Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.2013, Side 18
Algengt verð 247,9 kr. 253,6 kr.
Algengt verð 247,4 kr. 253,3 kr.
Höfuðborgarsvæðið 247,3 kr. 253,2 kr.
Algengt verð 247,6 kr. 253,5 kr.
Algengt verð 249,9 kr. 253,6 kr.
Melabraut 247,8 kr. 253,3 kr.
Eldsneytisverð 15. september
Bensín Dísilolía
18 Neytendur 16. september 2013 Mánudagur
Smáforrit með ísskápinn á hreinu
n Kíktu á snjallsímann þinn og sjáðu hvað vantar
F
lestir kannast við það að
standa í búðinni og geta
engan veginn munað hvað
er til í ísskápnum heima. Nú
er væntanleg lausn á þessu vanda-
máli en þýska fyrirtækið Siemens
vinnur að því að setja á markað
smáforrit sem segir þér hvað er til
í ísskápnum á meðan þú ert í búð-
inni. Forritið var kynnt á heimil-
istækjasýningunni IFA í Berlin en
fjallað er um þetta á síðu Politiken.
Mörg fyrirtæki hafa reynt að
koma með lausn á þessu en flest
hafa strandað á þeim erfiðleikum
að halda upplýsingum um inni-
hald ísskápsins uppfærðum. Sem
dæmi má nefna að þegar einhver
annar hefur keypt inn og ekki
skráð niður innkaupin.
Siemens hefur fundið lausnina
á þessu með því að koma fyrir litl-
um myndavélum í ísskápnum. Ein
þeirra er staðsett við bakhlið ís-
skápsins og aðrar á hliðum hans.
Þannig ná þeir yfirsýn yfir skáp-
inn. Myndir úr ísskápnum eru
svo sendar með wifi-tengingu í
símann þinn og skiptir ekki máli
hvernig síma þú átt. Þú sérð mynd
af því hvað er í ísskápnum og getur
keypt það sem vantar.
Þetta er ekki eina nýjungin sem
Siemens er að kynna þessa dag-
ana því fljótlega munt þú geta sett
þvottavél, uppþvottavél, þurrkara,
ryksuguna og fleiri heimilistæki af
stað áður en þú kemur heim, bara
með því að nota snjallsímann. n
gunnhildur@dv.is nýtt smáforrit Gott að hafa við
höndina í matvörubúðinni.
nokkur góð ráð um geymsluaðferðir
Magnkaupin
geymd
Það getur verið mjög hagkvæmt
að gera magninnkaup sér í lagi
þegar stórar einingar eru á lækk-
uðu verði.
Baunir
Settu þær í loft-
heldar umbúð-
ir og geymdu þær
við stofuhita. Þær
geymast upp undir
ár. Ekki frysta þær eða geyma þær
í ísskáp því þá þorna þær upp.
Baunir þurfa að liggja í bleyti yfir
nótt áður en maður notar þær.
Kaffibaunir
Ef þú malar þær
og notar næstu 14
dagana er gott að
setja þær í loft-
þéttar umbúðir og
geyma við stofuhita.
Ef þú vilt geyma þær lengur er gott
að setja þær í frystinn. Þá er gott
ráð að setja þær í rennilásapoka
og ná öllu lofti úr honum áður en
hann er lokaður. Notið rör til að
sjúga loftið úr pokanum.
Hveiti
Geymdu hveitið
í loftþéttum
umbúðum og
það geymist í
allt að ár. Heil-
kornaafurðir geym-
ast í styttri tíma og ættu að vera
geymdar í ískáp eða frysti þar
sem það geymist lengur.
ostur
Það getur verið
gott ráð að rífa
ostinn niður, setja
í frystipoka og í
frystinn. Þannig
geymist hann í allt að
6 mánuði.
Jógúrt
Má vel frysta en
þannig geymist
hún í viku fram
yfir síðasta sölu-
dag. Einnig er gott
ráð að setja hana í klakabox og
frysta þannig. Þá má ná sér í einn
og einn mola þegar maður ætlar
að búa til hollustudrykk.
Svona tekur þú Slátur
n Ódýr og hollur matur n Færð mikið fyrir lítinn pening n Allir geta tekið slátur n DV birtir nokkrar góðar uppskriftir
S
látur er afskaplega járn-
ríkt og nú þegar fólk borðar
allan þennan kjúkling sem
inniheldur ekkert járn, veitir
þeim ekki af því,“ segir Mar-
grét Sigfúsdóttir, skólastjóri Hús-
stjórnarskólans þegar DV leitaði til
hennar varðandi sláturtöku. „Það er
líka mikið af A-vítamíni í slátrinu svo
þetta er góður, hollur og ódýr matur.
Svo er þetta svo drjúgt.“ Margrét hef-
ur áratuga reynslu af matreiðslu og
gefur hér lesendum DV góð ráð við
sláturgerð og uppskriftir.
allir geta tekið slátur
Sauðfjárslátrun er nú hafin og því
er tími sláturgerðar að renna upp.
