Fréttablaðið - 08.01.2016, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 08.01.2016, Blaðsíða 12
ÐUKÖNNUR SAFAPRESSUR KÆLISKÁPARURRKARAR UPPÞVOTTAVÉLAR HANDÞEYTARAR R MATVINNSLUVÉLAR ELDAVÉLAR VIFTURR ELDHÚSVOGIR BRAUÐRISTAR HELLUBORÐAR DJÚPSTEIKINGAPOTTAR KAFFIVÉLAR SAMLOKUURRKARAR UPPÞVOTTAVÉLAR HANDÞEYTARAR ÖRRAUÐRISTAR HELLUBORÐ EGGJASJÓÐARAR DJÚAMLOKUGRILL RAFMAGNSTANNBURSTAR SLÉTTUELHÚSVOGIR BLANDARAR MATVINNSLUTÆKI AR HANDÞEYTARAR MATVINNSLUVÉLAR ELDAVÉELDHÚSVOGIR BRAUÐRISTAR HELLUBORÐ EGG OTTAVÉLAR MÍNÚTUG Suðurlandsbraut 16 108 Reykjavík www.rafha.is ÚTS L SPARAÐU NÚNA! 39.900 ÞVOTTAVÉLAR FRÁ KR. á óvart. Ég hefði kosið að vita það fyrirfram, áður en ég fór að tala um gjöf. Það breytir myndinni.“ Hvaðan fékkst þú upplýsingar um að þetta væri gjöf? „Jón Bjartmars, yfirlögregluþjónn hjá RLS sem hafði verið í sambandi við yfirvöld í Nor­ egi, sagði mér að þetta hefði verið með þessum hætti sem ég er að lýsa. Hann miðlaði þeim upplýsingum sem hann hafði til mín.“ Haraldur segist hafa viljað þiggja byssurnar því að skotvopn lögregl­ unnar hafi verið orðin úrelt. „Þótt við hefðum keypt þessar byssur fyrir það verð sem þeir settu upp og síðar kom í ljós, þá er það algjört hrakvirði fyrir það sem þeir buðu. Við hefðum þarna getað endurnýjað vopn lögreglunnar fyrir nánast enga fjárhæð. Ef við ættum að festa kaup á slíkum vopnum í dag þá kostar það ríkissjóð tugi milljóna. Ég hef bent á að það sé full þörf á að endurnýja búnaðinn en kostnaðurinn er svo mikill að ég efast um að það verði gert. Hins vegar á lögreglan skammbyssur sem hafa verið geymdar á lögreglu­ stöðvum. Sumir lögreglustjórar hafa tekið þá ákvörðun að vopnin séu færð í lögreglubíla. Þetta eru nokkrir lögreglubílar á landinu.“ Sérsveitin kemur að fleiri málum Hann segir þó sömu reglur gilda um vopnin og áður. Hvert tilvik sé metið og leyfi yfirmanns þurfi til þess að nota vopnið. „Þetta þýðir að í stað þess að þessi vopn séu læst inni á stöð þá eru þau læst inni í bílum sem eru á hreyfingu um umdæmið.“ Haraldur segir ljóst að upp séu að koma erfiðari mál en áður og sér­ sveitin þurfi oftar að veita aðstoð. „Ég held að almenningur viti ekki að það hefur færst mjög í aukana að sérsveit RLS vinnur með lögregl­ unni á höfuðborgarsvæðinu í mjög erfiðum útköllum. Sérsveitin var til dæmis núna um jól og áramót í mjög mörgum erfiðum útköllum þar sem þurfti að taka á mönnum með hnífa.“ Með áætlanir verði hryðjuverk Á undanförnum árum hefur verk- efnum lögreglu fjölgað og þau breyst, meðal annars með tilkomu netglæpa og fjölgun ferðamanna hér á landi. Erum við tilbúin til að takast á við þetta? „Stutta svarið er tæplega,“ segir hann. „Netglæpir eru eitt mesta vandamál lögreglu að fást við í dag. Vegna þess að þeir flæða yfir allt, þeir tengjast skipulagðri glæpa­ starfsemi, hryðjuverkjum, barna­ níðingum, fíkniefnasölu, vopna­ sölu, netið tengist öllum þessum afbrotum meira og minna, og þetta er allt undir yfirborðinu. Þetta er peningaþvætti, sem ég nefni sér­ staklega. Íslenska lögreglan verður að undirbúa einingu til að fást við þessi mál. Við erum því miður langt á eftir í þessum efnum.