Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2013, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2013, Blaðsíða 23
Menning 23Mánudagur 9. september 2013 L eiklistarhátíðin Lókal hef- ur sannað tilverurétt sinn í ís- lensku leiklistarlífi, jafnvel þótt hún virðist fyrst og fremst vera vettvangur fyrir sviðs- listafólkið sjálft. Hún er kærkomið og nauðsynlegt tækifæri til að kynna nýja nálgun og aðferðir í sviðslistum og efna til samræðu um stöðu list- greinarinnar. Að þessu sinni sinni átti ég þess kost að sjá tvær sýningar á Lókal-há- tíðinni. Sú fyrri, Eiðurinn eða eitt- hvað …, var frumflutningur á nýju leikriti stórskáldsins Guðbergs Bergs- sonar sem jafnframt er hans fyrsta sviðsverk. Rætt um lífið og tilveruna Það var Grindvíska atvinnuleikhúsið sem sýndi verk Guðbergs í Tjarnar- bíói en þar hefur leikstjórinn Bergur Þór Ingólfsson unnið þrekvirki við að koma margræðum og flóknum texta Guðbergs í leikrænt horf ásamt leikurunum fjórum sem báru uppi sýninguna. Guðbergur velur sér tvenns konar efni, annars vegar tek- ur hann eitt frægasta drama Íslands- sögunnar, eiðinn sem Ragnheiður Brynjólfsdóttir sór í Skálholti forð- um daga um meint skírlífi sitt, drama sem hefur þegar orðið uppspretta að nokkrum sviðslistaverkum og vel til þess fallið að skapa pottþétt leikrit upp úr að minnsta kosti samkvæmt hefðbundnum formreglum leikritun- ar. Hins vegar skrifar hann verk þar sem tveir karlmenn ræða um mun- inn á lífinu og tilverunni, skáldlegt og heimspekilegt í senn, guðbergst í meira lagi og oft alveg óborganlega fyndið. Bergur Þór fer þá leið að búa til persónu skáldsins á sviðinu sem bræðir verkin tvö saman og stjórnar að mestu framvindu þess gjörnings sem fyrir augu ber. Göldróttur bræðingur Ef til vill liggur allur galdur leiksýn- ingarinnar í þessum bræðingi sem var kostulegur og óræður á sama hátt og skáldskapur Guðbergs er ævin- lega. Þannig tala verkin saman um sig sjálf sig og stöðu sína í höfundarverk- inu. Og það gerir leiksýningin líka, þar sem leikararnir leika lítt reynda leikara sem gera klaufalega tilraun til að setja undarlegan leiktexta á svið. Með þessari leið verður það bersýni- legt hversu flókið og beinlínis vand- ræðalegt það getur verið að skrifa leikrit ekki síst ef hafa skal sætanýt- ingu leikhússins í huga. Höfundurinn á sviðinu veit vel að leikhúsin keppa fyrst og fremst að sætanýtingu eins og flugfélögin, þótt þau fljúgi oftast hærra en andinn í leikhúsinu. Það fer aldrei leynt að hin frjóa uppspretta sviðsetningarinnar er ófullkomleiki og takmarkanir leikhússins, því fátt er er jafn klaufalegt og vont drama um miklar tilfinningar, hvað þá allar stælingarnar á leikhúsi fáránleikans … allir vildu Godot kveðið hafa. Þetta veit leikstjórinn og allur leikhópur- inn og í stað þess að afgreiða leiktexta Guðbergs sem misheppnaðan í það minnsta í markaðslegu tilliti, finna þau leið sem að lokum fjallar um leik- húsið í leikhúsinu. Leikskáldið á sviði Það er einfaldlega flókið að skrifa leikrit og búa til leikhús, það sáum við helst í barningi skáldsins á leik- sviðinu við að halda í alla þræði. Er- ling Jóhannesson lék skáldið og fékk ýmislegt að láni frá Guðbergi sjálf- um meðal annars sérlega framsögn hans og prakkaralegt brosið sem alla tíð hefur einkennt þetta „enfant terri- ble“ íslenskra bókmennta. Sveinn Ólafur