Fréttablaðið - 20.05.2015, Qupperneq 48
KYNNING − AUGLÝSINGVörubílar og vinnuvélar MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 201526
Við erum afar ánægð með að opna sérstakan sýningarsal fyrir atvinnubíla Mercedes-
Benz og við hlökkum til að taka til
starfa hér á Fosshálsinum.
Allir at vinnumenn þek kja
Mercedes-Benz atvinnubílanna
og vita hvað þeir standa fyrir hvað
varðar gæði, þægindi, endingu og
hagkvæman rekstur. Sprinter, Vito
og Citan eru flottir og spennandi
sendibílar í stækkandi atvinnu-
bílaflota Mercedes-Benz,“ segir
Agnar Daníelsson, sölustjóri
Mercedes-Benz-atvinnubíla hjá
Öskju.
Vito er með mikla burðargetu,
alls 1.369 kíló, og öflugan aksturs-
öryggisbúnað. Vito er bæði fram-
leiddur sem sendibíll og fólksflutn-
ingabíll. Citan er boðinn í ýmsum
útgáfum, m.a. sem fjölnotabíll og
hann kemur í mismunandi lengd-
um og býður upp á fjölmarga notk-
unarmöguleika. Sprinter hefur
verið afar vinsæll og traustur bíll
hér á landi sem og annars staðar
og einn mest seldi bíllinn í sínum
flokki um árabil. Allir bílarnir hafa
fengið góða dóma fyrir aksturs-
eigin leika, gæði og hagkvæmni.
Einnig verða seldir V-Class, og
hin breiða vörubílalína Mercedes-
Benz auk hópferðabíla Mercedes-
Benz og Evobus. Mercedes-Benz er
stærsti framleiðandi atvinnubíla í
heiminum í dag. Á Íslandi hafa bíl-
arnir verið feikivinsælir og mest
seldir í mörgum af sínum flokkum.
Öll þjónusta við Mercedes-Benz-
atvinnubíla verður áfram í höfuð-
stöðvum Öskju á Krókhálsi 11.
Atvinnubíladeild
Öskju flytur á Fossháls
Söludeild atvinnubíla Öskju hefur flutt í nýjan og glæsilegan sýningarsal að
Fosshálsi 1. Salurinn er alls 350 fm að stærð og þar verða til sýnis hinir
vinsælu atvinnubílar Sprinter, Vito og Citan frá Mercedes-Benz.
Starfsmenn atvinnubílasölu Öskju, Þorsteinn Ólafsson, Agnar Daníelsson og Páll Halldór Halldórsson.
Í Noregi er til afar sérstakur traktor sem merktur er lögregl-
unni í bak og fyrir. Honum er þó ekki ætlað að elta uppi óþekka
bændur eða stjórna umferð. Hlutverk hans er aðeins sérhæfð-
ara því hann sér um að koma lögregluþyrlu á loft eins hratt og
hægt er. Frá þessu er greint á vefsíðu rb.no.
Nánar tiltekið dregur traktorinn kerru sem hin þriggja tonna
þunga þyrla stendur á út úr f lugvélaskýlinu og út á þyrlupall-
inn.
Traktorinn vinnur starf sitt á Gardermoen-flugvellinum í
Ósló og tilheyrir þyrluþjónustu norsku lögreglunnar. „Ástæðan
fyrir útliti traktorsins er sú að f lugvöllurinn gerir kröfu um að
öll farartæki sem þurfa að ferðast um innan f lugvallarins þurfi
að vera merkt fyrirtækjalógói. Þar sem okkar fyrirtæki er lög-
reglan fannst okkur ekki annað hægt en að merkja okkur trakt-
orinn í bak og fyrir í litum lögreglunnar,“ segir f lugstjóri þyrl-
unnar, Ødegaard, í viðtali við vefsíðuna.
En hvað með bláu ljósin? „Þau eru meira upp á punt, en þau
virka,“ segir f lugstjórinn.
Að öðru leyti er um afar venjulegan traktor að ræða af
gerðinni Case. „Flestir hlæja þegar þeir sjá fararskjótann og
spyrja hvort hann komist hratt. Það gerir hann ekki,“ útskýr-
ir Ødegaard.
Eini löggutraktor Noregs
Lögreglutraktorinn er vígalegur.
VINNUÞJARKAR
SEM HÆGT ER AÐ TREYSTA Á!
2
7
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:4
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
D
A
-1
7
6
C
1
7
D
A
-1
6
3
0
1
7
D
A
-1
4
F
4
1
7
D
A
-1
3
B
8
2
8
0
X
4
0
0
8
A
F
B
0
7
2
s
_
1
9
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K