Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2014, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2014, Page 8
Vikublað 15.–17. júlí 20148 Fréttir Svona stóðu þau sig n Niðurstöður samræmdu prófanna og Pisa hjá reykvískum nemendum mjög keimlíkar N iðurstöður Pisa-könnunar- innar árið 2012, alþjóð- legrar rannsóknar á getu og hæfni 10. bekkinga í völdum fögum, þóttu mik- ið áhyggjuefni. Könnunin leiddi í ljós að frammistaða íslenskra nem- enda hafði versnað verulega frá ár- inu 2009, en þá var könnunin síðast lögð fyrir í grunnskólum landsins. Námsmatsstofnun greindi frá því að ef horft er til allra PISA-mælinga frá upphafi, þá hefur nemendum hrakað sem nemur um hálfu skóla- ári á síðasta áratug. Í ljós kom að ís- lensk ungmenni stóðu sig verst í náttúrufræði á Norðurlöndunum. Þá hefur piltum farið verulega aft- ur í lesskilningi og stærðfræðilæsi, og eru nú um 30 prósent þeirra á tveimur neðstu þrepum lesskilnings og um 20 prósent á neðstu þrepum stærðfræðilæsis. Þrátt fyrir þessa bagalegu niður- stöðu eru margir sem hafa bent á galla og takmarkanir Pisa-könnunar- innar og telja hana ekki endilega gefa góða eða heildstæða mynd af árangri íslenskra grunnskólanema. Hana bæri þó að taka alvarlega og jafnvel sem nokkurs konar áminningu. Ekki taka allir nemendur þátt í Pisa-könnuninni og er svarhlutfallið því ólíkt því sem gerist í samræmdu prófunum. Líkt og Reykjavíkurborg hefur bent á felst því meiri óvissa í notkun PISA-niðurstaðna fyrir hvern og einn skóla ef skoðaðar eru niður- stöður samræmdu könnunarpróf- anna. Stóðu sig einna best Samanburðurinn hér til hliðar byggist á árangri nemenda í Reykja- vík árið 2011 í samræmdu prófunum og í Pisa-könnuninni árið 2012. Nem- endur í Reykjavík stóðu sig einna best á landsvísu í Pisa-könnuninni. Tekið er mið af frammistöðu í stærð- fræði og íslensku. Hafa ber í huga að í Pisa-könnuninni er aðeins verið að kanna lesskilning í íslensku. Nýrri tölur liggja fyrir varðandi samræmdu prófin, það er niðurstaða ársins 2013 og 2012 liggur fyrir, en þar sem Pisa könnunin er aðeins lögð fyrir á þriggja ára fresti er tekið mið af þess- um árgangi, það er nemenda sem voru í 10 bekk árið 2011–2012. Undanskilur marga Þessir nemendur tóku því samræmd próf haustið 2011 en þreyttu Pisa- könnunarpróf í mars og apríl 2012. Prófin eru því að mörgu leyti sam- bærileg, það er þau kanna hæfni nemenda á ákveðnum sviðum, en eru þó í eðli sínu ólík. Samræmdu prófin eru vel að merkja sérsniðin að íslenskri námskrá. Aðeins eru bornar saman tölur ef upplýsingar liggja fyr- ir um frammistöðu nemenda í öllum fjórum prófunum. Það undanskilur til dæmis Borg- arskóla sem stóð sig best í stærð- fræðilæsi í Pisa-könnuninni þar sem DV hefur ekki tölur sem tengjast samræmdum prófum hjá sama ár- gangi. Fyrir nemendurna sjálfa er tals- vert mikill munur á því að mæta í samræmt próf og Pisa-könnunina. Munurinn liggur ef til vill ekki síst í því að í samræmdu prófunum sjá nemendur og fá í hendurnar niður- stöðuna af vinnu sinni. Þeim er gef- in einkunn sem reiknuð er út mið- að við frammistöðu þeirra í prófinu. Það gerist ekki þegar nemendur taka Pisa-könnunina. Þeir fá ekki beinar upplýsingar um frammistöðu sína, aðeins tölfræði og umræðu um með- altöl. Sem dæmi má nefna að sá ár- gangur sem tók prófið árið 2012, þær tölur sem nýverið hafa verið birt- ar, hefur að stórum hluta þegar haf- ið mennta- eða iðnskólanám og er því að líkindum ekki að velta fyrir sér frammistöðu sinni á könnunar- prófi fyrir tveimur árum. Tölurn- ar og tölfræðin nýtist því helst þeim sem starfa að menntun á Íslandi; skólunum sjálfum, sveitarstjórum og menntamálaráðuneytinu. Svona skiptist þetta Þegar rýnt er í tölurnar er af mörgu að taka. Skólarnir virðast oft skipa sér í svipuð sæti í samræmdu