Fréttablaðið - 08.01.2016, Blaðsíða 32
Móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Guðrún Þ. Stefánsdóttir
Víðilundi 14 c, Akureyri,
lést laugardaginn 2. janúar sl. Útför
verður fimmtudaginn 14. janúar nk.
kl. 10.30 frá Akureyrarkirkju.
Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vildu
minnast hennar er bent á Minningarsjóð Kvenfélagsins
Hlífar á Akureyri.
Auður Eyþórsdóttir
Eyrún Eyþórsdóttir Jónas Finnbogason
og fjölskyldur.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð
og vináttu við veikindi, andlát og útför
ástkærs eiginmanns míns,
Sigurgeirs Jónssonar
Fagurhólsmýri.
Einnig sendi ég sérstakar þakkir til
starfsfólks á Landspítalanum í Fossvogi og
annarra sem lögðu okkur lið þegar á þurfti að halda.
Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna,
Guðmunda Jónsdóttir
Þökkum samúð og hlýhug við andlát
og útför pabba okkar, tengdapabba,
afa og langafa,
Björns J. Guðmundssonar
vélvirkjameistara,
áður til heimilis að Karfavogi 25,
sem lést á Hrafnistu í Reykjavík,
þann 9. desember síðastliðinn.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk deildar F-2
á Hrafnistu, fyrir kærleiksríka umönnun.
Einnig þökkum við sr. Sigfinni Þorleifssyni
fyrir hlýju og nærgætni.
Margrét Björnsdóttir Einar Hákonarson
Sigrún Björnsdóttir
Guðrún Björnsdóttir Sigurður Á. Sigurðsson
Jón Axel Björnsson Karen Sigurkarlsdóttir
Björn Jóhann Björnsson Vilhelmína Einarsdóttir
Unnur Ýr Björnsdóttir Magnús Bogason
afa- og langafabörn.
Við þökkum innilega hlýhug
og vináttu vegna andláts og útfarar
okkar elskulega
Einars Arnar Gunnarssonar
Þingvallastræti 27, Akureyri.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk
lyfjadeildar og gjörgæsludeildar
Sjúkrahússins á Akureyri fyrir einstaka umönnun.
Hugheilar nýárskveðjur til ykkar allra.
María Jóhannsdóttir og fjölskylda
Merkisatburðir
Hljómsveitin Gullkistan kemur saman til að fagna fimm ára afmæli sínu á Kringlukránni í kvöld. H l j ó m sve i t i n a s k i p a
Gunnar Þórðarson, einn ástsælasti tón-
listarmaður þjóðarinnar, Jón Ólafsson úr
Pelican, Óttar Felix Hauksson, tónleika-
haldari og meðlimur hljómsveitarinnar
Pops, og Ásgeir Óskarsson Stuðmaður.
„Við tókum upp þráðinn af því að við
höfum gaman af því að hittast og spila
lögin sem við ólumst upp við,“ segir
Óttar. Þeir spila að mestu lög sem voru
vinsæl 1955 til 1975, meðal annars Elvis,
Bítlana og Rolling Stones.
„Það er oftast þannig að það sem fólk
lærir í músík eða hlustar á á sínum ung-
lingsárum ristir djúpt og situr lengi. Það
er þess vegna sem við köllum okkur Gull-
kistuna. Þessi tónlist er gullmolar,“ segir
Óttar
Hann bendir á að enn sé tónlistin
aðgengileg í útvarpi og á netinu eða tón-
listarveitum á borð við Spotify. „Þetta var
svo gjöfult tímabil í tónlist.“
Hann segir tónleikana vera með svip-
uðu sniði og fyrri tónleika sveitarinnar,
en hún hefur verið nokkuð dugleg að
koma fram á síðastliðnum fimm árum.
„Við verðum duglegir að spila mikið af
lögum og gefum okkur alla í þetta.“
Óttar segir að þrátt fyrir að þetta tíma-
bil í tónlistarsögunni hafi meðal annars
einkennst af go-go dönsurum þá hafi
sveitin ekki ráðið slíka dansara til sín
fyrir tónleikana. „Við ættum kannski að
taka þetta upp á tíu ára afmælinu, það er
snilldarhugmynd.“
Tónleikarnir fara fram á Kringlu kránni
í kvöld og annað kvöld. Þeir hefjast
klukkan ellefu og standa langt fram á
nótt. Rokkunnendur geta byrjað að pússa
dansskóna því Óttar lofar tjútti.
snaeros@frettabladid.is
Reynsluboltar ætla að
koma saman og tjútta
Hljómsveitin Gullkistan var stofnuð fyrir fimm árum til að spila vinsæla tónlist frá ár-
unum 1955 til 1975. Afmælistónleikar sveitarinnar fara fram í kvöld og annað kvöld.
Gullkistan er skipuð þeim Óttari Felix Haukssyni, Ásgeiri Óskarssyni, Gunnari Þórðarsyni og Jóni Ólafssyni. Þeir spila rokk og ról frá sjötta,
sjöunda og áttunda áratugnum. Fréttablaðið/JÓHann ÍsberG
Það er oftast þannig að
það sem fólk lærir í
músík eða hlusta á á sínum
unglingsárum ristir djúpt og
situr lengi
Óttar Felix Hauksson
1297 - Mónakó fékk sjálfstæði.
1928 Knattspyrnufélag Akureyrar var stofnað.
1947 Enski tónlistarmaðurinn David Bowie fæddist.
1964 Fyrsta konan var kjörin íþróttamaður ársins á Íslandi, Sigríður
Sigurðardóttir handknattleikskona.
1977 Sovétríkin skutu upp geimfarinu Luna 21.
Á þessum degi árið 1642 andaðist ítalski
stjörnufræðingurinn, stærðfræðingurinn
og eðlisfræðingurinn Galileo Galilei á
Ítalíu, 77 ára að aldri. Hann fæddist þann
15. febrúar 1564. Hann hefur alla tíð
verið gífurlega mikils metinn
fræðimaður og sést það
best á því að hann hefur
verið nefndur faðir nútíma
stjörnufræði og faðir
vísindanna. Hann var
upphafsmaður þess
að samhæfa kenningu
og tilraunir í eðlisfræði.
Hann leiddi út lögmálið
um jafna hröðun fallandi
hlutar og sannreyndi það
með tilraunum. Þá leiddi
hann út fleygbogaferil hlutar á
flugi í þyngdarsviði.
8 . Ja n úa R 1 6 4 2
Dánardagur stjörnufræðingsins Galileo Galilei
8 . j a n ú a r 2 0 1 6 F Ö S T U D a G U r20 T í m a m ó T ∙ F r É T T a B L a ð i ð
tímamót
0
7
-0
1
-2
0
1
6
2
2
:4
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
8
1
8
-2
E
7
8
1
8
1
8
-2
D
3
C
1
8
1
8
-2
C
0
0
1
8
1
8
-2
A
C
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
8
s
_
7
_
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K