Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2014, Page 20
Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður: Þorsteinn Guðnason • Ritstjóri: Reynir Traustason • Aðstoðarritstjóri: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir Ritstjórnarfulltrúi: Ingi
Freyr Vilhjálmsson • Umsjónarmaður innblaðs: Viktoría Hermannsdóttir • Umsjónarmaður helgarblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir • Framkvæmdastjóri
og vefstjóri DV.is: Jón Trausti Reynisson • Sölu- og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur
Heimilisfang
Tryggvagötu 11
Hafnarhvoli, 2. hæð
101 Reykjavík
FRéttASkot
512 70 70FR jál S t, ó Háð DAg b l Að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7080
512 7050
AðAlnÚmeR
RitStjóRn
áSkRiFtARSími
AUglýSingAR
Sandkorn
20 Umræða Vikublað 15.–17. júlí 2014
Það þarf ekkert að
vera leiðinlegt í kirkju
Það er
„all or nothing“
Ég bý mér til
mína veröld
Afneitun forsætisráðherra
Oddur Bjarni Þorkelsson, prestur í Möðruvallakirkju – DV Sveinn Andri ætlar að hlaupa maraþon í ágúst – DV Bjartmar Guðlaugsson – DV
F
orsætisráðherra Íslands held-
ur uppi slíkum málflutningi að
það eru fá dæmi um aðra eins
þvælu í stjórnmálasögunni.
Hvað eftir annað stígur hann fram
til að fordæma þá sem gagnrýna þau
alvarlegu og miklu mistök sem hann
og flokkur hans hafa gert frá því for-
sætisráðuneytið féll þeim í skaut
með samþykki og velþóknun Sjálf-
stæðisflokksins.
Nýjasta útspil forsætisráðherrans
er að tala um lágkúru í umræðunni
um þjóðernisrembu oddvita flokks-
ins í borgarstjórnarkosningun-
um. Öllu er snúið á haus í árás for-
sætisráðherrans á þá sem töldu að
fordómar gegn útlendingum og
mismunun hvað trúarbrögð varð-
ar ættu ekki erindi í íslensk stjórn-
mál. Framsóknarflokkurinn sópaði
að sér fylgi í Reykjavík með yfirlýs-
ingum um að það ætti að afturkalla
leyfi til byggingar á mosku. Og
frambjóðandinn bætti í málflutn-
ing sinn með því að vara við nauð-
ungarhjónaböndum sem kennd eru
við múslíma. Í öllu fárinu sem varð í
kringum yfirlýsingar oddvitans þagði
formaður flokksins. Þögn er í þessu
tilviki sama og samþykki. Stefna
oddvitans í Reykjavík varð að stefnu
Framsóknarflokksins. Þögn forsætis-
ráðherra var ekki rofin fyrr en seint
og síðar meir. Og þá talaði hann eins
og boðuð valdníðsla í moskumál-
inu væri skipulagsmál. Málið sem
skilaði Framsóknarflokknum tveim-
ur borgarfulltrúum og löðuðu botn-
fall kjósenda til fylgis var sem sagt af
eðlilegum toga. Forsætisráðherrann
vegur síðan að hinum frjálslyndu í
samfélaginu sem vilja gæta jafnræðis
gagnvart trúarbrögðum og kynþátt-
um fólks. Öllu er snúið á haus og tagl
truntunnar snýr fram. Afneitunin á
eigið lýðskrum er algjör. Og á sama
tíma og forsætisráðherrann skrumar
gegn pólitískum andstæðingum set-
ur hann ofan í við sína eigin flokks-
menn. Fjölda framsóknarmanna of-
bauð það hvernig var verið að rústa
flokk þeirra fyrir stundargróða. Fyrr-
verandi formaður flokksins og fleiri
þungavigtarmenn stigu fram opin-
berlega og lýstu andúð sinni á mál-
flutningi hræsnaranna sem vildu
brjóta á hópi fólks vegna trúarbragða
þeirra. Og hópur fólks sem vant er að
virðingu sinni sagði skilið við flokk-
inn. Afleiðingin af öllu saman er sú
að skyndifylgi flokksins er horfið.
