Fréttablaðið - 22.01.2015, Page 1
FRÉTTIR
M ínir menn, alhliða veislu-þjónusta sem byggir á meira en 30 ára reynslu Magnúsar Inga Magnússonar veit-ingamanns, býður upp á heit og köld hlaðborð, smáréttaborð, þorraveislur, pottrétti, súpur og fleira fyrir hin ýmsu tilefni. „Við leggjum áherslu á klassísk hlaðborð með gæðin í fyrirrúmi en á eins hag-stæðu verði og mögulegt er, eða 1.990 kr. á mann,“ segir Magnús Ingi. „Við vitum hvað er vinsælast og veljum réttina eftir því, en höldum verðinu niðri með því að hafa þá heldur færri en fleiri. Ef viðskipta-vinirnir vilja meira úrval er það sjálfsagt mál, en þá hækkar verðið aðeins. Ég legg áherslu á að veita viðskiptavinunum faglega ráðgjöf, enda eru langflestir ánægðir. Jóla-hlaðborðin voru til dæmis gríðar-lega vinsæl hjá okkur.“ Nú er rétti tíminn til að huga að veitingunum í fermingarveisluna og þar er Magnús Ingi og hans fólk á heimavelli. „Ég veit ekki til þess að nokkur bjóði betur en við, 1.990 kr. fyrir heitt og kalt fermingarhlað-borð. Ánægðir viðskiptavinir hafabent mér á að dý
HLAÐBORÐ Á VIÐ-RÁÐANLEGU VERÐIMÍNIR MENN KYNNA Löng og farsæl reynsla og sérstaklega hagstætt verð er
lykillinn að vinsældum veisluhlaðborðanna hjá Mínum mönnum.
VEISLUHLAÐBORÐ Djúpsteiktar rækjur – reykt svínakjöt – lamba- og grísasteik – kjúklingur – brún
sósa – brúnaðar kartöflur – súrsæt sósa – fjölbreytt grænmeti – ferskt salat.
1.990 kr. á mann
MYNDIR/K.MAACK
Í FÓTSPOR SJÓNVARPSSTJÖRNU
Michelle Obama, forsetafrú Bandaríkjanna, klæddist dragt
eftir Michael Kors nýverið. Athygli hefur vakið að leikkonan
Julianna Margulies klæddist sams konar dragt í hlutverki
sínu í þáttunum The Good Wife. Þar leikur hún eiginkonu
valdamikils stjórnmálaleiðtoga.TÆKIFÆRISGJAFIR
TILBOÐ - mikið af frábærum boðumtil
Laugaveg i 178 - S ím i : 568 9955
Hnífaparatöskur – 12 manna
14 tegundirVerð frá kr. 24.990
ÚTSALAAllir skór á 40% afslætti
Spariskór í úrvali
Kynningarblað Inkasso, dk hugbún ður, PwC og KPMG
ENDURSKOÐUN
FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 2015
&BÓKHALD
Inkasso er framsækið inn-heimtufyrirtæki sem sinn-ir innheimtu fyrir mörg af
stærstu fyrirtækjum landsins,
stofnanir og einstaklinga. Fyrir-
tækið var stofnað árið 2010 og
hefur á skömmum tíma þróast
úr litlu og lítt þekktu innheimtu-
fyrirtæki yfir í eitt af stærri inn-
heimtufyrirtækjum lands-
ins. Inkasso skipti um eigend-
ur í lok árs 2012 og féll í kjölfarið
undir eftirlit Fjármálaeftirlits-
ins (FME).