Gunnarsson er vaxandi leikari og átti hér stórgóðan leik sem klaufa- legur leikari og sömu leiðis Benedikt Karl Gröndal sem var oft kostulegur. Sólveig Guðmundsdóttir líkamnaði í reynd öll viðteknu kvenhlutverkin sem konur hafa leikið gegnum tíðina. Þar var eintalsform af sögu Ragnheið- ar Brynjólfsdóttur fyrirferðarmest, kjarni þess snerist um kynferðisof- beldi föður gegn dóttur í dimmum bæjargöngum biskupsstólsins. Eiður- inn eða eitthvað … er ekki endilega vel heppnað til sætanýtingar í leik- húsinu og það vita aðstandendur þess, en engu að síður tókst þeim að finna því búning sem skilaði sér í kraftmikilli og frumlegri sýningu. Bergur Þór Ingólfsson og áhöfn hans unnu þrekvirki, flugu leikhúsþyrl- unni um marga ófæruna í þessum marglaga texta Guðbergs Bergssonar og fyrir það eiga þau hrós skilið. Sigur og tap Í seinni sýningunni, Winners and Losers, sem var í boði Theatre Replacement og Neworld Theatre frá Kanada, er allt annað uppi á ten- ingnum en hjá GRAL-hópnum. Hér er eitthvað á ferðinni sem kemur í staðinn fyrir leikhús, en vill samt vera leikhús. Tveir miðaldra karlmenn af mis- munandi uppruna, annar afkom- andi innflytjenda frá Egyptalandi og hinn dæmigerður hvítur karlmaður, alinn upp í lágstéttarumhverfi (með öllu sem því getur fylgt eins og of- beldi og alkóhólisma), stunda, að því er virðist, saklausan samkvæmisleik í upphafi sýningar. Umgjörðin er ein- föld, leikararnir tveir klæðast bún- ingum sem gætu verið þeirra eigin föt og þeir sitja við borð sem reyndar hefur verið rammað inn af krítuðum ferhyrningi sem gefur leiknum strax táknræna merkingu um það afmark- aða rými sem manneskjan þarf alltaf að deila með öðrum. Smám saman fer samkvæmisleikurinn að fjalla um meira og annað en merkingu ein- faldra orða og hugtaka eða hvunn- dagsleg fyrirbæri, ekki síst þegar við bætist persónuleg frásögn leikaranna af eigin lífi og aðstæðum sem settar eru í samhengi við pólitískt ástand heimsins, efnahagsmál, stríðsrekstur og valdabrölt. Þetta er umræðuleik- hús um samtíma okkar, um stans- laust fréttaflóðið, upplýsingaveiturn- ar, vel unninn leikspuni sem spyr áleitinna spurninga um sjálfsmynd nútímamannsins og stöðu hans í heiminum. Hvers virði er þekkingin Hvað vitum við eiginlega um raun- verulegar hugsanir og tilfinningar hvers annars þegar öllu er á botninn hvolft, eða um heiminn þótt hann sé inni í stofu hjá okkur á hverjum degi. Hvers virði er öll þekkingin sem við höfum aflað okkur þegar kemur að því að sætta sig við uppruna sinn, stöðu í samfélaginu og þá staðreynd að aðrir hafa það betra en maður sjálfur? Það má segja að leikararnir tveir hafi smám saman smættað þess- ar spurningar niður í eina lykilsögu, nefnilega söguna af Kain og Abel. Þegar sýningunni lauk stóðu bræð- urnir tveir andspænis hvor öðrum og öfundin hafði náð tökum á Kain. Winners and Losers er bræðingur að forminu til, samkvæmisleikur sem verður að uppistandi með viðeigandi bröndurum og hápunktum, en færir sig svo smátt og smátt úr yfirborðs- legum kjaftavaðli í átt að dýpri pæl- ingum um manneskjuna. Það er pínulítill angi af boðskap í þessu öllu, löngun til að fá áhorfand- ann til að hugsa, verða jafnvel betri og meðvitaðri um sjálfan sig og það er vel. Leikur þeirra Marcus Youssef og James Long var óaðfinnanlegur en þeir kjafta áhorfandann smátt og smátt inn á sitt