Fréttablaðið - 08.01.2016, Blaðsíða 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
365.is | Sími 1817
GRÍN, HASAR
OG RÓMANTÍK
Á BÍÓSTÖÐINNI
Bíóstöðin er hluti af Skemmtipakkanum þar
sem boðið er upp á kvikmyndir allan sólarhringinn.
BÍÓSTÖÐINER Í SKEMMTI-PAKKANUM
Í uppsetningu Leikhússins 10 fingur sem sló í gegn með leikritið
Skrímslið litla systir mín
Leikarar Sólveig Guðmundsdóttir og Sveinn Ólafur Gunnarsson
Listrænir stjórnendur Charlotte Bøving og Helga Arnalds
Barnasýning ársins
Sproti ársins
Gríman 2015
- DV
- S.J. Fréttablaðið
Sun. 17. jan kl .13.00
Sun. 24.jan kl . 13.00
Sun. 7. feb kl . 13.00
Sun. 21. feb kl . 13.00
Hljómsveitin AmabAdamA er þessa dagana í stúdíói þar sem unnið er að því að taka
upp nýja plötu sem stefnt er á að
komi út á árinu.
„Við erum að byrja að taka upp nýja
plötu. Lagið sem við erum að taka upp
núna heitir Æjæjæjæj. Við frumflutt-
um það um verslunarmannahelgina.
Núna langar okkur til þess að fara að
gefa það út,“ segir Steinunn Jónsdóttir,
önnur söngkona hljómsveitarinnar,
en sveitina skipa níu einstaklingar
og forsprakkar hennar eru, auk Stein-
unnar, Magnús Jónsson, eða Gnúsi
Yones og Salka Sól Eyfeld.
Síðasta smáskífan af nýju plötunni
sem hljómsveitin sendi frá sér var lagið
Óráð sem kom út í maí síðastliðnum.
Lagið hlaut góðar viðtökur en það er
eftir Gnúsa Yones og textinn ljóð eftir
Davíð Stefánsson frá Fagraskógi.
Steinunn segir hljómsveitina að
sjálfsögðu halda sig við sólskinsreggíið
þó þau séu aðeins farin að gæla við
döbbið. „Það er aðeins meira sólskin í
sumum lögunum á meðan önnur eru
kannski örlítið mystískari,“ segir hún
og bætir við að nýja platan sé kannski
örlítið meira bland en sú fyrri.
Þyrst í að spila
Árið 2015 var talsvert annasamt hjá
hljómsveitinni sem spilaði mikið vítt
og breitt um landið. „Það var mikið
að gera út sumarið og við tókum með-
vitaða ákvörðun um að draga okkur
örlítið í hlé eftir verslunarmannahelg-
ina til þess að hafa tíma til þess að hitt-
ast meira, semja og æfa upp eitthvað
nýtt.“ Núna hefur sveitin fengið nægan
tíma til að semja og æfa og kominn tími
til skella sér aftur upp á svið. „Við erum
orðin mjög þyrst í það að spila og það
er aldrei að vita hvort við skellum í tón-
leika í bænum bráðum.“
Á næsta ári heldur AmabAdamA í
sína fyrstu tónleikaferð til útlanda og
mun meðal annars koma fram á tón-
leikahátíð á túrnum. „Við erum að fara
að spila í útlöndum í fyrsta sinn og það
er mjög spennandi. Ég fór með Reykja-
víkurdætrum til Malmö í september og
það var ný upplifun. Það er gaman að
spila fyrir nýtt fólk á nýjum stað og svo
er alltaf gaman að fara til útlanda,“ segir
hún glöð í bragði. Að sögn umboðs-
manns hljómsveitarinnar, Sindra Ást-
marssonar, munu tónleikar hljóm-
sveitarinnar fara fram í Bretlandi, á
Spáni og hugsanlega í Þýskalandi.
Fjallar um að gleyma sér
Nýja lagið er væntanlegt á öldur ljós-
vakans innan nokkurra vikna en það
ber nafnið Æjæjæjæj. „Það fjallar um
það þegar maður ætlar að fara að gera
eitthvað en svo kemur eitthvað annað
í staðinn sem fangar athygli manns og
verður til þess að maður gleymir sér,“
segir Steinunn og bætir við að flestir
geti sjálfsagt tengt við umfjöllunar-
efni lagsins. „Til dæmis einhver fal-
legur maður eða falleg kona, eða bara
Esjan eða sjórinn,“ segir hún hlæjandi
og bætir við að hljómsveitarmeð-
limir gætu sjálfsagt flokkast sem býsna
gleymnir en áreitið sé líka meira en
það var, þá sérstaklega með tilkomu
snjallsíma.
„Í mínum hluta textans er ég að tala
um þegar maður á kannski að skrifa
ritgerð en bara gleymir sér aðeins og
festist í tölvunni, fer út að skemmta sér
eða fer jafnvel að vaska upp í staðinn
fyrir að fara að læra,“ segir Steinunn
kímin og auðheyrt er að hún kannast
eitthvað við þær aðstæður sjálf. „Magga
texti fjallar til dæmis um þegar hann er
að keyra og sér svo sæta stelpu að hann
fer yfir á rauðu ljósi. Ég veit nú ekki
alveg hvort það byggir á reynslu,“ segir
Steinunn að lokum og skellir upp úr.
gydaloa@frettabladid.is
Kannast allir við
það að gleyma sér
AmabAdamA tekur upp nýtt efni og stefnir á að senda frá sér plötu á
árinu. Auk þess heldur hljómsveitin sína fyrstu tónleika í útlöndum.
Magga texti
fjallar til dæMis
uM þegar hann er að Keyra
og sér svo sæta stelpu að
hann fer yfir á rauðu. ég
veit nú eKKi alveg hvort
það byggir á reynslu.
Ég var úti að labba að hugleiða
um heimsfrið og ást.
Æjæjæjæjæj og svo gleymdi ég
mér.
Og afhverju svona margir á
jörðinni þurfað slást.
Æjæjæjæjæj og svo gleymdi ég
mér.
Fór að pirra mig á allri þessari
spilltu pólitík.
Æjæjæjæjæj og svo gleymdi ég
mér.
Því um leið og ég sá þig var ég
bara holy sjiittt.
Æjæjæjæjæj viltu byrja með mér?
Keyrði yfir rautt ljós það birtust
blikkandi blá.
Æjæjæjæjæj lögregluþjónn, úps
ég gleymdi mér.
Hann horfði á mig brosandi,
blíður blikkandi já.
Æjæjæjæjæj þarna gleymdir þú
þér.
Ég bara gleymi mér þegar
fegurðina sé.
Dett inn í draumalandið raun-
veruleikinn tekur hlé.
Sit í grasinu og stari á hana labb-
andi framhjá.
Það er eins og tíminn stöðvist og
eina hljóðið er hjartað mitt að slá.
æjæjæjæjæj
Gnúsi, Salka og Steinunn í dúndrandi stuði í stúdíóinu þar sem þau voru að taka upp nýja smáskífu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
8 . j a n ú a r 2 0 1 6 F Ö S T U D a G U r34 L í F i ð ∙ F r É T T a B L a ð i ð
0
7
-0
1
-2
0
1
6
2
2
:4
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
8
1
8
-1
0
D
8
1
8
1
8
-0
F
9
C
1
8
1
8
-0
E
6
0
1
8
1
8
-0
D
2
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
7
_
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K