Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2013, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2013, Blaðsíða 22
Þ að er langt síðan maður hefur séð góða íslenska hestamynd. Ef til vill ekki síðan maður sá Land og syni í árdaga íslenska kvik­ myndavorsins. Hross í oss er óum­ deilanlega hestamynd. Og hún er bara nokkuð góð. Hross eru til ýmissa hluta nýti­ leg, eins og fljótlega kemur í ljós. Það má nota þau til að synda út í rússneska togara til vodkakaupa, til að vísa sér leiðina heim ef mað­ ur missir sjónina og ef allt bregst má skera þau upp eins og Han Solo ger­ ir við „tauntaun“­dýr og hlýja sér inni í þar til veðrinu slotar. Eftir margar borgarsögur, bæði í bíó og bókmenntum, undanfarin ár er eins og menn séu farnir að upp­ götva sveitina á ný og sjá má í bók­ um eins og Svar við bréfi Helgu og bíómyndum sem þessari. En þetta er ekki alveg sama sveitin og við sáum fyrir um 30 árum, þó líklega sé ekki tilviljun að myndin er látin gerast einmitt fyrir 30 árum. Heillandi sveitalíf Sveitin er heillandi en ekki endilega rómantísk, að minnsta kosti ekki á hefðbundinn hátt. Undir lokin fáum við að sjá alíslenskt ástar atriði, þar sem konur á hestum keppast um að færa hönknum Ingvari Sigurðs­ syni brennivínspyttlu. Þegar svo par fer saman í réttir vita allir hvað það merkir. Leikstjóri segir myndina fjalla um hrossið í manninum og manninn í hrossinu, og er það ekki fjarri lagi. Atriði þar sem stóðhestur mænir á meri gæti allt eins gerst ís­ lenskum bar, enda ekki tilviljun að orðið sem er notað um þær athafnir sem stefnt er þar að er einmitt dreg­ ið til hestamennsku. Átök manna og hesta En þó þessar tvær tegundir eigi margt sameiginlegt fjallar myndin ekki síður um átök þeirra á milli. Þó ástarsaga tengi þetta saman er myndin fremur smásögusafn, vinjettur sem hver og ein fjallar um samskipti manns og hests. Mannfallið er mun meira en mað­ ur hefði búist við í sveitasögu sem þessari, flestar sögurnar enda með falli manns eða hross, og er staðan 2–2 þegar uppi er staðið, og einn limlestur úr hvoru liði þar að auki. Sögurnar eru meinfyndnar eða koma á óvart að einhverju leyti, næstum eins og smásögur Roalds Dahl. Þær eru bornar uppi af sterkum karakterleikurum, þó fæstar persónur sýni meira en eina tilfinningu hver, eðli máls­ ins samkvæmt. Charlotte Böving túlkar þrána og tekst vel án þess að segja mikið, fáir leika fylli­ byttur betur en Steinn Ármann og Helgi Björnsson, sem leikur 22 Menning 9. september 2013 Mánudagur Að elska og eldast n Before Midnight er ein besta mynd sumarsins Kvikmyndir Valur Gunnarsson valurgunnars@gmail.com Hross í oss Leikstjórn: Benedikt Erlingsson Aðalhlutverk: Ingvar Sigurðsson, Charlotte Böving, Steinn Ármann Magnússon og Helgi Björnsson Ríðingasögur n Fyrsta mynd Benedikts Erlingssonar er prýðileg skemmtun n Smásögusafn um samskipti„Atriði þar sem stóðhestur mænir á meri gæti allt eins gerst íslenskum bar … Benedikt Erlingsson leikstjóri Fær 4 stjörnur hjá gagnrýnanda fyrir frumraun sína Hross í oss. Úr myndinni Hross í oss Íslenskir hestar í aðalhlutverki. L öngu á undan Ryan Gosling var Ethan Hawke. Heil kyn­ slóð kvenna man eftir hon­ um úr Reality Bites, alveg eins og við strákarnir munum eftir Winonu Ryder (það er þó leikstjór­ inn Ben Stiller sem oftast hefur sést síðan). Það eru því fagnaðarfundir að sjá hann Ethan okkar aftur, jafn