Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2014, Síða 6
Vikublað 15.–17. júlí 20146 Fréttir
Hugo Boss söluaðilar:
Reykjavík:
Gilbert úrsmiður Laugavegi 62 s: 551-4100
Gullúrið–úra og skartgripaverslunv Mjódd s: 587-4100
Úra- og skartgripaverslun Heide Glæsibæ s: 581-3665
Meba Kringlunni s: 553-1199
Meba - Rhodium Smáralind s: 555-7711
Hafnarfjörður
Úr & Gull Firði-Miðbæ Hafnarfjarðar s: 565-4666
Keflavík:
Georg V. Hannah, úrsmiður Hafnargötu 49 s: 421-5757
Selfoss:
Karl R. Guðmundsson, úrsmiður Austurvegi 11 s: 482-1433
Akureyri:
Halldór Ólafsson úrsmiður Glerártorgi s: 462-2509
Akranes:
Guðmundur B. Hannah, úrsmiður Suðurgötu 65 s: 431-1458
Egilsstaðir:
Klassík Selási 1 s:471-1886
Úra- o skartgripaversl n
Heide Glæsibæ - s: 581 36 5
Komið að þolmörkum
n Eins og hálfs árs biðtími á Reykjalund n Forgangsröðin í þágu ungs fólks
B
iðtími til að komast í endur-
hæfingu á Reykjalundi get-
ur verið allt að eitt og hálft
ár. Talsverður mismunur er
á biðtíma eftir deildum en
lengst er biðin fyrir offitusjúklinga.
Síðastliðin áramót var hætt að taka
við nýjum umsóknum á offitusviði.
Magnús Ólason, framkvæmdastjóri
lækninga á Reykjalundi, segir í sam-
tali við DV að helsta ástæðan fyrir
þessu sé að fleiri sæki um en kom-
ast að. Reykjalundur hefur um ára-
tugaskeið verið helsta endurhæf-
ingarstofnun Íslands. Stofnunin er í
eigu Sambands íslenskra berkla- og
brjóstholssjúklinga en er með þjón-
ustusamning við ríkið.
Þvinguð til að forgangsraða
Magnús segir að biðtími geti ver-
ið ansi misjafn og þá sé helst litið
til aldurs og aðstæðna viðkomandi
sjúklings. Stystur sé biðtíminn á
hjarta- og lungnasviðum þar sem
hann sé á bilinu þrír til fjórir mánuð-
ir. „Við erum með átta meðferðar-
svið og eðli málsins samkvæmt þá
er biðtími mjög mismunandi eftir
því hvað er verið að meðhöndla. Til
að gera langa sögu stutta þá erum
við með þjónustusamning við rík-
ið upp á að afkasta tólf hundruð
einstaklingum í gegnum átta mis-
munandi svið stofnunarinnar á ári.
Á seinasta ári var beiðnafjöldi sem
kom inn nærri nítján hundruð. Við
erum raunverulega þvinguð til þess
að reyna að forgangsraða eftir því
hversu þörfin er brýn,“ segir Magn-
ús.
Hafa ekki nægilegan mannafla
„Tökum dæmi um eitt meðferðar-
svið sem er með þrjú hundruð
manns á biðlista, þá mundi raun-
verulegur biðtími vera eitt og hálft ár.
Hann er það samt ekki alveg því við
getum ekki boðið öllum þjónustu.
Snjóboltaáhrifin myndu hreinlega
eyðileggja starfið hérna. Það eru
hreinlega fleiri sem vilja koma en
við getum tekið við, því miður,“ segir
Magnús. Hann bendir á að Reykja-
lundur hafi hreinlega ekki mannafla
né fjármagn til að taka við öllum
sem vilja koma í endurhæfingu. Eft-
ir hrun varð talsverð skerðing á fjár-
veitingum til Reykjalundar. Magn-
ús segir að sú skerðing hafi verið
upp á fjórðung þess sem áður var.
„Vandinn er stærri en stofnun eins
og Reykjalundur ræður við, þó að
allt væri sem ákjósanlegast.“
Biðlista á offitusvið lokað
Nú er unnið að því að endurskipu-
leggja starf offitusviðs þar sem bið-
tími hefur verið lengstur. „Við vor-
um hreinlega þvinguð til að loka
þar biðlistanum um áramótin. Við
erum einfaldlega bara með þjón-
ustusamning um að taka við hund-
rað einstaklingum á því sviði en það
hafa borist yfir þrjú hundruð beiðn-
ir. Það er einfalt reikningsdæmi.“
Magnús segir að fram til áramóta
hafi verið tekið á móti öllum beiðn-
um sem hafði þær afleiðingar að
umsóknir hrönnuðust upp. „Margt
þetta fólk sem biður um pláss verð-
ur bara að láta sér lynda einfaldari
úrræði, svo sem hjá heilsugæslunni
eða prívat þjónustu.“
Mikið af fólki undir þrítugu
Magnús segir það algengt að ungt
fólk sem er annaðhvort við það að
detta út af vinnumarkaðinum eða sé
nú þegar komið í þá stöðu óski eftir
að komast á Reykjalund. Hann seg-
ir að reynt sé eftir fremsta megni að
hafa biðlistann hjá slíkum einstak-
lingum sem stystan. „Eðli endur-
hæfingarstarfs er að grípa sem fyrst í
taumana og það er afar slæmt ef fólk
þarf að bíða. Ég get tekið sem dæmi
verkjateymið sem ég hef unnið mest
á. Meðalaldurinn hjá okkur þar er
þrjátíu og átta ár. Þannig að það er
mikið af fólki þar sem er innan við
þrítugt. Þeir sem eru að bíða eru
þá þeir sem eru eldri en sextíu ára.
