Fréttablaðið - 22.01.2015, Side 48
22. janúar 2015 FIMMTUDAGUR| MENNING | 32
Í dag hefst hin árlega skoska
menningarhátíð á Kexi Hosteli,
en hátíðin er nú haldin í fjórða
sinn í samstarfi við Edinborgar-
félagið á Íslandi og Icelandair.
Í Skotlandi er árlega haldið upp
á afmælisdag skáldsins Roberts
Burns og afmæli hans fagnað með
skoskum mat, drykk, tónlist og ljóð-
list Burns. Skáldjöfurinn var fæddur
þann 25. janúar árið 1759 og er víða
litið á hann sem þjóðarskáld Skota.
Skoski sekkjapípuleikarinn Mr. Rus-
sell Mechan kemur fram og sér til
þess að hátíðarhöldin fari fram í sam-
ræmi við hefðir og reglur, en einnig
munu hljómsveitirnar Two Wings,
Ben Reynolds & Guests og tónlistar-
konan Hanna Tuulikki koma fram.
Veitingastaður Kex Hostels,
Sæmundur í sparifötunum, mun
bjóða upp á sérstakan matseðil
vegna hátíðarinnar.
Boðið verður upp á haggis með
stöppuðum kartöflum, rófum,
næpum og viskísósu. Haggis, sem
lýsa má sem skoskri útgáfu sláturs,
er nátengt Burns en hann samdi ljóð-
ið Address to a Haggis árið 1786 og
er skoska slátrið órjúfanlegur hluti
hátíðarhalda í tengslum við afmæli
skáldsins.
Skoska menningarhátíðin hefst í
kvöld klukkan sjö á Kexi Hosteli við
Skúlagötu og stendur til 24. janúar
næstkomandi. Dagskrána er hægt að
nálgast á vefsíðunni Kexland.is - gló
FIMMTUDAGUR
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
22. JANÚAR 2015
Tónleikar
19.30 Karlakórinn Fóstbræður og Karla-
kór Reykjavíkur sameina krafta sína í
tónaljóði Jeans Sibeliusar í Eldborgarsal
Hörpu. Miðaverð frá 2.400 krónum.
21.00 Tónskáldið, hljóðfæraleikarinn
og raftónlistarmaðurinn Úlfur Eldjárn
flytur röð spunatónverk í Mengi í kvöld.
22.00 Magnús R. Einarsson heldur tón-
leika á Ob-La-Dí-Ob-La-Da, Frakkastíg 8.
Opnanir
16.00 Sýningin Myndbreyting verður
opnuð í Norræna húsinu í dag. Sýning-
in er hluti af vídeólistahátíðinni 700IS
Hreindýraland.
Upplestur
20.00 Meðgönguljóð standa fyrir
tökuljóðakvöldi á Lofti Hosteli í Banka-
stræti. Átta skáld lesa ljóð og búast má
við fjölbreyttum upplestri.
Kvikmyndir
20.00 Ungliða-
hreyfing Amnesty
International sýnir
myndina No
Fire Zone í Bíói
Paradís í kvöld.
Myndin fjallar
um stríðs-
glæpina á
Sri Lanka.
Ókeyp-
is inn.
Uppákomur
17.15 Jón Björnsson flytur fyrsta
erindið af þremur um mynd og sögu í
Bókasafni Kópavogs. Hann talar í dag
um Harem, kvennabúr soldánsins í
Istanbúl. Aðgangur ókeypis.
19.00 Skosk menningarhátíð á Kexi
Hosteli hefst í dag og stendur til 24.
janúar.
Fyrirlestrar
12.05 Félag fornleifafræðinga, Þjóð-
minjasafn Íslands og Háskóli Íslands
standa fyrir röð fyrirlestra um forn-
leifafræði. Megan Hicks, doktorsnemi
í fornleifafræði við Hunter College í
New York, flytur erindi á ensku í fyrir-
lestrasal Þjóðminjasafns Íslands.
Tónlist
20.00 DJ Davíð Berndsen þeytir skífum
á BarAnanas.
21.00 Krystal Carma DJ sett í kjallar-
anum á kaffihúsinu Stofunni.
21.00 Tónlistarkvöldið Blæti á Prikinu í
kvöld. Kvöldinu er ætlað að kynna unga
og upprennandi hiphop-pródúsera og
taktsmiði.
21.00 DJ Atli Bollason þeytir skífum á
Bravó í kvöld.
21.00 DJ Margeir þeytir skífum á Kaffi-
barnum í kvöld.
22.00 Trúbadorarnir Hjálmar og Dagur
halda uppi stuðinu á English Pub í
kvöld.
Markaðir
16.00 Skiptimarkaður á Lofti Hosteli í
Bankastræti í dag.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
Sekkjapípuleikari kemur fram á skoskri menningarhátíð
Skosk menningarhátíð hefst í dag og stendur til sunnudags, með hátíðinni er afmæli skoska skáldsins Roberts Burns fagnað.
HANNA
TUULIKKI
Tónlistar-
konan
kemur
fram á
skosku
menn-
ingar-
hátíð inni.
„Það er svolítið svona konsept-
ið að vera ekki með of mikið af
hljóðfærum og ekki neitt und-
irbúið, það er enginn grunnur
eða neitt svoleiðis sem ég byrja
á,“ segir Úlfur Eldjárn, tón-
skáld, hljóðfæraleikari og raf-
tónlistarmaður, sem kemur fram
á tónleikum í Mengi í kvöld.
