Fréttablaðið - 08.01.2016, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 08.01.2016, Blaðsíða 15
Bergur Ebbi Í dag Ég fékk áhuga á hafnabolta á síð-asta ári. Á nokkrum mánuðum sökkti ég mér ofan í íþróttina. Það sem ég gerði hefði ekki verið hægt fyrir tíma inter- netsins. Fyrir utan það að horfa á leiki í beinni útsendingu þá drakk ég í mig fróðleik og alls konar tölfræði. Ég horfði á gamla leiki í heild sinni á YouTube tím- unum saman. Ég setti mig meira að segja inn í gömul hneykslismál. Pete Rose og Cincinn ati Reds veðmálahneykslið frá 1989 eða þegar lukkudýrið hjá Pitt- sburgh Pirates, páfagaukur, viðurkenndi fyrir rétti (eða öllu heldur maðurinn inni í búningnum) að hafa selt leikmönnum kókaín. Ég hef í dag sett mig svo kirfilega inn í hafnabolta að ég get byrjað að vera með stæla við aðra. Það fer til dæmis í taugarnar á mér að horfa á leiki með fólki sem skilur ekki leikreglurnar. Sá sem veit ekki hvað „sacrifice fly“ er, á til dæmis að mínu mati ekkert að vera að horfa á hafnabolta. Þetta er fáránlegt í ljósi þess að ég vissi ekki einu sinni hvernig maður skorar stig í hafnabolta fyrir ári. Hafnabolti er heill heimur, fullur af sérkennilegum siðum og venjum sem enginn skilur lengur. Það er til dæmis bannað að fagna – nema í lok leiks þegar menn gefa kempulegar fimmur. Í leiknum sjálfum, til dæmis eftir home- run, þurfa menn að skokka í gegnum allar hafnirnar með raunalegan hetju- svip. Þannig er það bara. Ef menn fagna eftir home-run þýðir það að þeir fá kast í sig í næsta leik, 150 gramma leðurhúð- aðan korkmassa á 150 kílómetra hraða beint í síðuna. Það er víst mjög óþægi- legt. En það er líka bannað að kvarta. Það er margt skrítið í hafnabolta og það tekur tíma að venjast því. Þrjú þúsund hrákar Eitt af því sem ég var lengi að venjast í hafnaboltaáhorfi er sá undarlegi siður leikmanna og þjálfara að hrækja í tíma og ótíma. Þessi hræking er ekkert í lík- ingu við önnur íþróttaskyrp, til dæmis í fótbolta. Venjulegur hafnaboltaleik- maður spýr frá sér hráka á nokkurra sekúndna millibili, þetta eru svona 10 til 20 slummur á mínútu. Það þýðir að í venjulegri sjónvarpsútsendingu af hafnaboltaleik, sem er oft þrjár til fjórar klukkustundir að lengd, er ekki ólíklegt að áhorfandinn verði vitni að um þrjú þúsund hrákum. Þetta eru reyndar yfirleitt hálf rakalausar slummur, yfir- leitt eins konar sprey, oft fylgja þessu hnetuskurnir því annar skrítinn siður hafnaboltamanna er að éta sólblómafræ í tíma og ótíma. Áður var vinsælt að tyggja tóbak en svo er líka algengt að vera með túlann fullan af tyggjói og allt eykur þetta tíðni skyrpinganna. Hér kem ég að röksemdinni minni. Mér finnst það að hrækja vera ósiður. Ég var alinn upp við það að maður ætti aldrei að hrækja, ekki einu sinni ofan í vaskinn. Einu undantekningarnar voru klósett og bara ef maður var með mikla hálsbólgu. Svona er þetta skrítið hvernig maður getur ekki flúið uppeldi sitt. Þessir 3.000-hráka hafnaboltaleikir voru þess vegna töluvert álag fyrir mig. Ég var síhneykslaður, í stöðugri hneykslunar- yfirkeyrslu sem smám saman breyttist í almennan doða fyrir hrákunum. Það má segja að hafnabolti hafi hrækt á mig. Þannig upplifði ég það allavega. Val, frelsi, úff! En lítum nú á málið í stærra samhengi. Það neyddi mig enginn til að horfa á hafnabolta. Hafnabolta er líka sama hvort ég er hneykslaður eða ekki. Uppsafnað áhorf á leiki í bandarísku atvinnumannadeildinni er rúmur milljarður. Þeim milljarði er alveg sama þótt einhver auli, sem vissi ekki einu sinni hvað hafnabolti var fyrir ári síðan, sé hneykslaður yfir því að leik- menn hræki. Þetta var mitt val og mín ákvörðun. Ég. Val. Frelsi. Úff. Ég fæ smá ógeðstilfinningu fyrir að ryðja þessum orðum fram. En sættum okkur við það. Internetið