Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.2013, Page 15
Við lifum á sparnaði
eiginkonu minnar
Lögreglan brást
í þessu máli
Sígandi lukka
er best
Sigurður Einarsson – Affarsvarlden Egill Einarsson – PressanÓmar Ragnarsson um ferðaþjónustu – DV
Kvikmyndir og þjóðmál
Spurningin
Já, ég held það. Þeir eru búnir að
standa sig svo vel nýlega.
Hial Jarah
35 ára eigandi veitingastaðarins Mandi
Hef ekki hugmynd um það, ég
fylgist ekki með fótbolta.
Andri Jóhannsson
24 ára atvinnulaus
Já, alla leið.
Jón Kristófer Fasth
23 ára þjónustufulltrúi
Nei, ég held þeir verði í þriðja
sæti í riðlinum.
Trausti Atlason
24 ára atvinnulaus
Jú, ætli það ekki.
Hans Óttar Jóhannesson
23 ára vinnur hjá Hertz
Fer íslenska
landsliðið á HM
í Brasilíu 2014?
1 „Aldrei heyrt eins magnaðar sögur af græðgi“
Ómar Ragnarsson varar við nýrri
græðgisbólu sem á sér stað í ferða-
þjónustu.
2 Aflífa yfir 60 þúsund villi-hunda eftir árásir á fólk
Fjögurra ára drengur látinn eftir hunda-
árás í höfuðborg Rúmeníu.
3 „Tökum okkur ekki sjálfkrafa virðingartitil sem þjóðinni
finnst ekki að við eigum
skilið“
Þingmaður fær ákúrur fyrir að vilja
afnema titlatog á Alþingi.
4 Deilur landsbyggðar og höfuð borgar klofið þjóðina of
oft, segir forsætisráðherra
Sigmundur Davíð vill meiri samvinnu
fólks í landinu.
5 Fimm látnir og yfir 500 saknað í Kólóradó
Mikil flóð hafa sökkt bæjum og hluta
Denver-borgar.
6 „Tala nú mjúklega í aðdraganda prófkjöra“
Ögmundur segir kjörna fulltrúa varla
geta staðið gegn meirihlutavilja
kjósenda sinna.
Mest lesið á DV.is
M
argt hamlar heilbrigðri fram
för Íslands eins og dæm
in sanna. Hér langar mig að
nefna eitt atriði til skjalanna:
Vanburða kvikmyndagerð. Annars
staðar um Norðurlönd hafa verið gerð
ar kvikmyndir eftir helztu bókmennta
verkum á hverjum stað, en hér heima
er hægt að telja slíkar myndir á fingr
um annarrar handar. Raunsæiskvik
myndir um stjórnmál eru hér varla til,
en þó má nefna Hafið eftir Baltasar
Kormák frá 2002 og Óðal feðranna eft
ir Hrafn Gunnlaugsson frá 1980; þar er
að minnsta kosti pólitískt ívaf. Skortur
inn á góðum pólitískum kvikmyndum
er tilfinnanlegur og skaðlegur í ljósi
reynslunnar utan úr heimi.
Kolkrabbinn og Smokkfiskurinn
Byltingin á Ítalíu, kennd við hrein
ar hendur (ít. mani pulite), það var
þegar Kristilegi demókrataflokkurinn
og hvað þeir nú hétu hinir flokkarn
ir voru tjargaðir og fiðraðir og fleygt út
í hafsauga fyrir um 20 árum, studdist
að nokkru leyti við sannsögulegar
kvikmyndir um mútuþæga stjórn
málamenn og mafíuna. Þaðan eru
„Kolkrabbinn“ og „Smokkfiskurinn“
komnir inn í orðaforða íslenzks stjórn
málalífs, ef líf skyldi kalla. Tók betra
við? Það er álitamál. Í Róm hefur frá
því í vor varla verið talað meira um
annað en kvikmyndina La Grande
Bellezza eftir Paolo Sorrentino.
Myndin er rammpólitísk, en hún fjallar
þó ekki um stjórnmál, heldur fær hún
áhorfandann til að spyrja sjálfan sig:
Hvernig gat svo fallegt land með svo
glæsta fortíð og fína menningu sokkið
svona djúpt?
