Fréttablaðið - 25.06.2015, Qupperneq 2
25. júní 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 2
VEÐUR
SJÁ SÍÐU 26
Kringlan | 588 2300
Í dag er búist við austanátt, allhvassri allra
syðst. Skýjað verður í morgunsárið og
sums staðar þoka, en það ætti að létta til
víða norðan- og vestanlands eftir hádegi,
þar sem hiti verður víða 13 til 17 stig yfir
hádaginn. Mun svalara á Suðausturlandi
og jafn vel smá dropar.
SAMFÉLAG „Ég er mjög sáttur og
ég stefni á nám í eðlisfræði með
áherslu á stjarnvísindi í haust,“
segir Gunnlaugur Helgi Stefáns-
son, en hann er einn af þeim tutt-
ugu og sjö afburðanemendum
sem hljóta styrk úr Afreks- og
hvatningarsjóði stúdenta Háskóla
Íslands.
Gunnlaugur útskrifaðist frá
Menntaskólanum í Reykjavík í vor,
ári á undan jafnöldrum sínum.
Styrkurinn er veittur nemend-
um sem hafa innritað sig í skólann
í haust og var veittur við hátíðlega
athöfn á Háskólatorgi í gær. Nem-
endurnir koma úr þrettán fram-
haldsskólum víða á landinu og eiga
það allir sameiginlegt að hafa náð
eftirtektarverðum árangri á stúd-
entsprófi. Auk þess er litið til ann-
arra þátta, eins og virkni í félags-
störfum og árangurs á öðrum
sviðum.
Þetta er í áttunda sinn sem
styrkir eru veittir og nemur hver
styrkur 300 þúsund krónum.
Kristín Björg Bergþórsdóttir er
ein af þeim sem hlutu styrkinn.
Hún er dúx frá Menntaskólanum
í Reykjavík og hlaut meðal annars
verðlaun í eðlisfræði, stærðfræði,
efnafræði og tölvunarfræði.
Kristín og Gunnlaugur eru bæði
í landsliði Íslands í eðlisfræði og
taka þátt í Ólympíuleikunum í eðl-
isfræði sem verða haldnir á Ind-
landi júlí. „Ég er mjög spennt
að fara á Ólympíuleikana og við
æfum mikið,“ segir Kristín sem
stefnir á nám í stærðfræði í haust.
- ngy
Tveir styrkhafanna eru í landsliðinu í eðlisfræði og taka þátt í Ólympíuleikunum í eðlisfræði í sumar:
Afburðanemar verðlaunaðir með styrk
HÁSKÓLI ÍSLANDS Gunnlaugur Helgi
Stefánsson og Kristín Björg Bergþórs-
dóttir hlutu styrkinn. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
LÖGGÆSLA Aldrei hafa fleiri sótt
um inngöngu í Lögregluskóla rík-
isins, eða 158 manns. Umsóknar-
frestur rann út á mánudag.
„Konur hafa eflst svo á undan-
förnum árum. Þær eru fyrir löngu
búnar að átta sig á því að þær eru
jafnokar strákanna. Þeim þykir
þetta starf jafn spennandi og
strákunum,“ segir Sigríður Hrefna
Jónsdóttir, formaður valnefndar
Lögregluskólans.
Sprenging varð í aðsókn kvenna
í Lögregluskólann árið 2013, síð-
ast þegar tekið var inn í skólann.
Aðsókn kvenna, um fjörutíu pró-
sent umsókna, hefur haldist síðan
þá. „Ég rek það til Hönnu Birnu
Kristjánsdóttur [þáverandi innan-
ríkisráðherra] og hvernig hún tal-
aði um fjölgun kvenna innan lög-
reglunnar.“
Sigríður Hrefna segir að þegar
nýjum nemendum sé veitt inn-
ganga í skólann hafi farið fram
flókið mat á einstaklingunum.
„Við reynum að hafa kvarðana
hlutlæga og málefnalega. Við
stingum ekki bara hendi út og
finnum hvernig veðrið er. Þetta
snýst um að vanda sig,“ segir Sig-
ríður.
„Það er í mínum huga degin-
um ljósara að það þarf allt að fara
saman. Það þarf að hafa það þrek
sem þarf líkamlega og að búa
yfir þroska til að eiga samskipti
við fólk og þjónustulund.“
Ferilskrá umsækjenda er ræki-
lega skoðuð og gengið úr skugga
um að þeir eigi ekki við vímu-
efnavanda að stríða. „Í lang-
flestum tilfellum þá segir það sig
sjálft að umsækjandi sem hefur
ekki verið á vinnumarkaði býr
væntanlega yfir minni þroska en
sá sem hefur verið lengi á vinnu-
markaði, þó það sé ekki algilt,“
segir Sigríður.
Sálfræðingur situr í valnefnd-
inni og umsækjendur mega búast
við því að undirgangast sálfræði-
mat og streitupróf.
Aðspurð hvort kynið, karlar
eða konur, komi betur út úr mati
nefndarinnar á andlegum þátt-
um segir Sigríður: „Þegar það
var útskrifað síðast úr skólan-
um þá var niðurstaðan sú að það
voru sjötíu prósent konur á móti
þrjátíu prósentum karla. Það var
ekki á grundvelli þess að það
væri handvalið heldur var það á
grundvelli niðurstöðu ferlisins.“
Hún segir að ekki sé horft sér-
staklega til kyns þegar tekið er
inn í skólann. „Þeir hæfustu fara
í gegn. Þar sem er vafaatriði þar
hugsum við um konuna, ef þetta
eru jafn hæfir einstaklingar.“
Búist er við því að umsóknar-
ferlinu ljúki um miðjan júlí.
snaeros@frettabladid.is
Metfjöldi sækir um
í Lögregluskólann
Hundrað og sextíu manns hafa sótt um inntöku í Lögregluskólann. Aldrei hafa
fleiri stóttu um. Karlar eru sextíu prósent umsækjenda. Sextán fá inngöngu í
skólann. Sjötíu prósent þeirra sem komust í skólann síðast voru konur.
