Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2014, Qupperneq 4
Vikublað 15.–17. júlí 20144 Fréttir
Samuel Synjað
um dvalarleyfi
n Eiginmaður íslenskrar konu n Langþreytt á slag við útlendingayfirvöld
E
iginmanni Dagnýjar Al-
bertsdóttur, Samuel Eboig-
be Unuko frá Nígeríu, hefur
verið synjað um dvalarleyfi
á Íslandi. Í ákvörðunarorð-
um Útlendingastofnunar sem bár-
ust Dagnýju í lok síðustu viku kem-
ur fram að umsækjandi uppfylli
ekki grunnskilyrði a-liðar í 11. grein
útlendingalaga sem kveður á um að
framfærsla, sjúkratrygging og hús-
næði umsækjenda þurfi að vera
tryggt.
„Þetta er allt hið undarlegasta mál
enda hef ég þegar sýnt fram á mun
hærri framfærslu en lágmarkið seg-
ir til um,“ segir hún í samtali við DV.
Dagný og Samuel hafa ráðfært sig
við lögfræðing og hyggjast þau fara
fram á endurupptöku á málinu. Hún
segir mögulegt að synjunin sé til-
komin vegna þess að sjúkratrygging
Samuels hafi runnið út í miðju um-
sóknarferli. Hún vinnur nú að því að
endurnýja hana og ganga frá öðrum
lausum endum. Hún er orðin lang-
þreytt á því að reka sig á veggi hjá
útlendingayfirvöldum. „Mér er al-
gjörlega misboðið, ég er alveg búin
að fá nóg.“
Gat ekki greitt skuld
DV hefur fjallað ítarlega um mál
þeirra hjóna að undanförnu en þau
giftu sig úti í Svíþjóð í janúar síð-
astliðnum. Samuel kom til Íslands í
desember 2011 og sótti um hæli sem
flóttamaður. Mál hans var aldrei tek-
ið efnislega fyrir og að endingu stað-
festi Hæstiréttur Íslands úrskurð
Útlendingastofnunar um að hon-
um skyldi vísað úr landi á grundvelli
Dyflinnar-reglugerðarinnar.
Hann var handtekinn og fluttur
úr landi í nóvember í fyrra. Þá var
honum gert að afhenda aleigu sína
ellegar skrifa undir skuldaviður-
kenningu og skuldbinda sig þannig
til þess að greiða 197 þúsund krónur
fyrir flutning og fylgdarmenn. Hann
valdi síðari kostinn og er því í skuld
við ríkissjóð.
Þau Dagný hafa fram að þessu
ekki viljað greiða skuldina við ríkis-
sjóð enda hafi honum aldrei boðist
að fara til Svíþjóðar af sjálfsdáðum.
Dagný ákvað hins vegar síðast-
liðinn föstudag að greiða skuldina í
þeim tilgangi að liðka um fyrir um-
sókn Samuels. Hjá ríkislögreglu-
stjóraembættinu fékk hún hins vegar
þau skilaboð að hún gæti ekki greitt
skuldina þar sem enginn væri starf-
andi í bókhaldi embættisins.
„Þetta er ekki hægt“
Þetta segir Dagný að sé lýsandi fyr-
ir allt ferlið sem hafi nú staðið yfir í
mánuði. Þau reki sig í sífellu á nýja
veggi innan stjórnkerfisins. „Ég var
loksins búin að sætta mig við að
borga þetta – þó með fyrirvara – og
þá var það ekki hægt,“ segir Dagný
sem tekur fram að hún hyggist fara
með mál þeirra Samuels fyrir dóm-
stóla þegar þessari rimmu lýkur. „Já,
ég ætla í mál vegna þessarar með-
ferðar, þetta er ekki hægt.“
Samuel hefur síðan í nóvember
látið lítið fyrir sér fara í Malmö í Sví-
þjóð. „Ég hef verið á Íslandi í tvö ár,
unnið fyrir mér, eignast kærustu sem
hefur reynst mér svo vel og á í raun
nýja fjölskyldu. Mér fannst ég loksins
vera búinn að öðlast friðsælt líf þegar
ákveðið var að taka það allt frá mér
á einu bretti,“ sagði Samuel í samtali
við DV í síðasta mánuði.
Fleiri hjónum sundrað
Sænsk útlendingayfirvöld hafa gefið
það út að Samuel verði sendur aftur
til Nígeríu en þar óttast hann um ör-
yggi sitt. Að sögn Dagnýjar fer and-
legri og líkamlegri heilsu hans nú
ört hrakandi en óvissan um framtíð-
ina hefur tekið mikið á hann. „Það er
óskaplega slítandi að vera í þessari
stöðu,“ segir Dagný sem hyggst
heimsækja Samuel í fimmta skiptið
á þessu ári um miðjan næsta mánuð.
