Fréttablaðið - 25.06.2015, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 25.06.2015, Blaðsíða 48
25. júní 2015 FIMMTUDAGUR| SPORT | 36 Nú er ég með fulla einbeitingu á sjálfa mig og það er það sem ég vil frekar gera nú. Hrafnhildur Lúthersdóttir SPORT SUND Hrafnhildur Lúthersdótt- ir átti frábæra Smáþjóðaleika í upphafi mánaðarins þar sem hún bætti Íslands- og mótsmetið í öllum þeim fjórum greinum sem hún keppti í auk þess að ná lág- marki í 200 m fjórsundi og 200 m bringusundi. Eftir leikana sneri hún aftur til Bandaríkjanna og um helgina keppti hún á móti í Kali- forníu þar sem hún var nálægt sínum bestu tímum. Hrafnhildur, sem er 24 ára, er nú í fyrsta sinn að æfa í Bandaríkj- unum yfir sumartímann en hún útskrifast frá háskóla sínum ytra um áramótin. „Ég er að æfa með svokölluðum „post-grad“ hópi. Við erum 10-12 saman sem erum öll að stefna að því að keppa á Ólympíuleikunum á næsta ári,“ sagði hún við Frétta- blaðið áður en hún hélt utan. „Við æfum því í metrum en ekki jördum,“ bætti hún við, en keppt er í jördum í háskólasundinu vest- anhafs en metrum á alþjóðavísu. Verður áfram úti eftir útskrift Hún segist kunna vel við að leggja nú höfuðáherslu á að æfa fyrst og fremst fyrir sig sjálfa þar sem að keppendur í háskólasundinu hugsa meira um að ná árangri fyrir lið sitt. „Ég kann betur við þetta. Nú er ég með fulla einbeitingu á sjálfa mig og það er það sem ég vil frek- ar gera nú,“ segir Hrafnhildur sem mun einbeita sér algjörlega að sundinu eftir að hún útskrifast um áramótin. „Ég verð samt áfram úti og áfram hluti af þessum hópi. Það getur vel verið að það verði við- brigði fyrir mig að gera ekkert nema synda en ég á ekki von á öðru en að það verði af hinu góða.“ Hrafnhildur er fyrst og fremst bringusundskona og reiknar ekki með öðru en að ná lágmarkinu fyrir Ríó í 100 m bringusundi, rétt eins og hún gerði í 200 m sem hefur verið hennar sterkasta grein. „Þetta eru mínar aðalgreinar og ég geri ekki mikið annað en að æfa bringusund. Ég tek æfingar í fjórsundinu öðru hverju en ekkert meira en það,“ sagði Hrafnhildur. Ætlar sér langt í Rússlandi Meðal þeirra sem hún æfir með úti eru sundkappar sem hafa náð í fremstu röð – hafa slegið heims- met og komist á verðlaunapall á heimsmeistaramótum og Ólymp- íuleikum. „Þetta er mjög góður hópur. Elizabeth Beisel [tvöfald- ur verðlaunahafi á ÓL í London] og Arkady Vyatchanin [tvöfaldur verðlaunahafi á ÓL í Peking] eru í hópnum og það er frábært að fá að æfa með fólki eins og þessu. Það gerir mér mjög gott,“ segir hún. Heimsmeistaramótið fer fram í Kazan í Rússlandi í ágúst og verð- ur Hrafnhildur þar á meðal þátt- takenda. Þar á hún góðan mögu- leika á að komast að minnsta kosti í undanúrslit í 200 m bringusundi en hún á nú 20. besta tíma ársins í greininni samkvæmt lista Alþjóða- sundsambandsins, FINA. „Ég ætla mér allavega að kom- ast í undanúrslit og við verðum bar að sjá til hvort ég kemst enn lengra. Markmiðið er allavega að komast langt.