Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2013, Blaðsíða 4
Hannes Smárason
opnar heimasíðu
4 Fréttir 9. september 2013 Mánudagur
Heimilislausum vísað frá
n Þorleifur krefst aðgerða vegna sprengingar í aðsókn í Gistiskýlið
Á
fyrstu sjö mánuðum ársins
þurfti í 308 skipti að vísa heim-
ilislausum mönnum frá Gisti-
skýlinu í Þingholtsstræti sök-
um plássleysis. Allt árið í fyrra þurfti
aðeins að vísa mönnum frá í 24 skipti.
Tuttugu rúm eru í boði í Gistiskýlinu
en gistiplássin eru fullnýtt nánast upp
á dag og ljóst að úrræða er þörf.
Þorleifur Gunnlaugsson, fulltrúi
Vinstri grænna í velferðarráði Reykja-
víkurborgar, er einn þeirra sem barist
hefur fyrir bættri aðstöðu útigangs-
fólks. Hann hefur ítrekað bent á þessa
slæmu stöðu með bókunum í borg-
arráði og velferðarráði.
Þorleifur hefur talað fyrir því að
húsnæðisvandinn verði leystur með
því að finna bráðabirgðahúsnæði þar
til endanleg lausn verður til staðar.
Samþykkt var í velferðarráði í maí
síðastliðnum að fela velferðarsviði
að undirbúa flutning á Gistiskýli fyrir
heimilislausa karla í nýtt húsnæði
sem líklega verði ekki tilbúið fyrr en
um áramót. Sá undirbúningur mun
vera í fullum gangi. Tillaga fulltrúa
Samfylkingarinnar og Besta flokksins
að umsögn til borgarráðs, sem sam-
þykkt var með meirihluta atkvæða,
kveður hins vegar á um að óráðlegt sé
að hefja leit að bráðabirgðahúsnæði.
Var velferðarsviði þess í stað falið
að athuga hvort hægt væri að fjölga
plássum í eða við núverandi húsnæði,
og hvað það myndi kosta.
Þorleifur segir að nú, þegar farið
er að kólna, sé það furðulegt að
velferðar ráð ætli að dunda sér við að
„greina orsakir og aðstæður þeirra
karla sem valdið hafa þessari auknu
ásókn í Gistiskýlið.“
„Að meirihluti velferðarráðs skuli,
nú þegar haustar og kólnar í veðri,
senda þau skilaboð til borgarráðs að
ekki skuli brugðist við, nema hugsan-
lega ef hægt er „að fjölga plássum í eða
við núverandi húsnæði“ er með ólík-
indum,“ segir Þorleifur í bókun sinni. n
n Leynd hefur hvílt yfir lífi og störfum Hannesar síðastliðin ár
H
annes Smárason, fjárfestir
og fyrrverandi forstjóri og
hluthafi í FL Group, hefur
einbeitt sér að því, með-
al annars, frá árinu 2008
að veita ráðgjöf við sölu á lyfjafyr-
irtækjum og annars konar fyrir-
tækjum. Hann segist hafa komið
að viðskiptum með fyrirtæki upp
á meira en 500 milljónir dollara,
rúmlega 60 milljarða íslenskra
króna. Þetta kemur fram á heima-
síðu Hannes, hannessmarason.
com, sem fjárfestirinn virðist hafa
opnað nýlega. Stærsti hluti þessar-
ar tölu er vegna aðkomu Hannes-
ar að viðskiptum með deCode í lok
síðasta árs. Félagið var þá selt til
lyfjaþróunarfyrirtækisins Amgen
fyrir 415 milljónir Bandaríkjadala.
Kominn út í ráðgjöf
Hannes virðist, samkvæmt heima-
síðunni, nánast alfarið vera kom-
inn út í ráðgjafarstörf á sviði heil-
brigðismála og genatækni og má
segja að heimasíðan líti frekar út
eins og síða vísindamanns en fjár-
festis. Á síðunni fæst Hannes meðal
annars við að útskýra flókna hluti á
sviði genavísinda, bæði í bloggi og
eins á Youtube-myndböndum sem
hægt er að nálgast á síðunni.
Hannes þykir eldklár – þannig
bera flestir honum söguna – með-
al annars Kári Stefánsson, forstjóri
deCode – og nam hann verkfræði
við MIT-háskóla í Bandaríkjunum.
Nokkru síðar hóf hann svo störf
hjá deCode og var hægri hönd
Kára um nokkurra ára skeið og sá
meðal annars um að skrá deCode
á hlutabréfamarkað í Bandaríkj-
unum í kringum síðustu aldamót.
Þó að fáir efist um hæfileika og
greind Hannesar þá er hann um-
deildur hér á landi vegna aðkomu
sinnar að FL Group og hefur efna-
hagsbrotadeild ríkislögreglustjóra
og síðar sérstakur saksóknari rann-
sakað viðskipti sem hann tengdist
hjá FL Group.
