Fréttablaðið - 25.06.2015, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 25.06.2015, Blaðsíða 46
25. júní 2015 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 34 Gunnar Leó Pálsson gunnarleo@frettabladid.is Nýjasta afurð rithöfundarins E.L. James sem skrifaði þríleikinn um hina Fimmtíu gráu skugga, leit dagsins ljós í síðustu viku og má með sanni segja að um algert laumuspil hafi verið að ræða. Ku þessi óvænta viðbót vera frásögn frá sjónarhóli Christians Gray, sem er önnur aðalpersón- anna í sögunum. Bókin féll gríðarvel í kramið, en frá því að bókinni var komið fyrir í hillum vestanhafs rauk út rúmlega ein milljón eintaka á aðeins fjórum dögum. Herma sögur að nú þegar séu uppi plön um að koma hinum tveimur bókunum á hvíta tjaldið, og staðfest hefur verið að leik- stjóri fyrstu myndarinnar, E.L. James, muni ekki koma nálægt gerð þeirra. Christian Gray segir sína hlið Gamla brýnið Rod Stewart sendi frá sér yfirlýsingu á Twitter-síðu sinni á dögunum þar sem hann til- kynnti heims- byggðinni að hann væri að verða faðir enn á ný. Nema hvað, næsta barnið er platan sem kapp- inn vinnur að í augnablikinu, en ekki níunda barnið líkt og margir hefðu hald- ið. Áætlaður fæðingardagur er ekki kominn á hreint, en október- mánuður á þessu ári er staðfestur. Platan mun bera nafnið Anoth- er Country og verður eins konar útkoma alls konar tilraunastarf- semi Stewarts, þar sem hann reynir meðal annars fyrir sér í reggítónlist. Nýtt afk væmi á leiðinni VINSÆLT Bækurnar um Christian og Ana- staciu hafa svo sannarlega slegið í gegn. NORDICPHOTOS/GETTY ROD STEWART KRINGLUNNI AKUREYRI KEFLAVÍK EGILSHÖLLÁLFABAKKA bio. siSAM DWAYNE JOHNSON FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR VARIETY THE TELEGRAPH CHICAGO SUN TIMES MÖGNUÐ GRÍNMYND SEM ALLIR VERÐA AÐ SJÁ. TED 2 5, 7:30, 10 JURASSIC WORLD 2D 8, 10:35 INSIDE OUT 2D - ÍSL TAL 5 SHE’S FUNNY THAT WAY 8 HRÚTAR 4, 6 SPY 10 STÓRSKEMMTILEG NÝ ÍSLENSK GAMANMYND FRÁ LEIKSTJÓRA BRIDESMAIDS OG THE HEAT -H.S., MBL Um sextíu prósent af þeim miðum sem selst hafa á ATP-tónlistarhátíð- ina hafa farið í hendur útlendinga og einungis fjörutíu prósent í hend- ur Íslendinga. Þessar tölur voru akkúrat öfugar í fyrra eða sextíu prósent miða seld til Íslendinga og fjörutíu til útlendinga. „Íslendingar bíða yfirleitt fram á síðustu stundu með að kaupa miða þannig að ég skil þetta alveg. Þetta gæti alveg breyst þegar líður að hátíðinni,“ segir Barry Hogan, stofnandi og skipu- leggjandi ATP-tónlistarhátíðarinn- ar. Hátíðin fer fram dagana 2.-4. júlí á Ásbrú í Keflavík. Sem stendur hafa um 3.000 miðar verið seldir á hátíðina og segist Barry vera bjartsýnn á framhald- ið. „Í fyrra seldust um 4.000 miðar í heildina, þannig að ég held að það eigi eftir að seljast fleiri miðar í ár. Maður sér mikinn mun dag frá degi,“ segir Barry. Alls eru 5.000 miðar til sölu á hátíðina en það er sami miða- fjöldi og í fyrra. „Hátíðin verður af svipaðri stærðargráðu í ár og í fyrra, helsti munurinn er kannski að það eru fleiri hljómsveitir í ár.“ Um síðustu helgi fór önnur stór tónlistarhátíð fram, Secret Sol- stice, en truflar sú hátíð ekki ATP hátíðina? „Þetta eru ólíkar hátíðir og fólkið sem sækir þær er ólíkt. Það eru fleiri tón- listarunnendur sem sækja ATP en kannski víð- ari hópur fólks og meiri partí ljón sem sækja Sol- stice-hátíðina. ATP styðst líka meira við samfélags- miðla og „word of mouth“ markaðsaðferð, en Secret Solstice reynir að ná til stærri hóps fólks og þarf því að auglýsa hana og mark- aðssetja á aflmeiri hátt og þeir eru mjög góðir í því,“ útskýrir Barry. Mannabreytingar hafa verið inn- anborðs hjá ATP en Tómas Young, sem var einn af skipuleggjendum hátíðarinnar, er ekki lengur í teym- inu. „Ef það væri ekki fyrir Tómas, þá væri ATP-hátíðin á Íslandi ekki til og hefði ekki orðið til. Það hefur alltaf verið mikill drifkraftur í honum og það er leiðinlegt að segja frá því að hann hafi þurft að fara frá okkur til að sinna öðru. Hann er okkur kær vinur og erum við enn nánir,“ segir Barry, spurður út í brotthvarf Tómasar. Mikil eftirvænting er fyrir hátíð- inni og segir Barry þá erlendu lista- menn sem fram koma á hátíðinni mjög spennta fyrir því að heim- sækja Ísland. Þekktustu tónlistarmennirnir sem fram koma á ATP í ár eru Iggy Pop, Belle and Sebastian, Public Enemy, Run The Jewels, ásamt fjölda þekktra íslenskra listamanna. 60% KAUPENDA ÚTLENDINGAR Um 3.000 miðar hafa selst á ATP-tónlistarhátíðina sem fram fer á Ásbrú í Kefl avík 2.-4. júlí. Einungis um 40% þeirra sem keypt hafa miða á hátíðina eru Íslend- ingar. Gert er ráð fyrir fl eiri gestum í ár en í fyrra. TÖFFARI I ggy Pop er á meðal þeirra listamanna sem koma fram á hátíðinni í ár. GÓÐ STEMNING Um 4.000 manns sóttu ATP- tónlistarhátíðina í fyrra og gerir Barry Hogan ráð fyrir enn fleiri gestum í ár. 2 7 -1 2 -2 0 1 5 2 2 :3 9 F B 0 5 6 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 D 2 -8 7 E C 1 7 D 2 -8 6 B 0 1 7 D 2 -8 5 7 4 1 7 D 2 -8 4 3 8 2 8 0 X 4 0 0 5 B F B 0 5 6 s _ 2 4 _ 6 _ 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.