Fréttablaðið - 25.06.2015, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 25.06.2015, Blaðsíða 6
25. júní 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 6 SAMGÖNGUR „Við erum alltaf í stríði við þessa aðila og fáum enga hjálp neins staðar frá. Hvorki frá ráðuneytinu, Samgöngustofu eða lögreglu, því miður,“ segir Ástgeir Þorsteinsson, formaður bifreiða- stjórafélagsins Frama. Mikið hefur verið rætt um aukinn fjölda ferðamanna hérlendis und- anfarin misseri en leigubílstjórar sem Fréttablaðið hefur rætt við eru sammála um að það skili sér ekki í auknum viðskiptum hjá þeim. Flest hótel og gistiheimili bjóða upp á rútuferðir frá flugvelli og á hótelið. „Okkur hefur alltaf fundist við fá heldur minna hlutfall úr þessu en við teljum að við ættum að fá. Það eru margir sem eru að troða sér inn á okkar markað. Margir jafnvel ólöglegir og við erum alltaf að berj- ast í að það verði lagað og hreinsað til. Það gengur illa að fá yfirvöld til þess,“ segir Ástgeir. Það ber því ekki mikið á því að ferðamenn séu að taka leigubíl á hótelin en þess í stað hafa hóp- ferðabílar verið mjög áberandi í miðbænum undanfarið ýmsum til ama. „Stundum hefur maður það á tilfinningunni, ef við tökum skipin sem dæmi, að fólki sé sagt að það sé betra að taka rútur. Ástgeir nefnir sem dæmi ferðir út á land þar sem er borgað fyrir hvern og einn en oft geti reynst ódýrara fyrir fólk að fá tilboð í þannig ferð með leigubíl séu marg- ir saman. „Fólk er að borga morð fjár fyrir þessar ferðir út á land, en það er ódýrara í reynd ef fjórir fara saman í svona ferð á leigubíl.“ - vh Aukinn ferðamannastraumur til landsins skilar sér ekki í auknum viðskiptum hjá leigubílstjórum: Leigubílstjórar út undan í ferðamannastraumnum Reykjavík Kópavogur Hafnarfjörður Garðabær Mosfellsbær Seltjarnarnes Útsvar 1.393.920 1.390.080 1.393.920 1.315.200 1.393.920 1.315.200 Fasteignaskattur 90.000 119.250 126.000 108.000 119.250 90.000 Lóðarleiga 13.500 13.441 27.000 27.000 22.950 27.000 Sorphiðra 25.155 24.500 28.298 21.400 24.000 21.800 Holræsagjald 84.896 76.050 87.750 54.000 63.000 63.000 Leikskólagjald 275.220 315.876 358.413 400.180 366.857 346.247 Skólamáltíð 61.200 75.600 76.860 77.040 60.840 75.600 Frístund 55.575 99.187 104.234 85.320 81.000 83.700 Sund (30 skipti) 2.850 3.600 2.610 3.300 3.750 2.700 Kostnaður eftir búsetu á höfuðborgarsvæðinu afsláttur af Nicorette QuickMist til 12. júlí.15%PIPAR\TB W A • SÍ A www.apotekarinn.is Fáðu þér alvöru ferskt loft! Apótekarinn er með lausnir fyrir þig ef þú þarft hjálp við að hætta að reykja. R EY K JA V ÍK G A R Ð A B Æ R K Ó PA V O G U R M O SF EL LS B Æ R H A FN A R FJ Ö R Ð U R 2.002.316 2.117.584 2.205.085 2.091.440 2.135.567 2.025.247 KOSTNAÐUR Á ÁRI MEÐALTEKJUR 800.000 kr. EINBÝLISHÚS 200 fm2 Á LEIKSKÓLA eitt barn Í GRUNNSKÓLA eitt barn KR ➜ Forsendur útreikninga G A R Ð A B Æ R SE LT JA R N A R N ES BYGGÐAMÁL: Það er ódýrast að búa í Reykjavík en dýrast að búa í Hafnarfirði ef öll gjöld sveit- arfélaga eru tekin saman. Fyrir dæmigerða fjögurra manna fjöl- skyldu munar um 200 þúsund krónum á kostnaði í skatta og gjöld á milli ódýrasta sveitar- félagsins og þess dýrasta. Dagur B. Eggertsson borgar- stjóri segir þessar niðurstöður ekki koma á óvart. „Borgarstjórn hefur undanfarin ár forgangs- raðað í þágu barnafjölskyldna og þeirra sem eiga erfiðast með