Fréttablaðið - 08.01.2016, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 08.01.2016, Blaðsíða 8
 Sími: 540 2050 | pontun@penninn.is Tilboðsverð gildir út janúar 2016. Upplýsingar eru birtar með fyrirvara um villur og myndabrengl. Verð áður frá: 229 kr. VERÐ FRÁ 137 KR. BRÉFAKLEMMUR 26 MM - 77 MM afsláttur 40% BESTA TÓNLISTIN FRÁ 1960 1985 ÞESSI GÖMLU GÓÐU Á EINUM STAÐ 8 . j a n ú a r 2 0 1 6 F Ö S T U D a G U r8 F r é T T i r ∙ F r é T T a B L a ð i ð ViðSkipTi Miklar sveiflur hafa átt sér stað á hlutabréfamörkuðum heims- ins þessa fyrstu viðskiptaviku ársins. Kauphallir í Kína lokuðu tvisvar sinnum, í síðara skipti eftir innan við hálftíma af viðskiptum þar sem hlutabréf höfðu fallið um sjö prósent. Eftir lokun kauphallanna á mánu- daginn féllu hlutabréf víðs vegar um heiminn í verði, verst voru áhrifin í Þýskalandi þar sem þau féllu um 3,8 prósent. Rólegra var á þriðjudaginn og miðvikudaginn en eftir að mörk- uðum í Kína var lokað aftur í gær lækkuðu evrópsk hlutabréf um tvö prósent. Hlutabréfagengi erlendis fór að hafa áhrif á íslenskum markaði í gær. Íslenska úrvalsvísitalan OMXI8 lækk- aði um 1,24 prósent í gær. Rauður dagur var í Kauphöllinni þar sem meirihluti skráðra fyrirtækja lækk- aði í verði. Hlutabréf í Marel lækk- uðu mest eða um 2,18 prósent í 464 milljóna króna viðskiptum. „Íslenskt efnahagslíf og fyrir- tæki eru ekki ónæm fyrir ástandi heimsmála. Minni eftirspurn í einu Óværð á mörkuðum fyrstu viku ársins Kauphöllum í Kína var lokað tvisvar í vikunni og lækkuðu hlutabréf um allan heim. Íslenskt efnahagslíf er ekki ónæmt fyrir ástandi heimsmála að mati Stefáns Brodda Guðjónssonar, en aðrir þættir eins og olíuverð hafi áhrif. Kauphöllum var lokað tvisvar sinnum í vikunni í Kína eftir að hlutabréf hríðféllu. Fréttablaðið/Getty ViðSkipTi Kaupmáttur ráðstöfunar- tekna er meiri en árið 2007 og hefur því aldrei verið meiri. Launastig á Íslandi var hvað lægst meðal Norður- landa árið 2010 en er nú það annað hæsta. Hrein erlend staða þjóðarbús- ins hefur aldrei verið betri eftir upp- gjör þrotabúanna og fer skuldastaða heimilanna og fyrirtækja batnandi. Þetta var meðal þess sem kom fram í máli Þorsteins Víglundssonar, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnu- lífsins, á fundi SA í gær. Á fundinum gerði Þorsteinn grein fyrir atvinnulífinu á nýju ári. Hann sagði að árið muni einkennast af kröftugum vexti á nær öllum sviðum atvinnulífsins, hraður taktur sé í einkaneyslu á Íslandi og mikil kaup- máttaraukning hafi átt sér stað með tilheyrandi þenslueinkennum í hag- kerfinu. Munurinn frá árunum 2007 til 2008 sé þó sá að undirstöður hag- kerfisins séu mun heilbrigðari. „Vöxturinn hefur að mjög veru- legu leyti grundvallast á auknum útflutningi og útflutningstekjum og fjárhagsleg staða bæði fyrirtækja og heimila er orðin miklu sterkari en þá var og er að þróast með mun hag- stæðari hætti, fólk er að halda áfram að greiða niður skuldir,“ segir Þor- steinn. Atvinnulífið stendur þó áfram frammi fyrir áskorunum, verðbólga hefur haldist lág vegna hagstæðra ytri skilyrða og styrkingar krónu en miklar launahækkanir eru farnar að segja til sín. SA spáir því einnig að til langs tíma muni öldrun þjóðarinnar kosta ríkissjóð aukalega 2-3 prósent af landsframleiðslu. – sg SA spá góðum efnahag á árinu 2016 Þorsteinn Víglundsson segir undir- stöður hagkerfisins mun heilbrigðari nú en fyrir hrun. Fréttablaðið/GVa lækkun vísitölu Kauphallarinnar í Sjanghæ á mánudaginn 6,9% 7% lækkun á hluta-bréfamörkuðum í Kína á fimmtudaginn lækkun á íslensku úrvalsvísitölunni í gær 1,24% 2% lækkun á hluta-bréfamörkuðum í Evrópu í gær landi hefur áhrif á útflutning og þar með eftir spurn í öðru landi. Að lokum koma áhrifin fram í tekjum og afkomu félaga á Íslandi eins og í öðrum opnum hagkerfum. Íslenski hlutabréfamarkaðurinn endur- speglar samt ekki nema að hluta til efnahagslíf í hinum stóra heimi. Íslenskir fjárfestar fylgjast að sjálf- sögðu með því sem er að gerast á erlendum mörkuðum og ég á von á að þeir flestir taki tillit til erlendrar þróunar og breytinga á innbyrðis verðlagningu íslenskra og erlendra félaga,“ segir Stefán Broddi Guð- jónsson, forstöðumaður greiningar- deildar Arion banka. Hann segir þó aðra þætti hafa áhrif, t.d. lækkun eldsneytisverðs, vaxtaþróun, innflæði í sjóði, horfur um ríkisskuldir, verðbólgu og fjölda ferðamanna. „Þegar allt er dregið saman hafa fjárfestar á íslenska hluta- bréfamarkaðinum greinilega komist að þeirri niðurstöðu á fyrstu dögum nýs árs að hér hafi aðstæður ekki versnað,“ segir Stefán Broddi. saeunn@frettabladid.is 0 7 -0 1 -2 0 1 6 2 2 :4 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 8 1 8 -2 4 9 8 1 8 1 8 -2 3 5 C 1 8 1 8 -2 2 2 0 1 8 1 8 -2 0 E 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 8 s _ 7 _ 1 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.