Fréttablaðið - 20.05.2015, Síða 24
KYNNING − AUGLÝSINGHeiti blaðs MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 20152
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, s. 512-5429, jonivar@365.is Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson.
Á síðasta ári opnaði Jötunn deild í Garðabæ sem sér-hæfir sig í sölu véla og tækja
fyrir verktaka, sveitarfélög og græn
svæði. Baldur Þórarinsson er sölu-
stjóri þessarar deildar en hann
segir að Jötunn hafi ákveðið að
hefja innflutning og umboðssölu
vinnuvéla og vörubíla til að mæta
vaxandi eftirspurn meðal við-
skiptavina.
Jötunn er best þekktur fyrir
þjónustu við landbúnað og bænd-
ur, enda býður fyrirtækið upp á
mikið úrval véla og tækja frá fjölda
leiðandi framleiðenda í heimin-
um. Meðal þeirra eru þekkt merki
á borð við Massey Ferguson- og
Valtra-dráttarvélarnar sem hafa
undanfarin ár verið með um 50%
markaðshlutdeild hér á landi. Jöt-
unn rekur verslanir á Selfossi,
Akur eyri og Egilsstöðum auk deild-
arinnar í Garðabæ.
„Markmið okkar er að bjóða
trausta og markvissa þjónustu
sem styður uppbyggingu og árang-
ur viðskiptavina okkar í krefjandi
umhverfi dagsins í dag. Við finnum
vel fyrir því að verktakastarfsem-
in er vöknuð á ný eftir mikla dýfu
í hruninu. Það er þörf á góðum,
nýlegum vörubílum og vinnuvél-
um sem við viljum mæta. Nýleg-
ar vinnuvélar voru seldar úr landi
í hruninu og því lítið til af tækjum
sem eru yngri en árgerð 2008. Við
bjóðum viðskiptavinum kaup eða
sölu þessara tækja í þeirra umboði.
Við kaupum vinnuvélar og vöru-
bíla eftir óskum viðskiptavina en
einnig til að eiga á lager til að við-
skiptavinir geti skoðað tækin með
eigin augum í stað mynda,“ segir
Baldur. „Við erum í sambandi við
trausta aðila erlendis til að fá bestu
og þekktustu tækin.“
Baldur segir að markmiðið sé
að auka þjónustusviðið enn frekar.
„Við erum að hefja hér varahluta-
þjónustu fyrir vörubíla og vinnu-
vélar með innflutningi á bæði
nýjum og notuðum varahlutum.
Það er liður í að styðja við endur-
reisn verktakastarfseminnar en
við höfum tekið eftir að bæði eru
gamalgróin fyrirtæki að byggja sig
upp á nýjan leik og ný fyrirtæki að
stíga sín fyrstu skref. Þrátt fyrir
að ekki sé mikið um stórfram-
kvæmdir á Íslandi sem stendur þá
er engu að síður talsverður vöxt-
ur í byggingariðnaði og alls kyns
smærri framkvæmdum fyrir bæði
opinbera aðila og einstaklinga,“
segir Baldur.
Vinnuskúrar aftan í jeppa
„Meðal annarra nýjunga má nefna
vinnuskúra á hjólum aftan í jeppa
eða vörubíla,“ segir Baldur. „Kröfur
um aðbúnað á vinnusvæðum eru
alltaf að aukast og vinnuskúrarn-
ir, sem eru framleiddir af danska
fyrirtækinu Scanvogn, koma þar
sterkir inn. Innflutningur þessara
vagna er reyndar ekki alveg nýr af
nálinni en Jötunn seldi nokkra slíka
vagna hérlendis á árunum 2004-
2007 sem hafa reynst mjög vel.
Vagnarnir eru framleiddir eftir
óskum hvers og eins en algengast
er að í þeim sé fullbúin kaffi og sal-
ernisaðstaða auk verkfærarýmis.
Salernin er hægt að fá þannig útbú-
in að frá þeim er lögð 1“ leiðsla allt
upp í 50 metra í næsta holræsi eða
rotþró. „Við finnum reyndar núna
fyrir auknum áhuga á vinnuskúr-
um með svefnaðstöðu enda orðið
mjög erfitt og dýrt að fá gistingu að
sumrinu fyrir vinnuflokka sem eru
á ferðinni um landið,“ sagði Bald-
ur að lokum.
Skoða má úrvalið og kynna
sér framboðið á heimasíðunni
vinnuvelar.is.
Býður nýjar og nýlegar vinnuvélar
og vörubíla auk úrvals varahluta
Jötunn er eitt þekktasta fyrirtækið á sviði innflutnings hér á landi, stofnað í maí 2004. Starfsfólkið hefur víðtæka þekkingu á þessu
sviði og finnur greinilega aukna þörf fyrir endurnýjun á vinnuvélum og tækjum. Ýmsar nýjungar eru í boði hjá fyrirtækinu.
Baldur Þórarins-
son sölustjóri:
„Markmið okkar er
að bjóða trausta
og markvissa
þjónustu sem
styður uppbygg-
ingu og árangur
viðskiptavina
okkar í krefjandi
umhverfi dagsins
í dag.“
MYND/STEFÁN
VÉLAR OG TÆKI
Miðhrauni 2 - 210 Garðabær www.vinnuvelar.isSími 480 0444 baldur@jotunn.is
Scanvogn vinnuskúrar
á hjólum
Scanvogn er gamalgróin framleiðandi af vinnuskúrum á hjólum sem bæði býður
staðallausnir og sérsmíði í lengdum frá 2m til 9m. Vagnarnir eru smíðaðir í
Danmörku og uppfylla ströngustu kröfur til búnaðar og frágangs.
Í veggjum og þaki vagnanna eru samlokueiningar með góðri einangrun.
Á árunum 2004-2007 voru fluttir inn á vegum Jötuns nokkrir vagnar
og er reynslan af þeim mjög góð.
Club Car
Götuskráðir vinnubílar frá Club Car bæði
rafmagns og diesel.
Í MIKLU ÚRVALI
Indespension
kerrur
Bigab
krókheysisvagnar
Innra skipulag vagnanna getur verið algerlega
eftir óskum viðskiptavina. Algeng uppsetning er
að í vögnunum sé kaffiaðstaða, þvottaaðstaða
og salerni en auk þess eru oft útbúnar læstar
verkfæra geymslur og svefnaðstaða í vagnanna.
Bigab krókheysis vagnar fyrir dráttarvélar í
stærðum frá 4 – 27 tonn.
2
7
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:4
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
4
K
_
N
Y
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
D
9
-D
2
4
C
1
7
D
9
-D
1
1
0
1
7
D
9
-C
F
D
4
1
7
D
9
-C
E
9
8
2
8
0
X
4
0
0
6
B
F
B
0
7
2
s
_
1
9
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K