Fréttablaðið - 20.05.2015, Blaðsíða 36
KYNNING − AUGLÝSINGVörubílar og vinnuvélar MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 201514
Iveco hefur lengi verið rótgró-ið merki á meginlandi Evr-ópu, ekki síst í sunnanverðri
álfunni. Bílarnir eru í grunn-
inn ítalskir og hafa góða mark-
aðshlutdeild í Evrópu, eru til
að mynda næststærstir í Dan-
mörku með tæplega þrjátíu pró-
sent markaðshlutdeild. Viktor
Karl Ævarsson, sölu- og mark-
aðsstjóri hjá Kraftvélum, segir
að árið byrji mjög vel og strax
eftir fjóra mánuði var markaðs-
hlutdeild Iveco á Íslandi tæplega
tuttugu prósent. „Miðað við veg-
lega pöntunarbók þá er fátt því til
fyrirstöðu að viðhalda sambæri-
legri markaðshlutdeild út árið.“
Gengið vonum framar í sölu
vörubíla
„Þetta hefur verið eins og lyga-
saga fram að þessu. Við f lutt-
um inn þrjá bíla árið 2013 og
níu bíla á öllu árinu 2014. Það
sem af er ári til dagsins í dag
höfum við hins vegar f lutt inn
og selt yfir tuttugu bíla og mun
fleiri eru á leiðinni. Fyrr í mán-
uðinum afhentum við Reykjavík-
urborg fimm Iveco Daily-flokka-
bíla með rými fyrir sex farþega,
sturtupalli og krana. Kópavogs-
bær er með tvo bíla í pöntun og
Hafnarfjarðarbær fékk nýjan
Iveco Daily í lok síðasta árs.
Mosfellsbæ seldum við Toyota
Hilux sem var liður í samstarfi
fyrirtækjanna og var það fyrsti
Toyota-bíllinn sem Kraftvélar
selja,“ segir Viktor.
Fjölbreytt úrval bíla
Iveco Daily var kosinn sendi-
ferðabíll ársins 2015 og er fáan-
legur frá 3,5 tonni upp í sjö tonn
í heildarþyngd með burðargetu
allt upp í 4.300 kíló. Hann er fá-
anlegur með níu mismunandi
gerðum véla, í þremur hæðum
á þaki, þremur mismunandi
lengdum á hjólhafi og fjórum
lengdum. Hann er fáanlegur sem
lokaður sendibíll eða grindarbíll
með einföldu eða tvöföldu öku-
mannshúsi.
Iveco Eurocargo er hinn hefð-
bundni vöruf lutningabíll sem
notaður er víða í vörudreifingu.
Heildarþyngd hans er allt að
tuttugu tonn og burðargetan allt
upp í tíu tonn.
Iveco Stralis var kjörinn vöru-
bíll ársins 2013 í Evrópu þegar
hann kom nýuppfærður á mark-
að. Hann fæst í fjölmörgum út-
færslum. Fjórða gerðin heitir
Trakker, sem er „off-road“-útgáfa
Stralis. Nýlega afhentu Kraftvélar
Hjálparsveit skáta í Kópavogi bíl
af þeirri gerð með 6x6 drifi. Hann
þreytti frumraun sína í leit að er-
lendri konu sem fannst síðan í
skála í Hvanngili seint í febrúar.
Árs ábyrgð fylgir
Kraftvélar hafa haft umboð fyrir
Iveco-atvinnubifreiðar undan-
farin fimm ár og á þeim tíma
hefur verið unnið hörðum hönd-
um að því að mennta viðgerðar-
menn á þjónustuverkstæði og
í varahlutaverslun auk þess að
fjárfesta í sérbúnaði til að sinna
bilanagreiningu og almennri
þjónustu við þessa bíla.
„Eins árs ábyrgð fylgir bíl-
unum frá Kraftvélum en við-
skiptavinum stendur til boða
allt að fimm ára ábyrgð. Ölgerð-
in og Olíudreifing keyptu ný-
lega Iveco-bíla af Kraftvélum og
tóku þá með fimm ára ábyrgð.
