Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2013, Side 16
„Ljótar töLur“
D
æmi eru um að matvara
hafi hækkað um 28 pró
sent á síðustu tveimur árum
en þetta kemur í ljós við
könnun sem DV hefur gert.
Blaðinu barst strimill úr Bónus frá
júlí 2011 sem var notaður til að bera
saman verðið í dag og þá. Blaða
maður fór í verslanir Bónuss dagana
4. og 5. september og keypti sömu
vörur og voru keyptar árið 2011.
Dæmi um 28 prósenta hækkun
Við samanburð á verði kom í ljós
að matvara hefur hækkað töluvert á
þessum tveimur árum. Mesta hækk
unin var á fjölkornabrauði frá Myll
unni en árið 2011 kostaði það 159
krónur en í dag er það á 205 krón
ur sem gerir 28,9 prósenta hækkun.
Hangikjötið frá Búrfelli hefur hækk
að um rúmt 21 prósent og SS pyls
ur 10 í pakka hafa hækkað um 19,2
prósent á þessu tímabili. Þær fóru
úr 578 krónum í 689 krónur. Mills
kavíar hækkaði um 17,4 prósent en
hann fór úr 339 krónum í 398 krón
ur. Sömu hækkun mátti finna á Bón
us túnfisksalati en árið 2011 kostaði
það 195 krónur en er nú á 229 krón
ur. Tvær vörur hafa lækkað í verði.
Það eru annars vegar bananar en
kílóverð á þeim er nú 7 prósentum
lægra en það var fyrir tveimur árum.
Þá var kílóverð fyrir 1. flokks ban
ana 257 krónur en er nú 239 krónur.
Bónus bygg flatkökur hafa lækkað
um 5,5 prósent.
Laun hækka minna
Meðalhækkunin á þessum vörum á
tveggja ára tímabili er 13,3 prósent
en til gamans má geta þess að launa
vísitalan, sem segir til um hækkun
á meðal talsgrunni, hefur einungis
hækkað um 11,7 prósent á sama
tímabili. Bensínverð hefur hækkað
um 6,3 prósent en í júlí 2011 var lítrinn
á 240 krónur en er nú á 255 krónur.
Neysluvísitalan, sem er algengasti
mælikvarði á verðbólgu, hefur hækk
að um 8,9 prósent á síðustu tveimur
árum.
Samkvæmt tölum frá Hagstofu Ís
lands þá eyddi meðalfjölskyldan um
93.000 krónum í mat og drykk árið
2011. Sé miðað við að meðalhækk
unin sé 13,3 prósent má gera ráð fyrir
að matarkarfa meðalfjölskyldunnar
sé komin í 105.000 krónur á mánuði
og hefur því hækkað um 12.000 krón
ur á tveimur árum. Það gera 144.000
krónur sem fjölskyldan þarf að borga
aukalega fyrir mat á ári.
Óskiljanleg hækkun
Haft var samband við Jóhannes
Gunnarsson, formann Neytenda
samtakanna, sem segist ekki skilja
þessa hækkun. „Í flestum tilfell
um eru þetta innlendar vörur og
gengis þróun gefur því ekkert tilefni
til svona lagaðs. Ég geri þá kröfu að
framleiðendur eða seljendur geri
hreint fyrir sínum dyrum og skýri út
hvernig þeir réttlæti slíka hækkun.
Þarna eru dæmi um yfir 20 prósenta
hækkun sem er óskiljanlegt ef mað
ur skoðar gengi krónunnar.“
Hann tekur sem dæmi verð
hækkunina á Mills kavíar sem
er norsk vara. „Ef maður skoðar
sölugengi norsku krónunnar árið
2011 og 2013 sér maður að íslenska
krónan hefur styrkst gagnvart þeirri
norsku. Þetta stingur mann og mað
ur krefst skýringa af hálfu þeirra
sem hafa með þessa vöru gera.“
Neytendur hafi tekið á sig stóran
skell árið 2008 þegar krónan hrundi
en fái svo ekki að njóta þess þegar
krónan styrkist.
Það sem hann leggur til, og það
sem Neytendasamtökin hafa kallað
eftir, er að það komi til útreikninga á
vísitölu heildsöluverðs. Þannig væri
hægt að sjá betur hver það er sem
hækkar verðið. „Þá sjáum við hvort
það sé framleiðandi/heildsali eða
verslunin sjálf sem er að hækka sína
álagningu. Á meðan við höfum ekki
þessa vísitölu þá er ekki hægt að
greina hvert hækkunin á rót sína að
rekja.“ Aðspurður hvort slík vísitala
sé væntanleg segir hann það vera
pólitíska ákvörðun að láta Hagstof
una reikna hana út. Það hafi verið
rætt en ekkert gert í því.