prófunum og Pisa-könnuninni. Ölduselsskóli er til að mynda í þessari úttekt í fjórt- ánda sæti í Pisa-könnuninni í stærð- fræði, en fimmtánda í samræmdu prófunum í stærðfræði. Árbæjarskóli er í áttunda sæti í samræmdu prófun- um í stærðfræði, en því níunda í Pisa- könnuninni. Þar að auki skipa sömu skólarnir sér oftar en ekki alltaf í efstu fimm sætin og neðstu tvö. Hagaskóli ratar til dæmis þrisvar í efstu fimm sætin og Háteigsskóli er í öllum próf- unum í fyrsta til þriðja sæti. Þó get- ur verið mikill munur á frammistöðu skólanna milli prófa. Í lesskilningi er Réttarholtsskóli til að mynda efstur á blaði í Pisa-könnuninni. Í samræmdu prófi í íslensku er skólinn í 10. sæti af 21. Í stærðfræði er Hlíðaskóli í öðru sæti í Pis- könnuninni en í því sjö- unda í stærðfræði. Neðstir eru oftast Klébergsskóli eða Fellaskóli. Bent hefur verið á að í Fellaskóla eru um 70 prósent nem- enda sem tala íslensku sem annað mál, það er ekki móðurmál þeirra, sem hafa ber í huga þegar lögð eru fyrir nemendur próf á íslensku sem þeir eiga að leysa á íslensku. Próf sem þessi segja því ekki alla söguna og taka þarf niðurstöður þeirra og setja í samhengi við fleira en aðeins tölurnar. n Skóli Samr. Ísl Skóli Pisa lestur Skóli Samr. Stæ Skóli Pisa stæ Háteigsskóli 35,7 Réttarholtsskóli 531 Foldaskóli 35,8 Háteigsskóli 539 Sæmundarskóli 35,5 Hlíðarskóli 531 Háteigsskóli 35,6 Hlíðarskóli 538 Hagaskóli 34,4 Háteigsskóli 518 Laugalækjaskóli 34,2 Réttarholtsskóli 537 Laugalækjaskóli 34,3 Hagaskóli 516 Hagaskóli 34,1 Foldaskóli 522 Foldaskóli 33,0 Sæmundarskóli 513 Ingunnarskóli 33,7 Húsaskóli 518 Hamraskóli 33,0 Austurbæjarskóli 506 Sæmundarskóli 33,1 Laugalækjaskóli 517 Ingunnarskóli 33,0 Seljaskóli 506 Hlíðarskóli 32,9 Hagaskóli 517 Árbæjarskóli 32,8 Árbæjarskóli 493 Árbæjarskóli 32,7 Austurbæjarskóli 516 Hlíðarskóli 32,5 Laugalækjaskóli 492 Austurbæjarskóli 31,6 Árbæjarskóli 516 Réttarholtsskóli 31,5 Ölduselsskóli 491 Vogaskóli 30,8 Sæmundarskóli 515 Seljaskóli 30,0 Foldaskóli 490 Réttarholtsskóli 30,8 Vogaskóli 504 Vogaskóli 29,5 Ingunnarskóli 488 Langholtsskóli 30,1 Seljaskóli 501 Breiðholtsskól 29,4 Vogaskóli 487 Seljaskóli 29,5 Ingunnarskóli 494 Ölduselsskóli 28,7 Hamraskóli 468 Rimaskóli 28,9 Ölduselsskóli 482 Rimaskóli 28,6 Breiðholtsskól 466 Ölduselsskóli 27,5 Hamraskóli 481 Austurbæjarskóli 27,1 Húsaskóli 462 Breiðholtsskól 27,5 Langholtsskóli 473 Langholtsskóli 27,0 Langholtsskóli 447 Húsaskóli 26,9 Breiðholtsskól 473 Hólabrekkuskóli 25,3 Rimaskóli 442 Hólabrekkuskóli 24,4 Rimaskóli 468 Húsaskóli 24,1 Hólabrekkuskóli 432 Klébergsskóli 23,4 Hólabrekkuskóli 464 Fellaskóli 22,1 Fellaskóli 386 Hamraskóli 20,5 Klébergsskóli 432 Klébergsskóli 20,5 Klébergsskóli 392 Fellaskóli 19,7 Fellaskóli 403 Pisatölurnar eru stig, samræmdu prófin er útreiknað meðaltal. Tölurnar eru settar fram með fyrirvara um innsláttarvillur. Íslenska og Stærðfræði Niðurstöður samræmdra prófa í íslensku og stærðfræði frá haustinu 2011 og niðurstöður Pisa vorið 2012 Ásta Sigrún Magnúsdóttir astasigrun@dv.is Leikur að læra Reykvískir nemendur stóðu sig ágætlega í samanburði við nemendur í öðrum landshlutum. Niðurstöður Pisa valda þó mörgum áhyggjum. Mynd SigtryggUr Ari Hvað er Pisa? Pisa er alþjóðleg rannsókn á hæfni og getu 15 ára nemenda í lestri, nátt- úrufræði, stærðfræði og þrautalausn. Í henni taka þátt taka 15 ára gamlir nemendur, það er að segja nemendur í 10. bekk grunnskóla í 65 ríkjum á heimsvísu. Það er Efnahags- og framfarastofnun Evrópu sem leggur fyrir Pisa-könnunina, en hér á landi sér námsmatsstofnun um verkefnið. „PISA er verkefni sem býður upp á vitneskju sem nýtist við stefnumótun og skipulag menntakerf- isins,“ segir í skýrslu um Pisa-könnunina árið 2012.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.