“ eirikur@frettabladid.is Æfi r með fólki í fremstu röð Hrafnhildur Lúthersdóttir er enn að bæta sig og sér ekki fyrir endann á því. Hún undirbýr sig nú af kappi fyrir HM í Kazan í ágúst og mun svo einbeita sér að því að undirbúa sig undir Ólympíuleikana í Ríó 2016. SIGURSÆL Í REYKJAVÍK Hrafnhildur vann allar fjórar greinarnar sínar á Smáþjóðaleikunum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR FÓTBOLTI Jóhannes Þór Harðarson verður fjarverandi í ótiltekinn tíma vegna veikinda í fjölskyldu hans. Þetta tilkynnti knattspyrnudeild ÍBV í gær. Jóhannes er á sínu fyrsta ári sem þjálfari ÍBV en undir hans stjórn hefur liðið náð í fimm stig og er í næst- neðsta sæti deildarinnar. Í fjarveru hans munu aðstoðar- þjálfarinn Tryggvi Guðmundsson og Ingi Sigurðsson stýra liði ÍBV, að minnsta kosti í leik liðsins gegn Breiðabliki á sunnudag. „Þetta er auðvitað leiðinleg staða sem upp er komin en með þessari lausn erum við búnir að taka á því sem snýr að liðinu,“ sagði Tryggvi við Fréttablaðið í gær. „Það er ekki nokkur spurning að þetta mun þétta okkur saman sem hóp. Ég á ekki vona á öðru,“ segir Tryggvi sem segir engra breytinga þörf vegna brotthvarfs Jó- hannesar nú. - esá Jóhannes stýrir ekki ÍBV á næstunni FÓTBOLTI Landsliðsmarkvörðurinn Hannes Þór Halldórsson segir allar líkur á því að hann muni yfirgefa norska B-deildarfélagið Sandnes Ulf í sumar. Eins og fram kom í norskum miðlum í vikunni hefur tyrkneskt félag lagt fram tilboð í Hannes Þór en þar að auki hafa önnur lið sýnt honum áhuga. „Ég er að meta stöðuna sem upp er komin og ætla að skoða aðra mögu- leika einnig. Það er eitt og annað í umræðunni og ég þarf að meta plúsa og mínusa í öllum aðstæðum,“ sagði hann í samtali við Fréttablaðið í gær. Hann segir þó að flest bendi til þess að hann sé á leið annað í sumar. „Það eru þó enn ljón í veginum en ég veit af áhuga liða og þessi mál eru komin lengra en nokkru sinni fyrr,“ segir Hannes sem var orðaður við önnur félög eftir að Sandnes Ulf féll úr norsku úrvalsdeildinni í haust. Hann vill þó lítið segja um hvort honum hugnist að spila í Tyrklandi né heldur nafngreina félagið sem gerði honum tilboð. „Það eru kostir og gallar við allt saman sem ég þarf að vega og meta út frá því hvaða aðrir kostir eru í stöðunni. Þetta er eitt- hvað sem ég þarf að melta.“ - esá Á von á því að skipta um lið í sumar Á FARALDSFÆTI Hannes Þór Halldórs- son hefur vakið áhugga nokkurra félaga. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR FÓTBOLTI Úrslitakeppni EM U-17 ára landsliða, sem er haldin hér á landi, heldur áfram í dag með fjórum leikjum. Íslenska liðið mætir því enska á Norðurálsvellinum á Akra- nesi en leikurinn hefst klukkan 19.00. Ísland fékk skell í fyrsta leik gegn sterku liði Þýskalands og íslensku stelpurnar þurfa því á jákvæðum úrslitum að halda í dag. Í hinum leik riðilsins mætast Þýskaland og Spánn en sá leikur hefst klukkan 13.00 og fer einnig fram á Akranesi. Í fyrri leik B-riðils mætast Írland og Sviss og í þeim seinni eigast Frakkland og Noregur við. Leikirnir hefjast klukkan 13 og 19 og fara fram á Laugardalsvell- inum. Riðlakeppninni lýkur svo á sunnudaginn. - iþs EM U-17 ára heldur áfram EFNILEG Kim Olafsson Gunnlaugsson lék sinn fyrsta landsleik gegn Þýska- landi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN FRJÁLSAR Hlaupadrottningin Aníta Hinriksdóttir er klár í slaginn fyrir Junioren Gala-mót- ið í Mannheim um helgina, en meiðslin sem komu í veg fyrir að hún gæti hlaupið 1.500 metr- ana á Evrópumóti landsliða um síðustu helgi eru ekki alvarleg. „Hún fékk í lærið fyrir mótið í Búlgaríu þannig það var ekki tekin áhætta á að láta hana hlaupa bæði laugardag og sunnudag,“ segir Gunnar Páll Jóakimsson, þjálfari Anítu, við Fréttablaðið. Hinn glaðbeitti Gunnar var ein- mitt staddur í Heiðmörk á æfingu með Anítu þegar blaðamaður náði í hann móðan og másandi. „Ég er ekki alveg í jafn góðu formi og hún,“ segir hann hlæjandi. Aðspurður hvað þau séu að gera í Heiðmörk svarar þjálfarinn: „Við notum mikið malarstígana hérna og það hef ég gert lengi. Það eru brekkur í Heiðmörk sem gefa styrk og svo er gott að vera ekki alltaf á harðri hlaupabrautinni.