“ Er raunveruleg hryðjuverkaógn á Íslandi? „Ég átta mig á því að fyrir Íslend­ inga þá er það mjög fjarlægt. Sumir gera grín að þessu og finnst löggan fara yfir strikið. Auðvitað þekkjum við þessa umræðu. En það er hlut­ verk lögreglunnar að benda á hluti sem gætu farið betur og að vera und­ irbúin. Ísland getur ekki tekið sig út fyrir sviga í heiminum og sagt að við séum í svo friðelskandi umhverfi að hér geti aldrei neitt gerst.“ Hann segir að hluti af starfi sínu sé að vera tilbúinn með áætlun verði hryðjuverkaárásir gerðar hér. „Auðvitað vonast allir til þess að það gerist ekkert slíkt á Íslandi. Ég held samt að það væri ábyrgðarlaust af lögregluyfirvöldum að útiloka þann möguleika.“ En erum við í stakk búin til þess að fást við það ef slíkt kæmi upp? „Tæp­ lega, satt best að segja. Hvaða land er það í raun og veru? Voru Norð­ menn í stakk búnir, Bretar, Frakkar? Við höfum útbúið áætlanir í þess­ um efnum, t.d. út af skotárásum í skólum eins og við höfum séð víða erlendis. Við erum með viðbragðs­ áætlanir út af mörgum atburðum.“ Hann segir flesta sammála um að efla þurfi löggæslu með fjárveiting­ um. Fjölga þurfi lögreglumönnum. Sjálfboðaliðar líkt og björgunar­ sveitir séu í auknum mæli farnir að sinna störfum sem ættu að vera í höndum lögreglu. Hvað finnst þér um þá þróun? „Ég held að björgunarsveitirnar séu hugsi yfir því eins og lögreglan. Ég ber mikla virðingu fyrir störfum björgunarsveitanna og samstarfið hefur verið gott. Kannski eru þær að vinna störf sem eru fullnærri verk­ efnum lögreglunnar, eru kannski oft komnar í óþægilega stöðu í sam­ skiptum sínum við verkefnin eða borgarana,“ segir hann. „Lögregla styðst mikið við björgunarsveitirnar í verkefnum sem lögreglan ætti að sinna. Mannskapurinn er ekki fyrir hendi hjá lögreglunni oft á tíðum. Svo eru björgunarsveitirnar ákaf­ lega bóngóðar og segja aldrei nei.“ Vill fækka lögreglustjórum Stærsta umdæmi íslensku lögregl­ unnar er höfuðborgarsvæðið. Sig­ ríður Björk Guðjónsdóttir er þar lögreglustjóri. Nokkuð hefur verið fjallað um samskiptavanda innan yfirstjórnar lögreglunnar. Vinnu­ sálfræðingur vinnur nú að því að uppræta vandann. „Þegar við heyrum að það séu vandamál út af samskiptum yfir­ manna þá er það ekkert nýtt. Það eru margir yfirmenn og stundum er áskorun að fá lögregluna til þess að vinna eins og einn maður. Við erum með níu lögreglustjóra í dag, þið getið ímyndað ykkur hvernig þetta var fyrir nokkrum árum, þegar við vorum með 27 lögreglustjóra, sem jafnframt voru sýslumenn og toll­ stjórar,“ útskýrir Haraldur. „Ég er þeirrar skoðunar að það eigi að fækka umdæmunum, þann­ ig að verði fjórir til sex lögreglu­ stjórar og ríkislögreglustjóri. Það geta verið skiptar skoðanir innan hvers lögregluliðs og lögreglunnar í heild sinni. Um hvaða aðferðum á að beita, hvert á að stefna og þar fram eftir götunum. Nýi lögreglu­ stjórinn hefur sett sér markmið, t.d. að leggja áherslu á kynferðisbrota­ málin og heimilisofbeldið. Þegar þú ferð inn í embætti, sem er fastmót­ að, eins og lögreglustjóraembættið á höfuðborgarsvæðinu og ert með ákveðnar áherslur og markmið og sýn, þá getur það valdið óróleika,“ segir Haraldur og bætir við að hann þekki Sigríði vel. Hún hafi verið aðstoðarríkislögreglustjóri undir sér, sýslumaður á Ísafirði og lög­ reglustjóri á Suðurnesjum. Karlaveldi innan lögreglunnar „Við erum að tala um reynslubolta. Ég held að sumum finnist hún fara bratt í breytingar og þá mætti segja, hverju skilar það að fara hægt í breytingar? Sumar breytingar eru þannig að það þarf að fara