Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2014, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2014, Blaðsíða 24
Vikublað 15.–17. júlí 201424 Neytendur Gerðu Góð kaup á sumarútsölunum n Sumarútsölurnar í fullum gangi n Allt að 80 prósenta afsláttur n Hér getur þú gert góð kaup S umarútsölurnar hófust held- ur snemma í ár og hafa sums staðar nú þegar staðið yfir í rúmlega tvær vikur. Þannig hófust sumarútsölurn- ar í stærstu verslunarmiðstöðvum landsins, Smáralind og Kringlunni, fimmtudaginn 26. júní síðastliðinn. Þá eru dæmi um að sumarútsölun- um sé beinlínis lokið en húsgagna- verslunin ILVA var til að mynda með útsölu dagana 30. maí til 6. júlí síð- astliðna. Sumarútsölurnar nýta flest- ir verslunareigendur til þess að losa sig við sumarlínurnar og rýma til fyr- ir haustlínurnar. Ekki er þar með sagt að það sé ekki hægt að gera góð kaup á öðru en sumarvörum. Inni á milli má finna vörur sem endast allt árið um kring, til dæmis íþróttaföt, úti- vistarvörur, skó og föt á börnin. Algengasti afslátturinn 40 prósent DV kynnti sér afsláttinn í nokkrum verslunum í Kringlunni í síð- ustu viku og tók út stemninguna í leiðinni. Tekið skal fram að um óformlega úttekt er að ræða þar sem afsláttur í nokkrum búðum er tekinn saman. Ómögulegt er að meta bestu útsöluna á sumarútsölunum, með- al annars vegna þess að búðir eru í mismunandi verðflokki. Þessi út- tekt er því ekki tæmandi, en hún gef- ur neytendum hins vegar góða vís- bendingu um hvað þeir mega búast við að finna á útsölunum. Algengasti afslátturinn, í þeim búðum sem DV skoðaði, var í kring- um 40 prósent, en dæmi voru um að verslanir væru með allt að 80 pró- senta afslátt á vörum sínum. Lang- flestar búðir eru með valdar vörur á afslætti en ein og ein verslun set- ur hins vegar allar vörur á útsölu, Herragarðurinn meðal annars. Fjöl- margar verslanir slá síðan enn meira af verðinu þegar líður á útsölurnar og bæði í Kringlunni og Smáralind endar útsalan á götumarkaði. Dömuföt Víða er hægt að fá kvenmannsföt á góðu verði. Í mörgum búðum eru að auki komnar nýjar vörur. Það getur verið erfitt að láta ekki undan freistingunni og kaupa frekar nýju vörurnar sem eru oft meira aðlað- andi. Þá er mikilvægt að gefa sér tíma til að skoða útsöluvörurnar í rólegheitum og sjá hvort ekki leyn- ist ein og ein hversdagsleg flík innan um litríku sumarkjólana. Ógerningur væri að telja upp alla afslætti á dömufötum í Kringlunni, en hér eru nokkur dæmi: Í verslun- um Hagkaups er hægt að gera góð kaup á dömufötum en þar náði af- slátturinn upp í allt að 70 prósent. Algengasti afslátturinn er hins vegar 40 prósent, bæði á kven- og karla- fötum. Í Dúkkuhúsinu er 30–60 pró- senta afsláttur af völdum vörum og í Marc O‘Polo er 40 prósenta afsláttur á öllum vörum nema seðlaveskjum. Í Cosmo er 40–70 prósenta afsláttur og Vila, Gallerí Sautján og Vero Moda eru með 30–50 prósenta afslátt af útsöluvörum. Mesti afslátturinn í þessari könnun fannst í versluninni ZikZak en þar er allt að 80 prósenta afsláttur. Herraföt Hjá Herragarðinum er 40 prósenta afsláttur á öllum vörum og 50 pró- senta afsláttur á skyrtum. „Hér er hægt að gera mjög góðan díl. Fullt af fólki hefur kíkt á okkur og gert góð kaup. Við förum síðan að taka upp nýjar vörur á næstu vikum,“ segir Gísli Sveinsson, starfsmaður Herra- garðsins, í samtali við DV. Í Dress- mann er hægt að fá þrjár sumarvör- ur á verði tveggja. Þú færð ódýrustu vöruna sem sagt í kaupbæti. Þó svo að um sumarvörur sé að ræða er vel hægt að finna boli og skyrtur sem endast allt árið um kring. Í Joe Boxer er að finna sama tilboð á boxernær- buxum, það er þrjár á verði tveggja. Í Jack & Jones var verið að taka upp nýjar vörur þegar blaðamaður var á ferðinni en útsöluvörur eru á 30–50 prósenta afslætti. Skór og barnaföt Ekki var eins mikið úrval af barna- fötum á afslætti eins og á fötum fyr- Áslaug Karen Jóhannsdóttir aslaug@dv.is „Nú er ég að leita mér að naglalakki í stíl við fótsnyrtinguna sem ég fékk mér í morgun. Margir gert góð kaup í Herragarðinum Gísli Sveinsson, starfsmaður í Herragarðinum, segir sumarútsölurnar ganga vel. MynDIR SIgtRygguR ARI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.