Um er að ræða þjónustuábyrgð
og greitt er fyrir hana í sam-
ræmi v ið hvern ek inn k í ló-
metra. Greitt er mánaðargjald
og rekstraröryggið er tryggt,“
segir Viktor.
Heildarlausn í atvinnutækjum
Kraft vélar hafa einnig haft
umboð fyrir Komatsu-vinnu-
vélar frá árinu 1992 og eru það
vélar sem allir verktakar lands-
ins ættu að vera vel kunnugir.
Sala á vinnuvélum hefur verið
hæg undanfarin ár en tók örlít-
inn kipp í fyrra og stefnir í ennþá
stærri markað í ár.
„Samhliða stækkandi mark-
aðshlutdeild í vinnuvélum aug-
lýstum við nýlega eftir sölufull-
trúa fyrir vinnuvélar og réðum til
okkar nýjan sölumann sem hefur
störf hjá okkur 1. júní næstkom-
andi, verktakar mega því eiga
von á því að fá heimsókn frá
Kraftvélum í sumar til þess að
kynna öf lugt úrval atvinnu-
tækja, bæði vörubíla og vinnu-
véla“ segir Viktor.
Iveco tekur flugið frá Kraftvélum
Kraftvélar hafa verið umboðsaðili fyrir Iveco-atvinnubifreiðar undanfarin fimm ár. Það sem af er ári hefur sala á
Iveco-vörubifreiðum gengið framar vonum og hafa á þriðja tug bíla verið fluttir inn og afhentir á árinu.
Jón Ingi Hinriksson ehf. fékk nýlega afhenta nýja Komatsu PW160-8-hjólagröfu með
Engcon-rotortilti. Fyrir á Jón Ingi Komatsu-vélar og lætur mjög vel af þeim. Jón Ingi flutti
líka Abbey-tank til Kraftvéla á Akureyri í sömu ferð.
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar hefur fengið afhenta fimm nýja Iveco-
flokkabíla til reksturs og umhirðu borgarlandsins. Nýju bílarnir leysa af hólmi gömlu
appelsínugulu Benz-flokkabílana sem hefur verið ekið um götur borgarinnar í mörg ár.
Nýju bílarnir eru öflugri og tæknilega betur búnir en fyrirrennarar þeirra. Allir eru þeir
með krana og pall sem hægt er að sturta af á þrjá vegu. Sæti eru fyrir sjö manna öflugan
vinnuflokk í hverjum bíl.
Í lok mars héldu Kraftvélar og Toyota í Kauptúni sameiginlega atvinnubílasýningu þar sem
kynntar voru Iveco- og Toyota-atvinnubifreiðar. Sýningin heppnaðist einstaklega vel og gerðu
hátt í tvö þúsund gestir sér ferð í Kauptúnið til þess að skoða bílana sem voru á sýningunni.
Kraftvélar afhentu í nóvember Ölgerðinni Agli Skallagrímssyni þrjá nýja Iveco-flutninga-
bíla. Að sögn Gunnlaugs Briem, framkvæmdastjóra vörustjórnunarsviðs Ölgerðarinnar,
var Iveco valinn vegna margra sameiginlegra þátta sem tekið var tillit til í endanlegu
vali á tegund bíls. Þegar saman fer hagstæður þjónustusamningur til fimm ára, endur-
söluverð, búnaður bílanna og innkaupsverð þá var Iveco hagstæðasti kosturinn að sögn
Gunnlaugs.
Viktor Karl Ævarsson, sölu- og markaðsstjóri, og Óskar Sigurmundason, sölustjóri atvinnubifreiða, eru ánægðir með nýju Iveco-bílana.
Við fluttum inn
þrjá bíla árið
2013 og níu bíla á öllu
árinu 2014. Það sem af er
ári til dagsins í dag
höfum við hins vegar
flutt inn og selt yfir
tuttugu bíla.
2
7
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:4
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
D
9
-2
A
6
C
1
7
D
9
-2
9
3
0
1
7
D
9
-2
7
F
4
1
7
D
9
-2
6
B
8
2
8
0
X
4
0
0
4
A
F
B
0
7
2
s
_
1
9
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K