Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2014, Síða 16
Vikublað 15.–17. júlí 201416 Fréttir Erlent
S
uður-Súdan, Sómalía og
Mið-Afríkulýðveldið eru
óstöðugustu ríki heims.
Þetta er samkvæmt úttekt
sem tímaritið Foreign Policy
tók saman á dögunum. Til grund-
vallar niðurstöðunum eru lagðir
ýmsir þættir; svo sem staða mann-
réttinda, pólitískur stöðugleiki, al-
mannaþjónusta, fjöldi flóttamanna
frá viðkomandi ríkjum og fátækt. Það
kemur kannski ekki á óvart að Norð-
urlöndin skoruðu hæst á lista For-
eign Policy. Þá kemur einnig nokk-
uð á óvart að Norður-Kórea er ekki
í hópi 25 óstöðugustu ríkja heims.
Business Insider gerði sér mat úr
niðurstöðunum og dró saman þau
tíu ríki sem enduðu í neðstu sætun-
um. Þess má geta að Sýrland er í 15.
sæti, Írak í 13. sæti og Nígería í 17.
sæti. n einar@dv.is
n Suður-Súdan, Sómalía og M-Afríkulýðveldið koma verst út
Óstöðugustu
1 Suður-Súdan
Yngsta þjóð heims er einnig sú óstöðug-
asta, samkvæmt úttekt Foreign Policy.
Átök skömmu eftir stofnun ríkisins árið
2011 urðu að borgarastyrjöld á síðasta ári.
Um ein milljón íbúa hefur þurft að flýja
átökin og eru því flóttamenn í eigin ríki.
Þá hafa 250 þúsund íbúar til viðbótar
flúið út fyrir landamærin til nágranna-
ríkja. Þúsundir barna þjást af vannæringu
í landinu. Ljóst er að margt þarf að breyt-
ast í Suður-Súdan til að landið fái betri
niðurstöðu á næsta lista Foreign Policy.
3 Mið-Afríkulýðveldið
Mið-Afríkulýðveldið féll um sex sæti milli ára í úttekt Foreign
Policy og er þar um að kenna stigvaxandi óstöðugleika í
landinu undanfarna tólf mánuði. Á undanförnu ári hef-
ur valdarán verið framið og ólgan milli kristinna íbúa og
múslimskra uppreisnarmanna hefur verið mikil. Öryggisráð
Sameinuðu þjóðanna sendi ekki alls fyrir löngu friðargæsluliða
til landsins af ótta við þjóðarmorð. Það þarf vart að taka fram
að þjóðin er ein sú fátækasta í heimi.
6 Tsjad Eins ömurlega og það hljómar þá getur hvert barn sem fæðist í Tsjad
aðeins vænst þess að ná 49 ára aldri. Lífslíkur íbúa Tsjad eru þær lægstu í heimi. Tsjad er
strjálbýlt en ógnarstórt ríki. Það er rúmlega tvisvar sinnum stærra að flatarmáli en Spánn
en íbúar þar eru um 10 milljónir. Þó að innviðir landsins séu í rúst hafa yfir 500 þúsund
flóttamenn flúið til landsins frá Súdan og Mið-Afríkulýðveldinu sem aðeins hefur aukið á
vanda landsins.
2 Sómalía Algjört stjórnleysi hefur ríkt í Sómal-
íu um langt skeið og má í raun segja að ekki hafi verið starfhæf
ríkisstjórn við völd í landinu frá 1991 til 2013. Tíðni ungbarnadauða í
Sómalíu er með því hæsta sem gerist í heiminum, en hún er um 10 pró-
sent. Þá eru lífslíkur einnig með þeim lægstu í heimi en sómalskt barn
getur vænst þess að verða 51 árs. Sómalía skoraði lægst allra þjóða í
úttekt Foreign Policy hvað varðar fjölda flóttamanna í eigin ríki.
4 Austur-Kongó Austur-Kongó, sem einnig er stundum kallað
lýðræðislega lýðveldið Kongó, hefur verið plagað af átökum og borgarastyrjöldum um margra
ára skeið. Þúsundir flóttamanna frá Búrúndí og Rúanda flýðu til Austur-Kongó árið 1994.
Tugþúsundir íbúa týna lífi á ári hverju í hvers kyns átökum í landinu og þá er fátækt útbreidd.
Meðaltekjur íbúa í Austur-Kongó á ári eru 400 dollarar, eða 45 þúsund krónur. 71 prósent íbúa
lifir undir fátæktarmörkum.
7 Afganistan Þó að bandaríski herinn hafi haft aðsetur í
Afganistan í um áratug stendur landinu enn mikil ógn af talíbönum. Markmiðið var að
byggja upp innviði landsins eftir að ógnarstjórn talíbana var hrakin frá völdum, en það
hefur ekki gengið eftir eins og vonir stóðu til. Í úttekt Foreign Policy fær Afganistan algjöra
falleinkunn hvað varðar öryggismál innan ríkisins og þá er almannaþjónusta í molum.
8 Jemen Jemen er eitt fátækasta ríki Mið-Austur-
landa, en þannig er talið að um 45 prósent íbúa lifi undir fátækt-
armörkum. Jemen er höfuðvígi hryðjuverkasamtakanna Al-kaída
á Arabíuskaga og starfa samtökin allt að því óáreitt í óbyggðum
landsins. Á dögunum var greint frá því að tíu þúsund fjölskyldur
hefðu flúið frá borginni Amran vegna bardaga stjórnarhersins og
herskárra sjíta. Líkt og á Haítí er mansal einnig algengt vandamál í
Jemen.
5 Súdan Frá árinu 2007
hafa friðargæsluliðar frá Afríkusam-
bandinu og Sameinuðu þjóðunum átt í
stökustu vandræðum með að stilla til
friðar í hinu stríðshrjáða Darfur-héraði.
Árið 2013 voru sextán friðargæsluliðar
myrtir í landinu. Talið er að um þrjár
milljónir einstaklinga séu flóttamenn
í Súdan, í eigin landi. Þá hefur alræðis-
stjórn landsins gert lítið til að stemma
stigu við mansali í landinu samkvæmt
umfjöllun Business Insider.
9 Haítí Haítí er
fátækasta ríkið á vesturhveli
jarðar og lifa 80 prósent
íbúa undir fátæktarmörkum.
Grunnstoðir samfélagsins
hrundu í kjölfar jarðskjálftans
árið 2010, en talið er að fjöldi
látinna hafi verið um 250
þúsund. Árið 2012 riðu tveir
fellibylir yfir sem skildu eftir
sig slóð eyðileggingar. Landið
er viðkomustaður fíkni-
efnasmyglara sem reyna að
smygla fíkniefnum frá Suður-
Ameríku til Bandaríkjanna.
Þá er þess getið í umfjöllun
Business Insider að mansal
sé einnig útbreitt vandamál
á Haítí.
10 Pakistan
Margar áskoranir bíða
pakistanskra stjórnvalda.
Óstöðugleiki hefur einkennt
ríkið á undanförnum árum og
um þrjár milljónir afganskra
flóttamanna eru í landinu.
Þá er talið að um milljón
Pakistanar séu flóttamenn í
eigin landi (e. internally dis-
placed person). Íslömsk öfga-
samtök hafa látið til sín taka í
landinu og þá hafa Pakistanar
átt í erfiðum landamæra-
deilum við Indverja um langt
skeið.
ríki heimsins