Georg Andersen tók við sem
framkvæmdastjóri um áramót-
in eftir að hafa gegnt stöðu fram-
kvæmdastjóra móðurfélags In-
kasso allt síðasta ár. Hann segir
að frá því Inkasso tók til starfa
vorið 2010 hafi áherslan allt
og þjónusta séu seld út í reikn-
ing. Það er líka hluti af samfé-
lagi okkar að þeir sem fá lánað
geta ekki alltaf staðið í skil-
um. Því er það sjálfsagður hlut-
ur að kröfuhafi geti leitað rétt-
ar síns og fengið aðstoð við inn-
heimtu. Auðvitað verður að fara
varlega í sakirnar og ekki fara of-
fari í innheimtu. Það getur í raun
haft þveröfug áhrif og niðurstað-
an um leið verið neikvæð fyrir
kröfuhafann þannig að skuldin
hreinlega innheimtist ekki. Þess
vegna hefur nálgun okkar borið
svo góðan árangur því við leitum
leiða til að ná árangri í samvinnu
við skuldarann.“
Annað sem einkennir Inkasso
að sögn Georgs er sá hugbúnað-
f i
Rétt nálgun ber góðan árangur Á skömmum tíma hefur Inkasso vaxið úr litlu innheimtufyrirtæki í eitt af þeim stærri hérlendis. Fyrirtækið þjónustar mörg af stærri fyrirtækjum landsins auk fjölda stofnana og einstaklinga. Inkasso hefur alla tíð lagt megináherslu á að bjóða framúrskarandi þjónustu.
„Nálgun Inkasso í
innheimtu hefur verið
önnur en hjá öðrum í
sambærilegri starfsemi,“
segir Georg Andersen,
framkvæmdastjóri
Inkasso.
MYNDIR/GVA
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup apríl-júní 2014
Fimmtudagur
20
2 SÉRBLÖÐ
Endurskoðun og bókhald | Fólk
Sími: 512 5000
22. janúar 2015
18. tölublað 15. árgangur
Hraðlæs en skilja ekki
Skortur á lesskilningi hjá hraðlæsum
börnum kemur seint í ljós. Þessi börn
geta átt í erfiðleikum með tungu-
málið. 16
Lítill hagur af sameiningu Rektor
LbhÍ segir lítil samlegðaráhrif með
sameiningu þriggja háskóla. Rektor-
inn á Hólum hefur ekkert heyrt frá
ráðuneytinu. 2
Strengur þvert yfir rækjumið
Rækjuskipstjórar neita því að hafa
slitið sæstreng vísvitandi. Segja
strenginn umhverfishryðjuverk. 6
Ekkert stöðvar sigurgöngu Vinstri
flokknum SYRIZA er spáð stórsigri í
grísku þingkosningunum. 8
SKOÐUN Steingrímur J. skrif-
ar um skammhlaup í Orku-
stofnun og ófriðarefni. 22
LÍFIÐ Hönnuðir hjá Magneu
gerðu nýja skartgripalínu í
samstarfi við Aurum. 44
SPORT Tilfinningar jafnt
neikvæðar sem jákvæðar
eru hluti af leiknum. 40
Á
morgun
RAFTÆKJAVERSLUN • SÍÐUMÚLA 2 SÍMI 568 9090 • www.sm.is
ÚTSALA
ALLT AÐ 80% AFSLÁTTUR
SJÓNVÖRP - ALLAR STÆRÐIR - FRÁBÆR VERÐ
UTANRÍKISMÁL Ætlaði Ísland að
sækja aftur um aðild að Evrópusam-
bandinu, eftir að hafa formlega slit-
ið viðræðum, þyrfti landið að hefja
allt umsóknarferlið frá grunni,
segir í svari Matthiasar Brink-
mann, sendiherra ESB á Íslandi, við
fyrirspurn Fréttablaðsins.
„Ferlið þyrfti að hefja á ný, ekki
bara á Íslandi heldur líka í Bruss-
el,“ segir Brinkmann. Ísland þyrfti
að leggja fram nýja umsókn og í
kjölfarið þyrftu öll 28 aðildarríki
sambandsins að beina því til fram-
kvæmdastjórnar ESB að búa til nýtt
álit um umsóknina og á grundvelli
þess myndu ríkin 28 síðar þurfa að
samþykkja að hefja viðræður við
Ísland.