að láta enda ná saman,“ segir Dagur. Ef borin eru saman skattar og gjöld íbúa eftir sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu sést að búseta er dýrust í Hafnarfirði. Einnig eru útsvarstekjur Hafn- firðinga þær minnstu á höfuð- borgarsvæðinu. Munurinn á kostnaði fjöl- skyldna eftir búsetu er meiri ef um er að ræða einstætt for- eldri með um 500 þúsund krónur á mánuði og þrjú börn, búandi í blokkaríbúð í meðalstærð. Er þá kostnaðurinn 400 þúsund krón- um hærri á ári í Hafnarfirði en í Reykjavík eða næstum því heil mánaðarlaun. Ef skoðuð eru útgjöld og skatt- ar fjölskyldu með tvö börn í 200 fermetra einbýlishúsi þar sem annað barnið er í leikskóla og hitt í grunnskóla sést að fasteigna- skattar eru hæstir í Hafnarfirði af sveitarfélögunum á höfuðborg- arsvæðinu en lægstir í Reykjavík og á Seltjarnarnesi. Leikskólagjöld eru hæst í Garðabæ en lægst í Reykjavík og munar þar um 125 þúsund krónum á ársgrundvelli fyrir eitt barn. Hins vegar breytast hlutirn- ir gífurlega þegar einstæðing- ur er með tvö börn á leikskóla- aldri á höfuðborgarsvæðinu. Þá er kostnaður í Reykjavík lægstur eða 274.120 krónur. Kostnaðurinn í Hafnarfirði er 230% hærri eða 635 þúsund krónur. Þar kemur til að sum sveitarfélög veita ákveðnum hópum meiri afslætti en önnur. Í skýrslu Haraldar L. Haralds- sonar, bæjarstjóra Hafnarfjarð- ar, um fjármál Hafnarfjarðar- kaupstaðar sem kynnt var gær kemur einnig fram að útsvars- tekjur á hvern íbúa í Hafnarfirði eru þær lægstu af sveitarfélög- unum á höfuð borgarsvæðinu. Meðalút svarstekjur eru 413 þús- und krónur þar sem þær eru lægstar en 491 þúsund krónur á Seltjarnarnesi þar sem þær eru hæstar. Dagur segir systkinaafslætti jafna kjör og það skipti miklu máli þegar allt er tekið saman. „Þyngst vega í þessu sjálfsagt lágir fasteignaskattar á íbúða- húsnæði, ódýrar skólamáltíðir og lækkun leikskólagjalda sem að auki taka mikið mið af barna- fjölda með systkinaafsláttum og félagslegri stöðu,“ segir Dagur en hann hefur samt sem áður áhyggjur af vaxandi ójöfnuði. „Þetta breytir þó ekki því að ég hef áhyggjur af ójöfnuði, bæði almennt og ekki síst þegar kemur að aðgangi barna að frístundum, íþróttum og tónlistar námi. Þar er sannarlega ennþá verk að vinna.“ sveinn@frettabladid.is Ódýrast að búa í Reykjavíkurborg Þegar öll gjöld og skattar sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu eru tekin saman kemur í ljós að það eru ódýrast að búa í Reykjavík en dýrast er að búa í Hafnar- firði. Getur munað hundruðum þúsunda króna á hverju ári á milli sveitarfélaga. ➜ Leikskólagjöld eru hæst í Garðabæ en lægst í Reykja- vík og munar þar um 125 þúsund krónum á ársgrund- velli fyrir eitt barn. MIKIL SAMKEPPNI Ástgeir segir marga vera að troða sér inn á markað leigubíl- stjóra. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA 1. Hver er eini núlifandi Íslendingur- inn sem dæmdur hefur verið fyrir guðlast? 2. Hvað fá margir bátar makrílkvóta undir 10 kílóum? 3. Hvaða lón tengir nýja gönguleiðin Jöklastígur? SVÖR: 1. Úlfar Þormóðsson. 2. 23. 3. Jökulsárlón, Breiðárlón og Fjallsárlón. VEISTU SVARIÐ? 2 7 -1 2 -2 0 1 5 2 2 :3 9 F B 0 5 6 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 D 2 -8 7 E C 1 7 D 2 -8 6 B 0 1 7 D 2 -8 5 7 4 1 7 D 2 -8 4 3 8 2 8 0 X 4 0 0 5 B F B 0 5 6 s _ 2 4 _ 6 _ 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.