Tilhneigingin er að reyna að koma
þeim yngri út í þjóðfélagið.“ n
Hjálmar Friðriksson
hjalmar@dv.is
Reykjalundur Að sögn fram-
kvæmdastjóra lækninga á Reykjalundi er
biðlisti æði misjafn eftir deildum. Hann
getur verið allt að eitt og hálft ár.
Framkvæmdastjóri lækninga Magn-
ús Ólason segir að reynt sé eftir fremsta
megni að forgangsraða í þágu þeirra sem
eru yngri.
„Vandinn er stærri
en stofnun eins
og Reykjalundur ræður
við, þó að allt væri sem
ákjósanlegast
„Við vorum hreinlega
þvinguð til að loka þar
biðlistanum um áramótin
Verðbólga
mun aukast
Vísitala neysluverðs mun lækka
um 0,2 prósent í júlí og verðbólga
aukast lítillega, eða úr 2,2 prósent-
um í 2,3 prósent. Þetta er sam-
kvæmt spá sem Greining Íslands-
banka gaf út á mánudag. Í spánni
kemur fram að verðbólguhorfur
séu ágætar það sem eftir lifir árs.
„Líkt og áður gerum við ráð fyrir að
verðbólgan muni aukast á næsta
ári samhliða auknum umsvif-
um í hagkerfinu. Þó teljum við að
verðbólga verði mun minni næstu
ár en hún hefur að jafnaði verið
undanfarin ár,“ segir í umfjöllun á
vef Greiningar Íslandsbanka.
Hagstofan birtir vísitölu neyslu-
verðs fyrir júlí hinn 23. júlí næst-
komandi. Í spánni er bent á að
útsöluáhrif muni vega þungt í
lækkun vísitölunnar. Á hinn bóg-
inn bendi margt til þess að ýms-
ir liðir vísitölunnar muni hækkað
nokkuð í júlí. Má þar nefna ferða-
og flutningalið vísitölunnar þar
sem þyngst vegur hækkun elds-
neytisverðs og flugfargjalda frá síð-
ustu mælingu Hagstofunnar. Þá er
gert ráð fyrir hækkun á húsnæð-
islið vísitölunnar þar sem gjald-
skrárhækkun Orkuveitu Reykjavík-
ur á rafmagni og hita vegur þyngst.
Verð lækkar og velta eykst
Sala á matvöru nálgast það sem hún var fyrir hrun
V
öxtur hefur verið í nánast allri
verslun þegar horft er til fyrstu
sex mánaða ársins miðað við
sama tímabil í fyrra. Þetta
kemur fram í tölum sem Rannsóknar-
setur verslunarinnar birti á mánu-
dag. Þar kemur fram að verð á dag-
vöru hafi lækkað um 1,4 prósent frá
áramótum. Mestur hefur vöxturinn
verið í raftækjaverslun sem jókst um
25,6 prósent og verslun með húsgögn
sem jókst um 16 prósent á fyrri helm-
ingi þessa árs miðað við fyrri helming
síðasta árs. Velta dagvöruverslunar á
fyrri helmingi ársins jókst um 3,3 pró-
sent að raunvirði frá sama tímabili í
fyrra, áfengisverslunar um 3,4 pró-
sent og fataverslunar um 3,5 prósent.
Í tölum Rannsóknarsetursins kemur
fram að sala á matvöru sé nú að nálg-
ast það sem var fyrir hrun. Þetta sjá-
ist á því að töluverður raunvöxtur hef-
ur orðið í veltu dagvöruverslunar að
undanförnu. Þanning er velta í dag-
vöruverslun í júní jafn mikil og í júní
árið 2007. Veltan minnkaði verulega
strax eftir hrun en hefur smám saman
aukist á ný. „Helsta ástæða aukinnar
dagvöruverslunar er að einkaneysla
innanlands eykst og verð á dagvöru
fer lækkandi. Sala til erlendra ferða-
manna hefur einnig einhver áhrif
og þó sérstaklega á verslun á lands-
byggðinni,“ segir Rannsóknarsetrið í
tilkynningu. n
Verslun Vöxtur hefur verið í nánast
allri verslun á fyrri helmingi þessa árs
miðað við fyrri helming síðasta árs.
Myndavél stolið
úr ólæstri bifreið
Erlendur ferðamaður sem skoðaði
Gullfoss síðastliðinn föstudag varð
fyrir því að brotist var inn í bifreið
hans sem hann gleymdi að læsa.
Í dagbók lögreglunnar á Selfossi
kemur fram að Canon 5D Mark III-
myndavél og tveimur linsum hafi
verið stolið úr bifreiðinni. Talið er
að þjófnaðurinn hafi verið framinn
á milli klukkan 15 og 16. Í dagbók
lögreglu kemur einnig fram að ekið
hafi verið á sex ára dreng á reiðhjóli
í Hveragerði á laugardag, en dreng-
urinn var að hjóla yfir gangbraut
þegar slysið varð. Drengurinn hlaut
skrámur á læri, að sögn lögreglu.