Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.2013, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.2013, Síða 26
R étt fyrir helgi birti stór- stjarnan unga og óstýri- láta, Justin Bieber, mynd á Instagram með hand- rit Batman vs. Superman. Væntanlegri stórmynd Zack Snyder með Ben Affleck í hlutverki Batman. Á handritið var stimpl- að nafn Biebers og það merkt: #Robin. Kannski grín Handritið virðist vera sérmerkt Justin og á forsíðunni er greinilegt að um er að ræða stórmynd Zacks byggðri á fjórðu og síðustu teikni- myndasögu Frank Miller og lista- mannsins Klaus Janson um ofur- hetjuna Batman og aðstoðarmann hans Robin sem kljást við engan annan en Superman. Meira en hálf milljón aðdáend- ur Biebers lækuðu við færslu hans stuttu eftir að hann setti hana inn. Ekki er vitað hvort Bieber hef- ur verið boðið hlutverkið og þyk- ir líklegt að um sé að ræða sak- laust grín. Justin hefur nefnilega verið að taka upp grínmyndband í flokknum vinsæla Funny or Die. Ólíkindatólið Zack Hvort sem um er að ræða grín eða fúlustu alvöru þá virðast fréttirnar koma aðdáendum Batman mynd- anna í opna skjöldu, rétt eins og ákvörðun leikstjórans um að ráða Ben Affleck í aðalhlutverkið. Fjöldi greina hafa birst á bloggsíðum og vinsælum vefritum þar sem undir- tektirnar eru sérlega slæmar. Er þetta ekki örugglega grín? Spyr reið- ur aðdáandi á vefritinu Catching Fish. Áherslur Zack virðast ætla að verða óvanalegar en aðdáendum hefur líkað vel dimmar og drunga- legar myndir síðustu ára um leður- blökuna sterku og þar átti stórleikur Michael Keaton og Christian Bale stóran þátt. Zack þykir ólíkindatól, að ráða Justin í hlutverk Robin gæti laðað múg fólks að miðasölunni. Úttaugaður Superman Warner Bros gaf út tilkynningu þar sem nánar er útlistað um Batman. Batman í höndum Ben Afflecks á að vera úttaugaður og útbrenndur eftir stanslaust og vanþakklátt of- urhetjustarf sitt. Heilladrengurinn fórnfúsi Robin þarf því að koma sterkur til leiks ef þeir eiga saman að ráða niðurlögum Superman. Undradrengirnir Robin og Justin Robin og Justin Bieber eiga það líklega sameiginlegt að vera sann- kallaðir undradrengir. Í mynda- sögum DC Comics er Robin venju legur strákur gæddur góð- um eiginleikum, sem verður aðstoðar maður Batman. Saman kölluðust þeir, Dynamic Duo eða Caped Crusaders eða skikkju- klæddu bjargvættirnir. Robin var sérstaklega hugsaður til að laða að yngri lesendur og kannski það sé einmitt úthugsuð ráðagerð Warn- er Bros með mögulegri ráðningu Justin Biebers, undradrengs popp- heimsins. Robin hefur skipt um nafn í gegnum árin. Fyrst kallaðist hann Dick Graysom, seinna Nightwing og loks Robin. n 26 Fólk 16. september 2013 Mánudagur Blair hótar Sheen lögsókn L eikkonan Selma Blair ætlar að leita réttar síns gagnvart leikar- anum Charlie Sheen og fram- leiðslufyrirtækinu Lionsgate Entertainment. Blair hyggst fara fram á 1,2 milljónir dala í skaðabætur eftir að hún var rekin úr þáttunum An- ger Management. Leikkonan telur að meginástæða uppsagnarinnar hafi verið að hún leyfði sér að gagnrýna Sheen fyr- ir ófagmannleg vinnubrögð við tök- ur þáttanna. Blair gerði ítrekaðar athugasemdir við þá staðreynd að hún og aðrir starfsmenn þáttarins neydd- ust til að sitja og bíða löngum stund- um eftir Sheen, á meðan hann sat í hjólhýsi sínu og fór með línurnar sínar. Sheen mun hafa haft spurnir af þessu og verið allt annað en sáttur og mun það hafa markað endalok Blair í þáttunum. Leikkonan krefst þess að fá greidd þau laun sem hún hefði fengið ef ekki hefði komið til brottrekstursins. Fái hún ekki launin greidd hótar hún lögsókn. Heimildarmenn TMZ.com innan þáttanna staðfesta að Sheen hafi verið ósáttur við gagnrýni Blair en benda á að á meðan Blair var kannski í þrem- ur til fjórum atriðum hafi Sheen birst í öllum tólf. Hann hafi því þurft að leggja allt að 48 blaðsíður af samræð- um á minnið. Til hafi staðið hvort eð er að skrifa Blair út úr þáttunum sem kærustu Sheen þar sem „Bandaríkja- menn hafi ekki viljað sjá Charlie sem einnar konu mann.“ n Justin Bieber með handritið að Batman n Birti mynd af handritinu að Batman á Twitter n Ósátt við að vera rekin úr Anger Management þáttunum Stjörnur sem hafa verið heimilislausar 1 Halle Berry Óskarsverð-launakonan Halle bjó eitt sinn í athvarfi fyrir heimilislausa í New York. Í viðtali við Readers Digest árið 2007 sagði hún frá reynslu sinni og sagðist hafa verið 21 ára gömul og verið heimilislaus um skamma hríð. 2 Drew Carey Gamanleikar-inn sem hefur gert það gott í Hollywood þurfti einu sinni að búa í bifreið sinni þegar skóinn kreppti hvað mest að. Þetta var opinberað í The Entertainment Tonight árið 2002. 3 Jim Carrey Leikarinn alheimsfrægi bjó í gulu Volkswagen rúgbrauði í Kanada með foreldrum sín- um. Það væsir ekki um hann í dag og ekki um fjölskyldu hans heldur. 4 Charlie Chaplin Goðsögnin Chaplin er fæddur í Bret- landi. Þar gekk hann um götur, alls- laus sem barn, eftir að faðir hans dó og móðir hans þjáðist af geðhvarfasýki. 5 Daniel Craig Þessi kynþokka-fulli leikari þurfti einu sinni að sofa á bekk í London þegar hann var í harki í leiklistinni á sínum yngri árum. Frá þessu sagði hann í Times og sagðist einnig hafa gert hroðalega hluti til að lifa af, án þess að útlista það nánar. Ósætti Selma Blair hótar Charlie Sheen og Lionsgate málsókn eftir að hún var rekin úr þáttunum Anger Management. Mynd: ReUteRS „Er þetta ekki örugglega grín? Justin með handritið Þessa mynd birti Justin á Twitter nýverið. Undradrengir Bæði Robin og Justin eru sannkallaðir ofurdrengir. Zack-hvað ertu að hugsa? Hvað er Zack að hugsa? Spyrja æstir aðdáendur kvikmyndanna um Batman. topp 5

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.