Mál Dagnýjar og Samuels svipar til
mála sem fjallað var um í fjölmiðlum í
maí síðastliðnum. Þannig var Hassan
Al Haj, eiginmanni Margrétar Láru
Jónasdóttur, vísað úr landi á grund-
velli Dyflinnar-reglugerðarinnar þrátt
fyrir að þau væru gift. Hassan er enn
þá úti í Svíþjóð og þá staðfestir lög-
maður hans að engin svör hafi borist
frá ráðuneyti eða Útlendingastofnun
varðandi það hvort honum verði gert
kleift að snúa aftur. n
„Mér er algjörlega
misboðið, ég er
alveg búin að fá nóg
Jón Bjarki Magnússon
jonbjarki@dv.is
Málaflokkur í ólestri Málefni hælisleit-
enda og flóttafólks á Íslandi hafa verið í
ólestri undanfarin misseri. Mynd SiGtryGGur Ari
Fær ekki dvalarleyfi Útlendinga-
stofnun hefur synjað Samuel um
dvalarleyfi, meðal annars á þeirri
forsendu að Dagný hafi ekki sýnt
fram á nægjanlega framfærslu.
Barinn með
golfkylfum
Lögreglan óskar eftir vitnum
„Við höfum mjög óljósa vit-
neskju um hvað gerðist, þannig
að okkur vantar vitni. Þetta ger-
ist nú ekki á hverjum degi að
hópur manna gangi á mann og
berji hann með kylfu þannig að
við höfum ekki farið í að lýsa
nánari staðsetningu,“ segir Árni
Þ. Sigmundsson, stöðvarstjóri
lögreglustöðvar 4, sem fer með
rannsókn máls sem kom upp
um helgina þegar hópur manna
réðist á og lömdu mann, meðal
annars með golfkylfum.
„En okkur vantar vitni
þannig að ef einhver hefur
orðið var við þetta þá þiggjum
við upplýsingar,“ segir Árni og
bendir fólki á að hafa samband
við lögreglustöð 4 í síma 444-
1180, búi það yfir upplýsingum
um málið.
Atvikið átti sér stað laust fyr-
ir miðnætti á laugardagskvöld.
Er lögregla mætti á staðinn var
þar maður á fertugsaldri með
áverka víðs vegar um skrokkinn
og sprungna vör. Blæddi í gegn-
um bol sem hann var klæddur í.
Að sögn lögreglu mun á annan
tug pilta hafa ráðist á hann með
golfkylfum. Þeir voru allir farnir
þegar lögregla mætti á vettvang.
Þeir höfðu hins vegar brotið
rúðu í húsinu sem maðurinn
var við.
Hann segir lögreglu hafa
mjög litlar upplýsingar um mál-
ið og að atburðarásin sé mjög
óljós. Hann segir fórnarlambið
ekki þekkja til árásarmannanna
og ekki er vitað hver ástæðan
fyrir henni sé.
„Þetta er allt á frumstigi og
liggur ekki fyrir eins og stað-
an er núna, þannig að við erum
bara að reyna að ná utan um
þetta,“ segir Árni en bætir við að
ekkert bendi til þess að árásin
tengist átökum í undirheimum
eða annarri glæpastarfsemi.
Eldislax á öngla veiðimanna
Tvö hundruð laxar sluppu úr sláturkví í fyrra
S
íðastliðinn nóvember sluppu
nærri tvö hundruð fullvaxta lax-
ar úr sláturkví Fjarðalax í Pat-
reksfirði. Nú hafa sumir þessara
fiska ratað á öngla veiðimanna í Pat-
reksfirði. „Þetta voru sjö fiskar sem ég
frétti af sem veiddust núna á sunnu-
dag,“ segir Jónatan Þórðarson, eldis-
stjóri Fjarðalax, í samtali við DV. „Það
veiddust þarna nokkrir laxar í ósnum
rétt hjá kvíunum. Það eru þarna nokkr-
ir fiskar að hringsóla á flakki. Það virð-
ast einhverjir fiskar hafa lifað þetta af.
Þetta er eins og alisvín myndi sleppa út
í skóg á Íslandi, það myndi ekkert vita
hvað það ætti að gera.“
Jónatan segir ómögulegt að vita
hvort laxinn verði á þessu svæði áfram.
„Þetta eru þeirra heimkynni á vissan
hátt. Þetta voru náttúrlega stórir fiskar
sem sluppu, þannig að það er lengi að
ganga á þá. Það er mikill fituforði til að
lifa á. Þeir drepast seint. Mér sýnist nú
að þeir verði flestir veiddir. Það er auð-
velt að veiða laxinn, hann sést svo vel,“
skýrir Jónatan.
Hann segist ekki hafa nokkra trú
á því að eldislaxinn fjölgi sér þar sem
hann sé ekki kynþroska. Jónatan telur
að meirihluti þess lax sem slapp verði
veiddur í sumar. „Þetta eru bara flakk-
arar. Mönnum leiðist það nú ekki, þetta
er stórir laxar og góðir til átu. Það er
enginn að gráta hér, nema kannski við
þar sem við gátum ekki selt þá og feng-
ið pening fyrir þá.“ Fiskurinn sem slapp
var í sláturstærð, eða bilinu þrjú til
fimm kíló. Af myndum að dæma virðist
laxinn sem nú veiðist vera álíka þungur
og þegar hann slapp. n hjalmar@dv.is
Eldislax Veiðimenn geta vel við unað að ná eldis-
laxinum sem slapp úr sláturkví Fjarðalax í Patreks-
firði. Hann veiðist nú úr ósnum rétt hjá kvíunum.