Fréttablaðið - 08.01.2016, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 08.01.2016, Blaðsíða 20
Fólk| matargleði evu SeSarSalat Hvítlaukssósa 1 dós sýrður rjómi 1 tsk. dijon-sinnep 2-3 tsk. majónes 1 tsk. hvítvínsedik 1 tsk. sítrónusafi Salt og pipar 2 hvítlauksrif 50-60 g nýrifinn parmesan-ostur Maukið allt saman með töfrasprota eða í matvinnsluvél. Geymið í kæli áður en þið berið fram með salatinu. salatið 3 kjúklingabringur, skornar í ten- inga Ólífuolía Salt og pipar Kjúklingakrydd 100 g beikon Kál, magn eftir smekk (helst romain-salat) 1 agúrka 10 kirsuberjatómatar Skerið kjúklingabringurnar í bita og steikið upp úr olíu, kryddið til með salti, pipar og kjúklingakryddi. Steik- ið beikonið á annarri pönnu eða steikið í ofni. Saxið kálið smátt og dreifið á fat. Skerið agúrkuna, tóm- atana og beikonið í litla bita og dreif- ið yfir kálið. Því næst bætið þið kjúkl- ingabitunum og brauðteningunum yfir salatið. Í lokin rífið þið duglega af parmesan-osti yfir allt salatið og ekki spara ostinn! HvítlaukS- brauðteningar Hvítt brauð 1 dl ólífuolía Salt og pipar 2 hvítlauksrif Blandið saman ólífuolíu, pressuðum hvítlauk, salti og pipar í skál. Skerið brauðið í teninga og veltið þeim upp úr hvítlauksolíunni. Leggið brauð- teningana á pappírsklædda ofnplötu og bakið við 180°C í nokkrar mínút- ur eða þar til þeir eru gullinbrúnir og stökkir. létt og gott CapreSe 1 askja kirsuberjatómatar 2 kúlur mozzarella Fersk basilíkublöð 1 pakki hráskinka eða eins og 6 hráskinkusneiðar 1 skammtur basilíkupestó baSilíkupeStó 1 höfuð fersk basilíka Handfylli fersk steinselja 150 g ristaðar furuhnetur 50 g parmesanostur 1 hvítlauksrif Safinn úr ½ sítrónu 1 dl góð ólífuolía Salt og nýmalaður pipar Skerið kirsuberjatómata í tvennt og leggið á pappírsklædda ofnplötu. Sáldrið smá ólífuolíu yfir og krydd- ið þá til með salti og pipar. Bakið við 180°C í 20 mínútur. Útbúið pestó- ið á meðan tómatarnir eru í ofnin- um. Setjið allt í matvinnsluvél eða maukið með töfrasprota, geymið í kæli þar til þið ætlið að bera rétt- inn fram. Raðið hráskinku á fallegt fat eða disk, rífið niður mozzarella og dreifið yfir, raðið tómötum og bas- ilíkublöðum ofan á. Að lokum setjið þið nokkrar matskeiðar af pestói yfir réttinn og berið einnig pestóið fram með réttinum í sér skál. einfaldaSta brauð í Heimi 470 g brauðhveiti 370 ml volgt vatn 1 tsk. salt ¼ tsk. þurrger 1 msk. ferskt rósmarín 2 hvítlauksrif 1. Blandið þurrefnum saman í skál og hrærið vatni saman við. Setj- ið plastfilmu yfir skálina og geym- ið við stofuhita í að minnsta kosti tólf klukkustundir. 2. Hellið deiginu á hveitistráð borð og stráið smá hveiti yfir deigið. Saxið rósmarín og hvítlauk mjög smátt og blandið við deigið. 3. Hnoðið deigið rétt aðeins í hönd- unum og brjótið það saman þannig að það myndi kúlu. 4. Smyrjið ofnpott með olíu og setjið pottinn inn í ofn við 230°C. Takið pottinn út úr ofninum, setj- ið brauðið í pottinn og inn í ofn í 30 mínútur. Þegar 30 mínútur eru liðnar takið þið lokið af pottinum og bakið áfram í 10-15 mínútur. Létt og ljúffengt í upphafi árs ljúfmeti Þriðja serían af Matargleði Evu hefur göngu sína á Stöð 2 fimmtudaginn 21. janúar. Hér er hægt að taka forskot á sæluna og prófa rétti sem lífga upp á janúartilveruna. klikkar seint Sesarsalat er algengur réttur á veitingahúsum. Það er gaman að útbúa eigið frá grunni. einfalt en bragðmikið Brauðið er bakað í ofnpotti. flottur partíréttur Samsetningin hér er ómótstæðileg. 0 7 -0 1 -2 0 1 6 2 2 :4 2 F B 0 4 8 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 8 1 8 -2 E 7 8 1 8 1 8 -2 D 3 C 1 8 1 8 -2 C 0 0 1 8 1 8 -2 A C 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 8 s _ 7 _ 1 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.