„Núna eru fleiri vafamál tengd
stækkun innan ESB þannig að ferl-
ið kann að verða eitthvað flóknara
en það var.“ En þótt ferlið kynni að
verða tímafrek-
ara bendir Brink-
mann á að vegna
þess hve Ísland sé
samtvinnað ESB
í gegnum EES-
samninginn yrði
ferlið landinu auð-
veldara en öðrum
löndum.
Brinkmann
segist líka telja að sú vinna sem
fram hafi farið í aðildarviðræðunum
gagnist bæði Íslandi og ESB. Breyt-
ingar sem orðið hafi á sambandinu
séu Íslandi í hag. Þar bendir hann á
nýja, endurbætta sameiginlega fisk-
veiðistefnu sambandsins og nýtt
regluverk um fjármálaeftirlit.
„Bróðurparturinn af lagabreyt-
ingum innan ESB snýr að innri
markaði Evrópu og þær þarf Ísland
hvort eð er að taka upp á grundvelli
EES. Ég myndi því halda að breyt-
ingar sem orðið hafa hafi ekki skað-
að þá vinnu sem unnin hefur verið í
tengslum við aðildarviðræðurnar.“
Brinkmann segir afstöðu ESB til
Íslands hins vegar óbreytta og að
dyr sambandsins standi landinu enn
opnar. „Ísland er enn mikilvægur
nágranni og samstarfsaðili Evrópu-
sambandslandanna,“ segir hann.
Það sé hins vegar Íslands að taka
ákvörðun um framhald aðildarvið-
ræðnanna við sambandið. „En eins
og sagt hefur verið áður, svo sem af
Stefan Füle, fyrrverandi stækkunar-
stjóra, þá erum við viss um að hægt
sé að finna í samningunum viðun-
andi lausnir fyrir Ísland.“ - óká
MATTHIAS
BRINKMANN
Færum aftur á byrjunarreit
Afstaða ESB er óbreytt hvað varðar aðildarumsókn Íslands. Sendiherra ESB segir breytingar á sambandinu ekki
skaða það starf sem þegar hafi verið unnið í samningum. Ný fiskveiðistefna og fjármálaeftirlit gagnist Íslandi.
Í umræðum um slit aðildarviðræðna við ESB á þingi á mánudag sagði Bjarni
Benediktsson fjármálaráðherra skráningu Íslands sem aðildarríkis vera
formsatriði. „Myndist fyrir því meirihluti í framtíðinni og komist til valda ríkis-
stjórn sem hyggur á inngöngu í Evrópusambandið þá er hægt, innan eins kjör-
tímabils, að sækja um og ljúka slíkum aðildarviðræðum,“ sagði hann. Þá hefur
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra sagt að breytingar sem orðið hafi á
ESB þýði að ekki sé hægt að „kíkja í pakkann“. Þyrfti núverandi ríkisstjórn að
hefja viðræður við ESB kallaði það á ný samningsmarkmið og aðferðafræði.
„Sem þýðir að sjálfsögðu að það er rétt sem forsætisráðherra sagði að þessi
vinna sem búið er að vinna núna er einskis virði ef það kæmi upp slík staða.
Menn yrðu að byrja upp á nýtt,“ sagði hann í viðtali við fréttastofu 365 í gær.