FORMAÐUR Sigríður Hrefna Jónsdóttir er formaður valnefndar Lögregluskólans
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Kona lét lífið eftir bílveltu:
Banaslys í
Seyðisfirði
SLYS Ung kona beið bana og önnur
slasaðist mjög alvarlega þegar
bíll þeirra valt í Seyðisfirði laust
fyrir miðnætti í gær. Konurnar
voru fyrst fluttar með sjúkra-
bíl til Egilsstaða og þaðan með
sjúkraflugi til Reykjavíkur þar
sem önnur konan var úrskurðuð
látin en hin lögð inn á gjörgæslu-
deild Landspítalans. Ekki var lífs-
mark með annarri konunni eftir
slysið og báru lífgunaraðgerðir
ekki árangur. Báðar konurnar hafa
verið búsettar á Seyðisfirði.
- vh
SAMFÉLAG Mála á þann hluta
Laugavegar sem er göngugata á
föstudaginn. Þetta kemur fram á
vef Reykjavíkurborgar.
Laugavegurinn verður málaður
frá horni Vatnsstígs að gatnamót-
um Ingólfsstrætis.
Fólk er beðið um að koma með
eigin rúllur og pensla en það
verða líka aukapenslar og rúllur
fyrir þá sem vilja taka þátt.
Síðasta sumar var sami hluti
Laugavegarins málaður og má
segja að það hafi slegið í gegn.
- ngy
Í boði fyrir alla að taka þátt:
Laugavegur
skreyttur á ný
MANNLÍF Hátt í þrjú hundruð börn mættu á Hafnarfjarðarhöfn í gær
og tóku þátt í árlegri dorgveiðikeppni Hafnarfjarðarbæjar. Bærinn
hefur staðið fyrir keppninni í rúm tuttugu ár.
Fyrsta fiskinn veiddi Stefanía Alexandra Trifú, kola. Þyngsti fiskur-
inn sem veiddist var einnig koli. Hann vó 363 grömm. Fiskinn veiddu
tvær stelpur í sameiningu, þær Aníta og Karen.
„Keppnin gekk eins og í sögu. Frábært veður og vel bar í veiði,“
segir Andri Ómarsson, verkefnisstjóri skrifstofu tómstundamála hjá
bænum. - þea
Árleg dorgveiðikeppni Hafnarfjarðarbæjar fór fram í gær:
Þrjú hundruð börn voru við veiði
FYRST Stefanía Alexandra Trifú veiddi fyrsta fiskinn í dorgveiðikeppni Hafnarfjarðarbæjar.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SAMFÉLAG „Við vorum beðin um
að kanna þetta og nú er verið
að skoða hvernig okkar aðkomu
að málinu verður háttað,“ segir
Óli Jón Jónsson, upplýsinga- og
alþjóðafulltrúi Ríkisendurskoð-
unar, en Ríkisendur skoðun hefur
fengið beiðni um að kanna ráð-
stöfun fjármuna ABC barna-
hjálpar.
Fyrrverandi sjálfboðaliði við
fjársöfnun til styrktar ABC
barnahjálpar sendi Ríkisendur-
skoðun erindi um málið.
Fréttablaðið greindi frá því
á dögunum að illvígar deilur
stæðu milli ABC barnahjálpar
á Íslandi og ABC barnahjálpar
í Kenía. Þórunni Helgadóttur,
formanni ABC barnahjálpar í
Kenía, var sagt upp störfum en
hún stendur fast á því að staða
hennar sé óbreytt, enda sé um
tvö aðskilin félög að ræða. ABC
á Íslandi heldur því hins vegar
fram að félagið eigi ABC í Kenía
og hefur ráðið nýjan formann í
Kenía.
Þórunn greindi frá því að
engar greiðslur hefðu borist til
stuðningsaðila barna í Kenía síð-
ustu tvo mánuði en samtökin á
Íslandi segja það ósatt.
„Ekki hefur verið tekin
ákvörðun um hvort stofnunin
verði við beiðninni,“ segir Óli og
bætir við að lagaheimildir Ríkis-
endurskoðunar til að kanna fjár-
reiður sjálfseignarstofnana séu
takmarkaðar. Óli segir að stofn-
unin geti þó gengið úr skugga
um að fjárráðstafanir slíks aðila,
einkum ráðstöfun fasteigna, séu
í samræmi við skipulagsskrá
hans.
- ngy
Heimildir Ríkisendurskoðunar til að kanna fjárreiður ABC barnahjálpar takmarkaðar:
Fengu ABC-málið til athugunar
Í KENÍA Þórunn segir ástandið í Kenía
skelfilegt. Samtökin á Íslandi hafi greitt
nemendum skólans fyrir að hertaka
hann. MYND/GUNNAR SALVARSSON
2
7
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:3
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
D
1
-4
6
F
C
1
7
D
1
-4
5
C
0
1
7
D
1
-4
4
8
4
1
7
D
1
-4
3
4
8
2
8
0
X
4
0
0
1
B
F
B
0
5
6
s
_
2
4
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K