Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2014, Side 21

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2014, Side 21
Umræða 21Vikublað 15.–17. júlí 2014 Þetta er sigur fyrir mig Byrjaði daginn í gær á mjöltunum Nú leita ég ráða hjá ykkur Gunnar Þorsteinsson var ánægður með niðurstöðu Héraðsdóms – DV Jóhanna María Sigmundsdóttir alþingiskona sinnir bústörfum á sumrin – Facebook Sigurður Hlöðversson vill kaupa sér heitan pott – Facebook Mest lesið á DV.is 1 Sviptur sjálfræði í pen-ingamálum Okkur líður bara vel svona, við höfum aldrei verið mikið fyrir efnislega hluti,“ segir Bjartmar og heldur áfram. „Eitt það fyrsta sem María gerði þegar hún kynntist mér var að svipta mig sjálfræði í peningamálum.“ 27.617 hafa lesið 2 Níu ára stúlka lést eftir að hafa sýkst af heilaét- andi slímdýri Heilbrigðisyfirvöld í Kansas-borg í Bandaríkjunum hafa staðfest að banamein níu ára stúlku sem lést á miðvikudag var heilaétandi slímdýr, sem komst frá nösum hennar og upp í heila. 24.418 hafa lesið 3 Úldnum rækjum og hákarli dreift á Players í Reykjanesbæ Úldnum rækjum og hákarli var dreift undir sófasett víðs vegar um skemmtistaðinn Players í Reykjanesbæ aðfaranótt laugardags, sama kvöld og fólk flúði út af staðnum á móti, Center, vegna piparúða. 17.494 hafa lesið 4 Gekk fram á meðvit-undarlítinn og illa búinn göngumann Björgunarsveitir frá Hnífsdal, Bolungarvík og Ísafirði voru kallaðar út eftir að tilkynning barst um slasaðan göngumann á gönguleiðinni milli Hesteyrar og Hlöðuvíkur. Ferða- langur gekk fram á manninn, sem var meðvitundarlítill og illa búinn, og fór á Hesteyri eftir aðstoð. 13.080 hafa lesið 5 Starfsfólk og gestir flúðu vegna piparúða Einhver óprúttinn aðili spreyjaði piparúða inni á skemmtistaðnum Center í Reykjanesbæ aðfaranótt laugardags. Starfsfólk staðarins og gestir hans fundu fyrir sviða í augum og tæmdist hann fljótt í kjölfarið. 11.587 hafa lesið Myndin Myndataka Ferðamannastraumurinn til Íslands hefur verið mikill að undanförnu. Hér sést hópur erlendra ungmenna láta mynda sig fyrir framan óvættirnar Grýlu og Leppalúða. Mynd Hörður SveinSSon H inn 24. júní síðastliðinn var haldinn í Þjóðmenningar- húsinu blaðamannafund- ur þar sem kynnt var fyrsta áfangaskýrsla stjórnarskrárnefndar sem skipuð var af forsætisráðherra 6. október á síðasta ári. Ég á sæti í þessari stjórnarskrárnefnd sem fulltrúi Bjartrar framtíðar og sat síð- ustu fjóra fundi nefndarinnar þar sem ég kom ekki inn í hana fyrr en í apríl í vor. Nefndin er að mínu viti vel mönnuð, þar sitja meðal annars manneskjur sem hafa áður setið í sambærilegum nefndum á undan- förnum árum. Mér fannst sú vinna sem ráð- ist var í á síðasta kjörtímabili við gerð nýrrar stjórnarskrár fyrir okk- ur Íslendinga vera eitt glæsilegasta framtak sem nokkur ríkisstjórn hef- ur hrundið af stað. Þar var komið á móts við vilja almennings sem á fjölmörgum fundum á Austurvelli og víðar krafðist þess að samin yrði ný stjórnarskrá. Ekki einungis kom hún á móts við þær óskir heldur uppfyllti hún óskir og loforð sem gefin hafa verið þjóðinni allt frá því að stjórnarskráin var fyrst sam- þykkt árið 1944. Það hefur ætíð ver- ið ljóst að sú stjórnarskrá sem þá var samþykkt átti að vera til bráða- birgða og hefjast átti handa við að smíða nýja við fyrsta tækifæri. Það má vissulega deila um það hvort sá tími sem stjórnlagaráðið fékk til þess að smíða nýja stjórn- arskrá hafi ekki verið of knappur og hafa margir bent á að svo hafi verið. Dr. Páll Skúlason hefur bent á að við gerð nýrrar stjórnarskrár þurfi að gefa góðan tíma til þess að ígrunda vel hvernig við viljum hafa hana. Gefa okkur tíma til þess að hugsa vel um hver séu okkar gildi, hugsjónir og undirstöðumál, flana ekki að neinu, miklu máli skipti að við leggjum það á okkur að upp- götva og móta þá siði og lög sem henta okkur sem þjóð. Að þörfin fyrir nýja stjórnarskrá sé sprottin af þeirri þrá okkar að lifa í samfélagi þjóðanna sem þroskuð, siðuð og sjálfráða þjóð. Ég er ekki sérfræðingur í gerð stjórnarskrár, ekki frekar en nokk- ur annar ef út í það er farið, en ég ber þá einlægu ósk í brjósti mér að við sem þjóð getum smíðað nýja stjórnarskrá í sem víðtækastri sátt. Stjórnarskráin er sáttmáli þjóðar- innar við sjálfa sig, grundvallarregl- ur samfélagsins sem verða að vera með þeim hætti að allar skynsam- ar manneskjur geti greitt þeim at- kvæði sitt fái þær tækifæri til þess. Það er lykilatriði í mínum huga og okkar í Bjartri framtíð að svo megi verða. Það getur ekki verið til góðs fyrir nokkra þjóð að samþykkja stjórnar- skrá ef einhverjir stjórnmálaflokkar sem kosnir eru af almenningi setja sig upp á móti henni. Það var það sem gerðist undir lok síðasta kjör- tímabils þegar Framsóknarflokk- urinn og Sjálfstæðisflokkurinn börðust af hörku gegn því að hin nýja stjórnarskrá sem stjórnlaga- ráðið hafði smíðað og þjóðin sam- þykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu að stuðst yrði við yrði samþykkt. Þessir tveir flokkar hlutu síðan meirihluta atkvæða í alþingiskosningunum vorið 2013 eins allir vita. Það segir sig því sjálft hver hefðu orðið örlög frumvarpsins á þessu þingi hefði því verið þröngvað í gegn á síðustu dögum fyrra þings. Staðan er því sú að enn ein nefndin hefur verið skipuð til þess að reyna að leiða þessi mál til lykta. Hvort það takist getur enginn svar- að nema tíminn og við verðum að vona að núverandi stjórnvöld meini eitthvað með því þegar þau segja að ný stjórnarskrá verði sam- þykkt á yfirstandandi kjörtímabili. Ég sjálfur trúi því ekki að óreyndu að stjórnmálamenn sem berjast af krafti fyrir sjálfstæði og fullveldi þjóðarinnar sætti sig við að þjóðin lifi við stjórnarskrá sem samin var í Danmörku á öndverðri 19. öld. Það er löngu kominn tími til að við sem þjóð klárum þetta mál svo sómi sé að og ég tel að það frumvarp sem stjórnlagaráð lagði fram 29. júlí 2011 sé sá grunnur sem byggja eigi á við þá vinnu. n Um stjórnarskrána Páll valur Björnsson þingmaður Bjartrar framtíðar Aðsent „Nefndin er að mínu viti vel mönnuð

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.