“ Gunnar Páll segir Anítu vera í góðu formi en meiðslin hafi komið í veg fyrir nokkrar „gæðaæfingar“ í aðdraganda Evrópumóts lands- liða og það hjálpaði augljóslega ekki til við undirbúninginn. Aníta á góðar minningar frá mótinu í Mannheim en þar setti hún Íslandsmet sitt í 800 metra hlaupi (2:00,49 mínútur) fyrir þremur árum. Hún vann mótið síðast í fyrra. „Ég myndi segja að möguleik- arnir væru 50-50,“ segir Gunnar Páll aðspurður hvort Aníta geti gert atlögu að Íslandsmetinu á sunnudaginn í Mannheim. „Hún var í metformi en svo gerðist þetta fyrir Evrópumótið og þá missti hún úr lykilæfingar. Ég útiloka ekki að allt geti geng- ið upp. Það hefur eflaust góð áhrif á Anítu að hlaupa þarna þar sem hún á góðar minningar frá þess- um stað. Ef skrokkurinn er tilbú- inn ætti það að gefa henni eitthvað auka,“ segir Gunnar Páll. Kuldakastið fyrir og í kringum Smáþjóðaleikana gerði æfingar Anítu ekkert betri. „Kuldakaflinn fór illa í okkar öll. Þegar maður verður að taka þessar gæðaæfingar í kulda og roki er maður bara að bjóða hætt- unni heim,“ segir Gunnar Páll. Eftir Mannheim taka við rúmar tvær vikur af stífum æfingum fyrir Evrópumót unglinga 19 ára og yngri sem fram fer í Svíþjóð. Aníta vann það mót nokkuð óvænt fyrir tveimur árum. „Hún er sigurstranglegust þar að þessu sinni og allir vilja vinna hana sem er eitthvað sem þarf að tækla. Ég sé ekki betur en að hún verði í súperformi í Svíþjóð en það er smá óvissa með Mannheim,“ segir Gunnar Páll. - tom Útilokar ekki Íslandsmetstilraun í Mannheim Aníta Hinriksdóttir ekki alvarlega meidd og æfi r stíft fyrir mótið þar sem hún setti Íslandsmetið árið 2012. Á METASLÓÐUM Aníta setti Íslandsmet í 800 m hlaupi á Junioren Gala-mótinu í Mannheim árið 2012. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN FÓTBOLTI Pablo Punyed, leikmað- ur Íslandsmeistara Stjörnunnar í Pepsi-deild karla í fótbolta, var valinn í landsliðshóp El Salva- dor fyrir Gullbikarinn eins og búist var við, en hann hefur verið fastamaður í hópnum undanfarið. Hann kemur því til móts við lið El Salvador á næstu dögum, en fyrsti leikur liðsins í Gullbikarn- um er gegn Kanada 8. júlí. Kom- ist El Salvador ekki upp úr sínum riðli spilar liðið síðasta leikinn gegn Jamaíku 14. júlí. Vegna þessa missir Punyed af leik Stjörnunnar gegn Val í Pepsi- deild karla og fyrri leiknum gegn Celtic í forkeppni Meistaradeild- arinnar. Hann hefði einnig misst af bikarleik í átta liða úrslitunum hefði liðið komist þangað. Punyed er nú þegar búinn að missa af tveimur leikjum Stjörn- unnar í deild og bikar vegna landsliðsverkefna. - tom Pablo missir af fl eiri leikjum LYKILMAÐUR Punyed er fastamaður í liði meistaranna. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN 2 7 -1 2 -2 0 1 5 2 2 :3 9 F B 0 5 6 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 D 3 -1 7 1 C 1 7 D 3 -1 5 E 0 1 7 D 3 -1 4 A 4 1 7 D 3 -1 3 6 8 2 8 0 X 4 0 0 7 B F B 0 5 6 s _ 2 4 _ 6 _ 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.