„Ég mæti bara með frekar tak-
markað úrval af hljóðfærum og
tölvu og svo bara set ég í gang og
byrja bara að gera eitthvað og sé
hvert það leiðir mig,“ segir Úlfur
og bætir við: „Þetta er svona
millistig á milli þess að vera að
spinna eitthvað og semja.“
Tónleikarnir eru tek n-
ir upp og er hugmyndin að
endurvinna efnið síðar meir.
„Ég hef gert þetta áður og það
hefur komið skemmtilega út.
Stundum kemur eitthvað alveg
frábært og stundum eitthvað ekki
alveg jafn frábært,“ segir Úlfur
en hann hefur haldið viðlíka tón-
leika á ýmsum stöðum.
„Þetta er sería hjá mér, ég er
búinn að gera þetta nokkrum
sinnum við mismunandi aðstæð-
ur; tónleika, kokteilboð, góðgerð-
arsamkomur og á ýmsum stöðum.
Síðan, af því ég tek þetta allaf
upp á margar rásir, þá ætla ég
einhvern tímann með tíð og tíma
að vinna eitthvað úr þessu.“
Hann segir ákveðna áskorun
fólgna í því að standa uppi á sviði
án þess að vera með tilbúið efni.
„Þetta er námskeið í því að
vera ekki að hugsa of mikið um
hvað fólkinu sjálfu finnst, maður
er bæði meðvitaður um það en
um leið þarf maður svolítið að
hundsa það því annars kemur
ekki neitt. En það getur alveg
gerst að ég verði alveg andlaus
líka,“ segir Úlfur hress og bætir
við: „En það sem er svo skemmti-
legt við þennan tónleikastað,
Mengi, er að hann býður upp á
svona tilraunakenndari viðburði.
Þá leyfist manni ýmislegt.“
Úlfur er meðlimur í Apparat
Organ Quartet auk þess að hafa
samið töluvert af tónlist fyrir
kvikmyndir, sjónvarp, leikhús og
aðra miðla og gefið út eigið efni.
Í mars er væntanlegt frá honum
gagnvirka tónverkið Strengja-
kvartett nr.∞.
„Það er svolítið sérstakt dæmi,
gagnvirkt tónverk sem verður á
netinu. Það virkar þannig að fólk
fer inn á ákveðna síðu og hlust-
ar á verkið þar og stjórnar því í
rauninni hvernig verkið er.“
Verkið verður frumflutt á
Hönnunarmars 2015 en Sigurð-
ur Oddsson hönnuður og Halldór
Eldjárn, forritari og tónlistar-
maður, koma einnig að verkinu.
Tónleikarnir hefjast klukkan
níu í Mengi og er miðaverð 2.000
krónur.
gydaloa@frettabladid.is
Hugmyndavinna
fyrir opnum tjöldum
Úlfur Eldjárn tónlistarmaður fl ytur spunatónverk í Mengi í kvöld. Tónleikarnir
verða teknir upp og stefnir hann á að endurvinna efnið með tíð og tíma.
ÚLFUR Kemur fram á tónleikum í Mengi í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Ég hef gert þetta
áður og það hefur komið
skemmtilega út. Stund-
um kemur eitthvað alveg
frábært og stundum
eitthvað ekki alveg jafn
frábært.
➜ Hin árlega skoska menn-
ingarhátíð er nú haldin
í fjórða sinn.
Hljómsveitir víða um heim halda
á þessu starfsári upp á hundrað
og fimmtíu ára fæðingarafmæli
tónskáldanna Richards Strauss og
Jeans Sibeliusar, og er Sinfóníu-
hljómsveit Íslands þar ekki und-
anskilin.
Í kvöld munu Karlakór Fóst-
bræðra og Karlakór Reykjavík-
ur sameina krafta sína og raddir
í flutningi á tónaljóði Sibeliusar.
Með þeim syngja Jorma Hynninen,
einn ástsælasti söngvari Finna,
og Þóra Einarsdóttir sópransöng-
kona sem túlkaði Ragnheiði í sam-
nefndri óperu Gunnars Þórðarson-
ar. Stjórnandi hljómsveitarinnar
er Petri Sakari, en hann hefur í
gegnum árin stjórnað öllum helstu
hljómsveitarverkum Sibeliusar og
er þeim því vel kunnugur.
Fjölmargir þekkja Strauss vegna
ópera hans en hann er einnig kunn-
ur fyrir tónaljóð sín. Á tónleikunum
í kvöld verður flutt sinfónískt ljóð
eftir Strauss, Macbeth, sem byggt
er á vel þekktu leikriti Shake-
speares.
Á eftir verki Strauss verður Kull-
ervos, sinfónískt ljóð eftir Sibel-
ius, flutt. Í verki hans eru dregn-
ar upp myndir úr lífi hins hvatvísa
Kullervos en verkið er hið fyrsta í
röð tólf tónaljóða sem byggð eru á
finnska sagnabálkinum Kalevala.
Tónleikarnir fara fram í Eldborgar-
sal Hörpu og er miðverð frá 2.400
krónum.
- gló
Fagna fæðingarafmæli tónskálda
Sinfónísk ljóð eft ir Richard Strauss og Jean Sibelius verða fl utt í Eldborg í kvöld.
TAKK! Fóstbræður Karlakórinn Fóstbræður eru meðal þeirra sem koma fram í
Eldborgarsal Hörpu í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/EDDI
2
8
-1
2
-2
0
1
5
0
0
:5
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
F
6
-E
4
5
8
1
7
F
6
-E
3
1
C
1
7
F
6
-E
1
E
0
1
7
F
6
-E
0
A
4
2
8
0
X
4
0
0
2
A
F
B
0
6
4
s
_
2
1
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K