myndarlegan og fyrr en eilítið eldri. Árið 1995 lék Ethan á móti hinni frönsku Julie Delphy í hinni gullfal­ legu mynd Before Sunrise, þar sem ungur maður og kona hittast í lest og eyða nóttinni í að tala saman um allt og ekkert. Leikstjóri var Richard Linklater, sem áður hafði sýnt X­ kynslóðinni hvað hún vildi vera í Dazed and Confused (seventís ung­ lingar) og hvað hún raunverulega var í myndinni Slacker. Árið 2004 gerði hann Before Sunset, sem sýndi parið níu árum síðar, og nú er röðin kom­ inn að þriðju myndinni. Ethan og Julie eru hér orðin mið­ aldra, ekki lengur við sólarupprás, myrkrið er að bresta á. Þau eru stödd í fríi í Grikklandi og við fáum ýmsar kynslóðapælingar í samskiptum þeirra við yngra fólk. Eru kvöld eins og það sem þau áttu eitt sinn, þar sem ókunnugir deila leyndarmálum sínum í fullvissu um að hittast aldrei aftur, mögulegt á öld Facebook þar sem enginn hverfur nokkurn tím­ ann? Umhverfið er fallegt, maturinn góður og samræðurnar svo skemmti­ legar að mann dauðlangar til að lesa bókina sem Ethan segist vera að skrifa. En svo kemur nóttin, og einmitt þegar samveran á að ná há­ punkti sínum fer allt úrskeiðis. Krakkarnir hringja, rifrildi brýst út, það líður að miðnætti og lífið er í húfi. Julie er ber að ofan hálfa sen­ una þar til maður fær leið á að horfa á hana og verður uppteknari af deilunum, er það ekki einmitt svona sem sambönd þróast? Eins og í hinni stórgóðu Carnage eftir leikskáldið Yasmine Reza sjáum við eldklárt fólk takast á, ýmislegt kemur í ljós sem áður var hulið og margir gullmolar falla af hreinum kvikindisskap. Það hvort sambandið lifir kvöldið af er mun meira spennandi en flestar spennumyndir undanfarið, sem gerir Before Midnight að einni bestu mynd sumarsins.n Kvikmyndir Valur Gunnarsson valurgunnars@gmail.com Before Midnight IMDb 8,4 Metacritic 41 Leikstjóri: Richard Linklater Handrit: Richard Linklater, Julie Delphy og Ethan Hawke Aðalhlutverk: Julie Delphy og Ethan Hawke 109 mínútur Before Midnight Stórgóð og spennandi. Teiknimynda- höfundur hættir Japanski kvikmyndagerðarmað­ urinn Hayao Miyazaki lýsti því yfir á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum á dögunum að hann hygðist draga sig í hlé og ekki framleiða fleiri myndir. Hayao er þekktastur fyrir teiknimyndirnar Princess Mononoke, Howl‘s Moving Castle og Spirited Away. Hann er einn þekktasti og mikilvægasti leikstjóri teiknimynda í Japan. Á blaða­ mannafundi sagði hann að eftir því sem aldurinn færðist yfir tæki það hann sífellt lengri tíma að búa til mynd. Hann sagðist halda mest upp á Howl´s Moving Castle af myndum sínum. Þrír leikstjórar heiðraðir á RIFF RIFF – Alþjóðlega kvikmynda­ hátíðin í Reykjavík – fagnar tíu ára afmæli sínu með því að veita þremur leikstjórum verðlaun fyrir framúrskarandi listfengi. Leik­ stjórarnir koma frá Skandinavíu, Evrópu og Bandaríkjunum, eru á svipuðum aldri og eiga það sameiginlegt að hafa skýra list­ ræna sýn. Þetta eru Svíinn Lukas Moodysson, Frakkinn Laurent Cantet og Bandaríkjamaðurinn James Gray. Allir koma þeir til landsins með eina glænýja mynd í farteskinu og tvær eldri. Þeir munu sitja fyrir svörum á sýning­ um mynda sinna og halda svo­ kallaða „masterclass“ þar sem þeir munu miðla gestum af visku­ brunni sínum. RIFF hefst 26. sept­ ember og stendur til 6. október. MynD DIAZWICHMAnn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.