Fréttablaðið - 25.06.2015, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 25.06.2015, Blaðsíða 18
„Já, já. Feðraveldið verður að svara því,“ sagði Brynjar Níels- son (19,5) alþingismaður spaug- samur, en fastur fyrir þegar blaðamaður (18,7) hringdi í hann að morgni laugardags og spurði hvort hann væri ekki örugglega búinn að reima á sig skóna og útskýrði fyrir honum að þeir tveir væru að fara að keppa í golfi við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur (17,7), fyrrverandi varaformann Sjálfstæðisflokksins, nú forstöðu- maður hjá SA, og Kristínu Péturs- dóttur (8,5) stjórnarformann Virðingar hf. Kristín hafði kvöldið áður talið einsýnt, þegar rætt var um hverjir væru saman í liði, að það væru stelpur á móti strák- um. „Í tilefni dagsins,“ en þá var Kvennadagurinn mikli, 19. júní. Keppnisfyrirkomulagið „róninn“ Það viðraði vel til golfiðkun- ar, gola af hafi og milt í veðri. Við vorum að fara að spila einn af allra bestu völlum landsins, Keilis völlinn á Hvaleyrinni í Hafnarfirði. „Sá eini á Íslandi sem hefur komist á topp hundrað lista yfir bestu golfvelli í Evrópu, þá fyrir utan Bretland,“ segir Ólafur Þór Ágústsson vallarstjóri og kynnir á Golfstöðinni. Og það kom á daginn að þar var engu logið, völlurinn var í fínu ástandi, flatirnar frábærar og öll umhirða til fyrirmyndar. Valsmaðurinn Brynjar var á útivelli; blaðamað- urinn, Þorgerður Katrín og Krist- ín eru hins vegar öll FH-ingar og Hafnfirðingar. Keilisvöllurinn er heimavöllur kvennanna og þær áttu eftir að nýta sér það. En, það var ekki vitað á þess- ari stundu. Brynjar og blaða- maðurinn voru býsna brattir og keppnisfyrir komulagið var ákveð- ið – „róninn“, eins og það er kallað í golfklúbbi Setbergs: Besta skor gefur einn punkt, samanlagt skor liðsins einn punkt og fugl gefur einn aukapunkt. Ráðabrugg Þorgerðar Katrínar Golfhringur Golfsíðunnar var meðal annars lagður upp með það fyrir augum að heyra hvað klukk- an slær í innviðum Sjálfstæðis- flokksins. Fyrir löngu var ákveðið að keppa við Þorgerði Katrínu og svo var hugmyndin að freista þess að fá Bjarna Benediktsson for- mann út á völl og svo Ragnheiði Ríkharðsdóttur þingflokksfor- mann, og ganga svo lymskulega á formanninn með fulltingi Evrópu- arms flokksins, með ýmsar spurn- ingar. En, Bjarni, sem er liðtæk- ur golfari, tók erindinu vel en átti ekki heimangengt, var gras ekkill þessa helgina og Ragnheiður taldi golfgetu sína ekki þannig að hún væri til frásagnar í fjölmiðlum. Brynjar var fyrsti kostur í fjar- veru formanns en þegar mögu- leikum varðandi 4. mann var velt upp, og það er svo sem ekkert auð- ugan garð að gresja þegar golf og stjórnmálamenn eru annars vegar, þá tók Þorgerður ætíð vel í hinar og þessar hugmyndir, nema kom þeirri hugmynd alltaf að, svona í aukasetningu: Svo væri náttúrlega voðalega gaman að fá Kristínu Péturs. Já, það vantaði ekkert upp á það; Kristín var góður kostur en það kom seinna í ljós að þetta var úthugsað bragð af hálfu Þorgerðar Katrínar. Kristín er frábær golfari – fulltrúar Feðraveldisins áttu eftir að komast að því fullkeyptu. Feðraveldið sá aldrei til sólar Þetta byrjaði rólega, stelpurnar náðu einum punkti strax á fyrstu holu og stöðugt seig á ógæfuhliðina fyrir fulltrúa Feðraveldisins. Og þegar Kristín negldi niður fugli á sjöundu, þá var útlitið orðið veru- lega svart. Eftir fyrstu níu, Hraunið, þá stóðu leikar þannig að stelpurn- ar voru yfir með níu punkta. Það reyndist of mikill munur. Og þó tækist að halda seinni níu í sæmi- legu