RÁÐAMENN UNDIRBÚA VIÐRÆÐUSLIT
Bolungarvík 0° S 7
Akureyri 0° SSV 5
Egilsstaðir 2° SV 7
Kirkjubæjarkl. 1° SV 6
Reykjavík 3° SSV 9
SKÚRIR EÐA ÉL Í dag verða
suðvestan 8-13 m/s og skúrir eða él
en úrkomulaust NA-til. Hiti í kringum
frostmark. 4
MENNING Ekkert ljóð nógu
gott til að hljóta Ljóðstaf
Jóns úr Vör. 28
VINNINGSHAFAR „Það ríkir hamingja með þessi verðlaun,“ segir Elísabet Jökulsdóttir sem tók við Fjöruverðlaununum í gær
ásamt þeim Guðrúnu Kristinsdóttur og Bryndísi Björgvinsdóttur. Sjá síðu 28 FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
LÖGREGLA Alda Hrönn Jóhanns-
dóttir er nýr aðstoðarlögreglustjóri
hjá lögreglunni á höfuðborgar-
svæðinu. Hún hefur fengið mikið
lof fyrir störf sín
hjá lögreglunni á
Suðurnesjum þar
sem vel tókst til
í rannsókn man-
salsmála og nýju
verklagi vegna
heimilisofbeldis.
Það hafa orðið
miklar breyting-
ar á yfirstjórn
lögreglunnar á höfuðborgarsvæð-
inu. Alda er náinn samstarfsmaður
Sigríðar Bjarkar Guðjónsdóttur,
nýskipaðs lögreglustjóra, fyrstu
konunnar til að gegna embætti lög-
reglustjóra á höfuðborgarsvæðinu.
„Við erum bara að gera það sem við
getum til að bæta samfélagið. Það
er ekkert annað sem vakir fyrir
okkur,“ segir Alda. - kgb, vh / sjá síðu 12
Aðstoðarlögreglustjórinn:
Vill bæta
samfélagið
ALDA HRÖNN
JÓHANNSDÓTTIR
ATVINNA Nemum í öllum greinum
byggingageirans hefur fækkað um
þriðjung frá árinu 2006. Þetta segir
Guðmundur Hreinsson, skólastjóri
Byggingatækniskólans.
„Það fóru færri í handverks-
nám 2006 þótt það væri brjálað að
gera á þessum tíma og fækkunin
heldur áfram. Hún hófst nákvæm-
lega á þeim tíma þegar frjálst flæði
vinnuafls milli landa byrjaði.“ Guð-
mundur telur að það hljóti að vera
samsvörun þar á milli, tilhneigingin
hafi verið að ráða frekar útlendinga.
Guðmundur segist vita til þess
að byrjað sé að falast eftir erlend-
um starfsmönnum í byggingageir-
anum. Stór hluti þeirra hafi hins
vegar farið til Noregs og ólíklegt sé
að þeir snúi aftur til Íslands.
Að sögn Guðmundar er stefnt að
því að breyta náminu svo það verði
markvissara og mögulega styttra
en nú.
Meistarar eru margir farnir að
eldast og vantar lærlinga í vinnu.
Aðeins fjórir sveinar útskrifuðust
úr múrverki í fyrra. Þeir þyrftu
að vera 15 til 20 á ári til að endur-
nýjun yrði í stéttinni að sögn Sig-
urðar Heimis Sigurðssonar, for-
manns Múrarameistarafélags
Reykjavíkur.
„Við erum farnir að eldast, alveg
eins og læknarnir sem sögðu að
ekki væri nóg endurnýjun í stétt-
inni,“ segir Sigurður. „Nú er mikið
að gera sem betur fer og það vant-
ar fleiri menn.
- ibs / sjá síðu 4
Meistarar eru farnir að eldast og skortur er á lærlingum í byggingageiranum:
Nemum fækkað um þriðjung
Margir
múrarameist-
arar eru farnir
að nálgast
sjötugt. Þetta
er ekki vinna
fyrir gamal-
menni. Allt efni sem við
vinnum með er þungt,
eins og til dæmis steypan.
Sigurður Heimir Sigurðsson, formaður
Múrarameistarafélags Reykjavíkur.
2
8
-1
2
-2
0
1
5
0
0
:5
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
F
6
-8
B
7
8
1
7
F
6
-8
A
3
C
1
7
F
6
-8
9
0
0
1
7
F
6
-8
7
C
4
2
8
0
X
4
0
0
1
A
F
B
0
6
4
s
_
2
1
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K