Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2014, Qupperneq 17
Vikublað 15.–17. júlí 2014 Fréttir Erlent 17
S
íðastliðinn fimmtudag
greindi The Irish Times frá
því að borgarráð Dublin
ar væri undir miklum
þrýstingi, meðal annars frá
æðstu embættismönnum Írlands,
um að snúa við ákvörðun sinni um
að leyfa ekki fimm tónleika kántrí
söngvarans Garth Brooks. Sam
kvæmt dagblaðinu ræddi forsætis
ráðherra landsins, Enda Kenny, við
ríkissáttasemjara með það að mark
miði að skera á þann hnút sem hef
ur myndast. „Ríkið vonast til að
hægt verði að komast að jákvæðri
niðurstöðu í málinu,“ var haft eftir
talsmanni Kenny. Síðastliðinn apr
íl fóru fram kröftug mótmæli gegn
tónleikum Brooks fyrir framan leik
vanginn þar sem hann átti að stíga
á svið. Íbúar telja að of mikið áreiti
fylgi fimm tónleikum í röð. Söngv
arinn er þó gífurlega vinsæll á Ír
landi og til marks um það seldust
upp fjögur hundruð þúsund miðar
á mettíma þegar sala hófst. Í síðustu
viku fóru fram önnur mótmæli, nú
gegn aflýsingu tónleika Brooks.
Mótmæla áreiti
Forsaga málsins er að Garth Brooks
hugðist halda þrenna tónleika
sem hluta af endurkomu á tón
leikaferðalagi sínu á Írlandi í júlí.
Aðeins fáeinum klukkustund
um eftir að sala hófst varð uppselt
á tónleikana. Ákveðið var því að
halda tvenna aukatónleika og mið
ar seldustu upp sömuleiðis á met
tíma. Allir tónleikarnir áttu að fara
fram í Croke Parkleikvanginum í
Dublin, fimm kvöld í röð.
Síðastliðinn febrúar stigu fram
íbúar í nágrenni við leikvanginn og
hótuðu þeir lögbanni á tónleikana.
Íbúarnir sátu mikinn hitafund með
gelíska íþróttabandalaginu, sem
hefur umsjón með leikvanginum,
og vísuðu íbúar í samning frá árinu
2009 sem sagði til um að ekki mætti
halda fleiri en þrenna tónleika á ári.
Ekki var hlustað á íbúana og varð
það til þess að þeir mótmæltu komu
Brooks í apríl.
„Vandamál tengd þessum tón
leikum eru margvísleg, allt frá bíla
stæðavanda yfir í andfélagslega
hegðun tónleikagesta. Við mun
um ekki geta farið til eða frá hús
um okkar án þessa að verða fyrir
áreiti,“ sagði Patrick Gates, talsmað
ur íbúasamtaka Croke Park, í út
varpsviðtali þegar mótmælin stóðu
sem hæst.
Ríkissáttasemjari kallaður til
Borgarráð Dublinar tók að lokum
ákvörðun í málinu í upphafi júlí
mánaðar og tilkynnti að Brooks
mætti halda þrenna tónleika en
ekki fimm. Brooks brást ekki vel
við þessari ákvörðun borgarráðs
og gaf borginni úrslitakost, fimm
tónleika eða ekkert. „Að biðja
mig um að aflýsa sumum tónleik
um væri eins og að biðja mig um
að velja eitt barna minna umfram
annað. Ég hef trú á því að borg
arráð taki rétta ákvörðun að lok
um,“ sagði Brooks á fjölmiðlafundi
vegna tónleikaferðalagsins. Frá því
að Brooks gaf út þennan úrslita
kost hafa farið fram harðskeyttar
samningaviðræður milli tónleika
haldara, gelíska íþróttabandalags
ins og borgarráðs. Nauðsynlegt var
að kalla til aðstoðar Kieran Mulvey
ríkissáttasemjara.
Afboðun hefur efnahagsleg áhrif
Í síðastliðinni viku lýsti Joe Costello,
viðskiptamálaráðherra Írlands,
því yfir að Enda Kenny forsætis
ráðherra væri tilbúinn að ræða við
Brooks til að leysa deiluna. Costello
sagði enn fremur að eðlilegt væri
að forsætisráðherra skærist í leik
inn þar sem um væri að ræða mann
sem hefði fjögur hundruð þúsund
aðdáendur og að afboðun hans
myndi hafa nokkur áhrif á efnahag
landsins. Heimildir The Irish Times
herma að borgarráð Dublinar sé nú
undir miklum þrýstingi til að draga
til baka ákvörðun sína.
Stendur við úrslitakostinn
Á fimmtudag hafði dagblaðið eftir
talsmanni íbúasamtakanna að þau
væru tilbúin til að semja. Talsmað
urinn gaf það í skyn að niðurstöður
viðræðna við borgarstjóra Dublin
ar, Chrisy Burke, hafi verið veiga
miklar í að milda afstöðu samtak
anna. Burke tilkynnti að sendiherra
Mexíkó hefði boðið aðstoð sína í
málinu síðastliðinn miðvikudag
en útskýrði þó ekki í hverju sú að
stoð fælist. Á sama tíma gaf gelíska
íþróttabandalagið út yfirlýsingu
um að stjórnarmenn hefðu fundað
stíft vegna krísunnar. Brooks birti
á dögunum opið bréf til tónleika
haldara þar sem hann ítrekar úr
slitakost sinn. „Ef yfirvöld á Írlandi
geta leyst þetta vandamál þá mun
ég koma og halda tónleika, annars
ekki,“ skrifaði Brooks. n
Stjórnmálakreppa
vegna kántrístjörnu
n Forsætisráðherra Írlands skerst í leikinn n Garth Brooks gefur úrslitakost„Að biðja mig
um að aflýsa
sumum tónleik-
um væri eins og að
biðja mig að velja
eitt barna minna
umfram annað
Hjálmar Friðriksson
hjalmar@dv.is
Enda Kenny Forsætisráðherra hefur
gert tilraun til að fá fylkingar til að sættast
í Garth Brooks-málinu. Hann hefur verið
forsætisráðherra frá árinu 2011.
Garth Brooks Söngvarinn
er dáður á Írlandi og varð fljótt
uppselt á fimm tónleika sem
hann hugðist halda í Dublin.
Fjögur hundruð þúsund miðar
seldust á tónleikana.