hefur veitt okkur ómælt frelsi. Frelsi til að velja hvað við viljum að gleðji okkur, hvað við viljum að fræði okkur og hvað við viljum að hneyksli okkur og það er mikil eftirspurn eftir því síðastnefnda. Um hvað eru annars sumar fréttir? Einn valdalaus einstak- lingur er hneykslaður á því að annar valdalaus einstaklingur er hneykslaður á Eurovision? Og svo hneykslast fólk á því að einhver hneykslist á því. Og svo koma gæjar eins og ég og hneykslast á því að allir séu að hneykslast svona mikið. Þetta er endalaust. Skilaboð mín eru þessi: Hneykslun er val. Ég get tekið íþrótt eins og hafna- bolta, með allri sinni 150 ára sögu og merkingu, og afgreitt hana sem drasl vegna þess að leikmennirnir hrækja. Það er mitt val. Við lifum á tímum þar sem póst-módernismi hefur verið iðn- væddur, þar sem meirihluti þess sem fyrir augu ber er slitið úr samhengi, troðið inn í nýjan söguþráð og allt gerist þetta í rauntíma þar sem fólk af holdi og blóði tekur þátt í gegnum sam- félagsmiðla. Oft er þetta gert til að láta fólk hlæja eða gleðjast en einnig til að hrífa og hneyksla. Og það er allt í lagi. En áttum okkur á því að meginþorri allrar þessarar hneykslunar hefur enga siðferðislega vigt. Þetta er oftast dægra- dvöl. Þetta er synd því máttur hneyksl- unar getur verið mikill og stundum má alveg hneykslast vel og lengi. Til dæmis þegar við fáum fregnir af því að alþjóðlegt stórfyrirtæki sem starfar á Íslandi flytji milljarða úr landi án þess að greiða af þeim skatt. Hráki eða skatt- svik? Hneykslun er val. Hneykslun er val Skilaboð mín eru þessi: Hneyksl- un er val. Ég get tekið íþrótt eins og hafnabolta, með allri sinni 150 ára sögu og merkingu, og af- greitt hana sem drasl vegna þess að leikmennirnir hrækja. Það er mitt val. MIÐVIKUDAGUR 13. JAN, KL. 9.00 - 11.00 Frágangur eldvarna í raflögnum Frank Massallek og Jan Wagner frá Spelsberg deila með gestum þekkingu sinni og áratuga reynslu í áhugaverðum fyrirlestri um hönnun og upp setningu eldvarna í byggingum og jarðgöngum. FIMMTUDAGUR 14. JAN, KL.13.00 - 15.00 Lýsing frá öllum hliðum Dr. Amrita Prased frá Zumtobel fer ofan í kjölinn á áhrifum lýsingar á líðan fólks og Graeme Shaw starfsbróðir hennar fjallar um ljósastýringar og tæknilegar áskoranir LED lýsingar. FIMMTUDAGUR 14. JAN, KL. 9.00 - 11.00 Form töfluskápar og aflrofar Farið verður yfir uppbyggingu og hönnun á Form 1-4 Modul töfluskápunum frá Logstrup. Í fram haldi verður rætt um loft- og aflrofa og heildarlausnir í töflusmíði með Logstrup og Eaton. FÖSTUDAGUR 15. JAN, KL. 9.00 - 11.00 Öryggi véla og vélbúnaðar Bjarne Erichs frá Pilz kynnir regluverk og staðla öryggisbúnaðar. Hann fer einnig yfir CE merk ingar, ferla og áhættumat ásamt því að kynna EN ISO 13849-1 staðalinn. Í tilefni þess að Reykjafell er 60 ára langar okkur að bjóða þér á rafmagnaða fyrirlestradaga á Hótel Hilton Ekki láta þig vanta á þessa frábæru viðburði dagana 13. til 15. janúar á Hótel Hilton þar sem erlendir sérfræðingar á sviði lýsingar, raflagna og iðnstýringa flytja ýmis fróðleg erindi. Fyrirlestrarnir fara fram á ensku. Húsið opnar kl. 8.30 alla dagana með ljúffengum morgunverði áður en fyrir lestrarnir byrja. » Skráning og ítarleg dagskrá á reykjafell.is/fyrirlestrar 60 ár að baki og við horfum til framtíðar Reykjafell · Skipholti 35 · Sími 588 6000 reykjafell.is Takmarkað framboð af sætum Fréttabladid/anton brink s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 15F Ö s T u d a g u R 8 . j a n ú a R 2 0 1 6 0 7 -0 1 -2 0 1 6 2 2 :4 2 F B 0 4 8 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 8 1 8 -1 A B 8 1 8 1 8 -1 9 7 C 1 8 1 8 -1 8 4 0 1 8 1 8 -1 7 0 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 8 s _ 7 _ 1 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.