Oliver Stone og Lincoln
Bandaríkjamenn framleiða mikið af
pólitískum kvikmyndum. Nú er ný
komin út röð tíu sjónvarpsmynda The
Untold History of the United States eft
ir Oliver Stone, sem hefur áður meðal
annars gert kvikmyndir um bæði John
F. Kennedy og Richard Nixon. Þáttaröð
Stones rekur sögu Bandaríkjanna frá
síðara stríði fram á okkar daga eins og
hún horfir við honum, svo að úr verð
ur heillandi frásögn skreytt frábæru
myndefni. Það léttir honum leikinn,
þetta er tíu tíma stím, að hann á að
gang bæði að pólitískum kvikmyndum
frá fyrri tíð og upptökum af nefndar
fundum og vitnaleiðslum á Banda
ríkjaþingi. Slíka mynd væri ekki hægt
að búa til á Íslandi, þar eð nefndar
fundir Alþingis eru haldnir bak við
luktar dyr. Leynimakkið er slíkt, að í
nefndum Alþingis eru ekki einu sinni
haldnar fundargerðir. Vitnaleiðslurn
ar fyrir Rannsóknarnefnd Alþingis og
Landsdómi voru ekki festar á filmu,
svo sem sjálfsagt hefði þótt í Banda
ríkjunum og víðar.
Kvikmynd Stevens Spielberg um
Abraham Lincoln er einnig prýðileg.
Hún minnir okkur á, að réttsýn stjórn
málaforusta getur komið góðu til leið
ar. Það munaði ekki nema hársbreidd,
að Lincoln forseta mistækist að koma
banni við þrælahaldi inn í bandarísku
stjórnarskrána 1865. Til þess þurfti
tvo þriðju hluta atkvæða í þinginu.
Lincoln og hans menn urðu að beita
ýmsum brögðum. Ekki munaði held
ur nema hársbreidd, að bandaríska
stjórnarskráin félli í almennum at
kvæðagreiðslum úti í fylkjunum tæpri
öld fyrr, en stjórnarskráin hafði þó
nauman sigur, svo nauman, að hefðu
20 kjósendur sagt nei frekar en já,
hefði hún ekki náð fram að ganga.
Þetta gleymist stundum.
Jafnvel Pinochet
Nú gengur í Bíó Paradís í Reykjavík
síleska kvikmyndin Nei eftir Pablo
Larraín frá 2012. Myndin er byggð á
óbirtu leikriti síleska skáldsins Anton
io Skármeta. Hann situr þessa dagana
heimsþing PEN international í Reykja
vík og er þekktastur fyrir skáldsöguna
Bréfberinn, sem er til í íslenzkri þýð
ingu Svanhvítar Lilju Ingólfsdóttur.
Skáldsagan um bréfberann og síleska
þjóðskáldið Pablo Neruda varð heims
fræg af kvikmyndinni Il postino eftir
Michael Radford frá 1994. Samnefnd
ópera eftir mexíkóska tónskáldið Dani
el Cátan með Placido Domingo í hlut
verki Nerudas er dásamleg eins og
myndin og kemur sögunni vel til skila,
þótt óperur séu jafnan knappara form
en kvikmyndir.
Myndin Nei fjallar um þjóðar
atkvæðagreiðsluna 1988, þar sem
kjósendum í Síle bauðst að framlengja
valdasetu Pinochets hershöfðingja
um átta ár eða afþakka hana. Margir
skoðuðu þjóðaratkvæðagreiðsluna
sem brellu herforingjastjórnarinnar,
enda hefði hún úrslit atkvæðagreiðsl
unnar líkt og aðra þræði þjóðlífsins í
hendi sér og ætlaði að nota hana til
þess eins að bregðast við gagnrýni er
lendis frá í þá veru, að eftir 15 ára ein
ræðisstjórn þyrfti Pinochet að sýna
umheiminum fram á stuðning meðal
almennings. Svo fór, að andstæðingar
Pinochets sigruðu með 56 prósent
um atkvæða gegn 44. Og hvað gerði
Pinochet? – sem eins og síðar kom
í ljós var ekki bara valdaræningi og
fjöldamorðingi, heldur líka þjófur.
Hann vék frá völdum. Jafnvel Pinochet
þótti ófært að hunza úrslit þjóðarat
kvæðagreiðslu. n
Stund milli stríða Það getur verið gott að grípa í góða bók, tala við góðan vin eða sitja afslappaður þegar beðið er eftir strætó.
Mynd KriStinn MagnúSSOn
Myndin
Kjallari
Þorvaldur
Gylfason
Umræða 15Mánudagur 16.september 2013
„Jafnvel Pinochet þótti
ófært að hunza úrslit
þjóðaratkvæðagreiðslu.