Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2014, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2014, Blaðsíða 38
Vikublað 15.–17. júlí 201438 Fólk Uppáhaldsbækur stjarnanna Stjörnur eru ekki einungis risastórir rafgashnettir sem verða glóandi vegna kjarnasamruna í eigin iðrum heldur líka venjulegt fólk sem lifir eðlilegu lífi og á sér hefðbundin áhugamál, meðal annars lestur góðra bóka. DV tók saman uppáhaldsbækur nokkurra stjarna. Barack Obama Forseti Bandaríkjanna hefur sjálfur skrifað þrjár bækur: The Audacity of Hope, Dreams from My Father og Of Thee I Sing. Sú síðastnefnda er barnabók sem hann tileinkaði dætrum sínum. Barack skrifar hins vegar ekki aðeins heldur les að sögn eins og vindurinn. Uppáhaldsbók hans er Song of Solomon eftir Nóbelsverðlaunahafann Toni Morrison.George Clooney Leikarinn og leikstjórinn George Clooney er mikill aðdáandi rússneska rithöfundarins Lév Nikolajevítsj Tolstoj greifa. Uppáhaldsbók hans er doðranturinn Stríð og friður, sem er til í íslenskri þýðingu. Bókin, sem er vel yfir þúsund blaðsíður að lengd, er af mörg- um talin mesta skáldverk allra tíma. Sir Michael Caine Michael Caine er af mörgum talinn einn besti leikari allra tíma, alla vega samtímans. Uppáhaldsbók hans er Uppsprettan eftir rússnesk-bandarísku skáldkonuna Ayan Rand. Rand er einnig í miklu uppáhaldi hjá Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, sem notar bókina sem skyldulesefni í áfanga sínum um stjórnmálaheimspeki. Rand var mikil frjálshyggjukona og taldi að skattar og flest samneysla brytu freklega gegn frelsi einstaklingsins. Uppsprettan kom upphaflega út árið 1943 og í íslenskri þýðingu Þorsteins Siglaugssonar árið 1990. Kate Winslet Titanic- stjarnan og óskarsverðlaunahafinn Kate Winslet er þekkt innan Hollywood- samfélagsins sem andlega þenkjandi bókaormur. Uppáhaldsbók hennar er Therese Raquin eftir franska rithöfund- inn Emile Zola. Zola hefur tvisvar sinnum verið tilnefndur til Nóbelsverðlaunanna í bókmenntum; í fyrsta sinn sem þau voru afhent, árið 1901, og aftur árið eftir. Í hvorugt skiptið hreppti hann hnossið. Emma Thompson Breska leikkonan Emma Thompson heldur mikið upp á gríska skáldjöfurinn Hómer. Uppá- haldsbók hennar er Ódysseifskviða, sem er annað tveggja sögukvæða sem honum er eignað. Hitt er Ilíonskviða. Báðar kviður eru til í þýðingu Sveinbjarn- ar Egilssonar. Zooey þreytt á barneigna- þrýstingi Leikkonan Zooey Deschan- el er orðin þreytt á spurningun- um sem konur fá sífellt varðandi barneignir. Þá sérstaklega vanga- veltur um hvort þær ætli að eign- ast þau. „Eins og allar konur langi meira en allt að eignast börn. Ég held ekki. Enginn spyr karl- menn að þessari spurningu,“ seg- ir Zooey. „Þú ferð út í matvörubúð og sérð að öll slúðurblöð bera titla líkt og „ólétt og einstæð“ og eru föst í sjötta áratugar hugsun um hvernig konur eigi að lifa lífi sínu. Þetta vekur hinn eldheita femínista í mér,“ segir Zooey með baráttuhug. Slagsmál í teiti hjá Paris Hilton Leikarinn Jeremy Jackson mætti óboðinn L ögreglan þurfti að hafa afskipti af samkvæmi sem Paris Hilton hélt á heimili sínu í Malibu, Kali- forníu, um helgina vegna slags- mála. Leikarinn Jeremy Jackson mætti óboðinn í teitið með nokkra vini, þar sem fyrir voru einungis fimm til sex manns. Þegar honum var sagt að hann ætti að yfirgefa svæðið reiddist hann og hrópaði „vitið þið ekki hver ég er? Ég var í Baywatch og Celebrity Rehab.“ Þá á Jackson að hafa gripið einn sam- kvæmisgest og byrjað að kyrkja hann. Paris og vinur hennar, Brandon Dav- is, gripu þá inn í og stukku ásamt öðrum á Jeremy í von um að ná honum af samkvæmisgestinum. Raunveruleikastjarnan Jasmine Waltz barði hann loks í höfuðið með vod- kaflösku. Eftir það yfirgáfu Jeremy og vinir hans svæðið og unnu skemmdar- verk á bíl Parisar í leiðinni. Jeremy lýsir atvikunum í fjölmiðl- um sem grimmilegri árás. „Þau voru bókstaflega að ráðast á mig eins og gert var við Rodney King,“ sagði Jer- emy við TMZ en Rodney King er þekktur fyrir að hafa verið laminn illi- lega af fjórum lögreglumönnum árið 1991 meðan aðrir stóðu aðgerðarlaus- ir og horfðu á. Í áflogunum meiddist bróð- ir Parisar, Barron Hilton, sömuleiðis og var færður á spítala blóðugur og þurfti að sauma nokkur spor. Að sögn lögreglu var hringt tvisvar vegna at- vikanna þegar þau áttu sér stað, þar sem báðir sögðust hafa orðið fyrir árás frá hinum. Þegar lögregla loks mætti á svæðið vildi enginn leggja fram kæru. n Vildi ekki Jeremy Paris Hilton vildi halda samkvæmi sínu lágstemmdu en það gekk ekki sem skyldi. Cheryl gifti sig Söngkonan og X Factor-dóm- arinn Cheryl Cole deildi nýlega mynd á netinu þar sem hún til- kynnti að hún væri búin að gift- ast franska unnusta sínum, Je- an-Bernand Fernandez-Versini. Cheryl er 31 árs en hún hefur einungis verið með hinum 33 ára veitingastaðareiganda í þrjá mánuði. Þau kynntust á Cannes- kvikmyndahátíðinni í maí. Þau giftu sig á strönd á Must- ique-eyjunni en einungis fjórir voru viðstaddir athöfnina. „Ég ræði vanalega ekki mitt persónu- lega líf en til þess að stöðva vangaveltur vil ég deila þessum gleðifréttum. Ég og Jean-Bernard giftum okkur 7/7/14. Við erum hamingjusöm og full spennu yfir því að halda áfram með líf okk- ar saman,“ stóð undir myndinni sem Cheryl deildi af þeim skötu- hjúum. Af með skítinn á með Aktu inn í sumarið áhreinum bíl! Kíktu inn á www.lodur.is og kynntu þér glænýjar staðsetningar Löðurs! www.lodur.is - Sími 544 4540 12 STAÐIR Nú er Löður á 12 stöðum + 1 á Akureyri +1

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.