Að lokum bendir hann á að þetta
sé sérstaklega vont fyrir þau heim
ili sem skrimta á lágum launum.
Erfiðleikar þeirra við að ná endum
saman verða enn meiri fyrir vikið. n
algengt verð 254,6 kr. 251,6 kr.
algengt verð 254,4 kr. 251,4 kr.
höfuðborgarsvæðið 254,3 kr. 251,3 kr.
algengt verð 254,6 kr. 254,6 kr.
algengt verð 258,9kr. 254,9 kr.
Melabraut 25 254,4 kr. 251,4 kr.
Eldsneytisverð 8. september
Bensín DísiLoLía
16 Neytendur 9. september 2013 Mánudagur
Kalla eftir leiguhúsnæði
n stjórnvöld þurfa að bretta upp ermar segja neytendasamtökin í ítrekun sinni
N
eytendasamtökin ítreka
kröfu sína um að stjórnvöld
sjái eignalausu fólki og leigj
endum fyrir viðráðanlegum
kostum í húsnæðismálum. Frá
þessu er greint á heimasíðu sam
takanna.
Þar segir að að undanförnu hafi
verið mikil umræða um skort á
leiguhúsnæði hér á landi auk þess
að leiga hafi hækkað mjög. Með
hliðsjón af vaxandi eftirspurn eftir
leiguhúsnæði á sama tíma og fram
boðið er lítið sé ekki að undra að
húsaleiga hafi hækkað verulega.
Neytendasamtökin hafi nú
ítrekað kallað eftir auknu framboði
á leiguhúsnæði á viðráðanlegum
kjörum og þannig hafi þing Neyt
endasamtakanna, sem haldið var á
haustdögum 2010, kallað eftir því
að leigumarkaðurinn yrði efldur og
að valkostir heimilanna í húsnæðis
málum yrðu fleiri en nú er.
Auk þess hafi sambærileg krafa ver
ið samþykkt á þingi Neytendasamtak
anna sem haldið var haustið 2012. Þar
hafi verið bent á að „eftir efnahags
hrunið 2008 ráða stórir hópar fólks
hvorki við markaðsleigu á húsnæði
né greiðslubyrði sem byggist á mark
aðskjörum. Það er á ábyrgð stjórnvalda
að sjá eignalausu fólki og leigjendum
fyrir viðráðanlegum kostum í húsnæð
ismálum.“
Samtökin segja afar ríka þörf á því að
leigjendum standi til boða öruggt lang
tímaleiguhúsnæði á viðráðanlegum
kjörum. Ekki verði annað séð en að
vilji stjórnvalda, og allra flokka, standi
til þess að gera leigu að raunhæfum
valkosti en því miður hefur ekkert enn
gerst í þessum efnum. Því er krafan nú
ítrekuð og ætlast Neytendasamtökin til
þess að stjórnvöld, bæði ríkisvaldið og
sveitarfélög, bretti nú upp ermarnar og
láti verkin tala því þörfin sé mikil. n
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
n Strimill úr Bónus frá 2011 borinn saman við verðið í dag n 28% hækkun
Niðurstöður þessarar könnunar DV eru í
samræmi við könnun sem verðlagseftirlit
ASÍ gerði á matvöru í ágúst en þá kom
í ljós að verð hefur hækkað mikið frá
könnun sem gerð var í júní 2012. Miklar
verðhækkanir voru í öllum vöruflokkum
hjá öllum verslunum og nánast allar
vörurnar sem bornar voru saman höfðu
hækkað í verði. Þá leiddi könnun ASÍ í ljós
að verð hafi oftast hækkað hjá Fjarðar-
kaupum eða á 28 af 34 vörum sem til
voru í báðum mælingum. Krónan hækkaði
verð á 26 vörum af 33. Nettó hækkaði
verðið á 25 vörum af 35, Bónus á 24 af 31
og Nóatún á 22 af 33. Verslanirnar Hag-
kaup og Samkaup-Úrval hafa oftar lækk-
að verð en hækkað á umræddu tímabili.
