Fréttablaðið - 22.01.2015, Síða 34
KYNNING − AUGLÝSINGEndurskoðun og bókhald FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 20154
Vi ð s k i p t a v i n i r e r u fjölmargir, allt frá litlum rekstraraðilum til stærri
fyrirtækja. Við erum með aðsetur
um allt land en á undanförnum
árum hefur sk rifstofum og
starfsstöðvum á landsbyggðinni
fjölgað jafnt og þétt,“ segir Olgeir
Jón Þórisson, viðskiptafræðingur
og verkefnastjóri á uppgjörs- og
bókhaldssviði KPMG.
„Í dag erum við með aðsetur
á þrettán stöðum á landinu
o g v i n nu m f y r i r f le s t a r
atvinnugreinar en þar má nefna
verslanir, veitingastaði, lækna,
fasteignafélög, iðnaðarmenn,
bændur og útgerðarfélög.“
Föst verð hafa gefist vel
Olgeir Jón segir að hjá KPMG
starfi öf lugur hópur fólks með
mik la rey nslu á sínu sv iði.
„ St a r f s m a n n av elt a er l í t i l
og starfsandinn góður sem
v ið teljum lyk i lþát t í góðu
geng i . Me ða l s t a r f sm a n n a
eru löggiltir endurskoðendur,
viðskiptafræðingar, viðurkenndir
bókarar og fólk með mikla reynslu
úr atvinnulífinu. Starfsfólkið er
mikilvægasta auðlindin okkar
og öf lug ur hópur já k væðra
star fsmanna heldur sv iðinu
gangandi,“ greinir hann frá.
Birna Mjöll Rannversdóttir
endurskoðandi segir að undanfarin
misseri hafi margir viðskiptavinir
kosið að fá tilboð í viðskiptin. „Við
höfum því í auknum mæli boðið
föst verð þar sem viðskiptavinir
greiða ákveðna fjárhæð á mánuði
fyrir þjónustuna. Viðskiptavinum
okkar líkar mjög vel þessi nýbreytni
og sjáum við fram á að fjölmargir
viðskiptavinir okkar bætist í þann
hóp að velja fast verð.“
Í mörgum tilvikum
ódýrari kostur
„Það er ótrúlegt en satt að í
mörgum tilvikum er ódýrara að
láta færa bókhaldið hjá okkur
en að ráða bókara í vinnu. Ef
bókarinn er ekki í fullu starfi
nýtist hann oft ekki nógu vel.
Það er eins með launafulltrúana.
Þeirra vinna fer mest öll fram í
kringum mánaðamót og í mörgum
tilvikum nýtist starfsmaðurinn
ekki nægjanlega þess á milli.
Viðskiptavinir okkar greiða aðeins
fyrir þann tíma sem unninn er í
hans þágu og því nýtist tíminn
100%. Í mörgum tilvikum kemur
því betur út fyrir fyrirtæki að
kaupa þjónustuna.
Viðskiptavinir okkar njóta þess
að alltaf er einhver til staðar ef
bókarinn eða launafulltrúinn
fer í frí eða veikist, þá er alltaf til
staðar mannskapur til að leysa af.
Þar að auki er bókhaldið fært og
afstemmt reglulega og stjórnendur
hafa aðgang að upplýsingum um
reksturinn þegar þeir kjósa,“ segir
Birna Mjöll.
Launaútreikningur
stjórnar manna og
æðstu stjórnenda
„Það er ljóst að launaupplýsingar
eru mjög viðkvæmar og í mörgum
tilvikum kjósa stjórnendur að
útvista útreikningi launa sinna
starfsmanna. Þar að auki hefur
það færst í vöxt að við reiknum
lau n ei nu ng is f y r i r h lut a
starfsmanna viðskiptavina okkar
t.d. stjórnarmanna og æðstu
stjórnenda,“ bendir Birna á.
Pappírslaust bókhald
er framtíðin
Olgeir Jón segir að það séu mikl-
ar breytingar fram undan í bók-
haldsbransanum en frá og með
1. janúar 2015 tekur ríkið einung-
is á móti rafrænum reikningum.
„Þau fyrirtæki sem eru í viðskipt-
um við ríkið þurfa því að geta sent
reikninga rafrænt. Hér er ekki átt
við að nægjanlegt sé að senda
reikninga með tölvupósti held-
ur skulu reikningar vera á XML-
formi og eru þeir sendir í gegn-
um skeytamiðlara. Sum fyrirtæki
hafa farið þessa leið við útsend-
ingu reikninga um árabil en nú
þegar ríkið og síðar Reykjavíkur-
borg mun ekki taka á móti reikn-
ingum í öðru formi eru líkur á því
fleiri fyrirtæki fylgi í kjölfarið og
geri þá kröfu að allir reikning-
ar verði rafrænir. Við sjáum því
fyrir okkur að það verði snjóbol-
taáhrif af þeirri ákvörðun ríkis og
Reykjavíkurborgar að stíga þetta
skref. Ef bókhaldskerfi geta mót-
tekið rafræna reikninga getur það
haft í för með sér gífurlegan papp-
írs- og tímasparnað. Ef bókhalds-
kerfið móttekur alla reikninga raf-
rænt og stjórnendur samþykkja þá
rafrænt fæst mikill tímasparnað-
ur, auk þess eru minni líkur á að
reikningar týnist. Flest bókhalds-
kerfi bjóða upp á þá lausn að inn-
og útborganir séu sóttar og bók-
aðar með rafrænum hætti,“ segir
Olgeir Jón.
Pappírslaust bókhald er framtíðin
Uppgjörs- og bókhaldssvið KPMG hefur verið starfandi frá árinu 2007. Sviðið sérhæfir sig í að veita þjónustu á sviði bókhalds, launa út-
reiknings, ársreikningagerðar og gerðar skattframtala fyrir einstaklinga og lögaðila. Fyrirtækið er með aðsetur á þrettán stöðum á landinu.
Birna Mjöll Rannversdóttir endurskoðandi og Olgeir Jón Þórisson viðskiptafræðingur eru verkefnastjórar á uppgjörs- og bókhaldssviði KPMG. MYND/GVA
KPMG er með aðsetur á þrettán stöðum
á landinu og þjónar margvíslegum fyrir-
tækjum og einstaklingum.
2
8
-1
2
-2
0
1
5
0
0
:5
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
F
7
-0
1
F
8
1
7
F
7
-0
0
B
C
1
7
F
6
-F
F
8
0
1
7
F
6
-F
E
4
4
2
8
0
X
4
0
0
2
B
F
B
0
6
4
s
_
2
1
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K