jafnvægi, þá brugðust pútt blaðamannsins algerlega þegar færi voru á stigasöfnum upp í skaðann. „Þú hugsar allt of mikið til vinstri,“ sagði Brynjar þegar blaðamaðurinn lokaði pútterhausn- um einu sinni sem oftar og rúllaði kúlunni fram hjá holunni. Þó voru þarna taktar, eins og þegar Brynjar náði að bjarga sér glæsilega upp úr einni af hinum djúpu og grimmu glompum Hval- eyrarinnar og einpútta. En, það dugði hvergi til. Og Þorgerður Katrín og Kristín voru sem einn maður, þá sjaldan að það hökti í frábærri spilamennsku Kristínar, þá var það yfirleitt þegar Þorgerð- ur var að slá vel og náði að verja fenginn stigahlut. „Þú verður að láta það koma skýrt fram að þetta var FH að leggja Val,“ sagði Þor- gerður Katrín. Og hlustaði ekki á að blaðamaður væri FH-ingur, það taldist ekki með. Pólitík rædd í klúbbhúsinu Oft var rauðu kvennateigunum blótað. Þeir eru nær holu en gulu karlateigarnir og stundum fannst Brynjari þeir vera nánast í flatar- kantinum. Þá var leikurinn líka svo gott sem tapaður. Og það var svo enn til að strá salti í sárin að báðir lentu blaðamaðurinn og Brynjar í misheppnuðu upphafs- höggi; kúlan náði ekki fram fyrir kvennateiginn sem þýddi að þeir skulduðu mótherjunum bjór. Sem getur verið góður eftir hringinn í glæsilegu klúbbhúsi Keilis. Þar lengdust eyru blaðamannsins, þegar farið var að ræða innan- búðar mál Sjálfstæðisflokksins. Þorgerði aftur í pólitíkina „Það er búið að ákveða að þú kemur inn fyrir næstu kosning- ar,“ fullyrti Brynjar við Þorgerði Katrínu eftir að hann hafði keypt drykki á línuna, og vísaði til sam- tala milli sín og ýmissa áhrifa- manna í flokknum. Miðað við svip- brigði Þorgerðar Katrínar taldi hún þetta síður en svo fráleitt, en svo gaut hún hornauga til blaða- manns og ákvað að rétt væri að gefa ekki út neinar yfirlýsing- ar. Blaðamaður spurði hvernig þeim sjálfstæðismönnum litist á stjórnar samstarfið. Löng þögn. „Það eru margir góðir fram- sóknar menn,“ sagði Þorgerður Katrín. Kristín taldi ekki fráleitt að hún væri á leið í pólitík: „Eitthvað verður að gera.“ Þá eru menn helst á því að Hanna Birna Kristjáns- dóttir varaformaður muni hvergi gefa eftir hvað varðar sína stöðu innan flokks og líkast til mun ein- hver bjóða sig fram gegn henni í varaformennskuna á næsta Lands- fundi. Svo var nú farið að ræða eitt og annað „off rec“ – og víst verður að virða það. 25. júní 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 18 Nánar verður greint frá þessari viðureign á Vísi. visir.is Feðraveldið rassskellt á Hvaleyrinni Brynjar Níelsson og blaðamaður Fréttablaðsins voru teknir í bakaríið af vöskum FH-stelpum, þeim Þorgerði Katrínu og Kristínu Péturdóttur. SVEIFLA Þorgerður Katrín er með glæsilega golfsveiflu. Kristín og Brynjar fylgjast með hverju fram vindur. BÖRDÍ! Brynjar horfir sér til hrellingar á einn eitt pútt Kristínar rata í holuna. Þorgerður sviptir stönginni út áður en brestur á með þessu hljóði sem golfarar elska: Þegar kúlan hringlar í holunni. Fréttablaðið/Jakob BRYNJAR PÚTTAR Þingmaðurinn hefur átt betri daga á golfvellinum. LEIKURINN TAPAÐUR Þegar þarna er komið sögu lá fyrir að þessi leikur var tap- aður. Svipbrigðin segja í raun þá sögu alla. Jakob Bjarnar Grétarsson jakob@frettabladid.is ÚTIVIST GOLF 2 7 -1 2 -2 0 1 5 2 2 :3 9 F B 0 5 6 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 D 2 -3 D D C 1 7 D 2 -3 C A 0 1 7 D 2 -3 B 6 4 1 7 D 2 -3 A 2 8 2 8 0 X 4 0 0 4 B F B 0 5 6 s _ 2 4 _ 6 _ 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.