Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2013, Blaðsíða 15
Toppurinn
á tilverunni
Sykur drepur
bragð
Ólafur Halldórsson kynntist konunni á brúðkaupsdaginn. – DVSigurveig Káradóttir hefur sultur ekki of sætar. – DV
Þjóðarvilji þegar það á við
Spurningin
„Mér finnst það alger dónaskapur
og óþarfi.“
Moritz Sigurðsson
13 ára nemi
„Það á engan rétt á því. Alger
dónaskapur.“
Sindri Snær Rögnvaldsson
13 ára nemi
„Það er geigvænlega óþekkt.“
David Needes
sjómaður
„Ég væri að líkindum mjög reiður,
þekkti ég einhvern fatlaðan. En
sú er ekki raunin. Þetta er samt
glæpsamleg háttsemi, ekki satt?“
Charlie Needes
sjómaður
„Ég tel það tillitslaust.“
Hallgrímur Pálsson
18 ára nemi
Hvað finnst þér um
fólk sem leggur í
stæði fyrir fatlaða?
1 „Hvað er að mamma?“ Kári Ey-þórsson, sem starfar sem ráðgjafi fyrir
fjölskyldur, pör og einstaklinga, skrifaði
áhugaverða grein um meðvirkni.
2 Lögð í einelti fyrir að hafa skarð í vör Selma Björk Hermanns-
dóttir sagði frá grófu einelti í aðsendri
grein sem birtist á Bleikt.is.
3 Vann 13,3 milljónir Einn heppinn lottóspilari var með allar tölur réttar
á laugardag þar sem potturinn var
tvöfaldur.
4 Lést eftir að hafa fallið af hestbaki Karlmaður á sjötugsaldri
lést við göngur á Skíðadalsafrétt á
laugardag.
5 15 látnir eftir loftárás NATO Börn og konur voru meðal þeirra sem
féllu í loftárásum í Kunar-héraði í
Afganistan.
6 Fjórtan ára drengur sleginn á Laugavegi Tveir ógæfumenn tókust
á fyrir utan bar um helgina og var
saklaus vegfarandi sleginn.
7 Heimilislaus vegna kerfisgalla Í helgarblaði DV var sagt frá fólkinu
sem kerfið skilur útundan.
Mest lesið á DV.is
E
ftir hrun var meirihluti þjóðar-
innar fylgjandi því að sótt yrði
um aðild að Evrópusambandinu
og skal kannski engan undra eftir
allt sem á undan var gengið. Því mið-
ur kláraði fyrri ríkisstjórn ekki verkið
þrátt fyrir að hafa haft til þess fjögur
ár. Vinstri grænir voru eindregið and-
vígir aðild að ESB sem flækti ferlið
enn frekar. Flokkurinn samþykkti þó á
landsfundi sínum í febrúar síðastliðn-
um að klára skyldi aðildarviðræðurn-
ar. Þessi afstaða VG hefði gjarnan mátt
liggja skýrt fyrir í upphafi síðasta kjör-
tímabils. Þá værum við kannski þegar
komin með samninginn í hendur. Í
stað þess er áfram deilt um það hvað
muni standa í samningnum og hvort
um eitthvað sé að semja.
Bjartari framtíð í samvinnu
Nú hafa tekið við stjórnartaumunum
flokkar sem hafa þá yfirlýstu stefnu að
Íslendingum sé betur borgið utan ESB
en innan. Ég hallast hins vegar að því
að framtíð okkar verði bjartari í mik-
illi og góðri samvinnu við okkar helstu
vina- og nágrannaþjóðir í gegnum að-
ild að ESB. Ég er líka þeirrar skoðunar
að það sé illmögulegt að reka hagkerfi
með gjaldmiðli sem engin eftirspurn
er eftir. Aðild að ESB og möguleiki á
upptöku evru er að mínu mati kostur
sem okkur er beinlínis skylt að skoða.
Bæði Framsóknarflokkurinn og
Sjálfstæðisflokkurinn kölluðu ítrekað
eftir þjóðaratkvæðagreiðslu um fram-
hald viðræðna á síðasta kjörtímabili.
Nú þegar þessir flokkar eru komn-
ir til valda bólar hins vegar ekkert á
slíkri atkvæðagreiðslu. Læðist því að
manni sá grunur að stjórnarflokkarn-
ir hafi bara haft áhuga á að kanna vilja
þjóðarinnar þegar niðurstaðan gat
orðið til þess að stöðva samningaferl-
ið. Það er sem sagt ekki þjóðarvilji sem
skiptir máli þegar upp er staðið. Fram-
sóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur
hafa ekki einu sinni rætt málið sín á
milli eins og fram hefur komið í máli
formanns Sjálfstæðisflokksins. Þeir
hafa nefnilega ekki lengur neinn áhuga
á afstöðu þjóðarinnar. Eins og stað-
an er núna er ekki nokkur leið að vita
hvort atkvæðagreiðsla um framhald
viðræðna muni yfirhöfuð fara fram.
Hvað hefur breyst?
Vigdís Hauksdóttir skrifaði grein í
janúar árið 2011 sem ber yfirskrift-
ina „Þjóðaratkvæðagreiðsla um að-
lögunarferli að ESB“. Þar fjallar hún
um ítrekaðar tilraunir minnihlutans til
að fá málið lagt fyrir þjóðina. Greinin
endar svona:
„Ísland er lýðræðisríki þar sem
allar skoðanir eru leyfðar og því á
fólkið í landinu að segja sitt álit áður
en lengra er haldið. Segi þjóðin já í
þjóðaratkvæðagreiðslu hvort halda
eigi aðlögunarferlinu að Evrópu-
sambandinu áfram fær ríkisstjórn-
in skýrt umboð – en hafni þjóðin að-
lögunarferlinu þá verður ekki lengra
haldið – kröftum og fjármagni verð-
ur þá beitt innanlands. Þetta er lýð-
ræðisleg sáttaleið sem ríkisstjórnin
getur ekki hafnað.“
Ég hlýt að spyrja hvað hafi breyst. Er
þjóðinni ekki lengur treystandi fyrir því
að segja skoðun sína í þessu máli? n
Grýlurnar Þær voru ógnvekjandi grýlurnar á busavígslu MR-inga síðastliðinn fimmtudag. Þar á bæ eru tolleringar eðlilegur hluti af haustverkum, þegar nýnemarnir eru
boðnir velkomnir. MyndSiGtryGGur AriMyndin
Umræða 15Mánudagur 9. september 2013
Allt öðruvísi krakki
en fólk heldur
Ómar Ragnarsson var rólegur og mikið til hlés. – DV
Kjallari
Brynhildur Pétursdóttir
Þingkona Bjartrar framtíðar
„Er þjóðinni
ekki lengur
treystandi fyrir því
að segja skoðun
sína í þessu máli?