Fréttablaðið - 22.01.2015, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 22.01.2015, Blaðsíða 26
FÓLK|TÍSKA FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 Hvernig myndir þú lýsa eigin stíl? Ég myndi segja að ég vilji yfirleitt vera fínn í tauinu en hins vegar ekki yfirdressaður. Afslappað og stílhreint væru orð sem ég myndi nota. Áttu þér einhverja tískufyrir- mynd? Það er auðvelt að finna fyrir- myndir bæði í viðskiptavinum mínum og eins í samstarfsfélög- um. En annars er ég voða lítið að skoða eitthvað frægt fólk þegar kemur að vali á fötum. Hvert sækir þú innblástur? Ég vafra stundum á netinu og skoða myndir hér og þar, en yfirleitt er nægan innblástur að sækja í vinnunni. Það fylgir jafn- framt starfinu að fylgjast með því sem gengur og gerist í fatabrans- anum. Hvar kaupir þú helst föt? Þar sem ég vinn í Herragarðinum liggur auðvitað beint við að ég kunni vel við úrvalið þar. En svo kíki ég líka í Hugo Boss. Þetta eru mínir áfangastaðir í fatakaupum. Er einhver hönnuður í uppáhaldi? Klárlega Giorgio Armani. Ég held að fáir hafi haft eins mikil áhrif og hann. Hann notar einfalda liti og línur sem eru tímalausar og afslappaðar. Hann sveiflast lítið með tískunni en er samt alltaf inn. Einlitt eða munstrað? Oftast einlitt en ég á það til að poppa upp lúkkið með munstr- uðum skyrtum svo dæmi séu nefnd. Þá leita ég oft í paisley- munstrið. Svo er ég mikið fyrir vandaða og litríka sokka. En þetta er vandmeðfarið. Maður má ekki verða eins og jólatré. Slaufa eða bindi? Langoftast nota ég bindi en það kemur fyrir að ég hendi á mig slaufu. Ég gerði nú einu sinni slaufu úr sokkapari. Það vakti mikla kátínu félaganna. Hver eru bestu kaupin? Það er erfitt að gera upp á milli, en ég held ég verði að segja grá Armani-yfirhöfn sem ég keypti 2012. Svo læt ég sauma á mig Stenströms-skyrtur og ég er alltaf ánægður með þær. Þá eru svörtu Hugo-gallabuxurnar mínar alltaf í uppáhaldi. En verstu? Peysa og skyrta sem ég keypti mér einhvern tímann í H&M. Þetta entist mér í sirka þrjú skipti og var svo ónýtt. Síðan þá hef ég haft þá reglu að kaupa aðeins dýrara og sjaldnar. Er einhver flík skápnum í uppá- haldi? Armani-leðurhanskarnir mínir. Ef ég fer út á morgnana í íslensku vetrarveðri án þeirra er lúkkið ónýtt og mér verður kalt. Hvað hefur þú unnið lengi í Herra- garðinum? Í tvö og hálft ár. Var áður versl- unarstjóri í Dressmann. Ertu mikill áhugamaður um tísku? Ég er meiri áhugamaður um vönduð og falleg föt en einhverja sérstaka tískustrauma. Getur þú nefnt einhverja tísku- strauma sem eru ríkjandi um þessar mundir? FLEIRI VILJA VERA FÍNIR Í TAUINU ARMANI Í UPPÁHALDI Heimir Hákonarson starfar í Herragarðinum og hefur eðli málsins samkvæmt nokkurn áhuga á fötum og tísku. Hann eltir þó ekki endilega tískustrauma heldur leggur meira upp úr vönduðum og fallegum fötum. Hann segir æ fleiri unga stráka vilja vera fína í tauinu. Að hans mati er herramennska í tísku. Yfirhöfn frá Armani er í uppáhaldi. STÍLHREINT OG AFSLAPPAÐ Armani-yfirhöfn, Armani-hanskar og Hugo-gallabuxur eru í mestu uppáhaldi hjá Heimi. Þá lætur hann sauma á sig Stenströms-skyrtur sem hann er alltaf ánæðgur með. MYND/ERNIR Ég myndi segja að karlmenn væru farnir að huga meira að því að kaupa vandaða vöru. Aragrúi af vefsíðum og aðgengi að upp- lýsingum um fatnað er nú miklu meira en áður. „Street“-lúkkið er svolítið að detta út. Ég sé það á ungu strákunum sem versla hjá mér að þeir vilja vera fínir og hugsa vel um fötin sín. Það má segja að herramennskan sé í tísku. Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook Opið virka daga kl. 11–18 Opið laugardaga k l. 11-16 Plokkfiskur Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Verslunin Belladonna Stærðir 38-58 Flott föt, fyrir flottar konur 2 8 -1 2 -2 0 1 5 0 0 :5 7 F B 0 6 4 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 F 8 -F 4 A 8 1 7 F 8 -F 3 6 C 1 7 F 8 -F 2 3 0 1 7 F 8 -F 0 F 4 2 8 0 X 4 0 0 8 A F B 0 6 4 s _ 2 1 _ 1 _ 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.