Hagkaup hefur oftast lækkað verð í
samanburðinum eða á 20 vörum af 39 og
Samkaup-Úrval lækkaði og hækkaði verð
næstum jafn oft í samanburðinum.
Nánari upplýsingar um verðkönnun verð-
lagseftirlitsins má sjá á heimasíðu ASÍ.
Miklar verðhækkanir
Matarkarfan 2011 borin saman við 2013
Matarkarfan
Hefur hækkað
töluvert frá 2011.
Jóhannes Gunnarsson, formaður
neytendasamtakanna Segir þetta
ljótar tölur að sjá.
Skrýtin en
einföld húsráð
Sykur við hiksta og vodka
við táfýlu Það eru til ógrynni af
húsráðum við hinum og þessum
kvillum. Hér má finna nokkur
óvanaleg sem mætti prófa:
Vodka
Við táfýlu Ef þú
þjáist af þrálátri
táfýlu strjúktu þá
þvottapoka sem bleyttur hefur
verið í vodka yfir fæturna. Í vodk
anu er alkóhól sem er bakter
íudrepandi og þurrkar húðina.
Þannig drepur það bakteríur sem
framkalla slæmu lyktina auk þess
sem það þurrkar upp rakann sem
bakteríurnar þrífast í.
Jógúrt
Við andfýlu
Rannsóknir sýna
að lifandi gerlar í
jógúrt minnka magn
baktería sem valda andremmu.
Góðu bakteríurnar í jógúrt
yfirtaka munninn og gera hann
að óvistlegum stað fyrir slæmu
bakteríurnar.
Munnskol
Við áblæstri Hið
hefðbundna
munnskol sem er
bakteríudrepandi
getur haft áhrif
á áblástur. Bleyttu
bómullarpúða með
munnskolinu og settu á áblástur
inn þrisvar sinnum á dag þar til
hann þornar upp og hættir að
valda óþægindum.
Ólífuolía
Við exemi Ólífu
olía er full af
andoxunarefnum
sem virka vel
á bólgur vegna
exems. Hún er
mjög rakagefandi og
inniheldur ekki efni sem geta ert
húðina. Nuddaðu olíunni á ex
emið til að koma í veg fyrir þurrk.
Eins má löðra olíunni á viðkvæma
staði og vefja inn í plastfilmu til að
hafa yfir nótt.
Sykur
Við hiksta Ef
þú kyngir teskeið
af sykri getur það
stoppað þrálátan hiksta. Sykur
inn er talinn slaka á vöðvum í
þindinni sem valda hiksta.
iPod
Við háum blóð-
þrýstingi Með
því að hlusta á rétta
tónlist 30 mínútur á
dag getur þú dregið úr of háum
blóðþrýstingi.
Negull
Við skurðum
Stráðu neguldufti á
sár og skurði til að koma í veg fyrir
sýkingu. Í negulnum er mikið af efn
inu eugenol sem virkar bæði sem
bakteríudrepandi og verkjastillandi.
Húsnæðismál Mikill skortur
er á leiguhúsnæði á viðráðan-
legu verði. MynD siGtryGGur ari
Vörutegund 2011 2013 Hækkun/lækkun
SS 1944 kjötbollur 649 kr. 719 kr. 10,8%
SS1944 Kindabjógu 559 kr. 649 kr. 16,1%
MS léttmjólk 1,5 L 163 kr. 174 kr. 6,7%
MS skyr grape 500 gr 268 kr. 308 kr. 14,9%
Mills kavíar 190 gr. 339 kr. 398 kr. 17,4%
Kók 0,5L 125 kr. 145 kr. 16,0%
Búr hangiálegg 143gr. 395 kr. 479 kr. 21,2%
Myllan fjölkornabrauð 159 kr. 205 kr. 28,9%
Bónus salat m/ túnfiski 195 kr. 229 kr. 17,4%
SS hungangsskinka 120 gr. 375 kr. 439 kr. 17,0%
Bónus bygg flatkökur 179 kr. 169 kr. -5,5%
SS pylsur 10 stk. 578 kr. 689 kr. 19,2%
Bananar kílóverð 257 kr. 239 kr. -7,0%
samtals: 5.480 kr. 4.842 kr. 13,3%
Launavísitalan 409 kr. 458 kr. 11,7%
Bensínverð 240 kr. 255 kr. 6,3%
Vísitala neysluverðs án húsnæðis 379,9 413,8 8,9%