Innmatur er ódýr matur og þeir sem
taka slátur fá því mikið fyrir lítinn
pening. Auk þess getur sláturgerð
verið ágætis samverustund fjöl-
skyldunnar.
Margrét segir að allir geti tek-
ið slátur. Hún hvetur byrjendur að
fylgja leiðbeiningum og gera ná-
kvæmlega eins og þar er sagt. „Ekk-
ert vera að stytta ykkur leiðir eða
gera einhverjar rósir í fyrsta skipti.
Það má koma seinna.“
Mikilvægt að vinna skipulega
Margrét hvetur fólk til að gæta
fyllsta hreinlætis við sláturgerð eins
og aðra matargerð. Þegar kemur að
undirbúningi segir hún að gott sé að
kaupa hráefnið degi áður en maður
hefst handa. „Það er mikilvægt að
vinna þetta skipulega. Blóðið er selt
frosið svo það þarf að ná að þiðna
áður en maður byrjar. Svo er mjög
gott og þægilegt að brytja mörinn
daginn áður og geyma í köldu. Eins
að sníða vambirnar því þetta tvennt
er mesta verkið og gott að vera bú-
inn að því áður. Það þarf svo að
passa að geyma þetta í kæli og hafa
allt hreint.“
notar rjómasprautu
Það að setja í vambirnar kallast að
þela upp og Margrét minnir fólk á að
skilja eftir nógu stórt op til að koma
hendinni í gegn. „Annars finnst mér
gott ráð að nota rjómasprautu. Þá
nota ég stóru hvítu rjómapokana og
hef enga túðu á. Þannig sprauta ég
löguninni í keppinn. Þetta er miklu
fljótlegra og það verður allt miklu
hreinna. Þannig er auðveldara að
handfjatla þetta. Fólk gerir þó bara
eins og því finnst best.“
Flatir keppir komast betur fyrir
Þegar búið er að setja í keppina
eru þeir saumaðir saman og sett-
ir í plastpoka. Það er mikilvægt að
halda öllu köldu og aðalatriðið er að
frysta allt jafnóðum. Margrét mæl-
ir með því að fletja keppina út áður
en þeir eru frystir. „Það á að hafa þá
flata, ekki kringlótta. Gott að frysta
þá á bökunarplötu og setja aðra ofan
á með öðru lagi af keppum. Málm-
urinn kólnar svo fljótt í frostinu svo
þetta hraðfrýs mun fyrr. Með þessu
raðast þeir betur í frystikistuna.
Annar kostur við þetta er að flat-
ir keppir eru fljótari að frosna en
einnig fljótari að hitna þegar þeir
eru settir í sjóðandi vatn og þenjast
út.“
Að lokum ráðleggur hún fólki að
merkja vel keppina í frystinum. „Það
er auðvelt að taka blóðmörskepp
í misgripum fyrir kjötsneið. Fólk
sem ætlar að bjóða upp á nautasteik
gæti lent í því að þíða óvart blóð-
mörskepp í staðinn.“ n
n Góður bali eða vaskafat
n Gróf nál
n Sláturgarn
n Frystipokar
n Klemmur til að loka pokunum
í eitt slátur fer:
Blóð, vömb, keppur, 1 sviðahaus, 2 nýru,
lifur, hjarta og mör.
Undirbúningur:
Mörinn er brytjaður en kirtlar skornir frá og
þeim hent.
Vambir og keppir
eru skolaðir. Sníða
skal 4 til 5 keppi úr
hverri vömb, þeir
saumaðir með
bómullargarni, ekki
of þétt og skilin
eru eftir væn op.
Keppir skulu
geymdir á köldum
stað á meðan lifr-
ar- eða blóðmörs-
hræran er löguð.
Ódýrt og hollt „Það geta allir tekið slátur“ segir Margrét. MynD: TJörvi BJarnason
„Ekkert vera að
stytta ykkur leiðir
eða gera einhverjar rós-
ir í fyrsta skipti. Það má
koma seinna.
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
Það sem þarf að hafa til fyrir sláturgerðina:
skipulagning Það er mikilvægt að vinna
skipulega, segir Margrét.
Vogir almennt í
góðu standi
Neytendastofa skoðaði nýverið
ástand löggildingar voga í matvöru-
verslunum; vogir sem notaðar eru
til að vigta vörur og verðleggja þær.
Löggilda á vogir sem notaðar eru á
tveggja ára fresti. Við löggildingu er
sannreynt að vogin sé að vigta rétt.
Á vef Neytendastofu kemur fram
að skoðaðar hafi verið vogir hjá 83
matvöruverslunum á höfuðborgar-
svæðinu, í Hveragerði og í Árborg.
Gerðar voru athugasemdir við 18
vogir hjá 5 aðilum þar sem lög-
gilding var runnin úr gildi.
Athugasemdir voru gerðar hjá
Mini Market í Drafnarfelli, Krónunni
í Rofabæ, Plúsmarkaðnum í Hátúni,
Bónus í Holtagörðum og Nóatúni í
Hamraborg.