Kannanir sýna að flokkurinn er kom-
inn niður fyrir það sem var áður en
flugið hófst. Dýrt var það Drottins
orðið.
Það er sorglegt að forsætisráðu-
neytið skyldi hafa fallið í hendur
manna sem kunna ekki pólitík og
hegða sér eins og engin séu lögin í
landinu. Það er gert út á lægstu hvat-
ir kjósenda. Styrkjum er úthlutað til
vina og jafnvel í sms-smáskilaboðum.
Forsætisráðherrann birtist ekki al-
menningi öðruvísi en svo að vera með
hártoganir og hálfsannleik. Hann
þorir ekki að svara í fjölmiðlum sem
leita sannleikans en velur að koma
fram á vettvangi þar sem kjassið og
klappið er allsráðandi. Þannig slepp-
ur hann við að standa fyrir máli sínu
en getur haldið uppi einræðum og
vonda andstæðinga. Þetta er ómögu-
legt ástand. Frá því Framsóknarflokk-
urinn tók við stjórn hafa axarsköftin
og lýðskrumið verið einkennandi. Og
þessi smáflokkur situr í forsæti og við
stjórnvöl þjóðarskútunnar á ábyrgð
Sjálfstæðisflokksins. n
Dauðþreyttir á
Framsókn
Í Sjálfstæðisflokknum eru þing-
menn orðnir dauðþreyttir á skorti á
skipulagi og verkstjórn Sigmundar
Davíðs í ríkisstjórn-
inni. Ekkert er að
gerast í samning-
um við kröfuhafa,
engar fregnir ber-
ast af afnámi gjald-
eyrishafta, mikil-
væg mál eins og
náttúrupassinn gufa upp í höndum
viðkomandi ráðherra, engar frétt-
ir eru af Helguvík, ekkert er vit-
að hvernig á að leysa pattstöðuna
gagnvart ESB-umsókninni sem
þegar hefur hálfklofið Sjálfstæðis-
flokkinn – og enginn þorir að ræða
hvort Hanna Birna Kristjánsdótt-
ir fer eða verður í innanríkisráðu-
neytinu. Um þverbak keyrði þegar
flutningur Fiskistofu datt af himn-
um ofan án þess að málið hefði
nokkru sinni verið rætt við sjálf-
stæðismenn.
Vilja leynifund
Augljós ágreiningur er innan rík-
isstjórnarinnar um hvaða leið á
að fara við afnám gjaldeyrishafta.
Ráðgjafar Bjarna
Benediktssonar
fjármálaráðherra
telja óðs manns
æði að fara gjald-
þrotaleið sem
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson for-
sætisráðherra vill fara, en hún felst
í að knýja þrotabúin í gjaldþrot og
greiða þeim kröfur sínar í verð-
lausum íslenskum krónum. Ráð-
gjafar fjármálaráðherrans telja að
það leiði til margra ára stríðs við
umheiminn, og auðvelt verði fyrir
kröfuhafa að ná fram kyrrsetningu
á miklum gjaldeyriseignum þrota-
búanna sem að stórum hluta eru
erlendis. Forkólfar í atvinnulífi eru
flestir sama sinnis, en óttast mjög
að Sigmundur Davíð telji slík átök
við útlönd heppilegustu leiðina
til að sameina þjóðina að baki
Framsóknarflokknum eftir hrun í
könnunum. Í þeirra röðum er rætt
um að senda hóp forystumanna
á leynifund með Bjarna til að fá
hann til að setja Sigmundi stólinn
fyrir dyrnar.
Gegn Ragnheiði Elínu
Þrír kandídatar í Sjálfstæðisflokkn-
um á Suðurlandi eru hvattir til
atlögu að efsta sætinu. Ragnheið-
ur Elín Árnadóttir, sem leiðir list-
ann, þykir ekki hafa skorað feitt á
ráðherrastóli. Elliði Vignisson fékk
rússneska kosningu í Eyjum og
gæti glansað í öruggt sæti. Árni Sig-
fússon er, þrátt fyrir tap, vinsæll
meðal flokksmanna. Í Árborg hélt
Sjálfstæðisflokkurinn meirihluta
sem þótti kraftaverk. Eyþór Arn-
alds, sem hætti sem efsti maður,
stýrði kosningabaráttunni. Glöggir
flokksmenn telja að Eyþór eða
Elliði eigi efsta sætið víst.
