnsdóttir benti á hið augljósa í mistökum ritstjóra Morgunblaðsins. Ritstjóri hélt að tryg49@hotmail.com væri umboðs- maður Alþingis. „Steinþór og aðrir sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ eru siðprúðustu menn landsins. Þetta SPKef dæmi var bara útlendingum að kenna. Vonandi að dóttirin hafni því að taka þátt í þessu.“ þór saari skrifaði heldur kaldhæðna athugasemd við frétt um að Steinþór Jónsson, athafnamaður og fyrrverandi bæjarfull- trúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ, hefði selt Range Rover til dóttur sinnar. „Ögmundur er, það ég best veit, eini þingmaðurinn sem talar opinskátt gegn enn einu frumvarpinu um það að útvista sölu á áfengi. Þar verð ég hans soldat. Margt bendir til þess að nú hafi frumvarpið meirihlutafylgi á þinginu og því er mikilvægt að þeir sem andvígir eru þessari þróun, taki höndum saman.“ þorleifur Gunnlaugsson stendur með sínum fyrrver- andi flokksbróður, Ögmundi Jónassyni, sem telur að verði nýtt áfeng- isfrumvarp að lögum muni það meðal annars skila sér í hærra verði á áfengi, þá sérstaklega úti á landi. „HHG hefur haft sig mjög í frammi í marga áratugi með óvægnar og á tíðum furðulegar skoðanir. Það er furðuleg notkun á hugtakinu „einelti“ þegar hann er gagnrýndur fyrir sjálftöku á ríkisframlögum, á sama tíma og hann verður ítrekað margsaga um aðdragandann.“ Brynjólfur þorvarðarson svaraði gagnrýni um að samstarfsmenn Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar væru að leggja hann í einelti. 11 12 24 14 25

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.