Fréttablaðið - 25.06.2015, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 25.06.2015, Blaðsíða 42
25. júní 2015 FIMMTUDAGUR| MENNING | 30 FIMMTUDAGUR Hljómsveitin Halleluwah held- ur upp á útgáfu plötu sinnar á Húrra í kvöld. Platan sem er samnefnd hljóm- sveitinni og heitir því Hallelu- wah kom út í vor en söngkona hljómsveitarinnar, Rakel Mjöll Leifsdóttir, var búsett erlendis við nám og því hafði ekki gefist tími til þess að efna til útgáfu- tónleika. „Núna var ég að koma heim og er búin með námið og við getum loksins haldið útgáfutónleika,“ segir Rakel Mjöll glöð í bragði og segir þau stefna á að spila plöt- una í heild. Auk Rak- elar Mjallar er Sölvi Blöndal í hljómsveit- inni sem hefur verið starfandi í rúm tvö ár. Hljómsveitin East of my Youth sér um að hita upp áður en Hallelu- wah stígur á svið og segir Rakel þær spila skemmtilegt elekrópop. Eftir tónleikana tekur Futurgrapher við og heldur stemningunni gang- andi. Tónleikarnir hefjast klukk- an 21.00 í kvöld og er aðgangs- eyrir 1.000 krónur. - gló Halleluwah heldur útgáfutónleika Fyrsta breiðskífa sveitarinnar kom út í vor og verður útgáfunni fagnað í kvöld. FUTUREGRAPHER Heldur uppi stuðinu eftir að tónleikunum lýkur. M YN D /SIG G AELLA FAGNA ÚTGÁFU Hljómsveitin Halleluwah hefur ekki haft tíma til að halda útgáfutónleika en fagnar rækilega í kvöld. Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is Viltu vita hvað eignin þín hefur hækkað í verði ? 510 7900 Þórunn Gísladóttir Löggiltur fasteignasali. Kristján Þ. Hauksson Sölufulltrúi. 696 1122 kristjan@fastlind.is www.fastlind.is Hlíðasmára 6 201 Kópavogur www.FASTLIND.is/ / Frítt verðmat og framúrskarandi þjónusta í þína þágu. Íþróttastuðningshlífar Mikið úrval af stuðningshlífum frá Sporlastic. Vandaðar vörur á góðu verði. Sporlastic vörurnar fást einnig í ýmsum apótekum. Verið velkomin í verslun okkar að Síðumúla 16, 2.h. Opið mán - fös 8.30 - 17.00 Veit á vandaða lausn HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 25. JÚNÍ 2015 Tónleikar 19.30 Blö jazz tríó spilar á veitinga- staðnum Tacobarnum við Hverfisgötu 20. Spiluð verða gömul þekkt jazzlög ásamt því að hljómsveitin spili nokkur af sínum eigin lögum. Um að gera að fá sér taco og kokteil og njóta ljúfu jazz- tónanna. 20.00 Halleluwah halda útgáfutónleika sína á Húrra. Húsið er opnað kl. 20.00 en tónleikarnir sjálfir byrja klukkutíma seinna. Aðgangseyrir er 1.000 kr. East of my youth hitar upp. 21.00 Gaukurinn við Tryggvagötu ætlar að bjóða öllum sem vilja að stíga upp á svið og leika sér með hljóðfærin sín og skapa tónlist saman. Það þarf ekki að skrá sig fyrirfram heldur verður bara stokkið upp á svið þegar tækifæri gefst. Einhver hljóðfæri verða á staðnum en mælt er með því að mæta með sín eigin. Það verður einnig Happy Hour á barnum. Það verður frítt inn og frítt að taka þátt. 21.00 Hljómsveitin Arctic Swing Trio leikur á sumardagskrá Jazzklúbbsins Múlans á Björtuloftum, Hörpunni. Sveitin er skipuð þeim Hauki Gröndal saxófónleikara, Ásgeiri Ásgeirssyni gítarleikara og Þorgrími Jónssyni bassa- leikara. Efnisskráin er samsett af ljúfum söngvum millistríðsáranna og verða leikin í léttum útsetningum félaganna sem allir eru íslenskum tónlistarunn- endum að góðu kunnir. Aðgangseyrir er 2.000 kr. og 1.000 kr. fyrir nemendur og eldri borgara. 21.00 Skemmtistaðurinn Dolly á Hafnarstræti 4 stendur fyrir svokölluðu afrobeats kvöldi. DJ Yamaho, Skeng og King Lucky munu þeyta skífum til fram á nótt. 21.00 Í Mengi á Óðinsgötu verða haldnir tónleikar með nýrri íslenskri jazzhljómsveit sem heitir Aurora og samanstendur af Helga Rúnari, Tómasi Jónssyni, Sigmari Þór og Óskari Kjart- anssyni. 21.00 Á Boston við Laugavegi 28B mun DJ Herr Gott þeyta skífum langt fram á kvöld. Lofað verður góðu stuði og miklum dansi. 21.00 DJ Hrönn og Ragga munu sjá um tónlistina á Frederiksen Ale House í Hafnarstræti. Einnig verður leynigestur sem mun sjá um að spila fyrir gesti fram á kvöld. 