í þær hratt og örugglega. Aðrar taka tíma. Það vita það allir að ég hef verið bakhjarl og stuðningsmaður Sig­ ríðar. Ég þekki hana persónulega, hvernig hún vinnur. Hún er metn­ aðarfull fyrir hönd lögreglunnar. Það verður alltaf einhver togstreita á fjölmennum vinnustað. Það má ekki gleyma því,“ segir Haraldur. „Sigríður Björk er líka fyrsti lög­ reglustjórinn sem er kona í karl­ lægu starfsumhverfi embættisins. Ég er ekki að segja að það hafi áhrif varðandi togstreituna, ég get ekki fullyrt um það – en ég get ímyndað mér það.“ Það hefur verið sagt að lögreglan sé karllægur vinnustaður. Er þetta að breytast? „Ég tók upp samstarf með HÍ til að rannsaka málið. Ég talaði við margar lögreglukonur sem höfðu lýst áhyggjum sínum. Mér fannst ekki spurning að fara í þetta. Upplýsa hver staða þessara mála væri. Í framhaldinu var rannsókn Finnborgar Salóme birt,“ útskýrir Haraldur. Í rannsókninni kom fram að um þriðjungur lögreglukvenna taldi sig þolanda kynferðislegrar áreitni í lögreglunni. „Síðan höfum við unnið í jafnréttis áætlun. Hjá ríkislögreglu­ stjóra er jafnréttisfulltrúi sem hefur beinlínis það hlutverk að fylgjast með jafnréttismálum. Það er ekki bara að karl og kona sem vinna hliðstæð störf séu með sömu laun. Það er líka að bæði kyn geti notið hæfni sinnar og hæfileika og fengið framgang eftir því. Lögreglukonur kvörtuðu undan því að svo væri ekki. Fyrir mig er ekkert annað hægt en að stíga inn í það og reyna að breyta því.“ visir.is Viðtalið má hlusta á í lengri útgáfu á Vísi, í hlaðvarpinu Föstudagsviðtalið. Haraldur er menntaður lög- fræðingur, sem starfaði meðfram námi sem lögreglumaður. Þaðan hélt hann í Florida State University, þar sem hann lagði stund á fram- haldsnám í afbrotafræðum. „Þar starfaði ég í hálft ár hjá lögreglunni í Tallahassee, hjá Melvin Tucker lög- reglustjóra. Það var ótrúleg reynsla. Þar fékk ég að starfa með morð- deildinni, fíkniefna- og kynferðis- brotadeildinni. Ég sá mjög margt þar sem við sjáum ekki hér. Það má segja að ég hafi séð mjög margt í lífinu sem almennur borgari sér aldrei. Það er viðloðandi lögreglu- störfin. Lögreglan sér og upplifir alls konar hluti – jákvæða, en líka neikvæðar, erfiðar, dökkar, sorg- legar hliðar samfélagsins. Og þetta situr dálítið í lögreglumönnum hugsa ég, og þeim sem vinna við þetta árum og áratugum saman. Það mótar menn.“ Haraldur gekk í Menntaskólann í Reykjavík. Þar varstu kallaður Halli hippi? „Ég hugsa að það hafi ýmsir kall- að mig það, ekki síst kennararnir. Ég var með sítt hár að sjálfsögðu, ég var svona blómabarn,“ segir hann og hlær. Hann segir það ekki hafa verið auðvelt skref að klippa hárið af enda hafi það náð niður fyrir beltisstað. „Það var ákveðin sam- keppni hjá ungum mönnum þá um hver gæti náð að vera með lengsta hárið. Ég held ég hafi verið svona 18-19 ára þegar hárið var klippt, en það var klippt í skrefum, því sársaukinn var svo yfirþyrmandi. Svo endaði með því að ég sótti um í lögreglunni í Reykjavík sem þá var og talaði við Sigurjón Sigurðsson, þáverandi lögreglustjóra, og hann sagði við mig: „Haraldur, þú verður að klippa það. Þá sá ég það að ég gat fengið sumarstarf ef ég klippti mig.“ Fórnaðir þú hárinu fyrir lög- regluna? „Já. Ég hef fórnað ýmsu fyrir þetta starf, það verður að segjast eins og er,“ segir hann hlæjandi. „Ég verð þeirri stund fegnastur þegar ég get byrjað að safna aftur. Um leið og ég hætti.