Vinnur með hluthöfum deCode
Á heimasíðunni kemur fram að að
Hannes hafi lengi verið ráðgjafi
hluthafa deCode og að hann hafi
komið að sölunni á fyrirtækinu til
Amgen. Orðrétt segir: „Hann hefur
lengi verið ráðgjafi deCode og fjár-
festa þess Polaris Venture Partners
og ARCH Venture Partners og kom
að að sölunni á deCode til Amgen
fyrir 415 milljónir dollara.“
Aðkoma Hannesar að sölunni á
deCode vakti nokkra athygli hér á
landi í lok síðasta árs. DV greindi
þá frá því að Hannes hefði fengið
tæpar 20 milljónir króna í þóknun
fyrir vinnu sína við söluferlið á
deCode. Um var að ræða 150 þús-
und dollara þóknun fyrir nokkurra
vikna vinnu, um sex vikna í
heildina, við söluferlið.
Kári Stefánsson sagði frá því að-
spurður í viðtalsþættinum Klinkinu
á Vísi nokkrum dögum áður en
DV greindi frá þóknun Hannes að
hann hefði komið að sölunni á fyr-
irtækinu sem ráðgjafi. Í viðtalinu
sagði Kári meðal annars: „Hann-
es er feikilega læs á fjárhagslegar
upplýsingar og það nýttist vel.“
Leynd yfir störfum Hannesar
Hannes hefur síðastliðin ár búið í
London og Barcelona og hefur látið
lítið fyrir sér fara hér á landi. Að-
koma hans að sölunni á deCode er
eitt fyrsta skiptið sem nafn hans bar
aftur á góma í íslensku viðskiptalífi
eftir hrunið 2008. Nú liggur hins
vegar fyrir, líkt og kemur fram á
heimasíðunni, að hann starfar sem
ráðgjafi og selur ráðgjöf á sviði sem
hann þekkir vel frá árum sínum hjá
deCode.
Nokkra athygli vekur að Hannes
skuli opna slíka síðu þar sem hann
hefur verið afar dulur um störf
sín samkvæmt þeim sem til hans
þekkja. Hann hefur lítið viljað gefa
upp um sín störf við kunningja
sína hér á landi. Blaðamenn hafa
sömuleiðis ekki getað fengið það
upp úr honum.
Hins vegar er vitað að Hannes á
miklar eignir erlendis og eins minni
eignir, eins og til dæmis veitinga-
staðinn Texture í London, ásamt fé-
laga sínum Magnúsi Ármann. Einnig
mun vera um að ræða talsvert magn
fasteigna. Hannes er því alls ekki á
flæðiskeri staddur og starfar bæði
sem ráðgjafi og eins sem fjárfestir.
Hugsanlegt og líklegt er að hann sé
enn milljarðamæringur. n
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Ráðgjafinn Hannes
Hannes hefur opnað heima-
síðu þar sem hann fjallar
um störf sín. Leynd hefur
verið yfir störfum hans
síðastliðin ár.„Hann hefur
lengi verið
ráðgjafi deCode og
fjárfesta þess
Polaris Venture
Partners og ARCH
Venture Partners
Datt í lukku-
pottinn
Einn lukkunnar pamfíll var með
allar tölurnar réttar í laugardags-
lottóinu. Hinn heppni fær 13,3
milljónir króna í vasann því
potturinn var tvöfaldur í þetta
skiptið. Annar spilari fékk ágætis
búbót að auki því hann var með
fjórar tölur réttar ásamt bónus-
tölu og fær rúma hálfa milljón
króna í sinn hlut.
Illa slasaður
við Hrafnistu
Aldraði maðurinn sem fannst að-
faranótt laugardags á bílastæði
við dvalarheimilið Hrafnistu í
Reykjavík liggur þungt haldinn á
gjörgæsludeild Landspítalans. Að
sögn vakthafandi læknis á sunnu-
dag var ástand mannsins óbreytt
en læknirinn mátti ekki tjá sig
frekar um líðan hans.
Maðurinn, sem er 85 ára,
fannst liggjandi á bílastæði við
Hrafnistu um þrjúleytið aðfara-
nótt laugardags. Talið er að hann
hafi dottið niður af steinvegg en
fallið er um einn metri. Starfsfólk
Hrafnistu kom honum til aðstoðar
og kallaði á sjúkrabíl. Á laugardag
sagði vakthafandi læknir að líðan
mannsins væri stöðug en alvarleg.
Hann hlaut sár á andliti, brjóst-
kassa og hendi.
Ekki liggur fyrir hvernig atvik-
ið átti sér stað nákvæmlega en
maðurinn hafði legið á jörðinni í
nokkurn tíma þegar hann fannst.
Banaslys í
Skíðadal
Karlmaður á sjötugsaldri lést eftir
að hafa fallið af hestbaki á laugar-
dag. Maðurinn var í göngum á
Skíðadalsafrétt þegar hann lést.
Ekki liggur fyrir hvort maðurinn
hafi látist við fallið eða orðið bráð-
kvaddur.
Björgunarsveitir á Dalvík og
Akureyri voru kallaðar út ásamt
þyrlu Landhelgisgæslunnar. Þegar
læknir mætti á vettvang var mað-
urinn úrskurðaður látinn.
Flott föt fyrir
flottar konur
Stærðir 38-58
Verslunin Belladonna
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is