21.00 DJ Óli Dóri spilar á Bravó á Laugavegi 22. Margir gæti kannast við Óla Dóra en hann er með útvarpsþátt á X-inu á mánudagskvöldum kl. 23.00 sem heitir Straumur. Hann spilar reglulega á nokkrum af bestu stöðum Reykjavíkur. 21.00 Dj Synir Sælir munu sjá um að þeyta skífum á Prikinu. Þeir munu sjá til þess að gestir staðarins fái að dansa frá sér allt vit. 21.00 Anna María Björnsdóttir heldur síðbúna Jónsmessutónleika á Kaffi Flóru í Grasagarðinum. Flutt verða lög af plötunni “Hver stund með þér” sem kom út fyrr á árinu. Anna María samdi tónlistina á plötunni við ástarljóð sem afi hennar, Ólafur Björn Guðmundsson orti til ömmu hennar á 60 ára tímabili. Miðaverð á tónleikana er 2.000 kr og hægt er að nálgast miða á midi.is 21.00 Hljómsveitin Himbrimi spilar á Kex Hostel, Skúlagötu 28. Sveitin er þekkt fyrir einstaktlega dramatíska pop tónlist sem að mun eflaust falla vel í kramið hjá gestum staðarins. Frítt inn. 21.00 Trúbadorarnir Eiki og Steini troða upp á English Pub við Austurstræti 12. Þeir munu taka klassíska smelli sem að allir elska. 21.00 Kaffibarinn býður upp á húsdjús þar sem Moff og Tarkin munu þeyta skífum. 21.00 Tónlistarmaðurinn Svavar Knútur mun stíga á stokk á Cafe Rósenberg við Klapparstíg í kvöld. 22.00 Trúbadorinn Hreimur mun spila öll helstu lögin sem allir elska að syngja með á American Bar, Austurstræti 8. Sýningar 21.00 GoMobile og Stúdentakjallarinn standa fyrir uppistandi í Stúdentakjall- aranum. Kynnir kvöldsins verður Hugleikur Dagsson og það er frítt inn. Fram koma Bylgja Babýlons, Greipur Hjaltason, Þórdís Nadia Semichat, Ragnar Hansson og Snjólaug Lúðvíksdóttir. Hátíðir 18.00 Verslanir í miðbæ Hafnarfjarðar verða með opið til kl. 21.00 og Fjörðurinn verður opinn til kl. 22.00. Nóg verður um skemmti- legar uppá komur sem enginn má missa af. Tívolí verður á bílastæðunum fyrir framan Fjörðinn. 19.30 Jónsmessugleði Grósku verður haldin hátíðlega á Strandveginum í Garðabæ. Þetta mun vera stærsta fjöl- skylduhátíð Garðabæjar. Boðið verður upp á úti myndlistasýningar, fjölbreytt tónlistaratriði, leiklist og margt fleira. Frítt er á hátíðina. Námskeið 13.00 Hitt húsið mun standa fyrir örnámskeiðum í allt sumar sem kallast Pínkupons. Í þetta sinn verður haldinn fyrirlestur um að tala fyrir framan hóp af fólki. Fyrirlesturinn er fyrir unglinga á aldrinum 16 til 20 ára og verður frítt inn. Hreiðar Már Árnason og Inga Auð- björg munu sjá um örnámskeiðið. Félagsstarf 20.00 Í Friðarhúsinu að Njálsgötu 87 mun fara fram aðalfundur samtaka grænmetisæta á Íslandi. Þar verður meðal annars kosið til stjórnar og um viðurkenningar á vegum félagsins. Einnig verður staðfesting á fjármálum. Allir eru velkomnir á fundinn en aðeins skráðir félagsmenn geta kosið um mál- efni og boðið fram krafta sína. Allir áhugasamir eru hvattir til að skrá sig í félagið með því að senda tölvupóst á samtok@graenmetisaetur.is en einnig verður boðið upp á skráningu í sam- tökin á fundinum sjálfum. Leiðsögn 20.00 Borgarbókasafnið stendur fyrir kvöldgöngu sem kallast Dætur Reykjavíkur. Björn Unnar og Einar Björn, starfsmenn Borgarbókasafnsins, munu leiða gesti í kvöldgöngu þar sem leiðarstefið verður dætur Reykjavíkur og hvernig þær birtast í bókmenntum kvenna. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir. Lagt verður upp frá Borgarbókasafninu í Grófinni kl. 20. Gangan tekur um það bil eina og hálfa klukkustund og hentar öllum. Myndlist 17.00 Myndlistasýning LITKU verður haldin í menningarmiðstöðinni Gerðu- berg. Á sýningu eru fjölbreytt myndverk eftir þrjátíu og þrjá listamenn. Í tilefni af alþjóðlegu ári ljóssins 2015 er þema sýningarinnar ljósið. Flest verkin eru unnin í olíu eða akrýl á striga en einnig vatnsliti og með blandaðri tækni. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@ frettabladid.is og einnig er hægt að skrá þá inni á visir.is. 2 7 -1 2 -2 0 1 5 2 2 :3 9 F B 0 5 6 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 D 1 -5 F A C 1 7 D 1 -5 E 7 0 1 7 D 1 -5 D 3 4 1 7 D 1 -5 B F 8 2 8 0 X 4 0 0 2 A F B 0 5 6 s _ 2 4 _ 6 _ 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.