Guðni gleymdur
Spennan vegna yfirvofandi forseta-
kosninga vex. Nær óhugsandi er að
Ólafur Ragnar Grímsson haldi áfram
þrátt fyrir að vera í
fullu fjöri. Athygli
vakti að álitsgjaf-
ar DV töldu Rögnu
Árnadóttur, fyrr-
verandi dóms-
málaráðherra, vera
ákjósanlegasta. Þá
kom á óvart að enginn virtist hafa
áhuga á því að fá Guðna Ágústs-
son á Bessastaði. Guðni hefur
verið afspyrnuvinsæll en umræð-
an í kringum ekkiframboð hans í
Reykjavík hefur skaðað ímyndina.
Reynir Traustason
rt@dv.is
Leiðari „Öllu er
snúið á
haus og tagl
truntunnar
snýr fram
Ertu ekki örugglega búin(n) að sækja um?
L
esandi góður! Nú styttist
óðum sá tími sem ætlaður er
til að sækja um leiðréttingu á
verðtryggðum neytendalán-
um en frestur til að sækja um renn-
ur út 1. september næstkomandi.
Aðgerðin er hin stærsta sem grip-
ið hefur verið til í því augnamiði
að rétta hlut skuldara nokkurs stað-
ar. Hún er almenn og byggir á jöfn-
uði og réttlæti. Skuldaleiðréttingin
felst annars vegar í beinni niður-
færslu skulda en hins vegar í því að
skuldarar geta nýtt viðbótarlífeyris-
sparnað sinn til niðurgreiðslu hús-
næðislána í þrjú ár. Aðgerðin nýt-
ist best þeim sem hafa minni- eða
meðaltekjur og eiga íbúð af hóflegri
stærð. Þannig koma um 60 pró-
sent upphæðarinnar sem ætluð er
til beinnar skuldalækkunar í hlut
þeirra heimila sem hafa samtals 8
milljónir króna eða minna í tekjur á
ári. Það samsvarar til dæmis með-
allaunum tveggja einstaklinga sem
taka laun samkvæmt kjarasamn-
ingi BSRB. Aðgerðin beinist að
þeim sem urðu fyrir forsendubresti
í verðbólguholskeflunni sem reið
yfir í kjölfar hrunsins árin 2009 og
2010. Markmiðið með aðgerðinni
er að rétta hlut þessa hóps nokkuð
og gefa honum færi á að ná vopn-
um sínum aftur. Aðgerðin mun
lækka greiðslubyrði þeirra sem rétt
eiga á leiðréttingu og leiða til auk-
ins kaupmáttar. Séreignarsparnað-
arhluti aðgerðarinnar gagnast
einnig þeim sem ekki eiga íbúð en
freista þess að leggja fyrir og mynda
þannig grunn að húsnæðiskaup-
um. Einnig má segja að notkun
hluta séreignasparnaðar til lækkun-
ar húsnæðisskulda sé ein besta fjár-
festing sem völ er á nú um stund-
ir. Þann 1. júlí sl. var hægt að hefja
nýtingu séreignasparnaðar til lækk-
unar húsnæðislána eða til að byggja
upp sjóð til fasteignakaupa síðar.
Það er mikilvægt að allir sem
telja sig eiga rétt á leiðréttingu sæk-
ist eftir henni. Fljótlega eftir 1. sept-
ember nk. mun ljóst verða hver
leiðrétting hvers og eins verður.
Þá fá íslensk heimili ný tækifæri til
sóknar. n
„Aðgerðin mun
lækka greiðslu-
byrði þeirra sem rétt eiga
á leiðréttingu og leiða til
aukins kaupmáttar
Þorsteinn Sæmundsson
þingmaður Framsóknarflokksins
Kjallari