band. Sá kjaftavaðall var stundum þreytandi í ofgnótt sinni og flæði en hafði þann dulbúna til- gang að stefna okkur inn í harmleik- inn sem tilvera okkar meira og minna er. Um leið og ég spurði sjálfa mig hvort ég hefði ekki getað hlustað á þessar samræður bara heima í tölv- unni og sparað mér ferðina í leik- hús, vöknuðu auðvitað vangaveltur um stöðu, hlutverk og eðli leik- hússins á okkar tímum, vangaveltur sem Lókal-hátíðin vill ábyggilega öðrum þræði vekja meðal leiklistar- fólks. Getur allt orðið að leikhúsi og fyrir hvern er leikið? Sýning eins og Winners and Losers er kjörin til þess, því hún þykist ekki vera neitt sér- stakt, hún er umbúðalaus í nálgun sinni á viðfangsefninu, ekki tilgerðar- legt augnakonfekt, enginn sjónrænn sviðsgjörningur, en nær samt til- gangi sínum – að fá áhorfandann til að hugsa. n Lífið er klaufa- legt og listin líka n Uppsetning á nýju verki Guðbergs Bergssonar er þrekvirki Tvær sýningar á Lókal Eiðurinn og eitthvað … eftir Guðberg Bergs- son í uppsetningu Gral Aðlögun og leikstjórn: Bergur Þór Ingólfsson Leikarar: Sveinn Ólafur Gunnarsson, Sólveig Guðmundsdóttir, Erling Jóhannesson og Benedikt Karl Gröndal Winners and Losers Theatre Replacement / Neworld Theatre (Vancouver) Samið og flutt af Marcus Youssef og James Long Leikstjóri: Chris Abraham Leiklist Hlín Agnarsdóttir skrifar Samræðuleikhús Sýningin Winners and Losers setti spurningar- merki við leikhúsformið sjálft. Guðbergur Bergsson Leikrit hans Eiðurinn og eitthvað … byggir á sögu Ragnheiðar biskupsdóttur. Mynd SiGtRyGGuR ARi „Höfundurinn á sviðinu veit vel að leikhúsin keppa fyrst og fremst að sætanýtingu eins og flugfélögin … Ríðingasögur n Fyrsta mynd Benedikts Erlingssonar er prýðileg skemmtun n Smásögusafn um samskipti reiðan traktorsbílstjóra, er hér ekki lengur poppstjarna að leika heldur líklega orðinn sá leikari sem lagt var upp með. Skemmtileg mynd Myndatakan er einnig til fyrir- myndar. Klósöpp á auga hross- anna sýna okkur hversu undar- lega við hljótum að líta út í sjáöldrum þeirra, og aðrir hug- myndaríkir vinklar eru notaðir, svo sem að sýna hvað gerist undir yfirborðinu þegar hópur hesta fer yfir á. Brandarinn um Ingvar og hrossin tvö missir eitthvað af áhrifamætti sínum við að vera notaður bæði í stiklu og á plakati, en nóg er eftir þegar hann er frá. Helst óttaðist ég þó að á þessum dögum þar sem ís- lenski hesturinn er hafður til sýnis í Berlín væri hér verið að skrifa ástarbréf til hestsins, póstkort sem helst væri ætlað til útflutnings. Svo er ekki, hér er fyrst og fremst verið að gera skemmtilega mynd sem ekki síst heimamenn ættu að hafa gaman af. n Gagnvirkt verk Úlfur Eldjárn efnir til hópfjármögn- unar á síðunni Karolinafund.com, til að búa til gagnvirkt tónverk. Verkið sem er samið fyrir strengjakvartett, verður aðgengilegt á netinu þar sem verður hægt að hlusta endurgjalds- laust og búa til sína eigin útgáfu af verkinu. „Fyrr á þessu ári samdi ég verk fyrir strengjakvartett sem var óvenjulegt að því leyti að það hef- ur hvorki ákveðið upphaf, enda né uppbyggingu,“ segir Úlfur. „Strengja- kvartettinn var lokaverkefni mitt frá tónsmíðadeild Listaháskólans. Draumurinn var hins vegar alltaf að verkið væri eins konar heimur sem hlustandinn gæti ferðast um og kannað á eigin forsendum.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.