Fréttablaðið - 22.01.2015, Síða 36

Fréttablaðið - 22.01.2015, Síða 36
FÓLK|TÍSKA Sambucol er klínískt rannsakað sem vörn gegn vírusum. Það er unnið úr einstöku ylliberjaþykkni, black eld- erberry, sem styrkir ónæmiskerfið og vinnur gegn flensu og kvefi. Sambucol inniheldur virka efnið antivirin sem ver frumur líkam- ans og minnkar líkurnar á að smitandi vírusar komist inn í frumurnar og fjölgi sér þar. FORVÖRN OG DREGUR ÚR EINKENNUM Hægt er að stytta veikindatím- ann um allt að fimmtíu prósent ef Sambucol Black Elderberry er tekið inn. Sé Sambucol tekið inn að staðaldri heldur það ónæmis- kerfinu sterku og dregur úr hætt- unni á kvefi eða flensusmiti. Þrjár tegundir af Sambucol eru nú fáanlegar hér á landi, hjá Lyfju og Apótekinu. FYRIR BÖRN Sambucol for Kids: bragðgott þykkni sem inniheldur black elderberry og C-vítamín fyrir börn á aldrinum 1–12 ára. FYRIR FULLORÐNA Sambucol Immuno Forte: sykurlaust þykkni sem inniheldur auk black elderberry C-vítamín og sink. Sambucol fæst einnig í hylkjum með C-vítamíni og sinki fyrir þá sem það kjósa. LAUSN GEGN FLENSU OG KVEFI RARITET KYNNIR Sambucol ein vinsælasta lausnin gegn kvefi og flensu í dag Kolbrún Amanda Hasan byrj-aði snemma að pæla í tísku og hönnun en hún á margar skissu- bækur fullar af brúðarkjólum og öðrum flíkum sem hún teiknaði þegar hún var um það bil tíu ára gömul. Hún lauk námi í fata- og textílhönnun frá Listaháskóla Íslands árið 2009. „Þetta var það eina sem kom til greina hjá mér. Lengi hafði ég aðallega áhuga á hönnun fyrir konur en þegar eldri sonur minn fæddist árið 2009 þá breyttist það. Þá fékk ég meiri áhuga á að hanna fyrir börn og hef hannað mikið á hann og yngri strákinn minn sem er að verða eins árs,“ segir Amanda. Þegar eldri sonur hennar fór að skríða og ganga ákvað Amanda að búa til skó handa honum þar sem henni fannst þeir sem til voru ekki nógu fal- legir. „Mér fannst úrvalið ekki nógu gott, skórnir voru of mikið skreyttir og litirn- ir ekki eins og ég vildi hafa þá þannig að ég bjó til einfalda og fallega skó úr leðri og roði sem ég átti til heima. Útskriftar- línan mín úr skólanum var að mestu úr leðri og ég hafði gert tilraunir með roð þannig að ég átti afgangsefni. Fólk fór svo að spyrja mig út í skóna og hvar ég hefði fengið þá þannig að ég ákvað að framleiða fimmtíu pör sem seldust síðan öll. Þannig fór boltinn að rúlla og nú læt ég framleiða skóna fyrir mig úti í Portúgal.“ Baby K skórnir eru unnir úr íslensku náttúrulegu efni eins og laxaroði og hreindýra- og lambaskinni. Kolbrún er hrifin af þessum efnum og segir þau vera falleg og sterk. „Efnin eru líka sérstök og til dæmis finnst ferða- mönnum gaman að geta gefið börnum og barnabörnum skó úr ís- lensku hráefni. Margir kaupa þá meira að segja sem skraut og setja upp í hillu,“ segir hún og brosir. Kolbrún segir skóna vera hann- aða í hennar stíl sem er klassískur og látlaus. „Ég er sjálf mikið í dökku eins og svo margar íslenskar konur en mér finnst gaman að klæða börnin í litrík föt og skó. Hugmyndin og tilfinningin í kringum skóna lýsir því vel hvernig ég vil hafa hlutina.“ Skórnir sem Kolbrún býr til eru fyrir börn upp í tveggja ára en hún segist hafa fengið fyrirspurnir um skó fyrir eldri börn og jafnvel fullorðna. „Mig langar að búa til föt og skó fyrir eldri krakka og hef eldri strákinn minn þá oft í huga. Ég er alltaf að skissa og teikna eitthvað en ég vil hafa allt hundrað prósent áður en ég fer með það eitthvað lengra.“ ■ liljabjork@365.is SONURINN MÓDELIÐ ÍSLENSK HÖNNUN Baby K skórnir eru fallegir skór úr íslensku hráefni fyrir litla fætur. Kolbrún Amanda Hasan hannaði skóna í upphafi fyrir son sinn. BABY K Þessar litríku mokkasíur eru líka hönnun Amöndu. Frekari upplýsingar um skóna má finna á Facebook. SÆTIR SKÓR Amanda hannar skó fyrir börn úr íslensku hráefni, skinni og roði. MYND/GVA MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* *P re nt m ið la kö nn un C ap ac en t o kt ób er –d es em be r 2 01 2 – hö fu ðb or ga rs væ ði 2 5- 54 á ra Innskot í Fréttablaðið skilar árangri! HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN Í FRÉTTABLAÐINU Fréttablaðið er mest lesna dagblaðið með glæsilegt forskot á keppinautana. Meðallestur Fréttablaðsins í aldurshópnum 25-54 ára er 73% á höfuðborgarsvæðinu.* Við bendum auglýsendum á að notfæra sér forskotið þegar þeir velja dreifingarleið fyrir fjölpóst sinn. Við dreifum sex daga vikunnar til heimila á stærsta markaðssvæði landsins. Hafðu fjölpóstinn þinn inni í Fréttablaðinu. Það er áhrifarík leið til að koma skilaboðum um vöru eða þjónustu beint inn á heimilin. Kannaðu dreifileiðir og verð í síma 512 5448 eða í tölvupóstfangi fjolpostur@frettabladid.is 2 8 -1 2 -2 0 1 5 0 0 :5 7 F B 0 6 4 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 F 7 -C 2 8 8 1 7 F 7 -C 1 4 C 1 7 F 7 -C 0 1 0 1 7 F 7 -B E D 4 2 8 0 X 4 0 0 4 B F B 0 6 4 s _ 2 1 _ 1 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.