“ Ódæll unglingur Hann segir það ekki hafa legið beinast við að hann yrði lögreglu- maður og reyndar hafi það komið mörgum á óvart. „Ég var blóma- barn og það var uppreisnarandi í mér. Foreldrar mínir og umhverfi fundu svolítið fyrir því. Ég var svona frekar ódæll,“ segir hann. „Engum datt í hug og síst af öllum mér að ég yrði lögfræðingur, yrði fangelsismálastjóri, varalögreglu- stjóri í Reykjavík og ríkislögreglu- stjóri. Ég hef heyrt af sumum skóla- félögum sem hafa annaðhvort tekið um höfuðið í undrun eða örvæntingu og hlegið upphátt að þessum ferli mínum. Örlaga- nornirnar hafa verið í sérkennilegu ástandi þegar þær ákváðu mína lífsbraut.“ Í MR kynntist hann eiginkonu sinni, Brynhildi. „Hún var 16 ára og ég var 18 ára og við eignuðumst dreng þegar við vorum í MR. Það var ekkert auðvelt fyrir okkur á þessum árum, að fara í gegnum þau mál á þeim árum, ýmsir sneru upp á sig og fitjuðu upp á nefið, en það er það besta sem hefur komið fyrir mig. Mín kjölfesta.“ Ung tóku þau á sig mikla ábyrgð. „Ég segi ekki að það hafi verið dans á rósum en lífið gjörbreyttist, við urðum að axla ábyrgð mjög ung, sem er eitt það albesta sem hefur komið fyrir mig því uppreisnar- andinn hefði kannski tekið völdin algjörlega. Hver veit?“ Dró sig út úr kastljósi fjölmiðla „Ef ég er alveg ærlegur – það var tímabil í mínu starfi, sem ríkislög- reglustjóri og líka sem fangelsis- málastjóri á tímabili, þar sem voru nokkuð hatrammar ágjafir og pers- ónulegar. Mér þótti það óþægilegt að krakkarnir voru farnir að taka eftir þessu. Ég hugsaði með mér, get ég eitthvað gert til þess að hlífa þeim við þessu? Ég fann að þeim leið ekki alltaf vel undir þessum árásum á pabba sinn og ákváð að draga mig aðeins til hlés úr kast- ljósi fjölmiðlanna sem ég gerði og hef gert. Kannski hefur fólk tekið eftir því. En nú eru þau orðin það stálpuð og fullorðin og mér finnst ég ekki verða fyrir sömu neikvæðu árásunum og á þeim tíma.“ Gekk mikið á? „Já, við vorum að rannsaka svo- kölluð Baugsmál og það var hvasst svolítið, hvassar og persónulegar árásir. Ég deyfði fjölmiðlana dálítið. Fyrir einhvern í þessu starfi þá geturðu ekkert lokað þig af frá fjölmiðlum alveg, það gengur ekki. Þú þarft að vinna með þeim og þeir eiga rétt á að ég vinni með þeim, en ég reyndi að gera þetta með þessum hætti, stíga aðeins til hliðar.“ Haraldur segir það eftirminni- legasta frá starfsferlinum vera það hversu hratt hann hafi liðið. Ætlarðu að gegna þessu starfi áfram? „Í gríni sagt hef ég alltaf svarað, ég verð örugglega hættur 1. júlí.“ Næstkomandi? „Já, þá kemur sú spurning. Ekki endilega. Ég segi 1. júlí því starfsmannalögin um opinbera starfsmenn segja að þegar þú hafir náð sjötugsaldri getirðu hætt um næstu mánaðamót, og ég er fæddur 25. júní. Það getur vel verið að ég hætti fyrr, en það er 2024.“ ↣Halli hippi: Blómabarn með hár niður á mitti Haraldur segir Sigríði Björk sitja í karllægu embætti. fréttaBlaðið/GVa 8 . j a n ú a r 2 0 1 6 F Ö S T U D a G U r12 F r é T T i r ∙ F r é T T a B L a ð i ð 0 7 -0 1 -2 0 1 6 2 2 :4 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 8 1 7 -F D 1 8 1 8 1 7 -F B D C 1 8 1 7 -F A A 0 1 8 1 7 -F 9 6 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 8 s _ 7 _ 1 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.